Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2016
29.8.2016 | 12:08
Fullveldis-andstæður flokkur, "Björt framtíð", þjónar evrópsku stórveldi
Þingmenn Bjartrar framtíðar afhjúpa sig nú með enn frekari hætti sem þægar eða fjarstýrðar jarðýtur í þágu innlimunar í Evrópusambandið. Áhugi þeirra á þjóðaratkvæði um að "frekari skref verði tekin í átt að inngöngu í Evrópusambandið" birtist á ný í formi frumvarps "til breytinga á lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðsla, þess efnis að heimilt verði að víkja frá ákvæðum laganna um þriggja mánaða lágmarksfrest áður en þjóðaratkvæði fer fram, ef mögulegt er að það fari fram samhliða almennum kosningum innan þess tíma." Fyrsti flutningsmaður er Páll Valur Björnsson, þingmaður flokksins.
Í frumvarpinu er látið sem "augljós þjóðhagsleg rök" mæli með því, "enda hleypur kostnaður samfélagsins af sjálfstæðri þjóðaratkvæðagreiðslu á hundruðum milljóna króna sem með þessum hætti mætti spara."
Þetta sama "sparnaðar-sjónarmið" heyrðist í öðru ekki síður þungvægu meginmáli: þegar Jóhönnustjórn vildi sniðganga samhljóða úrskurð fullskipaðs Hæstaréttar um að kosningin til stjórnlagaþings hefði reynzt stórgölluð og ógild. Þá vildu forystumenn vinstri flokkanna ekki hlíta lögum (um stjórnlagaþing og kosningar) með því að endurtaka kosningu til stjórnlagaþings, létu sem þeir þyrftu að spara peninga fyrir þjóðina með því að sleppa kosningunni, ákváðu í staðinn að fara fram hjá lögum og úrskurði Hæstarréttar með því að bjóða 25 manns, sem höfðu verið sviptir kjörbréfum sínum og höfðu ekkert umboð kjósenda, að "stjórnlagaráðsmönnum" -- og létu gott heita, að einungis 30 þingmenn stóðu að þeirri ólöglegu þingsályktunartillögu sem mælti fyrir um skipan stjórnlagaráðs!
Frumvarpsmennirnir sex í þessu nýja máli treysta því augljóslega ekki, að landslýðurinn hafi mikinn áhuga á þessar þjóðaratkvæðagreiðslu þeirra, ekki nægan til að fá marga á kjörstað, sbr. fámennið, 48,9%, sem greiddi atkvæði um "nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs"; en hér yrði þó um enn fásóttari atkvæðagreiðslu að ræða. Þess vegna telja þessir frumvarpsmenn,* þörf á því að finna sér gulrót til að trekkja fólk á kjörstað og að einfaldast sé (af því að þeir eigi líka í sinni ESB-þörf rétt á því að fara fram hjá reglum) að halda kosninguna bara samhliða alþingiskosningum, sem sé miklu fyrr en þeirra eigin fyrri frumvarpsákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur hefðu heimilað! Þess vegna segja þau í hræsnisfullu lýðskrumi sínu: "Jafnframt liggja lýðræðisleg rök að baki fyrirkomulaginu þar sem líkurnar á góðri kjörsókn í þjóðaratkvæðagreiðslu aukast fari hún fram samhliða almennum kosningum." Og svo bæta þau við, að ekki þurfi að hafa áhyggjur af því að þingmenn misnoti sér slíkt ákvæði -- einmitt þegar þau gefa sjálf dæmi um slíka misnotkun!
Án efa verður þetta frumvarp litið hýru auga af útsendurum Evrópusambandsins hér á landi, sem hugsanlega hafa líka verið ráðgjafar frumvarpsaðila. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er ESB-maðurinn Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, meðlimur öfugmælasamtakanna "Já Ísland!". Allir hinir fimm flutningsmennirnir eru úr "Bjartri framtíð" og spurning hvort sá visnandi flokkur er að búast við fjárstyrk frá Evrópusambandinu fyrir þessar hugsanlega síðustu alþingiskosningar sem þeir eiga völ á. Vitað er, að mörg félög og samtök víla ekki fyrir sér að þiggja háar fjárupphæðir, sem Brusselmenn hafa fiskað upp úr vösum skattgreiðenda í Evrópu.
* En meðal hinna flutningsmannanna í sex manna flokknum er t.d. Brynhildur Pétursdóttir í nefndum öfugmælasamtökum, "Já Ísland!", einnig Guðmundur Steingrímsson (sem er að hverfa af þingi) og Óttarr Proppé. Einungis tveir af þessum BF-þingmönnum, Björt Ólafsdóttir og Róbert Marshall, eru ekki meðlimir öfugmælasamtakanna.
Jón Valur Jensson.
Víkja megi frá lágmarksfresti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2016 | 19:45
Hvernig dettur þessum mönnum í hug að bjóða sig fram til þings?
Ólíkt Jóni Baldvini* vilja Þorsteinn Víglundsson og Pawel Bartoszek ganga inn í "brennandi hús" Evrópusambandsins!
Ekki er það til að tryggja lýðveldið í sessi sem sjálfstætt og fullvalda.
Þeir, sem heita vilja hollustu sinni framandi heimsveldi 27 ríkja með um 1400 sinnum fleiri íbúa en Íslendinga ættu fremur að flytjast til meginlandsins en að voga sér að leita stuðnings íslenzkra kjósenda við að þeir taki sæti á Alþingi til að brjála löggjöf okkar í þágu þess tröllaukna veldis.
Báðir eru þessir menn á skrá um félagsmenn öfugmælasamtakanna "Já Ísland!"
En okkar fyrrverandi utanríkisráðherra og Alþýðuflokks-formaður Jón Baldvin hefur lengri reynslu af Evrópusambandinu en samanlagðir þessir tveir yngri menn með glýjuna í augum.
- "Þegar ég horfi á Evrópu núna sé ég Evrópusamband sem er nánast í sjálfsmorðsleiðangri ... og allt þar í rugli. Frammistaða ESB núna sýnir algert pólitískt forystuleysi, alltaf viðbrögð eftir á og skammarlega lítilmennsku. Við göngum ekki inn í brennandi hús núna. Slökkvið fyrst eldana,
sagði Jón Baldvin Hannibalsson í viðtali á Morgunvaktinni á Rúv snemma í marz í vetur, sem birti þar viðtal Óðins Jónssonar við hann.
Er ekki tímabært að grillufangarar um evrópska útópíu fari að læknast af þeim órum sínum? Og hvernig væri að þeir fengju að mæta hörðum spurningum fundarmanna og fréttamanna á áróðursfundum "Viðreisnar" vegna þeirrar stefnu að ætla sér að gera Alþingi að undirþingi ESB-stofnana? Til hvers vorum við þá að berjast fyrir sjálfstæði lands og þjóðar? Jafnvel Dönum er fullljóst að æðsta fullveldi yfir þeim er komið í hendur Brussel-herra.
Vita þessir tveir ekki, að í sérhvert sinn sem einhver lög ESB rekast á einhver landslög meðlimaríkjanna, þá skuli landslögin víkja, en ESB-lögin ríkja? En þetta stendur í sérhverjum aðildarsáttmála sem gerður hefur verið við hvert nýtt ESB-land í meira en tvo áratugi. Já, hvers vegna ekki að halda sér við sjálfstæði landsins og fullveldi? Eða ætlar einhver að kjósa skósveina eða erindreka erlends valds?
Jón Valur Jensson.
Þorsteinn í framboð fyrir Viðreisn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.8.2016 | 13:40
Geðþekkur maður er ekki endilega tilvalinn alþingismaður
Pawel Bartoszek, lengi "hlynntur inngöngu Íslands í Evrópusambandið", gengur nú í Viðreisn, um leið og hann segir sig úr Sjálfstæðisflokki. Hann var einn margra ESB-manna sem kyngdu þeirri ósvinnu að taka sæti í ólöglegu "stjórnlagaráði", eftir að kosning 25 manna til stjórnlagaþings var ógilt að fullu og öllu af Hæstarétti og kjörbréf þeirra afturkölluð af yfirkjörstjórn. Hann var þar með reiðubúinn að láta tilganginn helga meðalið til að fá að freista þess að ráða einhverju um þá stjórnarskrá Íslands, sem hann vanvirti í raun með því að óvirða úrskurð fullskipaðs Hæstaréttar.
Pawel sýndi eftir á, að hann var ekki sammála 24 félögum sínum í ólögmæta ráðinu um allt, og manninum er ekki alls varnað um ýmsar forréttindaskoðanir sínar, sem hann hefur fengið mikið rými til að kynna í greinum og bakþönkum í Fréttablaðinu.
En kjörinn er hann ekki fremur en aðrir frambjóðendur "Viðreisnar" til að vinna af heilindum að því að efla Ísland og styrkja rétt þess í samfélagi þjóðanna. Allir þjónar Evrópusambandsins, í orði eða borði, eru í sjálfum sér af þeirri ástæðu einni vanhæfir til setu á þjóðþingi Íslendinga, rétt eins og Pawel var vanhæfur til að véla um stjórnarskrá Íslands fyrir nokkrum misserum.
Enginn, sem vill gera Alþingi að undirþingi Evrópusambandsins og gefa því síðastnefnda æðstu völd hér í laga- og dómsmálum, þar sem í milli ber um landslög og lagagerninga pótentátanna í Brussel, getur talizt hæfur til fundarsetu á því löggjafarþingi, sem svo lengi mótaðist af anda frelsishetjunnar Jóns Sigurðssonar.
Jón Valur Jensson.
Pawel gengur til liðs við Viðreisn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt 26.8.2016 kl. 07:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.8.2016 | 15:54
Forsendulausar haustkosningar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.8.2016 | 13:28
Þorvaldur Gylfason fer offörum í rangfærslum
Þvílíkt rugl í Fréttablaðinu í dag, hann lætur sem "nýja stjórnarskráin" sé LÖG í landinu! "Stjórnlagaráð" hafði sem slíkt EKKERT löglegt umboð frá landsmönnum, aldrei var kosið til þess í almennum kosningum, heldur var kosið til stjórnlagaÞINGS, en kosningin sú með ýmsum ágöllum og ógilt af sjálfum Hæstarétti Íslands fullskipuðum og kjörbréfin tekin af þeim "kjörnu"; átti þá að endurtaka kosninguna skv. lögum, en Jóhanna og Steingrímur svikust um það og völdu í staðinn að fara að hvatningu róttæks búsáhaldamótmælanda, Illuga Jökulssonar, að sniðganga úrskurð Hæstaréttar, og það gerðu þau og þeirra lið, en þó ekki nema 29 alþingismenn alls!! Frá þeim einum hafði þetta meinta stjórnlagaráð umboð sitt, þó ólöglegt, því að við skipan "ráðsmannanna" var þess ekki gætt, að í gildi voru lög um stjórnlagaþing, og samkvæmt þeim og almennum kosningalögum ÁTTI að endurtaka kosninguna til stjórnlagaþings!
Þorvaldur Gylfason og félagar, þ. á m. að minnsta kosti 10-11 ESB-innlimunarsinnar, tóku svo þátt í þessu, samþykktu (með einni undantekningu) hina ólögmætu skipan sína af hálfu hinna 29 alþingismanna! (þáttur í plottinu var að "stjórnlagaráðsmönnum" var lofuð tvöföldun setutíma síns og þar með tvöföldun launa!).
Aldrei stóð til, að öll stjórnarskráin yrði stokkuð upp, en glaðhlakkalegir lögðust Þorvaldur og félagar í þá óumbeðnu vinnu, eins og til að tryggja að sem minnst ráðrúm yrði til að kjósendur gætu í reynd haft áhrif á einstakar greinar.
Í lögum um stjórnlagaþing höfðu verið talin upp 8 (átta) atriði sem stjórnvöld (ríkisstjórn og Alþingi) vildu ræða og breyta. þ.á m. ákvæði um framsal ríkisvalds, en ekki þorði þó Jóhönnustjórn að leggja hina billegu lýðveldissvíkjandi 111. tillögugrein (og 67. gr.) stjórnlagaráðs um framsal ríkisvalds (í reynd í þágu Evrópusambandsins!) undir dóm kjósenda, það kom bara ekki til greina! Því réð ekki sízt Samfylkingarkonan Valgerður Bjarnadóttir, formaður eftirlits- og stjórnskipunarnefndar.
Ekkert fór "stjórnlagaráð" eftir ítrekaðri hvatningu Þjóðfundarins 6. nóv. 2010 um mikilvægi fullveldisréttinda lýðveldisins!
Jón Valur Jensson.
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Eftir Jón Steinar Ragnarsson
Nú hefur verið boðað af fjármálaráðherra (í hvers umboði er óljóst) að kosningar fari fram 29. október að því gefnu að ekki verði upplausn á þinginu. Þetta er furðuleg yfirlýsing og ekki í neinu samræmi við þær forsendur sem stjórnarskrá mælir um.
Ekkert vantraust á stjórnina hefur verið samþykkt og engar forsendur um það að stjórnarsamstarfið sé komið í hnút. Forsætisráðherra hefur ekki gefið neina yfirlýsingu enn og engar viðræður bornar undir forseta lýðveldisins.
Það er áhyggjuefni að hægt sé að gera slíkt af álíka léttúð, eins og það sé duttlungum háð að rjúfa þing og boða til kosninga.
Bjarni segir að fyrirvari sé á þessu ef ágreiningur og upplausn verði er setji vinnufrið þingsins í uppnám. Það sem raun er að gerast er að Bjarni er að fara á svig við stjórnarskrárbundið ferli undir hótunum frá málefnalausri stjórnarandstöðu um að eyðileggja þingstörf ef hún fær ekki sínu fram um kosningar og þingrof. Það er ásteytingarsteinninn.
Stjórnlausar frekjur eins og Svandís Svavarsdóttir virðast nú hafa fengið forsetavald eða einræðisvald með hótunum um skemmdarverk, upplausn og stjórnarkreppu. Ég spyr: Er ekki allt í lagi? Er ég mitt í episódu af Twilight Zone?
Hverjar eru forsendur stjórnarslita? Hvar er vantraustið? Hvað ætlar nýkjörinn forseti að gera? Mun hann bera málið undir lögfróða og akta samkvæmt því eða ætlar hann að taka afstöðu út frá hlutdrægu mati, þar sem hann er sjálfur í herbúðum þeirra er stutt hafa upplausnina. Maður sem hlaut upphefð sína með því að stýra hlutdrægu fréttamati í Panamamálinu sem helsti álitsgjafi RUV í málinu, án nokkurrar sérmenntunar og þekkingar á því sem fram fór.
Hvenær var það annars í hlutverki fjármálaráðherra minnihlutans að lýsa yfir þingslitum?
Þetta er fullkomlega galið.