Jón Baldvin Hannibalsson afhjúpar Evrópusambandið

Reiðiræða gamla evrókratans glymur nú á öldum ljósvakans í boði Útvarps Sögu. Illa leikið Grikk­land, ótæk evra og van­hæfur Seðla­banki Evr­ópu og margt annað blöskranlegt og langt fyrir neðan allar rósbleikar vonir sprettur þar ljós­lifandi fram í þessari diatribe (refsiræðu) gamla sósíal­demókata­foringjans.

Útvarp Saga er á FM 99,4. Þátturinn var nú á 5. tímanum, langt fram á þann sjötta og verður endurtekinn í kvöld (líkl. kl 10 fremur en 11) og einnig settur á netið.

Sannarlega vert áheyrnar!

JVJ.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Valsson

Það er þroskamerki að geta skipt um skoðun.

Júlíus Valsson, 2.11.2018 kl. 21:36

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hlustaði á viðtalið endurtekið,já Það er ekki að spyrja að þroskaðri greind Jóns Hannibals. Honum er svo auðvelt að viðurkenna breytta skoðun sína varðandi inngöngu Íslands í ESB.- Heiðarlegur og fullur sjálfstraust tilbúinn þegar þjóðin þarfnast hanns.- Takk fyrir Jón Valur að benda á þetta.

Helga Kristjánsdóttir, 4.11.2018 kl. 03:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband