Færsluflokkur: Evrópumál

Ofmetnaður og vanhæfi?

Sem betur fer þarf ekki að kjósa annan tveggja Evrópu­sam­bands-inn­lim­unar­sinna til Bessa­staða, Þorgerði Katrínu eða stjórnar­skrár­brjótinn Össur Skarp­héð­ins­son, sem 19. þ.m. gaf ótví­rætt í skyn að hann gengur með for­setann í maganum ("ég yrði ábyggi­lega alþýð­legur forseti" sagði hann í síðdegis­þætti á Útvarpi Sögu! – og þetta er maðurinn sem unir sér svo vel innan um háelítuna í Brussel og vill helzt, að æðsta vald yfir okkar löggjafar-, framkvæmda- og dómsvaldi komist í hendur Evrópu­sambandsins!).

Ýmsir betri kostir koma til greina í forsetakjöri, eins og brátt kemur í ljós.

Jón Valur Jensson.


Borgarstjóri Lundúna vill að Bretland gangi úr Evrópusambandinu

Íhaldsmaðurinn mikilvægi Boris Johnson lýsir nú stuðningi við úrsögn Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta er áfall fyrir Dav­id Ca­meron o.fl. frammá­menn Íhalds­flokks­ins.

  • Sagði John­son í dag að eft­ir mikla um­hugs­un myndi hann mæla með að fólki kysi um að yf­ir­gefa sam­bandið. 
  • John­son er vin­sæll stjórn­mála­maður og einn sá þekkt­asti í Bretlandi. Hef­ur ærsla­fullt fas hans, mikið ljóst hár og hnitt­in svör hafa gert hann vin­sæl­an hjá  stuðnings­mönn­um Íhalds­flokks­ins sem og Verka­manna­flokks­ins. (Mbl.is)

Takið eftir þessu (leturbr. hér):

  • John­son sagði Ca­meron hafa staðið sig mjög vel í samn­inga­viðræð­unum við leiðtoga Evr­ópu­sam­bands­ins í fund­ar­lot­unni í vik­unni sem er að líða, en að eng­inn gæti í raun sagt að þess­ar breyt­ing­ar myndu hafa [í för með sér] grund­vall­ar­breyt­ing­ar á sam­skipti ríkj­anna eins og hug­mynd­in var upp­haf­lega.

Já, hlustum á gagnrýni hans:

  • Meðal þess sem John­son gagn­rýndi var að völd Evr­ópu­dóm­stóls­ins væru „kom­in úr bönd­un­um,“ og þá sagði hann að Bret­land þyrfti að leit­ast eft­ir nýju sam­bandi við Evr­ópu­sam­bandið byggðu á viðskipt­um og auknu sam­starfi.

Þá er þetta býsna athyglisvert um framtíðarhorfurnar hjá Cameron og Johnson:

  • Stjórn­mála­skýrend­ur í Bretlandi telja að þetta út­spil John­sons, sem hef­ur bæði komið fram sem stuðnings­maður Ca­merons og stund­um verið hon­um ljár í þúfu, sýni að John­son horfi til þess að verða arftaki Ca­meron í embætti leiðtoga Íhalds­manna. Telji hann vænt­an­lega lík­legra til vin­sælda þegar til lengri tíma sé litið að styðja nú út­göngu úr sam­band­inu. (Mbl.is)

Hér verður engu spáð, nema hvað ljóst er, að yfirlýst afstaða Boris Johnson mun hafa sín áhrif á úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar í sumar.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Boris mótfallinn hugmyndum Cameron
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að Samfylking sjái ljósið - eða a.m.k. smá-skímu

Nú hafa tveir forystumenn Sam­fylk­ingar, for­mað­urinn Árni Páll og Helgi þing­flokks­for­maður, sem fýsir að verða for­maður, viður­kennt mistök flokks­ins með ein­hliða ofur­áherzlu á ESB og evr­una ásamt hlut­drægum böl­móði um ís­lenzkt efna­hagslíf.

Mis­tök eru til þess að læra af. Kreppa stjórn­mála og ekki síst okk­ar jafn­aðar­manna er ekki sér­ís­lensk þótt hún djúp sé hér. Hún er sprott­in af þeirri til­finn­ingu fólks að pen­inga­öfl­in ráði, stjórn­mála­menn séu í stjórn­mál­um bara sjálfra sín vegna og flokk­arn­ir svíki gef­in lof­orð,“ seg­ir Helgi Hjörv­ar, þing­flokks­formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, í yf­ir­lýs­ingu sem hann hef­ur sent til fjöl­miðla í kjöl­far þess að hann til­kynnti fram­boð til for­mennsku í flokkn­um (leturbr. jvj).

Það dug­ar ekki að bíða eft­ir evr­unni, held­ur þarf Sam­fylk­ing­in skýra stefnu­breyt­ingu. Við eig­um að halda aðild­ar­um­sókn­inni að ESB á lofti,“ seg­ir Helgi, „en hætta að segja að allt sé ósann­gjarnt og verði áfram óhóf­lega dýrt á meðan við höf­um okk­ar veik­b­urða gjald­miðil.“

Takið eftir, að enn hangir hann í því að tíunda meintan veikleika krón­unnar, í stað þess að viðurkenna a.m.k. sveigjanleika hennar um leið, og vill halda aðild­ar­um­sókn­inni  áfram, NOTA BENE: ekki viðurkenna, að hún hafi verið dregin til baka! Við vitum sem sé, hvernig Helgi myndi reynast í því máli, yrði hann foringi Samfylkingarinnar – gera allt til að liðka fyrir sem sneggstri innlimun í stórveldið!

„Við meg­um ekki fresta því að breyta kerf­inu þangað til við fáum al­vöru gjald­miðil [sic],“ seg­ir Helgi enn­frem­ur í sömu yf­ir­lýs­ingu.

En þótt það sé prýðilegt að Samfylking sjái a.m.k. smá-skímu þessa dagana og ætli sér ekki að halda áfram gamla söngnum um að nánast allt sé hér ómögu­legt, eins og það hafi verið rök fyrir innlimun í stórveldabandalag, þá skulum við samt hafa auga með því, hvað valdamenn í þessum hnignandi flokki ætla sér – og ekki þá síður vegna þess, að nýja formannsefnið vill sameinast Pír­ötum og "Bjartri framtíð" og trúlega véla það fólk inn í Brusseláhugamál sitt.

Engin Evrópusambands-innlimunarstefna má eiga hér upp á pallborðið hjá íslenzkri þjóð; við stefnum sjálf að okkar eigin björtu framtíð með vinnusemi og okkar ágætu krónu sem smám saman hefur gert Ísland að alvöru-ferða­mennskulandi, ríkissjóði og sveitarfélögum og okkur öllum til mikils tekjuauka. Með tímanum (eins og hefur sýnt sig) getum við svo vel sniðið marga agnúana af okkar efnahags- og peningamálum og gefið almenningi miklu betri hlut í batanum með því að útdeila gróða nýju bankanna af því að hafa keypt kröfur hrundu bankanna á spottprís. Og nú þegar, frá síðustu áramótum, hefur ríkis­stjórnin fært niður verðlag á ýmsum vörum með niðurfellingu tolla – en það er nokkuð sem við værum ekki sjálfráð um, ef við værum í Evrópusambandinu!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Ekki hægt að bíða eftir evrunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarskrárnefnd má ekki leggja neitt til sem stofnar fullveldi í hættu eða torveldar endurheimt þess

Það, sem mestu skiptir um rétt þjóðarinnar til áhrifa á löggjöf, er ekki sú prósenta (15%) sem stjórnarskrárnefnd var að ráða með sér, heldur 1) að unnt sé að stöðva fullveldisframsal til ESB í krafti naums meirihluta kjósandi þing­manna og 2) að þjóðin geti haft frumkvæði að því að hafna þeim "þjóð­réttar­samningi" sem feli í sér slíkt fullveldisframsal.

Lágmarkskrafan um 15% kjósenda (um 40.000 manns), sem þurfi til að unnt verði að vísa samþykktum lögum til þjóðaratkvæðis, er verulega ströng og yrði því trúlega sjaldan (jafnvel aldrei) nýtt, því að þetta verður sennilega haft innan fjögurra vikna ramma, þ.e. að innan þess tíma, frá samþykkt Alþingis á við­komandi lögum, verði undirskriftalistar að liggja fyrir, og þar verður gerð mun strangari krafa til undirskriftanna heldur en t.d. í áskorendasöfnun Kára Stef­áns­sonar og félaga eða öðrum áþekkum.

Fundað verður á ný í stjórnarskrárnefnd á morgun, og þar er áhyggju-verkur­inn: að nefndin kunni að stefna að svipuðum stjórnarskrárbreytingum um framsal fullveldis og s.k. "stjórnlagaráð", sem hér starfaði ólöglega og bar fram tillögu í afar billegu formi um heimild til framsals ríkisvalds, þannig að hvenær sem væri (og þegar það t.d. væri talið ESB hentugast vegna stöðu alþjóðamála sem innlendra) gæti einfaldur meirihluti þingmanna troðið slíku máli í gegn og síðan gert áhlaup á þjóðina í krafti yfirgnæfandi peningaveldis og áróðurs­yfirburða innlendra sem erlendra hagsmunaaðila til að véla nauman meirihluta þjóðarinnar til að samþykkja þetta, sem 111. tillögugrein "ráðsins" átti að heimila –– en um leið bundið þannig um hnútana í 67. tillögugreininni, að kjósendur (alveg sama hve margir) gætu aldrei krafizt þjóðar­atkvæða­greiðslu um að afturkalla þær þjóðréttar­skuldbindingar, sem samþykktar hefðu verið með fyrr­nefndum gerningi, þ.e. innlimun í Evrópusambandið!

Það hvílir því mikil ábyrgð á herðum þessara stjórnarskrárnefndarmanna undir forystu Páls Þórhallssonar, sem og á alþingismönnum, eftir að frumvarp um þessi mál kann að koma fram á yfirstandandi vorþingi. Því er spenna í lofti, hvað kann að koma í ljós að loknum fundi nefndarinnar á morgun. En það er langt í frá sjálfgefið, að flokkar, sem jafnvel kenna sig við sjálfstæði, standi tryggan vörð um þjóðarhagsmuni. Það gerðu flestir þeirra ekki á lokastigum Icesave-málsins, og það var málskotsréttur forsetans, ásamt samstöðu gras­rótarhreyfinga og þjóðarviljans, sem bjargaði okkur þá frá óförum og alþjóða­hneisu. Þess vegna ætti stjórnarskrárnefnd ekki heldur að taka það í mál, að þessi dýrmæti málskotsréttur verði tekinn af forseta Íslands. Ennfremur er það afleitt, að einfaldur, naumur meirihluti, hvort heldur í Alþingi eða í þjóðar­atkvæða­greiðslu, geti haft úrslitaáhrif á sjálfstæði og fullveldi þessa lands.

En við þekkjum ýmsa þá, sem mælt hafa gegn neyðarrétti forsetans, og við skulum ekki ljá máls á því nú, að sömu aðilar laumi nú síðar inn þeirri vald­sviptingu þess embættis, enda er hreint engin þörf á henni.

Ennfremur má sérstaklega vara við því, að stjórnarskrárnefndin getur hugsan­lega tekið upp enn eina óþurftartillöguna frá "stjórnlagaráði", þ.e.a.s. í 113. greininni, um stjórnarskrár­breytingar, þar sem segir m.a.: "Hafi 5/6 hlutar þingmanna samþykkt frumvarpið [frumvarp til breytingar á stjórnarskrá] getur Alþingi þó ákveðið að fella þjóðaratkvæðagreiðsluna niður og öðlast þá frum­varpið gildi engu að síður." –– Þarna er einnig um valdsviptingu að ræða, í þetta sinn aftur og beint frá þjóðinni. Ákvæðin fyrstgreindu úr stjórnar­skrár­tillögum "stjórnlagaráðs" gætu þá t.d. komizt inn nú fyrir vorið, og síðan gæti Alþingi eitt sér breytt þeim ákvæðum í enn meiri ESB-átt, ef þingmönnum svo sýnist. Og minnumst þess hér, að 70% þeirra samþykktu Buchheit-frumvarpið!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Þjóðaratkvæði ef 15% vilja það
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baktjaldamakk Samfylkingar um ESB-umsóknina þarf að koma algerlega upp á yfirborðið

Árni Páll: "Við byggðum aðildarumsókn að ESB á flóknu baktjalda­samkomu­lagi, sem aldrei hélt, í stað þess að fá skýrt umboð frá þjóðinni til að fara í aðildar­viðræður, sem hefði bundið alla flokka við umsóknar­ferlið." Hann flokkar því Össurar­umsóknina sem "mistök".*

Merkilegt að uppgötva þetta svona eftir á. Og nú á Árni það eftir, eins og bent var á í leiðara Morgunblaðsins í dag, að lýsa því fyrir okkur með nákvæmum, sannsöglum hætti, hvernig þetta mikla baktjalda­samkomu­lag varð til, hverjir voru þar aðalleikendur, innlendir eða erlendir, og hvort einstaklingar úr öðrum flokkum en Jóhönnustjórnarinnar komu þar við sögu; ennfremur út á hvað þetta baktjaldasamkomulag gekk – hvort til dæmis skyldi fyrir alla muni forðazt, að þjóðin yrði spurð ráða.

Ennfremur var þetta meðal þeirra helztu mistaka sem Árni Páll nefndi í frægu bréfi sínu í gær:

"Skuldir heimilanna Þegar fólk var að drukkna í skuldafeni tókum við að okkur í of ríkum mæli að útskýra fyrir fólki að það ætti að borga skuldir sínar, í stað þess að taka okkur stöðu með fólki gegn fjármálakerfi.

Icesave  Við studdum samning um Icesave sem varði ekki ítrustu hagsmuni þjóðarinnar og mæltum gegn þjóðaratkvæðagreiðslu um hann."

Sannarlega var kominn tími til sannleiksuppgjörs í Samfylkingunni við hennar arfaslappa feril í Icesave- og ESB-málum. En seint mun Árna Páli takast að fá samþingmenn sína í SF alla til að iðrast. Hætt er við, að nú verði hangið í þögn að hætti Oddnýjar Harðardóttur og afneitun á borð við undanfærslur og nýskáldskap Steingríms J. Sigfúsonar í Icesave-málinu og raunar í fleiri mjög viðkvæmum fjármálum fyir hann.

Árni Páll hefur óneitanlega hreinni skjöld í sumum þessum málum en sam­ráðherrar hans fyrrverandi. Þannig léði hann fyrstur manna í stjórnarliði Jóhönnu máls á því að snúa við blaðinu í Icesave-málinu eftir á.

* Reyndar var Árni Páll einn meðal fárra sem gerðu sér grein fyrir því, að Össurar-umsóknin var, eins og á henni var haldið, beint stjórnarskrárbrot, sbr. hér: Árni Páll Árnason minnir óvart á að ESB-umsókn Össurar og hans eigin flokks var ólögmæt!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Bréf Árna Páls kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fv. varn­ar­málaráðherra Breta: "Að vera í ESB býður hættunni heim"!

Liam Fox seg­ir hryðju­verka­menn komast til lands­ins und­ir yf­ir­skini þess að vera flótta­menn. Því stafi Bret­um hætta af straumi hæl­is­leit­enda og flótta­manna til álfunnar og verri gætu af­leiðing­arnar orðið en árás­irn­ar sem kon­ur urðu fyr­ir í Köln o.fl. þýzkum borgum um ára­mót­in.

Þetta kem­ur fram í viðtali breska dag­blaðsins Daily Tel­egraph við Liam Fox en þar seg­ir hann að Bret­ar þurfi að end­ur­heimta sjálf­stæði sitt og segja skilið við Evr­ópu­sam­bandið til þess að koma í veg fyr­ir að þessi staða geti komið upp. Seg­ir hann út í hött að halda því fram, líkt og Dav­id Ca­meron for­sæt­is­ráðherra Bret­lands hafi gert, að vera Breta í Evr­ópu­sam­band­inu styrkti þjóðarör­yggi þeirra. Bretlandi stafaði hætta af veru sinni í sam­band­inu af fjöl­mörg­um ástæðum. Þar á meðal vegna efna­hagskrís­unn­ar á evru­svæðinu. (Mbl.is segir frá, leturbr. jvj.)

Þessi fyrrverandi ráðherra seg­ir "yf­ir­völd í Grikklandi og á Ítal­íu ekki hafa hug­mynd um það hvaða fólk sé að koma til landa þeirra með bát­um frá Tyrklandi og yfir Miðjarðar­hafið, hvort um sé að ræða flótta­menn, hæl­is­leit­end­ur, fólk að flýja bág kjör eða hryðju­verka­menn sem haldi því fram að þeir séu flótta­menn eða hæl­is­leit­end­ur."

Þetta er alvarleg áminning, ekki aðeins til ríkisstjórnar íhaldsmanna í Bretlandi, heldur til margra ríkisstjórna í Evrópusambandinu. Standa hefði mátt miklu betur að þessum flóttamannamálum, en eins og of lengi var látið reka á reiðanum, má líklegt telja, að varnir landanna hafi riðlazt eða veikzt.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Vera í ESB bjóði hættunni heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nær fimm sinnum fleiri andvígir framsali hluta íslenzks ríkisvalds en hlynntir - og samt er hrikaleg tillaga nú í spilunum!

Af þessu er fullljóst, að tillaga Bjarna Benediktssonar, sem skömmu áður mælti með vissu framsali fullveldisheimilda, nýtur engrar almannahylli.

Pistill þessi frá 22.5. 2015 var endurbirtur hér efnislega óbreyttur.

En nú er það að gerast með aðkomu allra þingflokka, að s.k. stjórnarskrár­nefnd þeirra er einmitt með slík áform um fullveldisframsal á verkefna­listanum og það með blessun leiðandi ráðherra í ríkisstjórninni!

Hve lengi á þessi þjóð að þurfa að þola réttarbrotin gegn þjóðarhagsmunum og sjálfum grunni lýðveldisins? Umsóknin um inngöngu í Evrópusambandið var beint stjórnarskrárbrot gegn ákvæðum 16.-19. greinar um stjórnarráðstafanir eins og þingsályktanir um mikilvæg stjórnarmálefni (eins og skýr rök hafa verið leidd hér að í fyrri greinum og jafnvel Árni Páll Árnason viðurkenndi opinberlega 20.8. 2013 og minnti þar með óvart á að ESB-umsókn Össurar og hans eigin flokks var ólögmæt!).

Og nú er gerð atlaga að fullveldi okkar í málefnum ríkisins með því að leggja fram tillögu, sem yrði auðvelt sóknarfæri fyrir ESB-innlimunarsinna á Alþingi til að skella okkur nánast fyrirvaralaust inn í þetta stórveldasamband!

Og með hvaða hætti? Þjóðaratkvæðagreiðslu? Nei, heldur með samþykkt 2/3 hluta þingmanna! Já, þetta er í alvöru uppi á borðum hjá þessari þing­skipuðu stjórnarskrárnefnd! Og höfum þá í huga, að sama Alþingi samþykkti með 70% atkvæða Buchheit-samningana um Icesave, í frumvarpi sem svipt hefði landið möguleikanum til að sýna fram á sakleysi þjóðarinnar í Icesave-málinu, eins og gerðist svo fyrir EFTA-dómstólnum í janúar 2013 og varð ekki sízt til þess að fella Jóhönnustjórnina.

Heimild mín fyrir þessu um 2/3 þingmanna kemur frá manni sem kunnugur er starfi nefndarinnar. Þar mun jafnvel vera á borðum tillaga í annarri grein, sem kveður á um, að í "eðlisskyldum málum" (hugtak sem á sér enga lagahefð) skuli ekki þurfa nema hreinan meirihluta þingsins til að bæta slíkum sam­þykkt­um við hina fyrri (þá sem þurfti 2/3 stuðning við)! Þar nægi sem sé að merja fram rúm 50%!

Sjálft mannvalið (ef orða má það svo) í þessa stjórnarskárnefnd er reyndar ekkert til að hrópa húrra fyrir. Þar er t.d. ESB-innlimunarsinninn Valgerður Bjarnadóttir, einnig Jón Kristjánsson, fyrrv. ráðherra, fyrir Framsóknarflokk, en hann er alger Evrópu­sambands­sinni og er meðal ýmissa annarra úr stjórnar­flokkunum eins og Valgerðar Sverris­dóttur og Ragn­heiðar Ríkharðs­dóttur í Evrópu­samtök­unum. Frá VG er fulltrúi í stjórnar­skrárnefnd Katrín Jakobs­dóttir, sem í einu og öllu stóð með Össurar­genginu í ESB-umsókninni (sbr. hér: Vanhagar okkur um ESB-umsóknar­konu á Bessastaði? Katrín Jakobs­dóttir snuðaði þjóðina og sveik kosningaloforð í ESB-máli).

Skásti maður stjórnarskrár­nefndar er líklega Birgir Ármannsson, en auk hans mun vera þarna í nefndinni fyrrverandi þingkona sama flokks, hússtjórnar­skólastjóri að bakgrunni. Fyrir Pírata er framkvæmda­stjóri þeirra fulltrúi þar, kona sem talin er ESB-sinnuð. Nýjasti þingmaður Pírata (kona) mun einnig vera ESB-sinni, þótt hún láti það lítt uppi nú í seinni tíð. Það er því engum flokki að treysta í þessum Evrópu­sambands­málum og tími til kominn að varnar­menn lýðveldisins geri sig klára í þá rökræðu og þau skrif í blöð og á netið, sem þörf verður á, þegar tillögur stjórnar­skrár­nefndar koma formlega fram.

Það er enginn fullveldisflokkur starfandi í landinu, en nauðsyn hans kannski aldrei verið brýnni!

Það, sem gerir áform stjórnarskrárnefndar enn alvarlegri, er hin fulla vitneskja um, að í tillögu hennar um "málskotsrétt þjóðarinnar" --- þ.e.a.s. að 15% þjóðarnnar (um 40.000 manns), með tryggri undirskriftasöfnun (ekki einberri netsöfnun), geti, innan fjögurra vikna marka, krafizt þjóðaratkvæðis um samþykkt lagafumvarp --- þá yrðu ekki aðeins fjárlögin undanþegin, heldur einnig lagafrumvörp um þjóðréttarsamninga. (sbr. hliðstæðu þessa í 67. gr. tillagna hins ólöglega skipaða "stjórnlagaráðs"). Þjóðin fengi því EKKI rétt til að krefjast þjóðaratkvæðis um Evrópusambands-inngöngu, ekki frekar en til þess að krefjast úrsagnar úr Evrópusambandinu!

Fullveldissinnar hafa ekki frekar en þjóðin sjálf efni á því að fljóta sofandi að feigðarósi í þessu máli, er það ekki nokkuð ljóst?

Jón Valur Jensson. 


Í öllum skoðanakönnunum frá Össurar-umsókninni hefur yfirgnæfandi meirihluti verið á móti því að Ísland gangi í Evrópusambandið

Beztu menn eins og brezki ­leik­ar­inn Michael Caine vilja úrsögn Bret­a úr ESB, hann gagn­rýnir harðlega "and­lits­lausa emb­ætt­is­mennnsku" þar, sem tekur ákvarð­anir fyr­ir Bret­land. Eins er um meiri­hluta Íslendinga: þeir vilja EKKI "aðild" að þessu valdfreka stórveldasambandi og hafa aldrei viljað! Samt sitjum við uppi með stjórnmálamenn sem hafa hvorki döngun né dug til að fylgja eftir þessum vilja þjóðarinnar!

Lítið bara á niðurstöður skoðanakannana allt frá því að Össurar-umsóknin ólögmæta fór í gegnum Alþingi (en svikizt var um að leita stjórnarskrár-fyrirskipaðs samsinnis forsetans!). Takið eftir: andstaðan VEX með tímanum:

Gallup, 4.8.2009: 34,7% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 48,5% á móti, 16,9% hlutlaus.

Gallup, 15.9.2009: 32,7% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 50,2% á móti, 17% hlutlaus.

Sama könnun: Ef þjóðaratkvæði núna, hvernig myndirðu kjósa?  38,5% með, 61,5% á móti.

Hásk. á Bifröst, 5.11.2009: 29,0% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 54% á móti, 17% hlutlaus.

Gallup, 28.2.2010: 33,3% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 55,9% á móti, 10,8% hlutlaus.

Gallup, 5.3.2010: 24,4% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 60% á móti, 15,5% hlutlaus.

Sama könnun: Ef þjóðaratkvæði núna, hvernig myndirðu kjósa?  30,5% með, 69,4% á móti.

Gallup, 6.7.2010: 26% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 60% á móti, 14% hlutlaus.

Gallup, 10.3.2011: 31,4% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 50,5% á móti, 18% hlutlaus.

Sama könnun: Ef þjóðaratkvæði núna, hvernig myndirðu kjósa?  38,9% með, 61,1% á móti.

MMR, 17.3.2011: 30% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 55,7% á móti, 14,2% hlutlaus.

Gallup, 16.6.2011: 37,3% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 50,1% á móti, 12,6% hlutlaus.

Gallup, 11.8.2011: 35,5% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 64,5% á móti.

Gallup, 19.1.2012: 31,5% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 53,5% á móti, 15% hlutlaus.

Gallup, 22.2.2012: 26,3% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 56,2% á móti, 17,5% hlutlaus.

Sama könnun: Ef þjóðaratkvæði núna, hvernig myndirðu kjósa?  32,6% með, 67,4% á móti.

Hásk.Ísl., 27.4.2012: 27,5% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 53,8% á móti, 18,7% hlutlaus.

Gallup, 15.10.2012: 27,3% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 57,6% á móti, 15% hlutlaus.

MMR, 13.2.2013: 24,2% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 63,3% á móti, 12,5% hlutlaus.

Gallup, 6.3.2013: 25,1% vildu inngöngu í Evrópusambandið, 58,5% á móti, 16,5% hlutlaus.

Sama könnun: Ef þjóðaratkvæði núna, hvernig myndirðu kjósa?  30% með, 70% á móti.   

Jón Valur Jensson.


mbl.is Michael Caine vill úr Evrópusambandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J. Sigfússon sveikst aftan að þjóðinni með kosningaloforði sínu í Sjónvarpi kvöldið fyrir kjördag 2009 (myndband afhjúpar hann!)

Greypileg kosningasvik formanns VG og leiðitamra í flokki hans varðandi umsókn um inngöngu í Evrópusambandið sitja enn í mörgum. Hefur pólitíkus nokkurn tímann tekið U-beygju jafn-hratt og gróflega fyrir ráðherrastóla?

Orð Steingríms J. Sigfússonar hér á eftir eru á tæru: hvernig hann narraði þjóðina með eindregnu kosningaloforði fyrir maíkosningarnar 2009 um að fara EKKI í aðildarviðræður, en sneri algerlega við blaðinu með þátttöku sinni og annarra í VG í ESB-umsókn Össurar og Jóhönnu strax þá um sumarið. Sjáið þetta afhjúpandi hálfrar mínútu myndband, daginn fyrir kosningarnar 2009:

https://www.youtube.com/watch?v=AIBuEnFQ6ac

Þar segir orðrétt:

  • Sigmar í Kastljósi: "Kemur það til greina, Steingrímur, bara svo að ég spyrji þig, kemur það til greina að hefja undirbúning að því að sækja um, strax núna eftir kosningar? ..."
  • Steingrímur: "Nei."
  • Sigmar: "... vegna þess að þannig hefur Samfylkingarfólkið talað ..."
  • Steingrímur: "Nei."
  • Sigmar: "... að þetta byrji í sumar?"
  • Steingrímur: "Nei."
  • Sigmar: "Hvenær getur þetta byrjað?" 
  • Steingrímur: "Það samrýmist ekki okkar stefnu, og við hefðum ekkert umboð til slíks, og þó við reyndum að leggja það til, forystufólkið í flokknum, að það yrði farið strax í aðildarviðræður, gagnstætt okkar stefnu í maí, þá yrði það fellt í flokksráði Vinstri grænna. Þannig að slíkt er ekki í boði."

Þetta nægir sem sjálfsvitnisburður þessa fyrrverandi "allsherjarráðherra" í ríkisstjórn Jóhönnu. Ekkert kemur honum verr en hans eigin gerðir.

En spyrjum okkur: Gerðu 365 miðlar og Ríkisútvarpið eitthvað til að minna á þau greypilegu kosningasvik Steingríms J. að taka svo fullan þátt í Evrópusambands-umsókn Samfylkingarinnar fljótlega eftir kosningarnar? Var eitthvað gert til að gagnrýna Steingrím J. Sigfússon og hans auðsveipna þjónustulið, þ. á m. Katrínu Jakobsdóttur?*

Nei, minnist þess nokkur? Hver hefur nokkurn tímann heyrt þessi orða­skipti í Kastljósi daginn fyrir kosningarnar 2009 endurtekin í dagskrá Fréttastofu Rúv, hvað þá sýnd á skjánum vikum og mánuðum og jafnvel árum saman?

Hlutdrægni Fréttastofu Rúv (og vitaskuld fjölmiðla ESB-mannsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar) er AUGLJÓS, því að hitt gátu þeir: endurtekið í sífellu orð Bjarna Ben. og Sigmundar Davíðs, í og úr samhengi, þar sem þeir virtust tala gegn eigin nýlegu flokkssamþykktum í ESB-málinu. Flokksþing þeirra vildu binda enda á Össurar-umsóknina um inngöngu í ESB, og þegar til stóð að ganga frá því máli í Alþingi, var það stöðvað með upphlaupi Samfylkingar, ESB-sinna, 365 miðla og Fréttastofu Rúv sem dögum og vikum saman hamraði endalaust á því (yfirleitt fyrst í fréttum) að ríkisstjórnarflokkanir stefndu að "kosningasvikum"! Fólk var jafnvel með slíkum ókeypis auglýsingum æst upp í að mæta á Austurvöll til að kollvarpa áformum ríkisstjórnarinnar. Þar hitti þetta lið svo fyrir nefbeinslausa menn, leiðtoga flokkanna tveggja og utanríkis­ráðherrann, sem sneypulega dró til baka sína þings­ályktunar­tillögu um afturköllun aðildar­umsóknar að ESB! Aldrei var hins vegar gengið að þjóðsvikaranum Steingrími með sama ágenga hætti.

Sjálfstýriapparatið á Fréttastofu Rúv birtir bara það sem því sýnist, en ekkert t.d. um hin makalausu svik Steingríms J. Viðkomandi starfsmenn þar voru með þessu í reynd að vinna í þágu erlends stórveldis, ekki íslenzks almennings, sem er þó eigandi þessa sama Ríkisútvarps!

Jón Ásgeir Jóhannesson, hvers hjarta slær ekki bara uppi á lofti í Skaftahlíð (í gamla Lídó-húsinu, aðsetri 365), heldur líka í Brussel, sá maður á hins vegar Ingibjörgu Pálmadóttur, sem á 365 fjölmiðla, og þess vegna eru allir skriffinnar og skrafarar þar látnir vinna í þágu Evrópusambands-"hugsjónar" Jóns Ásgeirs! 

En Steingrímur J. Sigfússon á enn eftir að gera reikningsskil gerða sinna. Alþingi á ekki að vera honum griðastaður til að halda áfram að þjóna markmiðum Samfylkingarinnar og hennar yfirboðara.

* Sumir hafa verið að stinga upp á Katrínu Jakobsdóttur sem forsetaframbjóðanda í komandi kosningum! Þeir ættu að hafa ofangreint í huga, sbr. einnig þessa grein um hana: Vanhagar okkur um ESB-umsóknarkonu á Bessastaði? Katrín Jakobsdóttir snuðaði þjóðina og sveik kosningaloforð í ESB-máli.

 

VIÐAUKI: 

Indriði á Skjaldfönn um "kosningaloforðasvikarann mesta", Steingrím J.:

Ráð er að lesa orð gamals VG-félaga, Indriða Aðalsteinssonar, bónda á Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp, í snarpri grein hans í Mbl. 24.2.2014: Opin­berunarbók Össurar. Þar segir hann m.a. (leturbr. hér):

  • "En aftur til kosningavorsins 2009. Það tók ekki langan tíma fyrir sigur­vegarann S.J.S. að slökkva á vonum og væntum­þykju okkar þorra stuðnings­fólks VG til ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Í sjónvarps­umræð­um kvöldið fyrir kjördag hafnaði S.J.S. því algerlega, að til greina kæmi að óska eftir viðræðum um ESB-aðild. 
  • Orðrétt sagði hann við alþjóð: „Það samrýmist ekki okkar stefnu og við höfum ekkert umboð til þess.“ Hálfum mánuði síðar lagði stjórnar­fleyið frá landi með Brussel fyrir stafni og aðildarumsókn sem leiðarljós. Nýjum og áður óþekktum hæðum Íslandssögunnar í kosningaloforðasvikum hafði verið náð.

Og eftir smá-sprett um Jóhönnu segir Indriði:

  • "Hinn stjórnar„leiðtoginn“ S.J.S. lét ekki sitt eftir liggja í vígaferlunum. Hann hrakti Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslason úr flokknum og flæmdi Ásmund Einar til Framsóknar. Ruddi síðan Guðfríði Lilju frá þingflokks­formennsku. Að skipan Jóhönnu dró hann Jón Bjarnason úr ráðherrastól og gerði hvað hann gat að leggja Ögmund að velli í Kragaforvali. 
  • Í ársbyrjun 2012 er stjórnin í raun búin að missa þingstyrk til að koma málum sínum fram, enda klókindi hvergi að finna hjá forkólfum hennar sem töpuðu öllum sínum orrustum. 
  • En að sögn Össurar var stritast við að sitja, þó að ljóst mætti vera að því lengur sem þessi „fyrsta hreina vinstristjórn“ héldi út, því sárgrætilegra víti til varnaðar yrði hún um alla framtíð."

Þannig skrifa gamlir, trúir VG-menn um sinn fallna "leiðtoga". 

Jón Valur Jensson. 

Vanhagar okkur um ESB-umsóknarkonu á Bessastaði? Katrín Jakobsdóttir snuðaði þjóðina og sveik kosningaloforð í ESB-máli

Vilji menn eitilharða fylgiskonu þess að Ísland stefni inn í Evrópu­sam­bandið, geta þeir kosið Kat­rínu. Í einu og öllu þjónaði hún Stein­grími J. og Jóhönnu í því máli 2009 þvert gegn auglýstri stefnu eigin flokks, Vinstri grænna, fyrir kosn­ing­arnar 2009. Harka hennar í þágu Össurar-umsókn­arinnar sést af þessu:

1) Um breytingar­tillögu Vigdísar Hauksdóttur: að hagsmunir al­menn­ings og atvinnulífs yrðu tryggðir í aðildar­viðræðum, sérstaklega sjávar­útvegs og land­búnaðar, og að fullveldi og óskorað forræði Íslend­inga yfir auðlindum þjóðar­innar yrði grund­vallar­krafa í viðræð­unum, um þetta greiddi Katrín atkvæði þvert á móti.

2) Um breytingartillögu Bjarna Benediktssonar og Þorgerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur um þjóðaratkvæða­greiðslu innan þriggja mánaða um þings­álykt­unar­tillöguna greiddi Katrín Jakobsdóttir atkvæði á móti. Hún vildi sem sé ekki leyfa þjóðinni að segja álit sitt á því að hefja þetta umsóknarferli, sem hefur bæði kostað okkur mikið og sett störf Alþingis í uppnám og herkví á stundum og er enn til vandræða og hangir eins og sverð yfir fullveldis­hagsmunum þjóðarinnar.

3) Um þingsályktunartillöguna sjálfa, um aðildarumsókn að Evrópu­sambandinu,* greiddi Katrín atkvæði með henni.

Katrín Jakobsdóttir flutti ræðu á fullveldis­hátíð Heimssýnar í Gerðarsal í Kópavogi 1. desember 2008, að því er virtist til að gefa þar í skyn, að hún væri býsna mikið á línu með þeim samtökum gagnvart ESB og að vert væri fyrir fundarmenn að gefa henni atkvæði í komandi alþingis­kosningum. Í ljósi gerða hennar rúmu hálfu ári síðar virðist sem hún hafi þar verið að narra fundarmenn eða slá ryki í augu þeirra um raunverulega stöðu hennar. Hafi hún þá verið á móti ESB-umsókn, er ljóst, að hún sýndi enga sjálfssamkvæmni né trúnað í því máli, þegar á reyndi, þvert á móti gekk hún þveröfuga leið og tók þar ekki einu sinni í mál að bera þessa umsókn undir þjóðina fyrir haustið 2009!

Katrín er því enginn valkostur fyrir fullveldissinna að styðja, ekki frekar en Steingrímur J. Sigfússon, fyrrum formaður hennar, sem gekk á undan með ljótu fordæmi um að svíkja sín kosningaloforð með greypilegum hætti sumarið 2009.

Það er því öfugsnúið í hæsta máta að ímynda sér, að upplýstir, þjóðhollir Íslendingar, trúir fullveldi landsins, geti fengið það af sér að styðja Katrínu Jakobsdóttur til embættis forseta Íslands. Við kjósum ekki stjórnmálamenn til mestu ábyrgðarstarfa út á bros þeirra, heldur orð og efndir og tryggð við lýðveldið.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Katrín nýtur mestra vinsælda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband