Færsluflokkur: Fullveldi og sjálfstæði Íslands
11.4.2013 | 14:35
Af Evrópusambands-stofustássinu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
Hanna Birna hafði engar vöflur á því, heldur valtaði yfir samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokks örstuttu eftir hann, í drottningarviðtali í Silfri Egils. Hún lýsti sig þar andstæða hinni sjálfsögðu lokun Evrópusambandsstofu, sem landsfundur krafðist þó. Hún var sem sé fljótari að svíkja landsfund en Bjarni Ben. í sinni ísköldu Icesave-þjónkun.
Þessi Evrópusambandsstofu-Hanna Birna verðskuldar ekki traust til forystu. Vill hún ekki bara fara í Evrópusambandið þrátt fyrir látalætin? Og ætlar hún að taka undir þá LYGI, að "Evrópustofa" (skrautyrði og skrök um Evrópusambandsstofu) sé bara dæmi um eðlilegt "kynningarstarf" eins og fram fer í Norræna húsinu? Veit hún ekki, að Evrópusambandið vill komast yfir Ísland rétt eins og Tékkland, Austurríki, Svíþjóð og Noreg á sínum tíma? Heldur hún, að það sé eftir litlu að slægjast fyrir gömlu nýlenduveldin þar í inntöku Íslands? Þvílík fáfræði, ef hún heldur það! Þýzkir, brezkir, franskir og spænskir áhrifamenn hafa lýst miklum hug sínum til að fá Ísland inn. (Bara fjögur ríki þeirra munu ráða 50,79% atkvæðavægi í leiðtogaráði ESB og ráðherraráði ESB (sem setur lög um sjávarútvegsmál) frá 1.11. 2014, sjá HÉR.)
230 milljónum króna dælir Brusselvaldið í sínar tvær ESB-stofur, á Akureyri og í Reykjavík, það fé þjónar innlimunaráformum ESB-ríkjasambandsins. Tíu milljónum dældi það áður í Árna Þór Sigurðsson, sem Steingrímur fól forystu í utanríkismálanefnd og leiðandi starf gagnvart Icesave-óværunni (sem ESB þrýsti ákaft á um) og ESB-þingákvörðunum!
Á virkan hátt dældi ESB fé inn í Noreg, Svíþjóð og Tékkland stuttu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur þar um ESB-"aðild", það fylltist allt þar af ESB-áróðri. Norðmönnum, grasrótinni, rétt tókst að verjast ásókninni, eftir svik sinnar stjórnmálastéttar, verkalýðsforystu, atvinnurekendasamtaka og fjömiðlastéttar, með aðeins 52,2% meirihluta NEI-atkvæða. Ætli ESB líti ekki á litla Ísland sem auðveldari bráð?
Hanna Birna veit, að jafnvel stórfyrirtækjum er óheimilt að styrkja stjórnmálaflokka hér á landi með meira en 300.000 krónum. Þykir henni samt eðlilegt, að 230 milljóna króna áróðursbatterí ESB ("Evrópustofa") fái að athafna sig hér?! Veit hún ekki, að með því er stórveldið einnig að styðja málstað og gengi andstöðuflokks Hönnu Birnu sjálfrar, Samfylkingarinnar?
Þurfa sjálfstæðismenn á svona vanhugsun að halda í forystu flokks síns?
Og af hverju segir Hanna Birna sjaldan neitt í skrifum? Er hún hrædd við að þurfa að standa þar fyrir svörum?
Jón Valur Jensson.
![]() |
Fylgið myndi aukast ef Hanna Birna væri formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt 15.4.2013 kl. 01:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.4.2013 | 23:13
Píratar: enn einn ESB-flokkurinn! - Þá er nú Regnboginn ólíkt betri
Í einkaviðtali Sjónvarpsins við fulltrúa Pírataflokksins, Smára McCarthy, nú í kvöld kom m.a. fram, að þetta er enn einn svikuli smáflokkurinn sem vill halda áfram s.k. aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Hann sagðist andvígur því, að flokkar tækju afstöðu í þessu máli, þjóðin ætti að gera það í þjóðaratkvæðagreiðslu. Samt tekur hans flokkur afstöðu í alls konar málum! Á hann að vera skoðanalaus í svo afgerandi máli?! Raunar er hann ekki hlutlaus, heldur tekur afstöðu með hinni ólögmætu Össurarumsókn frá árinu 2009, þeirri sem í var fólgið a.m.k. tvöfalt stjórnarskrárbrot og var þar að auki án umboðs frá þjóðinni; og 14%-flokkarnir (Samfylking og VG, sem í gær höfðu samtals 14% fylgi) unnu þá beinlínis og af hörku gegn því, að sjálf umsóknin yrði borin undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu!
Að Pírataflokkurinn leggist þannig á sömu sveif og kapítalíseruðu tækni- og evrókratarnir í Samfylkingu og útfrymum hennar, "Bjartri framtíð" og "Lýðræðisvaktinni", þ.e.a.s. að stefna landinu áleiðis inn í stórkapítals-efnahagsheild Evrópusambandsins, er líklega frétt fyrir suma ofursósíalistana og anarkistana sem héldu að Pírataflokkur væri eitthvað fyrir þá. Þeir myndu gera betur í því að styðja Regnbogann, flokk Atla Gíslasonar, Bjarna Harðarsonar, Jóns Bjarnasonar og kvennanna sem skipa fremstu sætin á J-listanum í Kraganum (sjá tengil hér neðar).
Sá flokkur, Regnboginn, berst einarðlega fyrir því að viðhalda fullveldi og sjálfstæði Íslands. Hér skal honum spáð hraðvaxandi fylgi (og margt hefur breytzt hratt síðasta hálfa mánuð í flokkafylginu). Regnboginn er ekki aðeins augljós valkostur allra vinstri sinnaðra andstæðinga innlimunar í 500 milljóna Evrópusambandið, heldur má jafnvel ætla, að sumir mið- og jafnvel hægri menn skoði vel þennan valkost, m.a. með hliðsjón af frambjóðendum hans í viðkomandi kjördæmi og af hugsanlega vanhæfum eða ótraustverðum frambjóðendum sumra stóru flokkanna.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Konur leiða Regnbogann í Kraganum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
5.4.2013 | 09:53
Umboðslaus gulrótarráðherra lofar öllu fögru í Fréttablaði sínu
Spurning er ekki hvort, heldur hve oft hann lýgur í þessari grein í dag. Dæmi 1: "Í fimmta lagi er lýðræðislegt að ljúka samningum. Meirihluti Alþingis samþykkti að fela ríkisstjórn að sækja um aðild að ESB." En þetta var gert með beinni þvingun við þingmenn VG, forystunni nánast mútað með ráðherrastólum og óbreyttir þingmenn beittir flokksaga þvert gegn yfirlýstri stefnu þeirra fyrir kosningar 2009. Þetta er frekar landsdómsmál en lýðræði.
Þar að auki hefur ALDREI verið lýðræðislegur vilji meirihluta fólks í yfir 15 skoðana-könnunum frá 2009 að Ísland "gangi í" Evrópusambandið; andstaðan er nú 70%.
Þá segir ráðherrann það að ljúka aðildarviðræðunum "ein(u) leiðin(a) til þess að útkljá Evrópumálin," eins og maðurinn og þetta þráhyggjumál hans eigi sér enga framtíð, ef þetta er ekki gert 201315 frekar en t.d. 2025 eða 2045. Ef hann á við, að þá loks hætti deilur um þetta mál, þegar þjóðin "sjái samning", þá er það ekki rétt; Bretar deila um málið og andstaða magnast; ESB-sinnar í Noregi héldu áfram róðrinum þrátt fyrir höfnun þjóðarinnar á ESB-"aðild" 1972 hömuðust enn og fengu aðra þjóðaratkvæðagreiðslu 1994, en þrátt fyrir höfnun þjóðarinnar líka þá hafa ESB-innlimunarmenn haldið áfram þvargi sínu og reynt áfram eins og rjúpan við staurinn, þótt þeir láti að vísu lítt á sér bera nú, þegar andstaða þjóðarinnar er nær alger.
Í sama Fréttablaði fréttir gulrótarráðherrann, að hans flokkur nýtur nú 9,5% fylgis og fengi 6 þingmenn, en VG jafnmikils fylgis og Píratar, 5,6%, og næðu 4 þingmönnum. Þykist þessi ráðherra enn hafa "lýðræðislegt" ríkisstjórnarumboð, með 15,1% fylgi flokkanna, til að krefjast framhalds þessara viðræðna sem hann þvingaði upp á Alþingi í þókknun sinni við Brusselvaldið? Heldur hann að fólk sjái ekki í gegnum þetta?
3. lygi: "Í þriðja lagi myndu slit á viðræðunum endanlega skera á þann möguleika að taka upp evru ef þjóðin svo kýs." Af hverju ENDANLEGA? Hann getur reynt að sækja um aftur 2025! eða er hann virkilega að segja okkur, að evran, sem nú er rétt komin yfir fermingaraldur og strax að breytast í vandræðaungling, verði þá ekki lengur til?!
Ráðherrann: "Aðild að ESB snýst um að koma á traustari umgjörð um efnahagslífið þannig að verðbólga og vextir geti lækkað og stöðugleiki komist á. Varanlega." Hefur stöðugleiki komizt varanlega á á Spáni, Grikklandi, Kýpur, Ítalíu, Írlandi, Belgíu, Portúgal? Atvinnuleysi var enn að aukast í evrusvæðinu skv. nýjustu tölum, í 12% og hefur aldrei verið meira, en 10,9% í Evrópusambandinu öllu, "og eru þar 26,3 milljónir manna án vinnu" (Ruv.is). Er það "varanlegur stöðugleiki" gulrótarráðherrans?
Greinilega var þetta skrök, en um leið ÞEGIR Össur um, að "aðild að ESB snýst um" það fyrst og fremst að koma æðstu löggjafarréttindum yfir þessu landi í hendur hinna tveggja löggjafarsamkundna ESB, Evrópusambands-þingsins í Strassborg og Brussel og ráðherraráðsins í Brussel. Í því fyrrnefnda yrði atkvæðavægi okkar 1/125, í því síðarnefnda 1/1666 (0,06%), og lög þaðan, m.a. um fiskveiðimál, myndu hafa forgang fram yfir íslenzk lög um sama efni. Nánar hér: http://fullveldi.blog.is/blog/fullveldi/entry/1291104/. Með því að þegja þetta mál í hel er ráðherrann að yppta öxlum yfir hinni óbætanlegu fórn: missi íslenzks fullveldis, æðstu ráða okkar í annarra hendur. Já, þetta er í alvöru satt: Við erum með þvílíkan ráðherra hér við æðstu völd í utanríkismálum.
En vitaskuld þráir gulrótarráðherra að komast í hóp gúrkuráðherra í Brussel.
En evrugyllingar- og krónuníðs-ráðherrann er ekki alveg viss, hve miklu hann getur skrökvað um eftirfarandi mál: "Í dag nemur Íslandsálagið á krónuna um 130-230 milljörðum á hverju ári," segir hann. Þetta var ekki þýzk nákvæmni! Og engin rök fylgdu fullyrðingunni. Menn eiga ekki að skrökva. Sjálfur formaður flokks hans átti í gærkvöldi vart nógu sterk orð til að dást að því, hve Íslendingar hefðu staðið sig vel í því að auka útflutningstekjur sínar og auka ferðamannastrauminn hingað eftir bankakreppuna. Össur og Árni Páll geta þakkað það sveigjanleika krónunnar, þeirri leiðréttingu á gengi, sem hvorki Spánverjar, Grikkir, Írar né Kýpurbúar hafa átt völ á.
PS. Hér er enn ekki lokið upptalningu á skröki ráðherrans í dag. Framhald!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Framsókn fengi 40% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ykkur er hér með bent á þessa efnismöppu (færsluflokk) á Fullveldisvaktinni: Fiskveiðar, sjávarútvegur - alls 10 + 10 plús 10 + 8 greinar eða pistlar um þessi málefni, sem svo miklu varða þessa þjóð í bráð og í lengd, en sumir virðast staurblindir á.
Útbreiðum þekkinguna, hún mun jarða ESB-áhuga sumra í landinu. -- JVJ.
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 00:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.4.2013 | 02:03
Hringlforysta Sjálfstæðisflokks tapar trausti; einörð afstaða í ESB-málum hefði sogað að honum atkvæði
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með einungis 22,4% fylgi skv. Þjóðarpúlsi Gallup. Valhallarmenn geta kennt forystu sinni um: að hafa stuttu eftir landsfund kjarnans í grasrótinni gefið fyllilega til kynna, að til standi að óvirða grasrótina á ný, rétt eins og i Icesave-málinu.
Hanna Birna varaformaður lét afar gáleysisleg orð falla um Evrópu[sambands]stofu í Silfri Egils, raunar fávísleg orð, því að hún á að vita, að sá nær kvartmilljarður króna, sem Evrópusambandið hefur ákveðið að setja hér í beinan áróður, fer í gegnum "stofurnar" tvær í Reykjavík og á Akureyri.
Þar að auki: Með því að innanríkisráðherrann Ögmundur ætlar þrátt fyrir kæru að kveinka sér við að beita sér gegn því máli, rétt eins og ríkisstjórnin öll og fótgöngulið hennar í þinginu, þá hefur skapazt þarna fordæmi, sem trúlega yrði haldið áfram með í sama knérunn og raunar engin trygging fyrir neinum takmörkunum á fé til þessara hluta, sem birtast myndu svo skyndilega, þegar lokabaráttan hæfist, í formi flóðbylgju áróðurs um allt land.
Bjarni ungi Benediktsson talaði einnig gegn landsfundi, þegar hann sneri út úr samþykkt hans um að viðræðum skyldi lokið við Evrópusambandið. Þar var alls ekki verið að fara fram á neina þjóðaratkvæðagreiðslu um það né um að gerð yrði ný umsókn á árinu og kosið fyrst um hana, þótt formaðurinn leyfði sér faktískt að bera þá stefnu fram.
Hringlandaháttur forystu, sem þegar hafði sýnt í hinu stóra Icesave-máli, að henni var ekki treystandi, og á þar að baki svik við landsfund, er ekki beinlínis örvandi til trausts á þessum flokki. Hann auglýsir samt nú fyrir fé okkar skattborgara í heilsíðu-auglýsingum og vill enn komast til æðstu ráða. Miðað við, hvernig forystan hefur reynzt, hefur hún ekki nema gott eitt af því að hafa á síðustu vikum gersamlega misst af tækifærinu að leiða næstu ríkisstjórn.
Hitt hefði verið spennandi: að sjá einarða forystu flokksins tala í fullum samhljóm við sína sterku grasrót sem lét ekki bjóða sér neina hálfvelgju í Laugardalshöll. Jafnvel menn, sem aldrei höfðu kosið þennan flokk, hefðu þá margir greitt honum atkvæði til að standa vörð um fullveldi Íslands.
Og sú er einmitt frumskylda allra stjórnmálamanna og einkum þeirra sem hafa svarið eið að stjórnarskrá lýðveldisins!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Fylgi Sjálfstæðisflokks dalar enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 02:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.4.2013 | 12:17
Frambjóðendur fái umboð til að afturkalla umsókn um innlimun í ESB
Eftir Jón Val Jensson
Sú afstaða landsfunda Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, nýafstaðinna, að leggja fram skýra stefnu gegn Esb-umsókn og hinni rangnefndu Evrópustofu (230 milljóna áróðursbatteríi sem Esb-sinnar verja sem sjálfsagt mál!) sú stefna flokkanna tveggja er einarðleg og heiðarleg. Þeir leggja hana fram til að láta kjósa um hana í næsta mánuði. Kjósi meirihlutinn þá flokka, hefur þeim verið veitt fullt, lýðræðislegt umboð til að fylgja stefnunni eftir og því engin þörf á að eyða 200 millj. kr. í þjóðaratkvæði um þau mál sérstaklega.
Þar að auki bera þeir tveir flokkar ekki ábyrgð á hinni hneykslanlegu Esb-umsókn Samfylkingar og leiðitamra, stefnuskrársvíkjandi VG-þingmanna 2009. Allan tímann frá þeirri umsókn hefur skýr meirihluti Íslendinga verið andvígur því, að Ísland verði partur af Evrópusambandinu. Sá meirihluti er nú 70% (Gallup 6. marz 2013).
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, einn helzti talsmaður hinna rangnefndu Evrópusamtaka, átti grein í Morgunblaðinu 20. þ.m. og mælti þar sem fyrrum með Evrópusambandinu.
Gunnar ætti að forðast að villa um fyrir fólki með yfirborðslegum orðum um rýrnun krónunnar frá upphafi hennar. Við mælum velsæld okkar í húsakosti og lífskjörum, ekki í hans villandi niðurreiknun. Eða vill hann heldur taka sér búsetu í þröngum, kolakyntum húsum okkar eins og þau voru fyrir 90 árum, með malargötur alls staðar, síma aðeins á heimilum sæmilega efnaðra, enga ljósvakamiðla og litla félagslega þjónustu?
70% Íslendinga hafa það á hreinu, að þeir vilja ekki skipta á sjálfstæði og fullveldi lands og þjóðar, ásamt fiskveiðilögsögu okkar, fyrir meinta vaxtalækkun, sem Gunnar Hólmsteinn veifar eins og gulrót fyrir framan asna (þegjandi um, að hér er mun smærri markaður en á meginlandinu). Miklu fremur lærum við aðhald og sparnað af biturri reynslu og stefnum í landi tækifæranna að sjálfbæru heimilisbókhaldi á komandi árum í stað eilífs trausts á lántökur.
En af hverju þegir Gunnar um hið hrikalega fullveldisframsal sem fælist í því að bæta ofan á okkur tveimur ráðandi yfir-löggjafarþingum stórveldisins?
Hér er fullt tilefni til að hyggja að lærdómum sögunnar. Vegna stefnu Dana með hinum illa þokkuðu stöðulögum og tilboðs þeirra um hluttöku okkar í þeirra eigin löggjafarþingi ritaði hinn hyggni og varfærni Jón forseti eftirfarandi í I. árgang Andvara árið 1874 (hornklofainnskot JVJ):
- Um hitt, sem einungis snertir Danmörku, höfum vér aldrei óskað að hafa neitt atkvæði; það eru Danir sjálfir, sem hafa verið að ota að oss þessum málum og bersýnilega til þess að ávinna með því fullkomið yfirvald yfir oss í vorum eiginmálum, því að þá er það eftir þeirra áliti jafnrétti, að þegar vér erum til dæmis 25 sinnum færri en þeir, þá skulum vér hafa einungis eitt atkvæði móti 25 í hverju máli sem er. Þeir [þ.e. Danir] eru íhaldnir [= skaðlausir], þó að þeir gefi oss eitt atkvæði af 25, þótt það sé í þeirra eiginmálum, en vér getum ekki staðizt við að hafa ekki meira en 25. part atkvæða í vorum eiginmálum. Oss finnst því auðsætt, að í þessari grein sé mikill óréttur falinn, er vér ættum sem fyrst að fá rétting á. (Tilvitnun lýkur í JS.)
Sjá menn ekki hliðstæðuna? Evrópusambands-innlimunarsinnar láta eins og það yrði til góðs fyrir okkur að fá atkvæði um málefni Evrópu og að sá mikilvægi ávinningur réttlæti það að gefa þingfulltrúum hinna 27 þjóðanna hlutdeild í (reyndar yfirgnæfandi vald yfir) okkar löggjafarmálum, okkar eiginmálum, ef þeim sýnist svo.
Hliðstæðan er reyndar ekki fullkomin, því að í stað þess að eignast 25. hvern þingmann á þingi Dana myndum við eiga 125. hvern þingmann á Esb-þinginu í Strassborg og Brussel og einungis 1/1666 (0,06%) alls atkvæðavægis í hinu volduga ráðherraráði í Brussel því, sem t.d. fer með virkustu löggjöf um sjávarútvegsmál í Esb. (þ. á m. regluna óstöðugu um hlutfallslegan stöðugleika fiskveiða)!
En getum við, eins og Jón forseti orðar það, staðizt með því að hafa einungis 1/125 eða 1/1666 atkvæða í okkar eiginmálum? Vitaskuld ekki!
Væri fróðlegt að sjá svör Gunnars Hólmsteins við þessum atriðum, eða telur hann slíkt fullveldisframsal bara í himnalagi?
En ég hvet alla kjósendur til að gæta að afstöðu framboðanna til fullveldis okkar andspænis því Evrópusambandi, sem eyðir nú tugum milljóna í boðsferðir sveitarstjórnarmanna héðan til Brussel, hefur eytt margfalt meira í lúxusboðsferðir annarra, ennfremur hundruðum milljóna í (að mestu) fyrirhugað starf tveggja áróðursmiðstöðva, í Reykjavík og á Akureyri, og yfir 5.000 milljónum í IPA-styrki, allt til að liðka fyrir þeirri innlimun Íslands, sem er ætlunarverk Evrópusambandsins og voldugra ríkja sem að því standa.
Höfundur er fullveldissinni og formaður Samtaka um rannsóknir á Evrópusambandinu og tengslum þeirra við Ísland.
Þessi grein birtist í Morgunlaðinu 26. marz sl.
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.3.2013 | 11:28
Blekkingarviðleitni utanríkisráðherra á útleið
Í Esb-Fréttablaðinu í dag kallar hann þann Carl Bildt til vitnis, sem hann sjálfur kallaði hingað til að taka þátt í Esb-áróðursviðleitni sinni og þess sama stórveldis. Þeir una því ekki, að jafnræði verði með NEI- og já-sinnum í málinu, ekki hinu, að Alþingi styrki báðar hreyfingar jafnt með fjárstyrkjum, heldur berjast fyrir því, að Evrópusambandið fái hér að spandera 230 milljónum króna í áróður gegn tvær rangnefndar "Evrópustofur" (í Reykjavík og á Akureyri) og að embætti utanríkisráðherra lýðveldisins sé misnotað til að safna blekkjandi vitnisburðum utan úr heimi, m.a. með heimsóknum ýmissa Esb-samherja Össurar sjálfs, og einnig það er á ýmsan hátt kostnaður fyrir Ísland, fyrir utan þann hartnær milljarð króna, sem vitað er, að eytt hefur verið í þetta umboðslausa Esb-umsóknarmál Samfylkingarinnar nú þegar.
Össur endurtekur eins og páfagaukur þá fullyrðingu Carls Bildt (fullyrðingu sem Esb-vænn Egill Helgason laðaði fram með leiðandi spurningu) að fullveldi þjóða innan Evrópusambandsins sé meira en utan þess! Á hvern hátt er fullveldi Möltubúa (þeirrar þjóðar sem er þar næst okkur að stærð, um 410.000 manns) meira en fullveldi Svisslendinga?!
Carl Bildt, maður sem unir því vel að vera sjálfur partur af nómenklatúru Brussel-valdsins, færði engin rök fyrir því, að fullveldi þjóða, sem fengið hafa á sig tvö yfir-löggjafarþing, hafi aukizt og muni með viðvarandi hætti verða meiri þar en utan Esb. Ekki hafa Bretar trú á því.
Hann skrökvaði því einnig, að Ísland og Noregur "verð(i) möglunarlaust að taka við ákvörðunum ESB og innleiða án þess að hafa nokkur áhrif," svo að vitnað sé í áróðurspistil Össurar í dag. Þetta er nefnilega EKKI svo. Nefnd þessara þjóða, ásamt Liechtensteinum, fer samkvæmt tveggja stoða kerfinu yfir þau Esb-lög, sem ætlazt er til, að við innfærum, og aðhæfir þau eftir megni. Síðan fara þau í ráðuneyti landanna til yfirferðar og svo til Alþingis (í okkar tilfelli), sem hefur sitt fulla vald til að samþykkja þau eða fella eða gera breytingartillögur þar um. Ennfremur höfum við þann öryggisventil gagnvart þeim lögum, sem fólginn er í synjunar- eða málskotsvaldi forseta Íslands. Í EES-kerfinu höldum við nefnilega enn okkar æðsta löggjafarvaldi; formlega (og formið er mikilvægt um öll lagamál) er Ísland á engan hátt undir Esb-þinginu í Strassborg og Brussel né undir ráðherraráðinu í Brussel, en þetta eru löggjafarstofnanir Esb.
Þar að auki höfum við jafnvel getað breytt vissum EES-reglugerðum eftir á, til dæmis vökulögum bílstjóra, þótt stjórnvöld hafi vissulega verið allt of lin við að sýna fullt sjálfstæði gagnvart Brusselvaldinu. Ennfremur þarf að gera heildarrannsókn á því, hvort við höfum áunnið nokkuð, í heildina talið, með EES-samningnum og segja honum upp, ef skaðinn er meiri en hagnaðurinn hér og þar fyrir suma aðila.
Grein á undirritaður í Morgunblaðinu í dag: Frambjóðendur fái umboð til að afturkalla umsókn um innlimun í ESB, og þar fjalla ég sérstaklega um hið ömurlega litla, einskis nýta atkvæðavægi sem við fengjum (við Esb-inntöku) innan löggjafarstofnana Evrópusambandsins og ber það saman við þá hliðstæðu, sem Íslendingum var boðin á efri árum Jóns forseta Sigurðssonar og hann hafnaði algerlega og það með dagljósum rökum (sjá greinina).
Jón Valur Jensson.
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sumum virðist þykja "flott" að fá fullveldisframsalsheimildar-baráttumanninn og ESB-innlimunarsinnann Gísla Tryggvason í efsta sæti á framboðslista Dögunar. Eða á það kannski að verða alþingiskjósendum víti til varnaðar?
Gísli hefur verið mjög eindreginn talsmaður ESB-"aðildar", eins og sést m.a. í þessari grein, þar sem lesa má, hvernig hann stóð að málum við stofnun "Evrópuvettvangsins" 11. apríl 2011 (og lesið nú vel).
Jón Valur Jensson.
![]() |
Framboðslistar Dögunar í 5 kjördæmum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.3.2013 | 11:39
Engin þörf á þjóðaratkvæðagreiðslu nú um Esb-umsókn
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.3.2013 | 01:57
Tillaga Þorgerðar Katrínar vegin og léttvæg fundin
Þorgerður er vitaskuld að villast og kemur ekki á óvart.
Gunnlaugur Ingvarsson skrifar réttilega: "Spurning hennar eins og hún er orðuð í þessari þingsályktunartillögu er alveg út í hött og leiðandi og hlutdræg."
Skoðum spurninguna sem ÞGK vill leggja fyrir þjóðina: "Vilt þú að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið og að aðildarsamningur verði borinn undir þjóðina til samþykktar eða synjunar?"
Þarna er með ærnum (en ekki ærlegum) hætti reynt að gefa í skyn, að þessi valkostur sé svo opinn og jákvæður! En þarna er áherzlan í 1. lagi á "viðræður" (og þá fara sumir að hugsa: Er nokkuð rangt að ræða saman?!) í stað þess að benda á, að allt áframhald málsins felur fyrst og fremst í sér áframhald umsóknar Össurargengisins um að Ísland verði fastur partur af Evrópusambandinu! -- en það vill þjóðin hins vegar EKKI (og í ENGRI skoðanakönnun frá umsókn ráðherrans 2009!). En af því að þjóðin vill það EKKI, er reynt að draga athyglina frá þessu og því talað bara um "viðræður". En Ragnar Arnalds benti réttilega á það í Kastljósþætti stuttu fyrir hina sviksamlegu umsókn* Samfylkingar og VG, að vel var hægt að biðja um viðræður við ESB, t.d. í Skotlandi, til að fá þar ýmislegt nánar upplýst um Evrópusambandið, ÁN ÞESS AÐ sækja um að verða þar meðlimaríki.
Svo er talað um að bera aðildarsamning "undir þjóðina til samþykktar eða synjunar," látið eins og ÞJÓÐIN muni ákveða þetta, þegar naumur meirihluti (þjóð gegn þjóð?!!!) gæti mjög sennilega verið að ákveða það! -- og jafnvel með lítilli kjörsókn, sbr. þau tæplega 49% sem tóku þátt í hinni fráleitlega illa undirbúnu kosningu um stjórnarskrártillögur í okt. síðastliðnum. Þannig gætu 24,8% kosningabærra manna verið að velja Evrópusambandið fyrir fullt og allt, án þess að þjóðin gæti hnikað því framar,**, en 24,79% hinna kosningabærru tekið fullveldi og sjálfstæði landsins fram yfir innlimun í stórveldi. Og þetta (tvískiptan almenning) kalla sumir, ekki sízt hávaðamenn í "Lýðræðisvaktinni", ÞJÓÐ!
Merkilegt er, að ESB-sinnar, t.d. Guðbjörn Guðbjörnsson og Friðrik Hansen Guðmundsson, tínast inn í Lýðræðisvaktina, enda er hún ESB-væn, hversu mikið sem hinn Pétur Gunnlaugsson í refsskap sínum á Útvarpi Sögu þrætir fyrir það. Og undir ESB-hneigðum leiðtoga eru þeir: Þorvaldi sjálfum Gylfasyni!
En ekkert umboð höfðu þessir menn til að gefa ESB-öflunum auðvelt færi með fullveldisframsalsheimild til að glutra niður sjálfstæði landsins -- þeir báðu t.d. kjósendur til stjórnlagaþings aldrei um neitt slíkt umboð, og jafnvel í kynningu Þorvaldar í frambjóðendabæklingnum og víðar, rétt eins og Eiríks Bergmanns Einarssonar o.fl. ESB-taglhnýtinga, steinþögðu þeir um það, að þeir vildu búa til fullveldisframsalsheimild. Ergo fengu þeir aldrei neitt umboð til þess, og þeim mun síður veitti Þjóðfundurinn 2010 þeim slíkt umboð, því að hann margítrekaði, að í stjórnarskrá lýðveldisins ætti að standa fullan vörð um sjálfstæði og fullveldi lands og þjóðar.
* "Sviksamleg" var umsóknin, af því að VG-þingmenn höfðu fengið umboð frá kjósendum sínum til hins gagnstæða! Steingrímur lét sólarhring fyrir kjördag þjóðina heyra það, að VG væri harðasti andstöðuflokkurinn við ESB-aðild! Sviksamleg var hún einnig vegna þess, að hinn naumi þingmeirihluti þverskallaðist við ákalli margra (og breytingartillögu á þingi) um, að umsóknin sjálf yrði borin undir álit þjóðarinnar í allsherjaratkvæðagreiðslu.
** Í stjórnarskrártillögum "stjórnlagaráðs er ekki aðeins ákvæði í 111. grein sem heimilar fullveldisframsal [til Evrópusambandsins], heldur einnig það ákvæði í 67. grein, að þrátt fyrir réttindi 10% kjósenda til að krefjast þjóðaratkvæðis um málefni (65.-66. gr.), þá sé á grundvelli þeirrar heimildar "hvorki hægt að krefjast atkvæðagreiðslu um fjárlög, fjáraukalög, lög sem eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum né heldur um skattamálefni eða ríkisborgararétt." -- Sem sagt: samkvæmt hinu ESB-væna, ólöglega skipaða "stjórnlagaráði" má t.d. naumur meirihluti af t.d. helmingi þjóðarinnar kjósa landið undir erlent dóms- og stjórnvald og erlent löggjafarþing (ESB er með tvö), en hitt er þjóðinni bannað þar að eiga frumkvæði að þjóðaratkvæðagreiðslu um að kjósa sig undan því erlenda yfirvaldi !!! Og minnumst þess hér, að það tók landið margar aldir að endurheimta það fullveldi, sem Noregskonungi var gefið 1262.
Jón Valur Jensson.
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 02:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)