Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
18.4.2016 | 14:16
Reglugerðaráþján Evrópusambandsins kom í bakið á okkur
8% minnkun á rafmagnsnotkun heimila frá 2009 til 2014 kemur líklega að miklu leyti til af því, að s.k. sparperur eru fokdýrar í innkaupum og margir því nízkir við sig að endurnýja perur þar sem ljósastæði eru mörg, t.d. í ljósakrónum.
Við getum "þakkað" Evrópusambandinu það, hve kostnaður við kaup á ljósaperum hefur margfaldazt!
En við eigum ekkert með að að gera að vera í neinu múlbandi þessa stórveldis, sem sömuleiðis hugsar bara um sjálft sig, þegar það bannar hér notkun amerískra bílstóla!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Rafmagnsnotkun heimila minnkað um 8% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2016 | 01:58
Meintir fréttamenn misnota Rúv til hatramms áróðurs sem er til skammar fyrir lýðveldið gagnvart bandalagsríkjum
Fréttastofa Rúv (FRúv) kallar ríkisstjórn þessa manns og þriggja annarra bandalagsríkja okkar í NATO "öfgafullar fasistastjórnir"! Skyldi FRúv leiðast að heyra hann segja sannleikann um ESB-stefnuna í málefnum Evrópu? Samkv. hvaða mælikvarða ríkisstarfsmanna Rúv eru ríkisstjórnir Ungverjalands, Póllands, Tékklands og Slóvakíu "öfgafullar fasistastjórnir"? Og er það þá satt, að alls engir íslenzkir öfgamenn á launum hjá þjóðinni misnoti Rúv til pólitísks áróðurs?

Hér er að finna ræðu Viktors Orban og neðar útdrátt úr henni á myndbandi með neðanmálstextum á ensku. Meðal þess, sem hann talar um þarna, er þetta:
02:15 | It is forbidden to say that in Brussels they are concocting schemes | |
02:19 | to transport foreigners here as quickly as possible and to settle them here among us. | |
02:26 | It is forbidden to point out that the purpose of settling people here | |
02:30 | is to reshape the religious and cultural landscape of Europe, and to reengineer its ethnic foundations. | |
02:39 | thereby eliminating the last barrier to internationalism: the nation-states. | |
02:46 | It is forbidden to say that Brussels is now stealthily devouring more | |
02:51 | and more slices of our national sovereignty, | |
02:55 | and that in Brussels many are now making a plan for a United States of Europe | |
03:01 | for which no one has ever given authorisation. |
Það ætti ekki að vera nein goðgá að ræða þessi mál, hvað sem mönnum kann að finnast um þau, og Orban, forsætisráðherra Ungverja, verður ekki ákærður fyrir fasisma að tala með þeim hætti, sem hann gerði hér, sbr. myndbandið hér neðst með útdrætti úr ræðu hans (enskir textar fylgja).
Jón Magnússon hrl., fyrrv. alþm., hefur á Moggabloggsíðu sinni skrifað harða, en sanngjarna gagnrýni á Fréttastofu Rúv fyrir það tiltæki að ráðast með óbótaskömmum á ríkisstjórnir fjögurra bandalagsríkja okkar. Hann ritar m.a.:
"14.3.2016 | 12:29
Móðgun við bandalagsríki
Eftir að hafa hlustað á kvöldfréttir RÚV í gær þá var mér meira en nóg boðið. Ríkisfréttastofan á Íslandi kallar ríkisstjórnir fjögurra bandalagsríkja okkar í EES og NATO öfga- og fasistastjórnir. Við skulum vona að fólk erlendis sé eins og hér almennt hætt að taka mark á fréttaflutningi RÚV.
Stjórnmálaflokkurinn AfD (Alternativ für Deutschland) sem vann afgerandi kosningasigur í Þýskalandi í gær er kallaður öfgaflokkur af fréttastofu RÚV.
Ég kynnti mér hvernig fréttamiðlar í okkar heimshluta skýra frá þessum hlutum. Af virtum dagblöðum og fréttamiðlum á Norðurlöndunum, Þýskalandi, Bretlandi og Bandaríkjunum er hvergi að finna að AfD sé kallaður öfgaflokkur. Þá er hvergi að finna að þessir fréttamiðlar leyfi sér að kalla ríkisstjórnir Póllands, Slóvakíu, Tékklands og Ungverjalands öfgafullar fasistastjórnir eins og RÚV gerir. [...]
Stjórnendur RÚV verða að átta sig á að þeir bera ábyrgð á fréttaflutningi stofnunarinnar. Fréttir eiga að vera hlutlægar og sannar. Fréttamaðurinn sem ber ábyrgð á fréttinni um fasísku öfgastjórnirnar í Póllandi, Slóvakíu, Tékklandi og Ungverjalandi er ekki starfi sínu vaxinn og það er stjórnandi fréttaútsendingarinnar ekki heldur.
Hvað svo með að móðga fjórar lýðræðisþjóðir, bandalagsþjóðir Íslands? Er það bara allt í lagi að bullukollast með stjórnarfar í þeim löndum eins og fréttamenn RÚV og stertimennið Eiríkur Bergmann gerðu í gærkvöldi? Varðar það engum viðurlögum innan RÚV eða eiganda þess að standa sig ekki í starfi og segja hlustendum ósatt eða hagræða sannleikanum í fréttatímum?"
Þetta ótrúlega tilfelli, að fjögur bandalagsríki okkar í NATO eru á Rúv að ósekju sögð vera undir "öfgafullum fasistastjórnum", er fullt tilefni fyrir útvarpsstjóra og útvarpsráð (og jafnvel, ef annað þrýtur, fyrir menntamálaráðherrann og Alþingi) til að kalla eftir rannsókn á vinnubrögðum fréttastofunnar og einstakra fréttamanna og hreinsa þar síðan til, ef niðurstaða rannsóknarinnar mælir ótvírætt með slíkri lausn mála.
Fréttastofu Rúv ber undanbragðalaust að standa undir lagaskyldu sinni til hlutlægs fréttaflutnings, sannsögli og óhlutdrægni.
Ríkisstjórnin eða utanríkisráðherra ætti ennfremur að biðja ríkisstjórnir eða sendifulltrúa ríkjanna fjögurra, Póllands, Slóvakíu, Tékklands og Ungverjalands, opinberlega afsökunar á þessari fullkomnu móðgun og grófu misnotkun ríkisfjölmiðilsins.
Jón Valur Jensson.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 03:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.2.2016 | 21:13
Borgarstjóri Lundúna vill að Bretland gangi úr Evrópusambandinu
Íhaldsmaðurinn mikilvægi Boris Johnson lýsir nú stuðningi við úrsögn Breta úr Evrópusambandinu. Þetta er áfall fyrir David Cameron o.fl. frammámenn Íhaldsflokksins.
- Sagði Johnson í dag að eftir mikla umhugsun myndi hann mæla með að fólki kysi um að yfirgefa sambandið.
- Johnson er vinsæll stjórnmálamaður og einn sá þekktasti í Bretlandi. Hefur ærslafullt fas hans, mikið ljóst hár og hnittin svör hafa gert hann vinsælan hjá stuðningsmönnum Íhaldsflokksins sem og Verkamannaflokksins. (Mbl.is)
Takið eftir þessu (leturbr. hér):
- Johnson sagði Cameron hafa staðið sig mjög vel í samningaviðræðunum við leiðtoga Evrópusambandsins í fundarlotunni í vikunni sem er að líða, en að enginn gæti í raun sagt að þessar breytingar myndu hafa [í för með sér] grundvallarbreytingar á samskipti ríkjanna eins og hugmyndin var upphaflega.
Já, hlustum á gagnrýni hans:
- Meðal þess sem Johnson gagnrýndi var að völd Evrópudómstólsins væru komin úr böndunum, og þá sagði hann að Bretland þyrfti að leitast eftir nýju sambandi við Evrópusambandið byggðu á viðskiptum og auknu samstarfi.
Þá er þetta býsna athyglisvert um framtíðarhorfurnar hjá Cameron og Johnson:
- Stjórnmálaskýrendur í Bretlandi telja að þetta útspil Johnsons, sem hefur bæði komið fram sem stuðningsmaður Camerons og stundum verið honum ljár í þúfu, sýni að Johnson horfi til þess að verða arftaki Cameron í embætti leiðtoga Íhaldsmanna. Telji hann væntanlega líklegra til vinsælda þegar til lengri tíma sé litið að styðja nú útgöngu úr sambandinu. (Mbl.is)
Hér verður engu spáð, nema hvað ljóst er, að yfirlýst afstaða Boris Johnson mun hafa sín áhrif á úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar í sumar.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Boris mótfallinn hugmyndum Cameron |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.2.2016 | 13:34
Gott að Samfylking sjái ljósið - eða a.m.k. smá-skímu
Nú hafa tveir forystumenn Samfylkingar, formaðurinn Árni Páll og Helgi þingflokksformaður, sem fýsir að verða formaður, viðurkennt mistök flokksins með einhliða ofuráherzlu á ESB og evruna ásamt hlutdrægum bölmóði um íslenzkt efnahagslíf.
Mistök eru til þess að læra af. Kreppa stjórnmála og ekki síst okkar jafnaðarmanna er ekki séríslensk þótt hún djúp sé hér. Hún er sprottin af þeirri tilfinningu fólks að peningaöflin ráði, stjórnmálamenn séu í stjórnmálum bara sjálfra sín vegna og flokkarnir svíki gefin loforð, segir Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, í yfirlýsingu sem hann hefur sent til fjölmiðla í kjölfar þess að hann tilkynnti framboð til formennsku í flokknum (leturbr. jvj).
Það dugar ekki að bíða eftir evrunni, heldur þarf Samfylkingin skýra stefnubreytingu. Við eigum að halda aðildarumsókninni að ESB á lofti, segir Helgi, en hætta að segja að allt sé ósanngjarnt og verði áfram óhóflega dýrt á meðan við höfum okkar veikburða gjaldmiðil.
Takið eftir, að enn hangir hann í því að tíunda meintan veikleika krónunnar, í stað þess að viðurkenna a.m.k. sveigjanleika hennar um leið, og vill halda aðildarumsókninni áfram, NOTA BENE: ekki viðurkenna, að hún hafi verið dregin til baka! Við vitum sem sé, hvernig Helgi myndi reynast í því máli, yrði hann foringi Samfylkingarinnar gera allt til að liðka fyrir sem sneggstri innlimun í stórveldið!
Við megum ekki fresta því að breyta kerfinu þangað til við fáum alvöru gjaldmiðil [sic], segir Helgi ennfremur í sömu yfirlýsingu.
En þótt það sé prýðilegt að Samfylking sjái a.m.k. smá-skímu þessa dagana og ætli sér ekki að halda áfram gamla söngnum um að nánast allt sé hér ómögulegt, eins og það hafi verið rök fyrir innlimun í stórveldabandalag, þá skulum við samt hafa auga með því, hvað valdamenn í þessum hnignandi flokki ætla sér og ekki þá síður vegna þess, að nýja formannsefnið vill sameinast Pírötum og "Bjartri framtíð" og trúlega véla það fólk inn í Brusseláhugamál sitt.
Engin Evrópusambands-innlimunarstefna má eiga hér upp á pallborðið hjá íslenzkri þjóð; við stefnum sjálf að okkar eigin björtu framtíð með vinnusemi og okkar ágætu krónu sem smám saman hefur gert Ísland að alvöru-ferðamennskulandi, ríkissjóði og sveitarfélögum og okkur öllum til mikils tekjuauka. Með tímanum (eins og hefur sýnt sig) getum við svo vel sniðið marga agnúana af okkar efnahags- og peningamálum og gefið almenningi miklu betri hlut í batanum með því að útdeila gróða nýju bankanna af því að hafa keypt kröfur hrundu bankanna á spottprís. Og nú þegar, frá síðustu áramótum, hefur ríkisstjórnin fært niður verðlag á ýmsum vörum með niðurfellingu tolla en það er nokkuð sem við værum ekki sjálfráð um, ef við værum í Evrópusambandinu!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Ekki hægt að bíða eftir evrunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.2.2016 | 16:12
Baktjaldamakk Samfylkingar um ESB-umsóknina þarf að koma algerlega upp á yfirborðið
Árni Páll: "Við byggðum aðildarumsókn að ESB á flóknu baktjaldasamkomulagi, sem aldrei hélt, í stað þess að fá skýrt umboð frá þjóðinni til að fara í aðildarviðræður, sem hefði bundið alla flokka við umsóknarferlið." Hann flokkar því Össurarumsóknina sem "mistök".*
Merkilegt að uppgötva þetta svona eftir á. Og nú á Árni það eftir, eins og bent var á í leiðara Morgunblaðsins í dag, að lýsa því fyrir okkur með nákvæmum, sannsöglum hætti, hvernig þetta mikla baktjaldasamkomulag varð til, hverjir voru þar aðalleikendur, innlendir eða erlendir, og hvort einstaklingar úr öðrum flokkum en Jóhönnustjórnarinnar komu þar við sögu; ennfremur út á hvað þetta baktjaldasamkomulag gekk hvort til dæmis skyldi fyrir alla muni forðazt, að þjóðin yrði spurð ráða.
Ennfremur var þetta meðal þeirra helztu mistaka sem Árni Páll nefndi í frægu bréfi sínu í gær:
"Skuldir heimilanna Þegar fólk var að drukkna í skuldafeni tókum við að okkur í of ríkum mæli að útskýra fyrir fólki að það ætti að borga skuldir sínar, í stað þess að taka okkur stöðu með fólki gegn fjármálakerfi.
Icesave Við studdum samning um Icesave sem varði ekki ítrustu hagsmuni þjóðarinnar og mæltum gegn þjóðaratkvæðagreiðslu um hann."
Sannarlega var kominn tími til sannleiksuppgjörs í Samfylkingunni við hennar arfaslappa feril í Icesave- og ESB-málum. En seint mun Árna Páli takast að fá samþingmenn sína í SF alla til að iðrast. Hætt er við, að nú verði hangið í þögn að hætti Oddnýjar Harðardóttur og afneitun á borð við undanfærslur og nýskáldskap Steingríms J. Sigfúsonar í Icesave-málinu og raunar í fleiri mjög viðkvæmum fjármálum fyir hann.
Árni Páll hefur óneitanlega hreinni skjöld í sumum þessum málum en samráðherrar hans fyrrverandi. Þannig léði hann fyrstur manna í stjórnarliði Jóhönnu máls á því að snúa við blaðinu í Icesave-málinu eftir á.
* Reyndar var Árni Páll einn meðal fárra sem gerðu sér grein fyrir því, að Össurar-umsóknin var, eins og á henni var haldið, beint stjórnarskrárbrot, sbr. hér: Árni Páll Árnason minnir óvart á að ESB-umsókn Össurar og hans eigin flokks var ólögmæt!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Bréf Árna Páls kom á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.2.2016 | 06:44
Fv. varnarmálaráðherra Breta: "Að vera í ESB býður hættunni heim"!
Liam Fox segir hryðjuverkamenn komast til landsins undir yfirskini þess að vera flóttamenn. Því stafi Bretum hætta af straumi hælisleitenda og flóttamanna til álfunnar og verri gætu afleiðingarnar orðið en árásirnar sem konur urðu fyrir í Köln o.fl. þýzkum borgum um áramótin.
Þetta kemur fram í viðtali breska dagblaðsins Daily Telegraph við Liam Fox en þar segir hann að Bretar þurfi að endurheimta sjálfstæði sitt og segja skilið við Evrópusambandið til þess að koma í veg fyrir að þessi staða geti komið upp. Segir hann út í hött að halda því fram, líkt og David Cameron forsætisráðherra Bretlands hafi gert, að vera Breta í Evrópusambandinu styrkti þjóðaröryggi þeirra. Bretlandi stafaði hætta af veru sinni í sambandinu af fjölmörgum ástæðum. Þar á meðal vegna efnahagskrísunnar á evrusvæðinu. (Mbl.is segir frá, leturbr. jvj.)
Þessi fyrrverandi ráðherra segir "yfirvöld í Grikklandi og á Ítalíu ekki hafa hugmynd um það hvaða fólk sé að koma til landa þeirra með bátum frá Tyrklandi og yfir Miðjarðarhafið, hvort um sé að ræða flóttamenn, hælisleitendur, fólk að flýja bág kjör eða hryðjuverkamenn sem haldi því fram að þeir séu flóttamenn eða hælisleitendur."
Þetta er alvarleg áminning, ekki aðeins til ríkisstjórnar íhaldsmanna í Bretlandi, heldur til margra ríkisstjórna í Evrópusambandinu. Standa hefði mátt miklu betur að þessum flóttamannamálum, en eins og of lengi var látið reka á reiðanum, má líklegt telja, að varnir landanna hafi riðlazt eða veikzt.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Vera í ESB bjóði hættunni heim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2016 | 22:18
Steingrímur J. Sigfússon sveikst aftan að þjóðinni með kosningaloforði sínu í Sjónvarpi kvöldið fyrir kjördag 2009 (myndband afhjúpar hann!)
Greypileg kosningasvik formanns VG og leiðitamra í flokki hans varðandi umsókn um inngöngu í Evrópusambandið sitja enn í mörgum. Hefur pólitíkus nokkurn tímann tekið U-beygju jafn-hratt og gróflega fyrir ráðherrastóla?
Orð Steingríms J. Sigfússonar hér á eftir eru á tæru: hvernig hann narraði þjóðina með eindregnu kosningaloforði fyrir maíkosningarnar 2009 um að fara EKKI í aðildarviðræður, en sneri algerlega við blaðinu með þátttöku sinni og annarra í VG í ESB-umsókn Össurar og Jóhönnu strax þá um sumarið. Sjáið þetta afhjúpandi hálfrar mínútu myndband, daginn fyrir kosningarnar 2009:
https://www.youtube.com/watch?v=AIBuEnFQ6ac
Þar segir orðrétt:
- Sigmar í Kastljósi: "Kemur það til greina, Steingrímur, bara svo að ég spyrji þig, kemur það til greina að hefja undirbúning að því að sækja um, strax núna eftir kosningar? ..."
- Steingrímur: "Nei."
- Sigmar: "... vegna þess að þannig hefur Samfylkingarfólkið talað ..."
- Steingrímur: "Nei."
- Sigmar: "... að þetta byrji í sumar?"
- Steingrímur: "Nei."
- Sigmar: "Hvenær getur þetta byrjað?"
- Steingrímur: "Það samrýmist ekki okkar stefnu, og við hefðum ekkert umboð til slíks, og þó við reyndum að leggja það til, forystufólkið í flokknum, að það yrði farið strax í aðildarviðræður, gagnstætt okkar stefnu í maí, þá yrði það fellt í flokksráði Vinstri grænna. Þannig að slíkt er ekki í boði."
Þetta nægir sem sjálfsvitnisburður þessa fyrrverandi "allsherjarráðherra" í ríkisstjórn Jóhönnu. Ekkert kemur honum verr en hans eigin gerðir.
En spyrjum okkur: Gerðu 365 miðlar og Ríkisútvarpið eitthvað til að minna á þau greypilegu kosningasvik Steingríms J. að taka svo fullan þátt í Evrópusambands-umsókn Samfylkingarinnar fljótlega eftir kosningarnar? Var eitthvað gert til að gagnrýna Steingrím J. Sigfússon og hans auðsveipna þjónustulið, þ. á m. Katrínu Jakobsdóttur?*
Nei, minnist þess nokkur? Hver hefur nokkurn tímann heyrt þessi orðaskipti í Kastljósi daginn fyrir kosningarnar 2009 endurtekin í dagskrá Fréttastofu Rúv, hvað þá sýnd á skjánum vikum og mánuðum og jafnvel árum saman?
Hlutdrægni Fréttastofu Rúv (og vitaskuld fjölmiðla ESB-mannsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar) er AUGLJÓS, því að hitt gátu þeir: endurtekið í sífellu orð Bjarna Ben. og Sigmundar Davíðs, í og úr samhengi, þar sem þeir virtust tala gegn eigin nýlegu flokkssamþykktum í ESB-málinu. Flokksþing þeirra vildu binda enda á Össurar-umsóknina um inngöngu í ESB, og þegar til stóð að ganga frá því máli í Alþingi, var það stöðvað með upphlaupi Samfylkingar, ESB-sinna, 365 miðla og Fréttastofu Rúv sem dögum og vikum saman hamraði endalaust á því (yfirleitt fyrst í fréttum) að ríkisstjórnarflokkanir stefndu að "kosningasvikum"! Fólk var jafnvel með slíkum ókeypis auglýsingum æst upp í að mæta á Austurvöll til að kollvarpa áformum ríkisstjórnarinnar. Þar hitti þetta lið svo fyrir nefbeinslausa menn, leiðtoga flokkanna tveggja og utanríkisráðherrann, sem sneypulega dró til baka sína þingsályktunartillögu um afturköllun aðildarumsóknar að ESB! Aldrei var hins vegar gengið að þjóðsvikaranum Steingrími með sama ágenga hætti.
Sjálfstýriapparatið á Fréttastofu Rúv birtir bara það sem því sýnist, en ekkert t.d. um hin makalausu svik Steingríms J. Viðkomandi starfsmenn þar voru með þessu í reynd að vinna í þágu erlends stórveldis, ekki íslenzks almennings, sem er þó eigandi þessa sama Ríkisútvarps!
Jón Ásgeir Jóhannesson, hvers hjarta slær ekki bara uppi á lofti í Skaftahlíð (í gamla Lídó-húsinu, aðsetri 365), heldur líka í Brussel, sá maður á hins vegar Ingibjörgu Pálmadóttur, sem á 365 fjölmiðla, og þess vegna eru allir skriffinnar og skrafarar þar látnir vinna í þágu Evrópusambands-"hugsjónar" Jóns Ásgeirs!
En Steingrímur J. Sigfússon á enn eftir að gera reikningsskil gerða sinna. Alþingi á ekki að vera honum griðastaður til að halda áfram að þjóna markmiðum Samfylkingarinnar og hennar yfirboðara.
* Sumir hafa verið að stinga upp á Katrínu Jakobsdóttur sem forsetaframbjóðanda í komandi kosningum! Þeir ættu að hafa ofangreint í huga, sbr. einnig þessa grein um hana: Vanhagar okkur um ESB-umsóknarkonu á Bessastaði? Katrín Jakobsdóttir snuðaði þjóðina og sveik kosningaloforð í ESB-máli.
VIÐAUKI:
Indriði á Skjaldfönn um "kosningaloforðasvikarann mesta", Steingrím J.:
Ráð er að lesa orð gamals VG-félaga, Indriða Aðalsteinssonar, bónda á Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp, í snarpri grein hans í Mbl. 24.2.2014: Opinberunarbók Össurar. Þar segir hann m.a. (leturbr. hér):
- "En aftur til kosningavorsins 2009. Það tók ekki langan tíma fyrir sigurvegarann S.J.S. að slökkva á vonum og væntumþykju okkar þorra stuðningsfólks VG til ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Í sjónvarpsumræðum kvöldið fyrir kjördag hafnaði S.J.S. því algerlega, að til greina kæmi að óska eftir viðræðum um ESB-aðild.
- Orðrétt sagði hann við alþjóð: Það samrýmist ekki okkar stefnu og við höfum ekkert umboð til þess. Hálfum mánuði síðar lagði stjórnarfleyið frá landi með Brussel fyrir stafni og aðildarumsókn sem leiðarljós. Nýjum og áður óþekktum hæðum Íslandssögunnar í kosningaloforðasvikum hafði verið náð."
Og eftir smá-sprett um Jóhönnu segir Indriði:
- "Hinn stjórnarleiðtoginn S.J.S. lét ekki sitt eftir liggja í vígaferlunum. Hann hrakti Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslason úr flokknum og flæmdi Ásmund Einar til Framsóknar. Ruddi síðan Guðfríði Lilju frá þingflokksformennsku. Að skipan Jóhönnu dró hann Jón Bjarnason úr ráðherrastól og gerði hvað hann gat að leggja Ögmund að velli í Kragaforvali.
- Í ársbyrjun 2012 er stjórnin í raun búin að missa þingstyrk til að koma málum sínum fram, enda klókindi hvergi að finna hjá forkólfum hennar sem töpuðu öllum sínum orrustum.
- En að sögn Össurar var stritast við að sitja, þó að ljóst mætti vera að því lengur sem þessi fyrsta hreina vinstristjórn héldi út, því sárgrætilegra víti til varnaðar yrði hún um alla framtíð."
Þannig skrifa gamlir, trúir VG-menn um sinn fallna "leiðtoga".
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2015 | 22:29
Sigur ESB-skeptíkera í Danmörku
Danir höfnuðu nú í þjóðaratkvæði (53,1:46,9%) sífellt ágengara ESB um valdheimildir til Brussel. Þetta er sigur fyrir Danska þjóðarflokkinn og sjálfstæðis-viðleitnina, ósigur fyrir ESB-meðvirkan forsætisráðherrann Rasmussen.
Danir vilja með sinni ákvörðun halda undanþágu sinni frá þátttöku í samstarfi ríkja Evrópusambandsins á sviði lögreglu- og dómsmála, undanþágu sem þeir fengu fyrir rúmum tveimur áratugum, eftir að þeir höfnuðu Maastricht-sáttmálanum.
JVJ.
![]() |
Danir segja nei |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 4.12.2015 kl. 06:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2015 | 19:42
Sendiherra ESB tjáir vilja ESB: að komast yfir Ísland
Ófyrirleitið er það ekki aðeins af sendiherra ESB á Íslandi, heldur af stórveldinu sjálfu að tala um að Össurarumsóknin geti enn verið í gildi, því að fullmektugur (plénipotentiaire) er sendiherrann til að tjá stefnu Evrópusambandsins fyrir þess hönd, skv. sínu skipunarbréfi, og gerði það með þessu (sjá tengil neðar).
Það var við því að búast, að refsskapur Brusselmanna kæmi fram í þessu máli, ekki sízt þegar utanríkisráðherrann Gunnar Bragi reyndist jafn-ragur, svikull og meðfærilegur í málinu og raun ber vitni og ríkisstjórnin engu skárri.
Menn hafa lengi vitað um yfirlýstan illan ásetning Árna Páls og Össurar í málinu: Þeir hafa skrifað til Brussel og láta sem bréf Gunnars Braga hafi ekkert gildi og að ótrauðir ætli þeir sér að "halda áfram með" umsókn sína (Össurarumsóknina ólögmætu) um leið og þeim gefst tækifæri til, enda telur Samfylkingin hana í fullu gildi eða lætur sem hún sé það.
Og þetta er auðvitað útþenslusinnuðu stórveldinu að skapi. Þess vegna eiga menn ekki að láta það blekkja sig, hvað gerzt hefur á einhverjum (en alls ekki öllum) vefsíðum ESB. Engin formleg yfirlýsing hefur komið frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um að Ísland hafi endanlega og formlega hætt við umsóknina og að hún sé því ekki lengur til staðar og að sækja yrði um upp á nýtt, ef einhver ríkisstjórn hér vildi komast inn í þeirra tröllslega bákn.
Og þess vegna eiga menn heldur ekki að láta það koma sér á óvart hvernig sendiherra ESB talar. Það staðfestir einmitt það, sem hér var sagt um stefnu Evrópusambandsins í málinu, enda er sendiherrann þess löglega málpípa með fullu valdi til að lýsa stefnu þess fyrir þess hönd.
Svo er það bara aukageta hans, svona eins og til gamans að stinga fleini í Gunnar Braga og sýna honum fullkomna óvirðingu um leið, að láta vita af því, að það sé ekkert mark tekið á leikþætti hans og óskuldbindandi afturfóta- og handarbaks-vinnubrögðum.
Hér verðum við að vera sammála Styrmi Gunnarssyni* og Jóni Bjarnasyni,** formanni Heimssýnar, eins og þeir hafa sjáð sig um málið.
* http://styrmir.is/entry.html?entry_id=2160442
** http://jonbjarnason.blog.is/blog/jonbjarnason/entry/2160457/
![]() |
ESB-umsóknin mögulega enn í gildi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.10.2015 | 14:15
Evrópusambandið nálgast óðfluga það markmið að stofna til eigin hers!
Juncker, forseti framkvæmdastjórnar sambandsins, sagði fyrr á árinu, að það þyrfti á eigin her að halda sem mótvægi m.a. við Rússland. Við stefnum mun hraðar en fólk grunar í áttina að Evrópuher, sagði Joseph Daul, forseti stærsta þingflokksins á ESB-þinginu, European People's Party (EPP) við blaðamenn sl. fimmtudag.
- Flokksþing EPP verður haldið í næstu viku en búist er við að þar verði samþykkt að stefnt verði að því að Evrópusambandið verði varnarbandalag.
- Greint er frá þessu á fréttavefnum EurActiv.com en forystumenn EPP, sem er stærsti þingflokkur mið- og hægrimanna á Evrópuþinginu, [telja] að nauðsynlegt sé að taka þetta skref í ljósi þeirra vandamála sem komið hafi upp í nágrannaríkjum Evrópusambandsins, og er þar meðal annars vísað til átakanna í Úkraínu og flóttamannavandans. (Mbl.is)
Ýmsar málpípur Evrópusambandsins hér á landi hafa þráfaldlega þrætt fyrir, að ESB stofni nokkurn tímann til eigin hers. Var þó vitað fyrir um áhugann í þessa átt í Brussel, enda valdheimildir til slíks í Lissabon-sáttmálanum. Draumurinn er raunar eldri en svo:
- Fram kemur í fréttinni að hugmyndir um Evrópuher séu ekki nýjar af nálinni. Þannig hafi slíkar hugmyndir fyrst verið settar fram árið 1950. Þær hafi hins vegar ekki náð fram að ganga. (Mbl.is)
En sú stund nálgast óðfluga, það sést hér á öllu!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Stefna hratt að Evrópuher |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)