Steingrímur J. Sigfússon sveikst aftan að þjóðinni með kosningaloforði sínu í Sjónvarpi kvöldið fyrir kjördag 2009 (myndband afhjúpar hann!)

Greypileg kosningasvik formanns VG og leiðitamra í flokki hans varðandi umsókn um inngöngu í Evrópusambandið sitja enn í mörgum. Hefur pólitíkus nokkurn tímann tekið U-beygju jafn-hratt og gróflega fyrir ráðherrastóla?

Orð Steingríms J. Sigfússonar hér á eftir eru á tæru: hvernig hann narraði þjóðina með eindregnu kosningaloforði fyrir maíkosningarnar 2009 um að fara EKKI í aðildarviðræður, en sneri algerlega við blaðinu með þátttöku sinni og annarra í VG í ESB-umsókn Össurar og Jóhönnu strax þá um sumarið. Sjáið þetta afhjúpandi hálfrar mínútu myndband, daginn fyrir kosningarnar 2009:

https://www.youtube.com/watch?v=AIBuEnFQ6ac

Þar segir orðrétt:

  • Sigmar í Kastljósi: "Kemur það til greina, Steingrímur, bara svo að ég spyrji þig, kemur það til greina að hefja undirbúning að því að sækja um, strax núna eftir kosningar? ..."
  • Steingrímur: "Nei."
  • Sigmar: "... vegna þess að þannig hefur Samfylkingarfólkið talað ..."
  • Steingrímur: "Nei."
  • Sigmar: "... að þetta byrji í sumar?"
  • Steingrímur: "Nei."
  • Sigmar: "Hvenær getur þetta byrjað?" 
  • Steingrímur: "Það samrýmist ekki okkar stefnu, og við hefðum ekkert umboð til slíks, og þó við reyndum að leggja það til, forystufólkið í flokknum, að það yrði farið strax í aðildarviðræður, gagnstætt okkar stefnu í maí, þá yrði það fellt í flokksráði Vinstri grænna. Þannig að slíkt er ekki í boði."

Þetta nægir sem sjálfsvitnisburður þessa fyrrverandi "allsherjarráðherra" í ríkisstjórn Jóhönnu. Ekkert kemur honum verr en hans eigin gerðir.

En spyrjum okkur: Gerðu 365 miðlar og Ríkisútvarpið eitthvað til að minna á þau greypilegu kosningasvik Steingríms J. að taka svo fullan þátt í Evrópusambands-umsókn Samfylkingarinnar fljótlega eftir kosningarnar? Var eitthvað gert til að gagnrýna Steingrím J. Sigfússon og hans auðsveipna þjónustulið, þ. á m. Katrínu Jakobsdóttur?*

Nei, minnist þess nokkur? Hver hefur nokkurn tímann heyrt þessi orða­skipti í Kastljósi daginn fyrir kosningarnar 2009 endurtekin í dagskrá Fréttastofu Rúv, hvað þá sýnd á skjánum vikum og mánuðum og jafnvel árum saman?

Hlutdrægni Fréttastofu Rúv (og vitaskuld fjölmiðla ESB-mannsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar) er AUGLJÓS, því að hitt gátu þeir: endurtekið í sífellu orð Bjarna Ben. og Sigmundar Davíðs, í og úr samhengi, þar sem þeir virtust tala gegn eigin nýlegu flokkssamþykktum í ESB-málinu. Flokksþing þeirra vildu binda enda á Össurar-umsóknina um inngöngu í ESB, og þegar til stóð að ganga frá því máli í Alþingi, var það stöðvað með upphlaupi Samfylkingar, ESB-sinna, 365 miðla og Fréttastofu Rúv sem dögum og vikum saman hamraði endalaust á því (yfirleitt fyrst í fréttum) að ríkisstjórnarflokkanir stefndu að "kosningasvikum"! Fólk var jafnvel með slíkum ókeypis auglýsingum æst upp í að mæta á Austurvöll til að kollvarpa áformum ríkisstjórnarinnar. Þar hitti þetta lið svo fyrir nefbeinslausa menn, leiðtoga flokkanna tveggja og utanríkis­ráðherrann, sem sneypulega dró til baka sína þings­ályktunar­tillögu um afturköllun aðildar­umsóknar að ESB! Aldrei var hins vegar gengið að þjóðsvikaranum Steingrími með sama ágenga hætti.

Sjálfstýriapparatið á Fréttastofu Rúv birtir bara það sem því sýnist, en ekkert t.d. um hin makalausu svik Steingríms J. Viðkomandi starfsmenn þar voru með þessu í reynd að vinna í þágu erlends stórveldis, ekki íslenzks almennings, sem er þó eigandi þessa sama Ríkisútvarps!

Jón Ásgeir Jóhannesson, hvers hjarta slær ekki bara uppi á lofti í Skaftahlíð (í gamla Lídó-húsinu, aðsetri 365), heldur líka í Brussel, sá maður á hins vegar Ingibjörgu Pálmadóttur, sem á 365 fjölmiðla, og þess vegna eru allir skriffinnar og skrafarar þar látnir vinna í þágu Evrópusambands-"hugsjónar" Jóns Ásgeirs! 

En Steingrímur J. Sigfússon á enn eftir að gera reikningsskil gerða sinna. Alþingi á ekki að vera honum griðastaður til að halda áfram að þjóna markmiðum Samfylkingarinnar og hennar yfirboðara.

* Sumir hafa verið að stinga upp á Katrínu Jakobsdóttur sem forsetaframbjóðanda í komandi kosningum! Þeir ættu að hafa ofangreint í huga, sbr. einnig þessa grein um hana: Vanhagar okkur um ESB-umsóknarkonu á Bessastaði? Katrín Jakobsdóttir snuðaði þjóðina og sveik kosningaloforð í ESB-máli.

 

VIÐAUKI: 

Indriði á Skjaldfönn um "kosningaloforðasvikarann mesta", Steingrím J.:

Ráð er að lesa orð gamals VG-félaga, Indriða Aðalsteinssonar, bónda á Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp, í snarpri grein hans í Mbl. 24.2.2014: Opin­berunarbók Össurar. Þar segir hann m.a. (leturbr. hér):

  • "En aftur til kosningavorsins 2009. Það tók ekki langan tíma fyrir sigur­vegarann S.J.S. að slökkva á vonum og væntum­þykju okkar þorra stuðnings­fólks VG til ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Í sjónvarps­umræð­um kvöldið fyrir kjördag hafnaði S.J.S. því algerlega, að til greina kæmi að óska eftir viðræðum um ESB-aðild. 
  • Orðrétt sagði hann við alþjóð: „Það samrýmist ekki okkar stefnu og við höfum ekkert umboð til þess.“ Hálfum mánuði síðar lagði stjórnar­fleyið frá landi með Brussel fyrir stafni og aðildarumsókn sem leiðarljós. Nýjum og áður óþekktum hæðum Íslandssögunnar í kosningaloforðasvikum hafði verið náð.

Og eftir smá-sprett um Jóhönnu segir Indriði:

  • "Hinn stjórnar„leiðtoginn“ S.J.S. lét ekki sitt eftir liggja í vígaferlunum. Hann hrakti Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslason úr flokknum og flæmdi Ásmund Einar til Framsóknar. Ruddi síðan Guðfríði Lilju frá þingflokks­formennsku. Að skipan Jóhönnu dró hann Jón Bjarnason úr ráðherrastól og gerði hvað hann gat að leggja Ögmund að velli í Kragaforvali. 
  • Í ársbyrjun 2012 er stjórnin í raun búin að missa þingstyrk til að koma málum sínum fram, enda klókindi hvergi að finna hjá forkólfum hennar sem töpuðu öllum sínum orrustum. 
  • En að sögn Össurar var stritast við að sitja, þó að ljóst mætti vera að því lengur sem þessi „fyrsta hreina vinstristjórn“ héldi út, því sárgrætilegra víti til varnaðar yrði hún um alla framtíð."

Þannig skrifa gamlir, trúir VG-menn um sinn fallna "leiðtoga". 

Jón Valur Jensson. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband