10.12.2018 | 13:31
Ekki fyrir okkar hönd! Embættismaður getur ekki skuldbundið þjóðina til að lúta ofríki starfshóps SÞ um innflytjendamál
Í vel falinni smáfrétt hád.útv. Rúv* þennan örlagadag 10. des. segir að "150 ríki SÞ, Ísland þar á meðal," hafi staðfest fólksflutningasáttmála SÞ!
Sáttmálinn var ALDREI kynntur hér af hálfu stjórnvalda,** ALDREI kynntur Alþingi né borinn undir atkvæðagreiðslu í þinginu og ALDREI nefndur á nafn í kosningakynningu flokkanna fyrir þingkosningarnar 2017!
Þessi sáttmáli var EKKI undirritaður fyrir hönd íslenzku þjóðarinnar, hún á enga aðkomu að honum, og allar skoðanakannanir hér hafa sýnt yfirgnæfandi andstöðu við hann, m.a. nú síðast sú sem birt var nú kl. 12 í Útvarpi Sögu. 92,9% sögðu þar NEI við spurningunni hvort Ísland ætti að undirrita sáttmálann, aðeins 5,8% sögðu já, en 1,2% hlutlausir! Í skoðanakönnun, sem staðið hefur yfir á Stjórnmálaspjalli Facebókar, vilja 237 manns, að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um málið, en aðeins 21 er þar andvígur því.
Það ber ótvírætt að hafna þessum samningi sem m.a. felur í sér fullveldisframsal yfir landamærunum og alvarleg brot á ákvæðum 73. gr. stjórnarskrárinnar um tjáningarfrelsi, en miklu fleiri ákvæði hans fela í sér stóralvarlegar byrðar á þjóð okkar, efnahag og velferðarkerfið og sjálfa samsetningu "þjóðarinnar" eða öllu heldur íbúatölu landsins, með margföldun innflutnings hælisleitenda og farandfólks. Þetta er t.d. langtum alvarlegra mál en jafnvel hinn hrikalegi Þriðji orkupakki Evrópusambandsins!
Mál þetta stenzt ekki stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands -- og hvergi neina vestræna stjórnarskrá í raun, m.a. vegna málfrelsisákvæða þeirra. Afglöp þess ráðherra, sem mun hafa sent ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins til óheillaverks þessa, eru mikil.
* Þessi frétt, sem falin var á eftir umfjöllun um 70 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar SÞ) var enn ekki talin nógu merkileg kl. 17.00 í dag á Rúv til þess að hún hafi náð inn á vefsíðuna Ruv.is, og er það í fullu samræmi við þá ÞÖGGUN sem hefur ríkt um þetta mál víða í Evrópu, en kannski hvergi meiri en hér!
** Jafnvel á fundi í Valhöll 28. nóvember sl. kom fram, að utanríkisráðherra hafði ekki kynnt sér sáttmálann (sem er 34 blaðsíður þéttprentaðar), en að hann ætlaði að láta embættismenn sína gera það, áður en hann tæki afstöðu! Sáttmálinn hefur enn ekki verið þýddur á íslenzku, hvað þá kynntur þjóð og þingi! Samt er undirmaður forsætisráðherra látinn uppáskrifa samninginn án umboðs frá þjóð og þingi!
Jón Valur Jensson.
Meginflokkur: Innflytjendamál | Aukaflokkar: Evrópumál, Spilling í stjórnmálum, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:28 | Facebook
Athugasemdir
Nú er byrjuð endurtekning á innleggi mínu í Útv. Sögu í morgun, FM 99,4 í Rvík, einmitt um þetta mál, flutningasáttmálann.
Jón Valur Jensson, 10.12.2018 kl. 21:27
Það hlýtur að jaðra við landráð að samþykkja þessa skuldbindingu og eins orkupakkann margnefndan.
Það er kominn tími til að ráðamenn verði að bera ábyrgð á gjörðum sínum, ekki bara í kosningum. Nú sýnist mér tilefni mun frekar en þegar Geir H.Haarde var dreginn fyrir landsdóm að skoða það rækilega hvort beita eigi slíkum aðgerðum gegn því fólki sem á að standa vörð um þjóð okkar en hundsar hana ítrekað.
Tómas Ibsen Halldórsson, 11.12.2018 kl. 11:55
Já, Landsdóm á liðið!
Jón Valur Jensson, 11.12.2018 kl. 13:47
Þetta er ekki samningur því aldrei hefur verið um hann fjallað og þar með aldrei samið. Það liggur því fyrir að ef slíkur samningur finnst einhverstaðar þá á að kæra undirskrifarann fyrir fals.
Hrólfur Þ Hraundal, 11.12.2018 kl. 20:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.