Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2018
28.11.2018 | 08:50
Kolbrún Bergþórsd. þiggur laun fyrir lygaleiðara í útbreitt Fréttablaðið; en þessi samtök og skriffinnar þess hafa aldrei tekið eina einustu krónu fyrir skrifin hér
Fréttablaðið dreifði í fyrradag í stóru upplagi lygaáróðri téðrar Kolbrúnar um Þriðja orkupakka ESB.
Hún laug því
- að ekki sé verið að afsala okkur forræði yfir auðlindinni með 3. orkupakkanum
- og að fullveldisafsal felist ekki í honum.
Kolbrún ætti að fara aftur í læri til síns gamla átrúnaðargoðs Jóns Baldvins Hannibalssonar (hún skráði æviminningar hans í bókinni Tilhugalíf : Jón Baldvin : kaflar úr þroskasögu stjórnmálamanns, Rvík 2002), en Jón Baldvin hefur nú í tveimur ljósvakamiðlum að undanförnu talað mjög skelegglega gegn Þriðja orkupakkanum og sagt Evrópusambandinu til syndanna í fleiri málum í leiðinni.
Á Útvarpi Sögu 4. nóv. sagði hann Ísland ekki eiga neitt erindi við orkumarkað Evrópu, "orkupakkinn kemur okkur bara ekkert við", en að orkuverð á Íslandi myndi hækka gríðarlega ef orkupakki þrjú yrði samþykktur(og margt fleira í viðtali hans þar er afar fróðlegt, smellið á tengilinn).
Í Silfrinu 25. nóv. var Jón Baldvin í viðtali hjá Agli Helgasyni. Fór Jón hörðum orðum um forystu ESB vegna viðbragða hennar við bankakreppunni, og er það efni hér í sérstaka grein, en m.a. kemur fram hjá honum, að evruríkin sitja uppi með evru sem þjónar fjármagnseigendum. Forysta ESB tók algerlega svari þeirra. Grikkir voru látnir, með "þvílíkri skítaframkomu ESB", borga skuldir bankskera og selja frá sér fyrir slikk, í þágu þýzkra og franskra banka, flugvelli sína, orkuna, vatnið, hafnir o.fl. Evran "hefur algerlega brugðizt," segir hann, og Evrópubankinn er jafnvel stórgallaður, getur ekki komið aðildarríkjunum til hjálpar, leyfist ekki að vera þar þrautavarabanki, en þjónar hagsmunum fjármagnseigenda og Stór-Þýzkalands öðrum fremur. Evrópusambandið sé klofið í tvo hópa þjóða, hinna ríku og fátæku. Og ekki sé boðlegt fyrir okkur að ganga í Evrópusambandið.
En að orkupakkanum: Jón Baldvin bendir á, að þrátt fyrir EES-samninginn getum við hafnað löggjöf sem samrýmist ekki okkar þjóðarhagsmunum. Orkan okkar sé dýrmæt og eigi að vera í þjóðareign. Við eigum að segja: Nei takk! við orkupakkanum, og það séu fordæmi fyrir því, að við segjum nei við ESB-löggjöf.
Vilja nú margir, að Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra kalli Jón Baldvin til sem sinn ráðgjafa í Þriðja orkupakkamálinu.
Enginn sérfræðingur er Kolbrún Bergþórsdóttir í stjórnmálum og þaðan af síður í orkumálum og hinum flókna ESB-tilskipana-skógi. Gegnir furðu að hún sé látin skrifa leiðara í Fréttablaðið um þetta málefni, en reyndar var vitað um ESB-þjónkun hennar sem hún hefur e.t.v. smitazt af hjá Jóni Baldvin Hannibalssyni á árum áður, en nú hefur sem sagt einmitt hann, fyrrum átrúnaðargoð Kolbrúnar, harðlega talað gegn ESB, m.a. vegna evrunnar, og sterklega varað við Þriðja orkupakkanum.
Undarlegt er að sjá Kolbrúnu tala einhliða um andstöðuna gegn þessum ófélega ESB-pakka fyrir jólin eins og sú andstaða hafi verið öfgafull og "blind" og "taumlaus óbeit", en á sama tíma virðist hún samþykkja allt frá gagnaðilum og gefur sér jafnvel að þeir hafi þá sérfróðu með sér!
En slappir eru þeir menn gegn þungaviktarmönnum í þessum fræðum, dr. Stefáni Má Stefánssyni, prófessor í Evrópurétti við Háskóla Íslands, og verkfræðingunum Bjarna Jónssyni og Elíasi Elíassyni, sem báðir eiga langan starfsferil í raforkumálum.
Þeir sérfræðingar, sem Kolbrún þykist geta borið fyrir sig, eru tveir ungir lögfræðingar, og tók annar þeirra tvo daga í að athuga málið og skrifa um það minnisblað til iðnaðarráðherra í apríl sl.! En báðir hafa þeir verið hraktir út í æsar af norska lagaprófessornum og Evrópuréttarfræðingnum Peter Örebech, eins og nánar er rakið í nokkrum greinum á vef Bjarna rafmagnsverkfræðings: https://bjarnijonsson.blog.is
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2018 | 18:45
Þessar fullyrðingar "ÍEA" og FA eiga menn víst að móttaka í trú án raka!
Félag atvinnurekenda (FA) þykist með engum rökum, bara einfaldri fullyrðingu, geta talað niður andstöðu mikils meirihluta þjóðarinnar gegn Þriðja orkupakkanum. Þetta FA rekur "Íslensk-evrópska viðskiptaráðið" (ÍEV) sem hefur þann tilgang að efla verzlunar- og viðskiptasambönd milli Íslands og Evrópusambandsins. Nú hvetur ÍEV stjórnvöld "til að ljúka sem fyrst lagasetningu vegna innleiðingar þriðja orkupakka Evrópusambandsins í EES-samninginn, sem Ísland hefur samið um nú þegar." Harmar stjórnin, eins og hún orðar það, þær röngu upplýsingar sem haldið er að almenningi um áhrif orkupakkans og ítrekar að ákvæði hans fela hvorki í sér valdaframsal til Evrópusambandsins, afsal forræðis yfir orkuauðlindunum né skyldu til að leggja sæstreng til Íslands."
Eins og fyrr segir, fylgja þessu engin rök, enginn rökstuðningur! En rökstuðning fyrir því gagnstæða höfum við einmitt fengið frá sérfróðum mönnum um laga- og tilskipanaverk Evrópusambandsins: lagaprófessorunum dr. Stefáni Má Stefánssyni og dr. Peter Örebech, sem báðir eru sérhæfðir í ESB-rétti, sem og frá verkfræðingum eins og Bjarna Jónssyni og Elíasi Elíassyni, sérfróðum á orkusviði.
Og hitt vitum líka, að FA er hlynnt innlimun Íslands í Evrópusambandið, enda með þann framkvæmdastjóra samtakanna, sem er einn helzti ESB-postuli landsins, Ólafur Stephensen, maður sem hefur sem ritstjóri misnotað leiðara tveggja stærstu dagblaða landsins til að predika svokallaða "ESB-aðild", sem er sakleysislega hljómandi hugtak um það, að lönd afsala sér öllu æðsta löggjafar- og dómsvaldi, sem og miklu stjórnvaldi, til stórvelda-ríkjasambands undir forystu gömlu nýlenduveldanna í Evrópu. Fyrir fram er því FA og ÍEV löngu búið að bugta sig og beygja fyrir Evrópusambandinu og getur sízt talizt óháður álitsgjafi!
Já, Íslensk-evrópska viðskiptaráðið er hýst og rekið af FA, hugsanlega e.k. rassvasa-framlenging á Félagi atvinnurekenda, en til hvers er verið að senda út svona yfirlýsingu? Er bara verið að höfða til trúar sumra á FA eða ÍEV?
Jón Valur Jensson.
Harma rangar upplýsingar um áhrif orkupakkans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Auðlindir og orkumál | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2018 | 06:39
Stefna Merkel: Óþjóðlegt stórríki ESB afnemi fullveldi meðlimaríkjanna og opni á innflæði úr Afríku og Mið-Austurlöndum!
1. Ofríkisfull Merkel opinberar með ræðu sinni í Berlín* stefnuna á evrópskt stórríki á kostnað fullveldisréttinda þjóðanna. Klárlega höfðu Bretar rétt fyrir sér með Brexit!
2. "Sjálfsmorðssamningurinn" er framhald samnings EBE við arabaríki í olíukreppunni um 1972 þar sem viðskipti með olíu voru tryggð gegn leyfi fólks þaðan til að starfa í Evrópu. Nú vilja ágangssamir aðilar (m.a. múslimaríkin) í skrifstofum SÞ útvíkka þetta til slíks allsherjarleyfis sem og að viðkomandi innflytjendur gangi beint inn í full borgararéttindi í gistilöndunum!** Það væru greypileg svik við íslenzka þjóð ef stjórnvöld hér undirrita svo óbærilega afdrifaríka og gígantískt kostnaðarsama yfirlýsingu.
* Ræðuna flutti Angela Merkel ríkiskanzlari við athöfn í Adenauer-stofnuninni í Berlín í vikunni, sagði þar m.a., að þjóðþing aðildarríkja ESB ættu formlega að veita ESB yfirráð yfir ríkjum Evrópusambandsins (skv. frétt þýzka stórblaðsins Die Welt).
** Samninginn um innflæðið ("regular migration") í Evrópu stendur til að "samþykkja í Marókkó 10. des. n.k. Fjöldamörg ríki neita að skrifa undir "sjálfsmorðssamninginn", t.d. Sviss, Bandaríkin, Ísrael, Pólland, Austurríki, Eistland, Ungverjaland, Búlgaría, Tékkland og Króatía. Svíþjóð og mögulega Noregur og Ísland ætla að skrifa undir samninginn", segir Gústaf Skúlason í grein um málið, en það væri hrapalleg gjörð, sem stjórnvöld hér hafa ekkert umboð til að samþykkja.
Jón Valur Jensson.
Merkel tekur Brexit-samningnum fagnandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.11.2018 | 02:20
Sendiherra ESB ber að víkja héðan eftir afskipti af innanlandsmálum okkar
Með hlutdrægum afskiptum og einhliða málflutningi um 3. orkupakkann er sendiherra Evrópusambandsins að brjóta landslög og alþjóðlegan samning um réttindi og skyldur sendiráða. (Það hefur áður gerzt með sendiherra ESB hér á landi, Timo Summa, finnskan mann, sem varð þá fljótt að víkja, eftir snarpa gagnrýni Tómasar Inga Olrich, fv. ráðherra og sendiherra, á framferði hans.*)
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 07:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.11.2018 | 01:25
Baráttan gegn Þriðja orkupakka ESB þarf að verða enn markvissari
Nokkuð var fimbulfambað um hann í Kastljósi þetta þriðjudagskvöld, en bezt stóð sig Frosti Sigurjónsson, fv. alþm. Þáttarstjórnandi reyndi af megni nokkrar ágengar spurningar, en hefði mátt fylgja þeim enn harðar eftir.
Gunnar Bragi Sveinsson brást jafnvel í svo sjálfsögðu atriði sem því, að þegar talað var um að Norðmenn vildu þennan pakka, þá bar honum að geta þess, að 70% Norðmanna eru andvíg Þriðja pakkanum, en hann lét það alveg hjá líða. Andstaðan gegn pakkanum er sízt að dofna.
Ennfremur skilaði Gunnar Bragi litlu til hlustenda varðandi lagalega stöðu málsins gagnvart okkar stjórnarskrá o.fl. og sagði m.a. orðrétt:
"Í 1. lagi vil ég segja það, að lögfræðingar, sem hafa fjallað um málið, þ.á m. norski lögmaðurinn sem var hér um daginn, Peter Örebech eða hvað hann hét nú, og íslenzkir lögfræðingar, eru ekki alveg sammála um það, hvað þetta þýðir nákvæmlega, þegar menn lesa í gegnum EES-samninginn, hvað það þýðir að innleiða þessa gerð fyrir Ísland, um það eru menn ekki sammála; mér finnst vanta skýra mynd á það, áður en, í það minnsta, að maður getur tekið næsta skref."
Þarna er Gunnar Bragi að tefla hvorum gegn öðrum: Peter Örebech annars vegar og "íslenzkum lögfræðingum" hins vegar og leggja mikið upp úr því, að þessir lögspekingar væru ekki sammála um þessi mál, en fráleit er sú nálgun hans og sú uppstilling hans afar röng að tala með þessum hætti um lögfræðingana, því að hann í 1. lagi sleppir þar bezta sérfræðingi okkar, próf. Stefáni Má Stefánssyni, sem einn sér er margefldur á við álitsgjafana Birgi Tjörva og Ólaf Jóhannes, og Stefán Már er einmitt mjög eindreginn í því áliti sínu, að Þriðji orkupakkinn samrýmist naumast ("næppe") stjórnarskrá Íslands, eins og hann tók fram í stuttri ræðu sinni á dönsku á fundi Heimssýnar o.fl. félaga um málið á Háskólatogi 28. okt. sl.
Það verður að segjast, að með grunnristum hætti gekk Gunnar Bragi fram hjá mjög eindregnum niðurstöðum manna eins og próf. Peters Örebech og dr. Stefáns Más Stefánssonar, sem er prófessor í Evrópurétti við lagadeild HÍ og margra bóka höfundur um ESB-löggjafarmál, og með því að láta þá nánast eins og önnur lögfræðiálit væru þar þungvæg á móti. Örebech er langreyndur sérfræðingur í Evrópurétti. Það á ekki við um Birgi Tjörva Pétursson, sem ráðfrúin Þórdís Kolbrún Gylfadóttir kallaði til, trúlega til að fá hentugt álit sem klippt gæti hvassasta bitið úr gagnrýni hérlendis á Þriðja orkupakkann.
Það er ennfremur hlálegt að tefla tveggja daga rannsókn lögfræðings (Ólafs Jóhannesar Einarssonar) fram á móti langtímavinnu þaulreynds Norðmanns, sem þekkir ESB-löggjöf eins og handarbakið á sér og hefur kannað allar hliðar á þessum orkupakkamálum eins og þau snúa við Norðmönnum -- og hefur svo skilað ýtarlegu áliti og hrakningu bæði á sjö meginatriðunum á minnisblaði Ólafs Jóhannesar og einnig á lengri skýrslunni frá Birgi Tjörva (sjá hér í viðhengi með þessari grein).
Þáttur Guðna Jóhannessonar orkumálastjóra í þessum Kastljósþætti var veigaminni en hann hefði þurft að vera og vantaði átakanlega slagkraft sem nýtzt hefði réttindabaráttu okkar Íslendinga. Þó var hann skýr um ýmsa undirstöðuhluti, sem hafa ugglaust hjálpað hlustendum um skilning á þeim.
Varaformaður Íslensku þjóðfylkingarinnar var býsna berorður um orkumálastjórann á Facebókarsíðu flokksins í kvöld:
Þessi embættismaður vissi ekkert um hvað hann var að tala. Er þetta virkilega orkumálastjóri!? Hann gat ekki einu sinni svarað því af hverju við erum að innleiða enn eitt ESB-bullið ef við græðum ekkert á því og það skiptir ekki máli hér á landi að innleiða tilskipunina. Nei, hann gat ekki svarað því.
Augun standa á stilkum í viðtalinu, svo taugaveiklaður er hann, og ég er viss um að það er köttur að spila á harmonikku í hausnum á honum eins og er staðreyndin um flesta ESB-sinna.
Já, það má líka hafa gaman af þessu. En Guðni tók sérstaklega fram, að hann hefur enga eigin stefnu gagnvart Þriðja orkupakkanum; hann lítur á það sem hlutverk sitt að fylgja stefnu Alþingis í málinu.
En þáttur Samfylkingarkonunnar Albertínu Friðbjargar Elíasdóttur var ítrekað að mestu leyti til óþurftar og með svo eindregnum hætti, að ásetningur bjó þar augljóslega að baki, þegar hún talaði þar niður alla viðleitni til að hafna þessum Þriðja orkupakka -- en ekki þar með á grunni góðs rökstuðnings, því að þvert á móti voru rök hennar veikluleg í reynd. Kristallaðist það svo greinilegast þegar hún að lokum síns máls komst svo að orði, að við eigum ekki að beita okkur gegn framsali fullveldisréttinda með gagnrýni á orkupakkanum sérstaklega. En þar er nú einmitt um þungvægasta framsalsmálið að ræða nú á seinni árum, og á þá ekki einmitt að fjalla um það af einurð og með harðri viðspyrnu gegn ásælni Evrópusambandsins?!
Ennfremur hélt hún því fram, að við værum ekki að framselja valdið til ACER, við værum að framselja það til ESA (Eftirlitsstofnunar EFTA), eins og við hefðum gert áður og í alvarlegra máli. Þvílík glámskyggni! Ekki hefur hún þá kynnt sér vel greinarskrif Bjarna rafmagnsverkfræðings Jónssonar, né álitsgerðir hins sérfróða Peters Örebech, þar sem skýrt kemur fram, hvílík áhrif ACER mun fá hér í gegnum Landsreglarann, sem ekki verður undir boðvaldi ríkisstjórnar Íslands né Alþingis. Svo að vitnað sé í grein Bjarna verkfr. Jónssonar 11. þ.m., :
Í þriðja lið samantektar iðnaðarráðuneytisins á minnisblaði Ólafs Jóhannesar Einarssonar [lögfr.] frá apríl 2018 kemur fram stórvarasöm glámskyggni ráðuneytisins á eðli og valdmörk ACER hér á landi. Verður þá fyrst að nefna það, að valda.mesta embætti hérlendis á orkumálasviði eftir innleiðingu "pakkans", verður embætti Landsreglara, og þetta embætti verður óháð íslenzkum yfirvöldum og framlengdur armur ACER á Íslandi, sem er undir stjórn framkvæmdastjórnar ESB. [...] Sjá nánar þá grein Bjarna: Valdmörk ACER.
Að lokum er hér viðhengi með þeirri rýniskýrslu sem próf. Peter Örebech samdi um greinargerð Birgis Tjörva Péturssonar lögmanns:
Og HÉR er Kastljósþátturinn allur 13. nóv. 2018, undir þáttarstjórn Einars Þorsteinssonar fréttamanns: http://www.ruv.is/spila/ruv/kastljos/20181113
Jón Valur Jensson.
Vilja hafna þriðja orkupakka ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Auðlindir og orkumál | Breytt 15.11.2018 kl. 03:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það er áhyggjuefni að svo sjálfstæður þingmaður sem Brynjar Níelsson iðulega er, skuli eiga erfitt með þor til að hafna kategórískt Þriðja orkupakka ESB. "Ég vil reyna að komast hjá því í lengstu lög, ef það er hægt, að innleiða þennan orkupakka," sagði hann á nýju stöðinni K100 í dag. "Ef það er hægt" -- að hugsa sér!!
Ef hann er óviss, hvað er honum þá að fyrirstöðu að neita að taka þátt í rússneskri rúllettu um þjóðarhag og fullveldi landsins?
Ef hann er beittur þrýstingi, vill hann þá gjöra svo vel að upplýsa um, hvaðan hann kemur! -- innan lands frá eða utan frá?
Ef frá eigin forystusveit, Bjarna formanni, Þórdísi varaformanni, hinum hagsmunatengda Birni Bjarnasyni, fyrrverandi ráðherra (tengdaföður Heiðars Guðjónssonar sem er að reyna að fá IceLink í gagnið!), þá má Brynjar til með að upplýsa flokksmenn sína um það! 91,6% aðspurðra stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins í MMR-skoðanakönnun í vor voru andvíg þessum Þriðja orkupakka -- höfnuðu honum! Það gerði landsfundur flokksins líka, sem og tveir fjölmennir almennir fundir sjálfstæðismanna í haust, með einróma samþykktum þar! Ef einhverjar valdaspírur í flokknum vilja ganga gegn þessum eindregna vilja flokksmanna, þá á sem fyrst að koma upp um þá, afhúpa þá og vélabrögð þeirra.
Ef þrýstingur í málinu kemur frá Brussel beint, skal Brynjar gjöra svo vel að upplýsa um það!
Ef frá Noregi, þaðan sem ráðherra(r) hafa komið til að þrýsta á um að Stórþingið fái vilja sínum framgengt -- þeim orkupakka-vilja sem 70% norsku þjóðarinnar er gersamlega andstæð! -- þá skal hann líka viðurkenna hitt, að við höfum engar skyldur gagnvart norsku ríkisstjórninni í þessu efni.
Ef hann veit til þess, að norskir valdhafar beiti þvingunum, mútum eða hótunum um refsiaðgerðir í þessu máli, skal hann upplýsa um það!
Jón Valur Jensson.
Vilja ekki innleiða orkupakkann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 12.11.2018 kl. 07:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.11.2018 | 05:34
Mun fylgið streyma frá Sjálfstæðisflokknum til tveggja annarra flokka vegna Þriðja orkupakka ESB? (m/viðauka)
"Vonandi rennur það upp fyrir æ fleirum á þingi, að það er allt of mikil áhætta fólgin í því fyrir hag landsins að innleiða Þriðja orkupakka ESB. Áhættan við að hafna honum er hjóm eitt í samanburðinum. Að lenda í stappi við ESB síðar út af leyfisumsókn fyrir sæstreng er hið versta mál, því að þá stendur ESB með pálmann í höndunum. Nú er rétturinn okkar til að hafna, en rétturinn til að hafna sæstrengsumsókn eftir samþykkt bálksins verður aftur á móti ekki okkar. Slík höfnun yrði stórmál gagnvart EES, en höfnun pakkans ekki."
Svo mælti Bjarni Jónsson rafmagnsverkfræðingur réttilega!
Iðnaðarráðherra, með vafasama, ESB-mótaða starfsmenn á sínum vegum, lætur sem samþykkt "pakkans" sé lítið mál, þegar í reynd fjöregg fullveldis okkar í orkunýtingar- og verðlagningarmálum er í húfi, eins og ofangreindur Bjarni hefur rökstutt manna bezt.
Það var gleðilegt að sjá grein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í Morgunblaðinu í gærmorgun, Suma pakka er betra að afþakka. Miðflokkur hans stendur einarður gegn því að hleypa Þriðja orkupakkanum í gegnum þingið. Það sama á við um Flokk fólksins.
Margir kjósendur Sjálfstæðisflokksins hafa þessa sömu afstöðu, og farnar eru að sjást og heyrast yfirlýsingar nokkurra þeirra um að þeir ætli að yfirgefa flokkinn, ef hann eða ýmsir þingmanna hans gera ógæfumuninn til að troða þessu þjóðfjandsamlega máli í gegn, þvert gegn afstöðu landsfundar flokksins og samhljóða samþykktra yfirlýsinga tveggja fjölmennra, almennra flokksfunda hans í haust.
Nú er Sjálfstæðisflokkurinn kominn niður í um 20,5% í skoðanakönnun. Hefur hann efni á því að taka sviksamlega afstöðu í þessu máli og hrinda frá sér fleiri flokksmönnum? Með því móti gæti flokkurinn endað með minna hlutfall atkvæða en hinir úthrópuðu Svíþjóðardemókratar (17%) eða orðið ámóta smár og Alþýðubandalagið gjarnan var (um 16%)! Þá yrði flokkurinn í bezta falli varadekk undir samsteypustjórnir vinstri flokka á komandi árum!
Sjálfstæðismenn þurfa því að sjá þetta bæði sem baráttu fyrir fullveldisréttindum þjóðarinnar á sviði náttúruauðlinda og orkuiðnaðar og ennfremur sem baráttu fyrir því, að þeirra eigin flokkur endi ekki á ruslahaugi sögunnar.
Iðnaðarráðuneytið hefur ekki komið með nein gild rök fyrir því, að það yrði okkur til hagnaðar að samþykkja Þriðja orkupakkann -- og heldur ekki, að það yrði okkur til tjóns að gera það ekki.
En þau þurfa ekki að hanga í þeirri hugsun einni. Líti þau bara til þess, að í skoðanakönnun MMR í vor reyndust margfalt fleiri andvígir samþykkt þessa ESB-pakka heldur en hinir, sem hlynntir voru. Ætlar Þórdís Reykfjörð að ganga gegn eindregnum vilja þjóðarinnar í málinu og hvers vegna? Ætla Bjarni Benediktsson og þingflokksformaður hans að umbera það, að þingmenn Sjálfstæðisflokksins svíki stefnu hans og greiði atkvæði með orkupakkanum? -- þessari líka óþurftarsendingu frá Brussel-valdinu!
Sigmundur Davíð ritaði í nefndri grein, Suma pakka er betra að afþakka:
"Ég skora á ríkisstjórnina að fara nú þegar fram á að Ísland fái undanþágu frá orkupakkanum og skili honum svo til sendanda. Í því efni getur ríkisstjórnin reitt sig á stuðning Miðflokksins."
Ennfremur ritaði hann þar í byrjun:
"Þegar Evrópusambandið afhendir pakka, snýst það gjarnan um að taka eitthvað af viðtakendunum, setja þeim nýjar takmarkanir og skerða ákvörðunarrétt þeirra, jafnvel sjálfstæði heilla þjóða."
Og undir lokin ritaði Sigmundur:
"Það að koma í veg fyrir að erlendar stofnanir öðlist yfirþjóðlegt vald á Íslandi og aðrir hagsmunir samfélagsins verði veiktir ætti ekki að vera pólitískt þrætuepli innan lands, ekki frekar en önnur mál sem snúa að því að verja hagsmuni landsins út á við eða sjálft fullveldið.
Það er grátlegt að stjórnvöld telji það ekkert tiltökumál að framselja sneið af sjálfstæði landsins á sama tíma og haldið er upp á að 100 ár séu liðin frá því að Ísland endurheimti fullveldi sitt. Um leið fara svo fram umræður um hvort eigi að afnema svo kallað fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar til að auðvelda slíkt framsal í framtíðinni."
Það er von að þessum flokksforingja blöskri.
VIÐAUKI:
Styrmir Gunnarsson, fv. ritstjóri Mbl., benti á þetta á vefnum Styrmir.is:
"Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sl. vetur var samþykkt ályktun þess efnis að flokkurinn hafnaði frekara framsali á yfirráðum yfir íslenzkum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins. Í skoðanakönnun sem Maskína gerði fyrir Heimssýn sl. vor kom fram, að 91,6% kjósenda Sjálfstæðisflokksins eru sama sinnis. Afstaða fundarmanna í gær fór ekki á milli mála. Forysta og þingflokkur Sjálfstæðisflokks geta ekki hundsað viðhorf almennra flokksmanna í þessu máli."
Og undirritaður spyr: Hvernig getur Bjarni Benediktsson hundsað álit yfir 90% kjósenda Sjálfstæðisflokksins? Stefnir hann að endalokum flokksins eða klofningi? Hvað verður þá eftir af honum? Hvað er svona mikils virði fyrir BB og BB frænda hans, fyrrv. dóms- og menntamálaráðherra, að þeir vilji taka þessa áhættu fyrir þann gamla flokk? Eða má hann bara vel við því að tapa enn fleiri stuðningsmönnum?!!!
Jón Valur Jensson.
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt 10.11.2018 kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.11.2018 | 14:06
Gagnleg, upplýsandi umræða Jóns Baldvins um ýmis mál
Það er glæsilegt að hlýða á margt í viðtali Jóns Baldvins við Arnþrúði Karlsdóttur, endurteknu enn einu sinni í dag, sér í lagi orðræðu hans um Evrópusambandið og hvað mistekizt hefur og beinlínis misfarizt þar, einkum með evrusvæðið og ofurvald Þýzkalands á því, með hrikalegum afleiðingum fyrir Grikkland, Spán og Ítalíu o.fl. lönd, sem hafa ekki átt neitt skjól í Seðlabanka Evrópu, sem ekki hefur, eins og seðlabankar eiga að gera, veitt þeim ríkjum skjól til þrautavara í kreppu. Þjóðverjar hafa á meðan "grætt á tá og fingri" vegna evrunnar, hin ríkin ekki. Ennfremur er skandall, segir hann, að Evrópusambandið bjóði upp á Juncker sem forseta framkvæmdastjórnar ESB, mann úr mesta skattaskjóli Evrópu, Lúxemborg.
En á vefslóð Útvarps Sögu er tengill eða hljóðskrá með öllu viðtalinu við JBH. Framan af ræðir hann mikið um aðdraganda þess að Ísland varð aðili að EES-samningnum, og þrátt fyrir að hann sé honum hlynntur, greiðir hann samt úr hlutum í þessu sambandi sem mörgum hafa verið óljósir, sérstaklega um ORKUMÁLIN, en Ísland eigi alls ekkert erindi inn á orkumarkað ESB, og okkur ber að forðast samband við hann, með sæstreng, eins og heitan eldinn. Íslendingar hefðu engan hag af því, einungis voldugir erlendir fjárfestar. Nánar fjallaði hann um það með mjög markverðum hætti. (Frh. á eftir.)
Því má skjóta að, að EVRAN ER EKKI lausn fyrir Ísland skv. rökstuddu mati JBH, eins og fram kemur hjá honum þegar um 90 mín. eru liðnar af viðtalinu. Hann talar ennfremur jafn-hörðum orðum gegn Þriðja orkupakka ESB eins og gegn lagningu sæstrengs.
Undir lokin, þegar nær 100 mín. eru liðnar af viðtalinu, fer hann að kynna bók sína um "Norræna módelið" sem ákjósanlegustu lausnina í efnahags- og stjórnmálum, í tilefni af útgáfu bókar hans þar um á ensku (og kínversk þýðing á leiðinni). Ennfremur kom hann í fyrri hlutanum m.a. inn mál Saudi-Arabíu og áhrif "systranna sjö" (olíuauðhringanna) á linkulega stefnu vesturveldanna gagnvart því einræðis- og ofbeldisríki, og sömuleiðis kom hann inn á Rússlands- og viðskiptabanns-málin vegna Úkraínu, en um þau eru margir (m.a. undirritaður) með önnur viðhorf.
Jón Valur Jensson.
Þess virði að halda í EES-samninginn? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2018 | 16:50
Jón Baldvin Hannibalsson afhjúpar Evrópusambandið
Reiðiræða gamla evrókratans glymur nú á öldum ljósvakans í boði Útvarps Sögu. Illa leikið Grikkland, ótæk evra og vanhæfur Seðlabanki Evrópu og margt annað blöskranlegt og langt fyrir neðan allar rósbleikar vonir sprettur þar ljóslifandi fram í þessari diatribe (refsiræðu) gamla sósíaldemókataforingjans.
Útvarp Saga er á FM 99,4. Þátturinn var nú á 5. tímanum, langt fram á þann sjötta og verður endurtekinn í kvöld (líkl. kl 10 fremur en 11) og einnig settur á netið.
Sannarlega vert áheyrnar!
JVJ.
Evrópumál | Breytt 3.11.2018 kl. 04:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)