Bloggfærslur mánaðarins, júní 2019

ÍSLAND

 

Ísland, farsælda frón og hagsælda, hrímhvíta móðir! 

Hvar er þín forn­ald­ar­frægð, frelsið og mann­dáð­in bezt?

Allt er í heim­inum hverf­ult, og stund þíns feg­ursta frama 

lýs­ir sem leift­ur um nótt langt fram á horf­inni öld.

Landið var fagurt og frítt og fann­hvít­ir jöklanna tindar,

himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart.

Þá komu feðurnir frægu og frjálsræðis­hetjurnar góðu 

austan um hyldýpishaf, hingað í sælunnar reit.

Reistu sér byggðir og bú í blómguðu dalanna skauti,

ukust að íþrótt og frægð, undu svo glaðir við sitt. 

Hátt á eldhrauni upp, þar sem ennþá Öxará rennur 

ofan í Almannagjá, alþingið feðranna stóð. 

Þar stóð hann Þorgeir á þingi, er við trúnni var tekið af lýði. 

Þar komu Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll. 

Þá riðu hetjur um héruð, og skrautbúin skip fyrir landi 

flutu með fríðasta lið, færandi varninginn heim. 

Það er svo bágt að standa í stað, og mönnunum munar 

annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið.

Hvað er þá orðið okkar starf í sex hundruð sumur?

Höfum við gengið til góðs  götuna fram eftir veg? 

Landið er fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, 

himinninn heiður og blár, hafið er skínandi bjart. 

En á eldhrauni upp, þar sem ennþá Öxará rennur 

ofan í Almannagjá, alþing er horfið á braut.

Nú er hún Snorrabúð stekkur, og lyngið á Lögbergi helga

blánar af berjum hvert ár, börnum og hröfnum að leik.

Ó, þér unglinga fjöld og Íslands fullorðnu synir!

Svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá!   

                                            Jónas Hallgrímsson, 1807-1845


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband