Færsluflokkur: Evrópumál
10.5.2013 | 18:29
ESB vanvirðir rétt Færeyinga rétt eins og Íslendinga
Evrópusambandinu nægir ekki að sýna eyðþjóðum í N-Atlantshafi yfirgang í makrílveiðimálum, heldur gildir það sama gagnvart Færeyingum um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum. Ólögmætt virðist framferði Damanaki, sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins, og hefur mótmælabréf þess efnis verið sent til hennar.
- "Fram kemur á vefsíðu [sjávarútvegs]ráðuneytisins [færeyska] að Damanaki hafi haldið því fram að Færeyingar hafi yfirgefið samningafund þar sem til stóð að semja um veiðarnar eða yfirgefið samningaborðið eins og hún hafi orðað það. Ráðuneytið segir að fulltrúar Færeyinga hafi alls ekki yfirgefið samningaborðið heldur hafi fulltrúar Evrópusambandsins og annarra aðila viðræðnanna í raun útilokað Færeyinga frá þeim með því að yfirgefa fundinn og halda viðræðunum áfram annars staðar án þeirra.
- Fram kemur á vefsíðunni að slíkt framferði gangi gegn alþjóðalögum og er Evrópusambandið að lokum hvatt til þess að viðurkenna mikilvægi sanngjarnrar stýringar á veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum." (Mbl.is.)
Íslendingar ættu að veita sérhverju slíku hrokatilfelli Brusselbossa sérstaka athygli og láta sér að kenningu verða. Stórveldin í Evrópu hafa sjaldan eða aldrei sett hagsmuni smáþjóða þar ofar sínum eigin. Svo mun ekki verða, ef ein slík bætist þar við og fær 0,06% atkvæðavægi í hinu volduga ráðherraráði í Brussel, sem fer m.a. með æðsta löggjafarvald í sjávarútvegsmálum. Smáþjóðin, sem hér um ræðir, er raunar ekki Færeyingar, heldur Íslendingar!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Voru útilokaðir frá frekari viðræðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Guðmundur 2. Gunnarsson ritaði á þessari vefslóð:
Það er ekki hægt að fá neinar varanlegar undanþágur frá lögum ESB, sagði Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, á blaðamannafundi í Brussel þegar spurt var út í sjávarútvegsstefnu sambandsins, og Össur gerði sig að fífli með að svara efnislega - að það væri ekkert mál að semja um varanlegar undanþágur.
Eftir að Össur hafði svarað spurningunni bætti Füle við: Að í sambandi við þessi mál yrði að hafa í huga að ESB veitti ekki varanlegar undanþágur frá lögum sambandsins.
Forsvarsmenn ESB hafa alla tíð verið ærlegir gagnvart Íslendingum um það að Ísland yrði með inngöngu í ESB að beygja sig undir sameiginlegar samþykktir ESB. Í Fréttablaðinu 8. nóvember síðastliðinn sagði Olli Rehn, stækkunarstjóri ESB, að það væru: Engin fordæmi fyrir varanlegri undanþágu. Emma Bonino, framkvæmdarstjóri sjávarútvegsmála ESB, í viðtali við Morgunblaðið 1995 þegar hún sagði að Ísland fengi ekki full yfirráð yfir fiskveiðilögsögu sinni heldur yrði eins og önnur aðildarlönd að gangast undir hina sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB. Orðrétt sagði hún: Meginreglan er sú að sameiginleg stefna er öllum sameiginleg, hvort sem um er að ræða fiskveiðar eða landbúnað. Sami rammi gildir fyrr alla.
Svo mörg voru þau orð. Séð í þessu ljósi þarf vart að undrast þegar rifjuð eru upp orð norska stjórnmálaforingjans Eriks Solheim sem sagði varðandi tvær árangurslausar inngöngutilraunir: Það er mjög lítill skilningur innan EB á sérstöðu Norðmanna. Fiskurinn er undirstaða búsetu eftir allri strandlengju Noregs. Þessu hefur EB ekki sýnt áhuga.
Birt með leyfi höfundar, Guðm. Gunnarssnar.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 06:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2013 | 16:12
9% Svía vilja evru!
Ef við tökum mark á frændþjóðum með reynslu af Evrópusambandinu, ættu viðhorf Svía sízt að freista okkar til að stefna hér að upptöku evru. Einungis 9% Svía vilja taka upp evruna. Ekki hafa Danir heldur gert það, og eru sumar þjóðir jafnvel farnar að tala um að hverfa af evrusvæðinu, eftir að annmarkar þessa gjaldmiðils fóru að koma æ skýrar fram, eftir að hann komst yfir fermingaraldur.
Páll Vilhjálmsson blaðamaður ritar:
- Evran eyðileggur samstöðuna í Evrópusambandinu þar sem hún gerir kröfur um að öll efnahagskerfin 17 sem nota gjaldmiðilinn taki upp þýska fjármálastjórn. Og það einfaldlega gerist ekki.
- Eina leiðin til að bjarga evru er að smíða utan um hana Stór-Evrópu þar sem sameiginlegt ríkisvald þvingar þjóðfélög undir sameiginlega efnahagsstefnu.
Þetta telur Páll ekki munu gerast, og óneitanlega geta viðhorf Svía bent til þess, að hann hafi rétt fyrir sér, en einungis 11% Svía vilja, að Evrópusambandið verði að einu sambandsríki, skv. þeirri sömu skoðanakönnun, sem hér sagði frá og unnin var í tengslum við rannsókn prófessors í stjórnmálafræði við Gautaborgarháskóla og birt í sænska ríkisútvarpinu Sveriges Radio (sjá tengil hér neðar).
En okkur ber einnig að minnast hins, að harla litlu ráða Svíar í Evrópusambandinu, hafa t.d. 10 atkvæði nú af 345 í ráðherraráðinu í Brussel skv. Nice-samningnum, þ.e. 2,9%, en missa um 36% af atkvæðavægi sínu við gildistöku Lissabon-sáttmálans í þessu efni hinn 1. nóvember 2014 og verða þá með einungis 1,85% atkvæðavægi.
Vilji ráðamanna í Brussel, París og Bonn er alveg ljós: meiri samlögun og stefna á sambandsríki, enda var sú jafnvel stefna ESB-þingsins strax fyrir aldamótin. Joschka Fischer, fyrrv. utanríkisráðherra Þýzkalands, tjáir vel þennan vilja ESB-ráðamanna í grein, sem birtist eftir hann í Mbl. í dag, þar sem hann segir m.a.:
- "Það hefur lengi verið ljóst hvað þarf að gera. Verðmiðinn á því að myntbandalagið komist af, og þar með Evrópuverkefnið, er nánara samstarf: bankabandalag, fjármálabandalag og stjórnmálalegt bandalag. Þeir, sem eru þessu mótfallnir vegna þess að þeir óttast sameiginlega ábyrgð, tilfærslu fjármuna frá ríkum til fátækra og að missa fullveldið, munu þurfa að sætta sig við endurkomu þjóðríkisins í Evrópu ..." o.s.frv.
Íslendingum er það hins vegar fullljóst, að þeir vilja halda sínu þjóðríki. Að munztra okkur á björgunarskip evrunnar gæti hins vegar orðið okkur skeinuhætt. Tilraunin er í reynd líkleg til að mistakast, enda gæti evran sjálf staðið stórveldisdraumum ráðamanna ESB* fyrir þrifum, og því fáum við líka þessi viðbrögð frá Þýzkalandi (með orðum Páls Vilhjálmssonar):
Fjármálaráðherra Þýskalands, þegar evran varð að mynt Evrópusambandsins, Oskar Lafontaine, afneitar afkvæminu og vill gjaldmiðilinn feigan áður en sambandið splundrast.
* Sbr. stórveldisyfirlýsingar tveggja forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Jacques Delors (1985-1995) og Barrosos (2004-2013-).
Jón Valur Jensson.
![]() |
9% Svía vilja taka upp evruna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2013 | 21:29
Björn S. Stefánsson: Næst förum við öðru vísi að
Jóhannes Snorrason (1917-2006), yfirflugstjóri, beitti sér mjög gegn aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, sem tekist var á um fyrir einum tveimur áratugum. Ég kynntist honum í þeirri baráttu. Hann sagði mér þá, af hverju hann væri knúinn í baráttunni. Það var þannig, að hann lærði að fljúga í Kanada í stríðinu, og fyrst eftir stríð flaug hann milli Kanada og Evrópu. Eitt sinn varð hann í vélinni áheyrandi að tali þýskra farþega, Þeir hafa væntanlega ekki gert ráð fyrir, að flugmaður á kanadískri vél skildi þýsku, eins og Jóhannes gerði eftir menntaskólanám á Akureyri. Þeir þóttust eiga dálítið undir sér, heyrðist honum. Stríðslokin voru rædd, og þeir sögðu: Næst förum við öðru vísi að. Jóhannes kvaðst líta á myndun Evrópska efnahagssvæðisins í þessu ljósi -- með því sæktu þjóðverjar fram -- og orð þeirra sóttu á hann.
Í vetur hitti ég í fyrsta sinn eftir tuttugu ár son Jóhannesar, Snorra bónda á Augastöðum í Hálsasveit og refaskyttu. Það var í Snorrastofu (Sturlusonar) í Reykholti. Hann flutti þar erindi um refinn. Á eftir ræddi ég við Snorra um sögu Jóhannesar af samtali þýsku farþeganna og hvers vegna hann hafði hana ekki með um árið í skrifum sínum. Mér hafði dottið í hug, að sem flugmaður hafi hann almennt verið bundinn trúnaði um það, sem hann yrði vitni að í starfi, þótt hann segði mér þetta að vísu. Snorri taldi, að trúnaðinum hlyti nú að vera aflétt.
Í Morgunblaðinu 11. f.m. er grein eftir Atla Harðarson, sem lýsir því, hvernig nú er farið að því að taka Ísland. Það var öðru vísi farið að fyrir stríð, þegar þjóðverjar voru hér undir ýmsu yfirskini. Síðar mátti átta sig betur á því. Grein Atla heitir Hvernig er hægt að komast í Evrópusambandið þótt flestir vilji vera fyrir utan það?
Morgunblaðinu, 1. maí 2013; endurbirt hér með leyfi höfundar, sem er dr. scient.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í upplýsandi grein á Mbl.is í gær* kveður Már Wolfgang Mixa niður klisjutal á borð við að upptaka evru myndi galdralausn við að lækka fjármagnskostnað.
"Gaman væri ef lífið væri svo einfalt," segir hann. "Vandamálið á Íslandi er að raunvextir eru miklu hærri en í nágrannaríkjum og það hefur ekkert með gjaldmiðil okkar að gera. Hér hefur lánakerfið verið um árabil slakt og bankakerfið kostnaðarsamt í samanburði við önnur lönd. Í landi þar sem að gæði lánveitinga hafa verið jafn slakar og á Íslandi þarf stöðugt að afskrifa allt of stóran hluta útlána. Slíkur kostnaður er dekkaður með því að hækka raunvexti fyrir alla hina. Með of dýru bankakerfi þarf að leggja enn hærri vaxtakostnað á lán. Til að bæta gráu oná svart var allt gefið í botn síðastliðinn áratug varðandi lánshlutföll af húsnæði og gylliboðum af hálfu bankanna með alkunna endalokum. Krónur eða evrur skipta einfaldlega engu máli í þessum efnum; svo lengi sem gæði útlána á Íslandi eru slök þá verða raunvextir hérlendis háir, allt of háir."
- "Samfylkingin fjallaði ... nánast ekkert um fjármál [í kosningabaráttunni]. Það var eiginlega aðeins eitt atriði; upptaka evru.
- Þrátt fyrir að almenningur virtist hafa takmarkaðan áhuga á Evrópumálin í aðdraganda kosninga ákvað Samfylkingin að spila enn einu sinni evrutrompinu um að upptaka hennar myndi leiða til lægri fjármagnskostnaðar. Í (hræðilegri) auglýsingaherferð var meðal annars vitnað í að íslensk fjölskylda borgar heimili sitt að jafnaði tvisvar en evrópsk fjölskylda borgar sitt aðeins einu sinni. Ekki kom fram í auglýsingarherferðinni hvort verið væri að miða við raunvirði eða nafnvirði né hvort miðað væri við sambærileg lán hvað meðallengd varðar. Skilaboðin eru hins vegar augljós: Upptaka evru myndar einhverja galdralausn við að lækka fjármagnskostnað." (Framhaldið svo eins og hér ofar sést, en greinin er mun lengri.)
* Hér er greinin opin öllum að lesa: Stefnu(fjár)mál íslenskra stjórnmálaflokka. Á þessum tengli er hins vegar hægt að hlusta á Má ræða þessi mál á Mbl Sjónvarpi.
Jón Valur Jensson.
Evrópumál | Breytt 4.5.2013 kl. 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Í upplýsandi grein Mbl.is í gær* kveður Már Wolfgang Mixa niður klisjutal á borð við að upptaka evru myndi galdralausn við að lækka fjármagnskostnað.
"Gaman væri ef lífið væri svo einfalt," segir hann. "Vandamálið á Íslandi er að raunvextir eru miklu hærri en í nágrannaríkjum og það hefur ekkert með gjaldmiðil okkar að gera. Hér hefur lánakerfið verið um árabil slakt og bankakerfið kostnaðarsamt í samanburði við önnur lönd. Í landi þar sem að gæði lánveitinga hafa verið jafn slakar og á Íslandi þarf stöðugt að afskrifa allt of stóran hluta útlána. Slíkur kostnaður er dekkaður með því að hækka raunvexti fyrir alla hina. Með of dýru bankakerfi þarf að leggja enn hærri vaxtakostnað á lán. Til að bæta gráu oná svart var allt gefið í botn síðastliðinn áratug varðandi lánshlutföll af húsnæði og gylliboðum af hálfu bankanna með alkunna endalokum. Krónur eða evrur skipta einfaldlega engu máli í þessum efnum; svo lengi sem gæði útlána á Íslandi eru slök þá verða raunvextir hérlendis háir, allt of háir."
* Hér er greinin opin öllum að lesa: Stefnu(fjár)mál íslenskra stjórnmálaflokka. Á tenglinum hér fyrir neðan er hins vegar hægt að hlusta á Má ræða þessi mál á Mbl Sjónvarpi.
![]() |
Óvönduð útlán í íslensku bankakerfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.5.2013 | 23:44
Flott mótmæli Heimssýnar
Glæsilega heppnaðist mótmæla-átak Heimssýnar-fólks í dag, 1. maí, með þátttöku í göngu niður Laugaveg og útifundi á Ingólfstorgi. Hátt í 60 manns báru mótmælaspjöld og stóra borða, og margir aðrir fylgdu með, samherjar í baráttunni gegn inntöku Íslands í Evrópusambandið.
Á spjöldin var m.a. ritað: NEI við ESB og ESB NEI TAKK, og meðal þeirra, sem báru borðana, voru þrír fyrrverandi þingmenn, Jón Bjarnason, Atli Gíslason og Bjarni Harðarson.
Það var gleðilegt að taka þátt í þessu, og margir eldri samherja sá maður á svæðinu (á myndinni má m.a. kenna Guðna Karl Harðarson, sem sat með undirrituðum í stjórn Þjóðarheiðurs, samtaka gegn Icesave, Kristínu Snæfells Arnljótsdóttur og Árna Thoroddsen). Áhrifamenn í Heimssýn voru þarna vitaskuld, Gunnlaugur Snær Ólafsson, Halldóra Hjaltadóttir, Þorleifur Gunnlaugsson varaborgarfulltrúi, Ásgeir Geirsson úr Reykholti, formaður Ísafoldar, o.fl. Skoðið fleiri myndir, sem fylgja frétt Mbl.is (tengill neðar), einnig á Facebókarsíðu Nei við ESB.
En það var líka frábært að kynnast nýju baráttufólki á svæðinu og efla samstöðuna bæði á vettvangi og yfir góðum kaffisopa eftir á í rúmgóðri skrifstofu Heimssýnar að Hafnarstræti 18.
Meira af svo góðu, Heimssýnarfólk og fullveldissinnar allir!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Mótmæltu hugsanlegri ESB-aðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 2.5.2013 kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.4.2013 | 03:27
Metatvinnuleysi á Spáni og Frakklandi: hátt í 10 milljónir!
Á 2. og 4. stærstu hagkerfum evrusvæðisins, Frakklandi og Spáni, fjölgar stöðugt atvinnulausum.
Rúv-frétt í gær: Atvinnuleysi á Spáni meira en 27%. Þar segir m.a.: "Á síðasta ársfjórðungi í fyrra var atvinnuleysið 26,2%. Atvinnulausum fjölgaði um tæplega 240 þúsund milli ársfjórðunga [fleiri en allir starfandi menn á Íslandi] og eru nú 6,2 milljónir án vinnu á Spáni." [Leturbr. og innsk. jvj.]
Á Mbl.is er nánari frétt af þessu,* þar sem m.a. segir: "Atvinnuleysi hefur ekki verið meira á Spáni síðan árið 1976, ári eftir dauða einræðisherrans Franciscos Franco."
- Sífellt fleiri eru án atvinnu í Frakklandi og í mars bættust 36.900 manns við atvinnuleysisskrána. Það eru því rúmlega 3,2 milljónir manna í atvinnuleit í landinu nú um stundir (Mbl.is.), það mesta frá 1997.
Sem sé: Hátt á 10. milljón manna án atvinnu í þessum tveimur löndum! Ekki er þetta björgulegt, eða hvernig eiga stór ESB-ríki eins og Frakkland að bjarga þeim veikari eins og Kýpur, Grikklandi, Portúgal og Írlandi, ef sífellt hallast meira á verri hliðina hjá þeim sjálfum?
Samt er "evruland" óskaland og útópía Samfylkingar og "Bjartrar framtíðar"!
Jón Valur Jensson.
![]() |
3,2 milljónir Frakka í atvinnuleit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 03:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2013 | 04:23
Samfylking: flokkurinn sem má blygðast sín gagnvart fullveldissinnuðum Íslendingum
Sá Össur Skarphéðinsson, sem með gróflegum hætti tók fundarstjórn yfir drjúgan tíma í Sjónvarpi í fyrrakvöld, greip fram í og hélt svo uppi ítrekuðum spurningum í ræðutíma annarra, fyrir utan ýmis billeg eigin rök, reynir nú að spana Samfylkingarmenn upp í að skrökva því að þjóðinni, að vinstri stjórnin hafi "unnið afrek"!
Ekki bað hann flokksmenn sína, þrátt fyrir fríverzlunarsamnng við Kína, að fyrirgefa sér frumhlaup Samfylkingar-þingmanna með ólögmætri ESB-inntökuumsókn og þvingun Vinstri grænna undir það jarðarmen, sem síðan hefur kostað okkur á annan milljarð í ríkisútgjöldum.
Nei, áfram skal haldið, og með hjálp "hagstæðra" "fréttamanna" á bæði Ríkisstjórnarútvarpi og 365-fjölmiðlum er reynt að standa áfram gegn þeim 70% þjóðarvilja: að fara EKKI inn í ESB, með því að halda því sífellt fram, að við getum ekkert vitað um "endanlegan samning", fyrr en hann hafi allur verið skrifaður, og þess vegna þurfi að "halda samningaviðræðum áfram"! Þessu trúa mjög margir þeirra, sem vilja í könnunum halda þessu ferli áfram.
Því er svo haldið fram, að við "fáum pakkann" eftir 1-2 ár -- eitt ár segja þeir, sem ljúga hér blákalt, gegn mati aðalmannsins Stefáns Hauks Jóhannessonar, sem bendir á, að þetta taki tvö ár, enda er aðeins 11 af 33 eða 35 "köflum" lokið á þremur árum. Á þá að ljúka 22 (þar á meðal þeim erfiðustu) á einu ári?!! Gleymið því, Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir! -- nær væri að tala um þrjú ár!
Svo verður ekki um neinn "samning" að ræða. Lagaverk Evrópusambandsins er "non-negotiable" með þess eigin orðum! Fyrirbærið heitir ekki "samningur" á erlendum málum, heldur accession treaty (inntökusáttmáli), sem er sami accession treaty eins og hjá öðrum nýjum ESB-ríkjum (enda gjarnan gerður við nokkur þeirra í einu, sbr. HÉR : ríki sem við öll þekkjum!), með örfáaum undantekningaratriðum fyrir hvert ríki og þá að meirihluta til tímabundnum.
Hvað eru t.d. komin mörg raunveruleg samningsatriði út úr þessum 11 loknu köflum? Er það ekki einhver sægur af íslenzkum hagsmunamálum, sem náð hefur þar í gegn? Nei, því er ekki að heilsa, heldur einungis fjögur atriði skv. Stefáni Hauki Jóhannessyni! Flest eru þau alger smáatriði í íslenzku þjóðlífi og þjóðarbúskap, eins og : að við höldum hér fyrirkomulagi okkar á áfengis- og tóbakssölu, sem og, að EF við förum út í að selja rafmagn til meginlandsins með sækapli, þá megum við sækja um styrk til þess! Já, upp á náð og miskunn Evrópusambandsins! Og þriðja: að Ísland fái að hafa sína sérútfærslu á reglum um frjálsa för vinnuafls. Einungis fjórða atriðið virðist þungvægt: að Ísland sé og verði herlaust land. En sá texti er reyndar teygjanlegur, og í svörum Stefáns um þessi fjögur atriði liggur almennt ekki fyrir, hvort þau verði varanleg eða tímabundin. (Flestar undanþágur Möltu, sem varð meðlimaríki ESB 1.5. 2004, eru t.d. nú þegar útrunnar.)
Af hverju tók Össur ekki þennan "poka" með atriðunum fjórum með sér til að "opna" hann á Samfylkingarfundinum? Af hverju auglýsti hann ekki þennan "glæsilega árangur" og þessi "afrek" í þættinum í Sjónvarpi í fyrrakvöld, til að sýna, að hans menn, ESB-predikarinn Þorstein Pálsson & Co., lögðu ótrúlega mikið á sig til að fá ómetanlega hluti í aðra hönd fyrir okkur Íslendinga gegn því lítilræði að lofa upptöku 100.000 blaðsíðna af lögum og reglugerðum Evrópusambandsins ... og að halda síðan áfram að taka við ÖLLUM lögum og tilskipunum þaðan til eilífðarnóns! ... og að lofa því, að þau lög skuli hafa allan forgang fram yfir íslenzk lög, ef þau rekast hver á annars horn!
Samfylkingin hefur trúlega brotið stjórnarskrána ítrekað í þessu ESB-"ferli" sínu, eins og leidd hafa verið rök að hér á vefsetrinu. Slíkt á ekki að afsaka né að klappa yfir það á fundum Samfylkingar og í meðferð hlutdrægra fjölmiðlamanna, heldur er þetta trúlega Landsdómsverkefni og það án tafar.
PS. Og vegna orðalags ráðherrans -- sem er að missa umboð sitt þrátt fyrir stjórnunartakta sína, sem nefndir voru hér fyrst í greininni -- já, vegna orðalags hans* í neðangreindri frétt alveg undir lokin, þá má spyrja hér að lokum: hve margir eru "fleiri en færri", Össur Skarphéðinsson? En slík grautarhugsun á kannski ágætlega við í höfði þessara ringluðu, úrræðalitlu evrókrata.
* "Ef það tekst þá munu fleiri en færri vakna steinhissa morguninn eftir kosninganóttina."
Jón Valur Jensson.
![]() |
Bognar stundum en brestur aldrei |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 04:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.4.2013 | 03:39
Kemst þá evran aldrei til fullorðinsára?
Ég held að evran eigi sér takmarkaðar lífslíkur," segir dr. Kai Konrad, formaður ráðgjafarnefndar í þýzka fjármálaráðuneytinu! Hann telur að vísu Evrópusambandið mikilvægt, en ekki evruna.
Hvað segir nú Árni Páll Árnason, erfingi evru-maníu Samfylkingarinnar, við þessum fréttum? Gerir hann sér kannski ferð til Berlínar til að leiðrétta meintan misskilnings þessa sérfræóða manns?
En um þetta má fræðast nánar gegnum tengil hér neðar.
JVJ.
![]() |
Telur lífslíkur evrunnar takmarkaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |