Engin þörf á þjóðaratkvæðagreiðslu nú um Esb-umsókn

Sú afstaða landsfunda Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að leggja fram skýra stefnu GEGN Esb-umsókn og hinni rangnefndu “Evrópustofu” (230 milljóna áróðursbatteríi sem Þorvaldur Gylfason og Pétur Gunnlaugsson í nýjum flokki verja sem sjálfsagt mál !) – sú stefna flokkanna tveggja er einarðleg og heiðarleg. Þeir leggja hana fram til að láta kjósa um hana í næsta mánuði. Kjósi meirihlutinn þá flokka, hefur þeim verið veitt fullt umboð til að fylgja stefnunni eftir og engin þörf á að eyða 200 millj. kr. í þjóðaratkvæði um þau mál sérstaklega. Þar að auki bera þeir flokkar ekki ábyrgð á hinni hneykslanlegu Esb-umsókn Sf. og VG-taglhnýtinga 2009. Allan tímann frá þeirri umsókn hefur skýr meirihluti Íslendinga verið GEGN því, að Ísland verði partur af Evrópusambandinu. Sá meirihluti er nú (Gallup 6. marz 2013) 70%, sjá hér:  http://en.wikipedia.org/wiki/Accession_of_Iceland_to_the_European_Union#Public_opinion
Jón Valur Jensson.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

ESB málið í hnotskurn: " Ég veit að þú vilt ekki leyfa mér að káfa á þér elskan, en ég verð að fá það skriflega svo ég hætti því."

Hvernig væri að taka upp nauðgunarslagorðið " Nei þýðir Nei!" Í þessari baráttu?

Jón Steinar Ragnarsson, 21.3.2013 kl. 20:47

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Góð hugmynd en ég get ekki annað en étið eftir Kolbrúnu Hilmars;” Verst hvað það gengur illa að losna við ESB-trúboðana af dyramottunni”.

Helga Kristjánsdóttir, 22.3.2013 kl. 00:44

3 Smámynd: Samtök um rannsóknir á ESB ...

Athyglisvert, Jón Steinar!

Sæl, Helga! En þegar við hugsum til þess, að margir eru með þessi orð á vörunum, að það þurfi að "koma þessu máli út úr heiminum og kjósa um það, annars verð(i) það alltaf hangandi yfir okkur," þá virðast þeir hvorki hugsa út í, að það hangir nú þegar mjög leiðinlega yfir okkur, með stórum peningaskaða (nær milljarði frá umsókn Esb-gengisins), né út í hitt, að þótt við segðum skýrt NEI við s.k. "samningi", þá værum við þar með samt ekki búin að losna við ásókn stórveldisins og handlangara þess, eins og sést af þessu dæmi:

Norðmenn höfnuðu því, að landið færi inn í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu 1972 (með 53,5% NEI-atkvæðum, en já sögðu 46,5%; kjörsókn var 79%*), en SAMT héldu "aðildarsinnar"/innlimunarsinnar áfram að agitera áratugum saman fyrir því að koma landinu inn í Esb., flest voldugustu öflin þar raunar, en þegar aftur var kosið um málið árið 1994, var því á ný hafnað, þá með 52,2% NEI-atkvæðum (47,8% já). Kjörsókn var 88,6%.**

Þrátt fyrir að þessari inntöku í Evrópusambandið hafi verið hafnað tvisvar í Noregi, eru Esb-þráhyggjumenn ekki af baki dottnir, en raunar er andstaðan nú við inntökuna langtum meiri en hún var 1972 og 1994.

En þú sérð af þessu, að fölsk er sú fullyrðing, að þjóðaratkvæði um málið, þar sem meirihlutinn segir NEI, er engin trygging fyrir því, að Esb-taglhnýtingar hætti sínu þráláta áreiti við fullveldi lands og þjóðar.

* Sjá hér: http://en.wikipedia.org/wiki/Norwegian_European_Communities_membership_referendum,_1972

** Sjá hér: http://en.wikipedia.org/wiki/Norwegian_European_Union_membership_referendum,_1994

Samtök um rannsóknir á ESB ..., 22.3.2013 kl. 19:51

4 Smámynd: Samtök um rannsóknir á ESB ...

Og innleggið var mitt.

Jón Valur Jensson.

Samtök um rannsóknir á ESB ..., 22.3.2013 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband