Óhjálpfús Björn Bjarnason við leitina að sannleikanum um EES

Það blasir við að vefur hans getur ekki leitt til lykta rökræðu um hugsanlegt gildi EES, því að engar athugasemdir leyfir BB á vef sínum.

Lokadómsorð um þau mál verður ekki kveðið upp af fyrir fram rammhlutdrægum Birni Bjarnasyni. Og það er ljóður á ráði hans að leyfa ekki orðræðu um fullyrðingar sínar, heldur halda bara áfram  að predika sína einhliða framsetningu og láta sem hann hafi kveðið mótrök í kútinn.

Um þessi mál þarf að fjalla nánar í yfirliti og verður gert.

JVJ.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Ólafur Ísleifsson, Alþingismaður, hefur haldið því fram, að þessi vanbúna EES-skýrsla frá 01.10.2019 fjalli ekki um það, sem Alþingi bað um.  Elías B. Elíasson, verkfr., bætti um betur í Mogganum í gær og taldi hana ekki einu sinni svara spurningum ráðuneytisins, sem fól Birni Bjarnasyni og tveimur öðrum lögfræðingum að rita skýrslu um reynsluna af EES.  Björn þrætir fyrir það í Mogganum í morgun, eins og honum einum er lagið, og mun væntanlega fá útlistun.  Það blasir hins vegar við brýn þörf á því að semja almennilega, hlutlæga skýrslu, þar sem kostir og gallar ásamt valkostum verða tíundaðir.

Bjarni Jónsson, 22.10.2019 kl. 11:22

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég þakka þér fyrir þetta, Bjarni. Það má líka endurtaka part af grein minni hér, þar sem komið var inn á þetta sama og fleira, og hér er ég að rekja viðhorf dr. Ólafs: 

      • "Þrátt fyr­ir ósk Alþing­is [með samþykkt þeirrar beiðni sem dr. Ólafur bar fram 2018] um út­tekt á kost­um og göll­um aðild­ar­inn­ar að EES-samn­ingn­um hafi hóp­ur­inn ákveðið að sinna ekki því verk­efni, held­ur þess í stað leggja áherslu á rétt­indi, skyld­ur og ávinn­ing af aðild­inni. Þessi orð og fleira veki upp þá spurn­ingu hvort skýrslu­beiðni Alþing­is hafi í raun verið full­nægt með þess­ari skýrslu."

      • "Það veki einnig at­hygli að ekki skuli hafa verið lagt fyr­ir starfs­hóp­inn í er­ind­is­bréfi hans frá ut­an­rík­is­ráðuneyt­inu að fjalla um kosti og galla EES-aðild­ar­inn­ar, held­ur hafi hon­um aðeins verið falið að fjalla um ávinn­ing Íslands af aðild­inni og síðan helstu úr­lausn­ar­efni sem stjórn­völd hafi tek­ist á við vegna henn­ar."

      • „Ég sakna þannig mun gagn­rýnni umræðu um aðild Íslands að EES-samn­ingn­um í þess­ari skýrslu,“ seg­ir Ólaf­ur ...

      Og við tökum einnig eftir því hér, að í rauninni var utanríkisráðherrann Guðlaugur fyrir fram ekki hlutlaus um það sem hann bað nefndina um, og erindisbréf hans til nefndarinnar ber því vitni, að hann leggur þar leiðandi spurningar og verkefni fyrir nefndina --- að ekki stóð til að gera göllum EES-aðildar mikil skil, eins og líka sést á því, að engir heildar-útreikningar á fjárhagslegum nettóhag eða nettótapi af EES-aðildinni eru tíundaðir í skýrslunni.

      En þetta hátterni hlutdrægs utanríkisráðherrans er hins vegar ekki í samræmi við upphaflegu beiðnina frá dr. Ólafi, sem samþykkt var frá Alþingi, áður en Guðlaugur Þór fór um hana höndum sínum!!

      Jón Valur Jensson, 22.10.2019 kl. 15:27

      3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

      Þeir hafa sitt fram í krafti valdsins sem trúgjarnir kjósendur veittu þeim; það er aðeins tímaspursmál hvenær völdin verða tekin af þeim.

      Helga Kristjánsdóttir, 23.10.2019 kl. 03:29

      4 Smámynd: Jón Valur Jensson

      Skörulega mælt, Helga.

      Með kærri félagskveðju,

      Jón Valur Jensson, 23.10.2019 kl. 04:28

      5 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

      Björn Bjarnason skýlir sér bak við erindisbréf, segir að unnið hafi verið samkvæmt því. Nú hef ég ekki séð það erindisbréf og verð því að trúa því að BB sé að segja satt. En sé svo er ljóst að utanríkisráðherra hefur ekki sinnt sinni skyldu, að skipa nefnd til að skoða kosti og galla EES aðildar, eins og ályktun alþingis hljóðaði upp á.

      Svo má auðvitað skoða málið með bjartsýnisaugum, að ráðherra sé einungis hálfnaður með það verkefni sem alþingi fól honum. Að hann hafi kannski ætlað að skipta því í tvennt. Fyrst að fá fram skýrslu um kosti aðildar og síðan að skipa annan hóp til skýrslugerðar um ókostina. Þegar hann skipaði í nefndina sem skoðaði kostina valdi hann fólk sem sérstaklega er umhugað um aðildina. Hann beitir þá væntanlega sömu meðulum við val í nefnd um skoðun á ókostunum og velur fólk sem er á móti aðild, eða hvað?

      Í öllu falli verður að klára málið. Alþingi setti ráðherra fyrir verkefni og honum ber að klára það!

      Gunnar Heiðarsson, 23.10.2019 kl. 08:23

      6 Smámynd: Jón Valur Jensson

      Mjög gott innlegg frá þér, Gunnar, og glögg þín rök fyrir þessu!

      Já, þrýsta þarf á ráðherrann að stofna til nýrrar 20 millj. króna nefndar þar sem Björn Bjarnason á engan hlut að máli, en hins vegar ágætir, faglegir og afar upplýstir menn á borð við Bjarna Jónsson rafmagnsverkfræðing, Stefán Má Stefánsson lagaprófessor og Jón Bjarnason, fyrrv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Gunnar Heiðarsson væri prýðilegur sem rökvís ritari nefndarinnar.

      Jón Valur Jensson, 23.10.2019 kl. 13:05

      Bæta við athugasemd

      Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

      Innskráning

      Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

      Hafðu samband