Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
2.3.2014 | 15:44
Tveir sérfræðiprófessorar: Engar varanlegar undanþágur fengjust frá lögum ESB um landbúnað og sjávarútveg
Sumir ímynda sér, að undanþágur/sérlausnir fyrir ESB-ríki gagnvart lögum ESB séu varanlegar, ef ekki er tekið fram, að þær þær sé tímabundnar.
En ESB hefur það í hendi sér, hvenær þær verða afnumdar, úreltar eða þeim breytt.
Það er mjög upplýsandi að lesa orð dr. Stefáns Más Stefánssonar, prófessors í Evrópurétti við lagadeild HÍ, í bók hans Landbúnaðarlöggjöf Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins (2011, 108 bls.). Hann segir þar á síðu 66:
"Um varanlegar undanþágur frá reglum ESB. Skoðun á aðildarlögum einstakra ríkja staðfestir að hingað til hefur ekki verið um varanlegar undanþágur að ræða, hvorki á sviði sjávarútvegsmála né landbúnaðarmála." (Nánar þar.)
Ennfremur ritar hann á s. 66-67:
"Um tímabundnar undanþágur frá reglum ESB. Skoðun á aðildarlögum leiðir í ljós að unnt er að fá tímabundnar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins ef rök standa til þess. Er mismunandi og raunar samningsatriði hve hin tímabundna undanþága geti staðið lengi og hversu víðtæk hún getur orðið. Í aðildarsamningi Finnands, Svíþjóðar, Austurríkis og Noregs um aðild að Evrópusambandinu frá 1994 er m.a. gerð grein fyrir ýmsum aðlögunaraðgerðum sem giltu til ársloka 1999." (Nánar þar.)
Og í 3. lagi segir próf. Stefán Már (167):
"Breyting á reglum ESB í þágu einstakra aðildarríkja. Sem dæmi um þetta má nefna 142. grein fyrrnefnds aðildarsamnings en þar segir svo í lauslegri þýðingu:
- Framkvæmdastjórnin skal heimila Noregi, Finnandi og Svíþjóð að veita langtíma innanlandsstuðning með það að markmiði að tryggja að landbúnaður verði áfram stundaður á tilteknum svæðum. Þessi svæði eiga að ná til landbúnaðarsvæða norðan 62. breiddargráðu og nokkurra aðliggjandi svæða innan þeirrar breiddargráðu, sem búa við svipaðar veðurfarsaðstæður sem gera landbúnað erfiðan."
Og takið svo eftir beinu framhaldi texta Stefáns Más (leturbr. JVJ):
"Stuðningur samkvæmt þessari grein er bundinn ströngum reglugerðarákvæðum sem framkvæmdastjórnin [í Brussel] setur. Sem dæmi má nefna að hámark er sett á heildarstuðning og tegund stuðnings er ákveðin eftir ströngum mælikvarða. Af þessu er ljóst að litið er á ákvæðið sem sérstaka útfærslu ESB-réttar. Það er ESB sem ákveður öll skilyrði fyrir stuðningnum og hann getur eftir atvikum alveg fallið í burtu með breyttri stefnu og löggjöf sambandsins í landbúnaðarmálum."
JVJ tók saman, aðallega úr bók Stefáns. Álit hins sérfræðiprófessorsins, Ágústs Þórs Árnasonar, sjá umfjöllun hans sem tekin er upp í 1. aths. hér neðar.
![]() |
Fjöldi fólks á samstöðufundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.3.2014 kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.3.2014 | 04:09
Ríkisstjórninni er réttast að sýna hér festu og ákveðni
Þótt einn stjórnarþingmaður kikni í hnjánum gagnvart útkomunni af samfelldum skrökáróðri Fréttastofu Rúv og fjölmiðlanna hans ESB-Jóns Ásgeirs eða konu hans og taki mark á "undirskriftasöfnun" þar sem er víðtæk kennitöluvöntun, þá þýðir það ekki, að það sé nein vitglóra í því fyrir ríkisstjórnina að kasta 200+ milljónum króna í slíka ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem yrði því einber skoðanakönnun, því að hún væri EKKI bindandi fyrir Alþingi. Alþingismenn hafa engar skyldur til að fara eftir niðurstöðum slíkrar könnunar, heldur eru þeir "eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum," skv. 48. gr. þeirrar stjórnarskrár lýðveldisins, sem þeir hafa svarið eiðstaf að.
Ríkisstjórnarflokkarnir fengu (50.454 + 46.173 = ) 96.627 atkvæði í kosningunum í vor. 45-50.000 kennitölulausir, nytsamir sakleysingjar (ásamt slatta innlimunarsinna) jafnast aldrei á við það staðfesta kjörfylgi og valdsumboð ríkisstjórnarinnar til sinna verkefna.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Við eigum að vera hér fyrir fólkið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.2.2014 | 11:02
Útþenslukommissari Evrópusambandsins, Füle, skólaði Össur í "aðildarferlinu"! - Samt skrökvar Össur enn!
Össur, sem braut stjórnarskrána í meðferð tillögu um umsókn um inntöku Íslands í ESB, reynir enn að blekkja fólk* um afstöðu Stefans Füle til "klæðskerasaumaðra sérlausna" þrátt fyrir fræga lexíu sem Füle veitti Össuri (á myndbandi hér neðar) í Brussel. Skoðið hér stutt myndskeiðið, það er algerlega kostulegt (og takið eftir, að orðið 'derogations' í innleggi Füle merkir "það að víkja lögum að hluta til til hliðar" (Ensk-íslensk orðabók með alfræðilegu ívafi, Örn og Örlygur 1991).
* Í grein í ESB-Fréttablaðinu í dag, þar sem er að finna FIMM greinar MEÐ Evrópusambands-inntöku Íslands, en ENGA á MÓTI, enda er Ólafur ritstjóri ESB-maður rétt eins og eigandinn Jón Ásgeir eða öllu heldur kona hans, og þar er hinu billega (nei, ókeypis) aldreifingarblaði miskunnarlaust beitt í þágu samruna Íslands við Brussel-stórveldið
Jón Valur Jensson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.2.2014 | 00:22
Útþensla Evrópusambandsins
<http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/b/bb/EC-EU-enlargement_animat
ion.gif> File:EC-EU-enlargement animation.gif
PS. Og nú vill Evrópusambandið komast yfir Úkraínu að auki! stóra ríkið austan við Rúmeníu, Pólland og Slóvakíu ! JVJ.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.2.2014 | 21:59
Frávillingar (eins og Halldór Halldórsson) frá stefnu landsfundar Sjálfstæðisflokks verða ofurliði bornir af trúrri mönnum
Nú eru þeir komnir fram úr skúmaskotum sínum, menn sem upplýstu ekki um "aðildarviðræðnastefnu" sína sl. vor, þ.m.t. þrír efstu xD-frambjóðendur á Akureyri og Halldór sjálfur Halldórsson. Rangæingar hafa hins vegar tekið við sér og styðja ákvörðun þingflokks sjálfstæðismanna heils hugar um að draga ESB-umsókn Össurar og Steingríms (kosningaloforðasvikarans mesta) til baka.
Og nú er þess að vænta -- einkum eftir frábæra frammistöðu Bjarna Ben. í Kastljósi í kvöld, þar sem hann gerði ljósa og raunsæja grein fyrir stöðu mála -- að mun fleiri sjálfstæðisfélög sýni, að þau standa undir nafni rétt eins og félög sjálfstæðismanna í Rangárvallasýslu.
PS. Ef einhver áttar sig ekki strax hér á orðunum "kosningaloforðasvikarinn mesti", er ráð að lesa orð gamals VG-félaga, Indriða Aðalsteinssonar, bónda á Skjaldfönn við Djúp, í snarpri grein hans í Mbl. í dag: Opinberunarbók Össurar. Þar segir hann m.a. (leturbr. hér):
- "En aftur til kosningavorsins 2009. Það tók ekki langan tíma fyrir sigurvegarann S.J.S. að slökkva á vonum og væntumþykju okkar þorra stuðningsfólks VG til ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Í sjónvarpsumræðum kvöldið fyrir kjördag hafnaði S.J.S. því algerlega, að til greina kæmi að óska eftir viðræðum um ESB-aðild.
- Orðrétt sagði hann við alþjóð: Það samrýmist ekki okkar stefnu og við höfum ekkert umboð til þess. Hálfum mánuði síðar lagði stjórnarfleyið frá landi með Brussel fyrir stafni og aðildarumsókn sem leiðarljós. Nýjum og áður óþekktum hæðum Íslandssögunnar í kosningaloforðasvikum hafði verið náð."
Og eftir smá-sprett um Jóhönnu segir Indriði:
- "Hinn stjórnarleiðtoginn S.J.S. lét ekki sitt eftir liggja í vígaferlunum. Hann hrakti Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslason úr flokknum og flæmdi Ásmund Einar til Framsóknar. Ruddi síðan Guðfríði Lilju frá þingflokksformennsku. Að skipan Jóhönnu dró hann Jón Bjarnason úr ráðherrastól og gerði hvað hann gat að leggja Ögmund að velli í Kragaforvali.
- Í ársbyrjun 2012 er stjórnin í raun búin að missa þingstyrk til að koma málum sínum fram, enda klókindi hvergi að finna hjá forkólfum hennar sem töpuðu öllum sínum orrustum.
- En að sögn Össurar var stritast við að sitja þó að ljóst mætti vera að því lengur sem þessi fyrsta hreina vinstristjórn héldi út, því sárgrætilegra víti til varnaðar yrði hún um alla framtíð."
Þannig skrifa gamlir, trúir VG-menn nú um sinn fallna "leiðtoga".
Jón Valur Jensson.
![]() |
Lýsa yfir stuðningi við þingflokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.2.2014 kl. 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.2.2014 | 20:44
Bullandi ESB-agitasjón á 365 fjölmiðlum ... og jafnvel Ríkisútvarpinu!
Augljóst er, að ESB-áróður hefur allan forgang bæði á Bylgjunni og Stöð 2, fjölmiðlum ESB-sinnans Jóns Ásgeirs Jóhannessonar eða konu hans. Hádegis"fréttir" Bylgjunnar í gær voru afar hlutdrægar eins og "fréttir" Stöðvar 2 kl. 19.30 í kvöld allt í þágu þess að liðka fyrir innlimun Íslands í stórveldið, svo að við getum nú loksins misst okkar sjálfstæði í hendur einhverra virðulegri pótentáta en okkar eigin fólks.
Huld Þórsdóttir, meintur fréttamaður á Bylgjunni og Stöð 2, virtist vel undirbúin í yfirumsjón með áróðrinum bæði á Bylgjunni í gær og Stöð 2 í kvöld og virðist hafa lagt sig eftir sérstakri matreiðslu.
Þá er Fréttastofa Rúv enn með hugann og hjartað við áherzlur Samfylkingarinnar (þeirrar sem missti 56,7% af kjörfylgi sínu við síðustu kosningar eftir "frammistöðuna" í fjögur ár) og sýndi það skýrt bæði í hádegisútvarpi í gær og Sjónvarpinu í gærkvöldi og í kvöld.
Í kvöld var þó rætt við Ragnheiði Elínu Árnadóttur úr Sjálfstæðisflokki, en ótrúlegt klúður hennar, þvert gegn landsfundi, en kannski í hlýðni við hinn óhlýðna Bjarna Ben., kom þar af vörum hennar, svo að skelfilegt var á að hlusta nema í eyrum evrókrata ekki þó svo, að við óttumst það hér, að hætt verði við að hætta! Þingsályktunartillagan er komin fram, og þingflokkurinn lætur það ekki líðast, að fullveldisafsalssinnar eins og Vilhjálmur Bjarnason og utanaðkomandi hagsmunaaðilar fari að hnekkja ákvörðun þingflokksins. Undirskriftasöfnun evrókrata, sem komin er í gang, er ennfremur að engu hafandi vegna falsaðra forsendna hennar.
Á morgun, mánudag, verður bæði verður framhald þingumræðu um skýrslu utanríkisráðherra vegna aðildarviðræðna við Evrópusambandið, byggð á skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ, og einnig umræða um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um að draga aðildarumsóknina að Evrópusambandinu til baka.
Tillagan hljóðar svo:
Tillaga til þingsályktunar
um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu
og um eflingu samstarfs við Evrópusambandið og Evrópuríki.
(Lögð fyrir Alþingi á 143. löggjafarþingi 20132014.)
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að treysta tvíhliða samskipti og samvinnu við Evrópusambandið og Evrópuríki.
Tillögunni fylgja miklar athugasemdir og tvö fylgiskjöl. Þetta er vefslóð Alþingis með öllu saman: http://www.althingi.is/altext/143/s/0635.html
![]() |
Rætt um Evrópumálin á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.2.2014 | 05:18
Tapsár Benedikt Jóhannesson vildi að frændi sinn héldi sig við brot á flokksaga og flokksins stefnu
Það "loforð" Bjarna Ben., sem Benedikt frændi hans Jóhannesson sífrar yfir í Mbl.is-viðtali, var ekkert loforð sem formaðurinn gaf fyrir flokkinn, enda var flokkurinn með allt aðra stefnu. Bjarna hefði verið nær að halda sig skýrt við hana, en tala ekki með tungum tveim og sitt með hvorri. Hann hefði líka betur haldið sig við andstöðu flokkins við Icesave-samningana -- sér það jafnvel núna sjálfur.
Stefna flokksins í ESB-málinu var mótuð á landsfundi hans 2013. Fáir hafa gert jafn-skýra grein fyrir henni og Sigríður Ásthildur Andersen í Mbl.-grein nú í vikunni. Landsfundur talaði skýrt nefnist greinin (20 febr.). Þar segir hún m.a.:
- Stefna Sjálfstæðisflokksins í málefnum Evrópusambandsins er ákaflega skýr. Hana mótaði síðasti landsfundur, æðsta vald í málefnum flokksins. Í fyrsta lagi er stefna Sjálfstæðisflokksins sú að Ísland gangi ekki í Evrópusambandið. Í öðru lagi, og það er mjög mikilvægt, tók landsfundur þá skýru ákvörðun að Sjálfstæðisflokkurinn vill að aðildarviðræðum verði hætt. Þótt slík stefna liggi auðvitað í augum uppi, fyrst flokkurinn vill að Ísland standi utan Evrópusambandsins, var mjög mikilvægt að landsfundur kvæði skýrt á um að aðildarviðræðum yrði hætt.
- Landsfundur sagði meira
- En landsfundur sagði ekki aðeins að aðildarviðræðum yrði hætt. Fundurinn gerði fleira og það skiptir einnig verulegu máli. Það var nefnilega lagt til, í upphaflegum drögum að ályktun, að stefna Sjálfstæðisflokksins yrði sú að gert yrði hlé á aðildarviðræðunum. Því hafnaði landsfundurinn. Landsfundur beinlínis hafnaði þeirri tillögu að gert yrði hlé á viðræðunum og ákvað að stefna Sjálfstæðisflokksins væri þvert á móti sú að viðræðunum skyldi slitið. Það var í þessu samhengi sem fundurinn bætti því við að slíkar viðræður, sem þá skyldi búið að slíta, skyldu aldrei hafnar aftur án þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðaratkvæðagreiðslan var varnagli. Þannig er stefna flokksins auðvitað ekki sú að efnt skuli til atkvæðagreiðslu núna, um það hvort aðlögunarviðræðunum verði haldið áfram. Landsfundur, æðsta vald í málefnum Sjálfstæðisflokksins, tók af skarið. Viðræðunum skal einfaldlega slitið. Og að því búnu skal það tryggt að aldrei verði farið aftur í slíkar viðræður án þjóðaratkvæðagreiðslu.
Skyldi Benedikt, með allt sitt reikningsvit, í alvöru ganga illa að skilja þetta? Fór ekki frændi hans flatt á því að svíkja þjóðina í Icesave-málinu? Varð ekki flokkurinn að líða fyrir það, þótt enga sök bæri á þessari kúvendingu Bjarna? Hafði Icesave-sinninn Benedikt kannski náð að hvísla í eyra Bjarna Ben.?
Stundum eru frændur frændum verstir -- og á stundum formenn flokkum verstir. En Bjarni hefur gott tækifæri til að bæta sig. Var hann ekki að því í gær, eða eru síðan allt í einu einhverjar vöflur á honum og Gunnari Braga?
Við viljum fá hreinskiptni og skýrar línur, stjórnmálamenn sem tvínóna ekki við einbeittar ákvarðanir, slá ekki úr og í og stunda ekki tvöfeldni.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Það var búið að gefa loforð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
21.2.2014 | 18:17
Gleðifréttin komin : umsóknin dregin til baka!
Umsóknin um inngöngu Íslands í Evrópusambandið verður skv. samþykkt þingflokks Sjálfstæðisflokks og einróma samþykkt Framsóknarflokks í dag dregin til baka, með nýrri þingsályktunartillögu á Alþingi. Við í Samtökum um rannsóknir á Evrópusambandinu fögnum þessu með öðrum þjóðhollum Íslendingum.
JVJ
![]() |
Umsóknin verði dregin til baka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.2.2014 | 20:55
Jón Gnarr og hans naívismi í utanríkis- og sjálfstæðismálum
Jón Gnarr borgarstjóri sýnir hve naíf hann er í pólitík þegar hann segir spurninguna um hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið ofmetna. "Það skipti ekki meginmáli hvort Íslandi gangi inn í sambandið, hvorki fyrir landið sjálft né Evrópusambandið," kvað hann.
Hvort tveggja er vitlaust. Við yrðum ekki lengur í bílstjórasætinu um okkar meginmál verandi inni í ESB, ekki á neinum sviðum sem falla myndu undir stjórn Evrópusambandsins. Og forræðið yfir 200 mílna fiskveiðilögsögunni myndi fara úr okkar höndum, bæði stjórn veiða, veiðarfæra, opinna og lokaðra fiskimiða. Ekkert héldi í raun aftur af spænskum, brezkum og öðrum fiskiskipum frá ESB-ríkjum að komast hér allt upp að 12 mílna mörkunum og jafnvel nær.
Það er mikið keppikefli fyrir Evrópusambandið að komast yfir Ísland. Fiskveiðilögsagan er meira en sjöfalt stærri en landið sjálft. Hernaðar- og efnahagslega er Ísland þeim keppikefli. Út frá mati Olíustofnunar Norgs og Eykon Energy reiknast Norska Dagbladet til, að olían á norsk-íslenzka Jan Mayen-svæðinu sé um 125.000 milljarða ísl. króna virði, en það jafngildir 220-földum fjárlögum íslenzka ríkisins, skv. Fréttablaðinu í dag, s. 2. Yfirráð yfir nýtingu slíkra auðæfa eru stórveldum keppikefli; það sama á við um fiskimiðin og orkumálin, og Lissabon-sáttmálinn gefur Evrópusambandinu þær valdheimildir sem það þarf til þessara hluta, m.a. á sviði markaðsmála, dreifingar og jafnvel verðlagningar í olíumálum.
Svo endurtekur Jón Gnarr endemisblaðrið úr oflesnu ESB-Fréttablaðinu og bergmálað í 101-klíkunum, að Evrópusambandið snúist um "samvinnu":
- Í ýtarlegu viðtali á vefsíðunni The Reporters Hive segir hann jafnframt að sambandið sé einungis ný tegund af samvinnu milli fólks af ólíkum þjóðernum. Samvinna á sveitarstjórnarstiginu sé hins vegar mun skilvirkari en samvinna milli landa. (Mbl.is.)
Þvílík einfeldni !
Jón Valur Jensson.
![]() |
Spurningin um ESB ofmetin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.1.2015 kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2014 | 01:32
Evrópusambandið sækist eftir Úkraínu
Og hvað sagði Herman van Rompuy? Jú, þetta (í skilaboðum á ráðstefnu um Úkraínumál í Sviss): "Úkraína á heima í Evrópusambandinu"!
Þetta talaði hann vitaskuld ekki sem prívatmaður, einstaklingur úti í bæ. Maðurinn er forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins og lýsir þarna vitaskuld ekki einkaskoðun, heldur vilja þeirra þar. Og ímyndum okkur ekki, að þeir geri ekkert í þessum ásetningi sínum.
Þetta er því fullt tilefni til að hafa áhyggjur af því, að ESB sjái sér hag í að ýta undir byltingu í Úkraínu, valdayfirtöku eða skiptingu landsins ella -- með líklegum blóðfórnum eins og í Sýrlandi (þar sem um 135.000 manns hafa nú týnt lífi í tveggja ára uppreisn og borgarastríði, sem ýtt hefur verið undir með vopnasendingum vestrænna ríkja til uppreisnarmanna -- ekki sízt frá ríkjum Evrópusambandsins!).
PS. Þegar Herman van Rompuy lýsti því yfir, að Úkraína ætti heima í Evrópusambandinu, gerði hann nánast nákvæmlega það sama og Olli Rehn, fv. útþenslustjóri ESB, sagði í viðtali við Handelsblatt: Islands natürlicher Platz ist in der EU eðlilegur eða náttúrlegur staður Íslands er í Evrópubandalaginu. Þetta var frek íhlutun í okkar innanríkismál (sjá nánar í aths. hér neðar), og eins var um orð Rompuys gagnvart Úkraínu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.11.2016 kl. 04:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)