Það sem eitt sinn virtist óheppni virðist nú happ í hendi

Það eru tíðindi að sjálfur forsætis­ráðherra Íslands segist hafa tekið ranga afstöðu til tillögu um það 2009 að halda þjóðar­atkvæða­greiðslu um, hvort sækja ætti um inngöngu í Evrópusambandið.

Á því ári var í raun spilað fjárhættuspil um framtíð Íslands og fullveldi.

Hlutirnir geta litið út allt öðruvísi eftir á. Nú hefur Katrín Jak­obs­dóttir endurskoðað hug sinn og telur að Ísland ætti aldrei -- og hefði aldrei átt -- að sækja um inngöngu í Evrópu­sambandið án þess að þjóðin fengi fyrst að tjá sig um það mál. Samt greiddi hún atkvæði gegn þingsályktunartillögu um það árið 2009.

Augljós var yfirgangur Jóhönnu- og Steingríms­liðsins árið 2009 að hafna því að vísa málinu fyrst til dóms þjóðarinnar. Það var bara keyrt á það, að Íslandi ætti að troða í þetta stórríkja­samband í Evrópu og spyrja almenning helzt einskis. Katrín tók þátt í því á fullu, strengjabrúða Steingríms Joð eins og fleiri í flokki VG.

En eftir á að hyggja hefur þetta í raun snúizt okkur til góðs, þrátt fyrir illan tilgang. Hefði þings­ályktunar­tillagan um að halda fyrst þjóðaratkvæða­greiðslu um umsóknarmálið verið samþykkt, þá hefði tímans vegna og illra aðstæðna (við hámark bankakrepp­unnar) verið hætt við við, að innlimunarsinnar hefðu getað náð meirihluta atkvæða við þá tillögu, jafnvel þótt nokkrum mánuðum síðar hafi verið komin meirihluta-andstaða gegn ESB-aðild, afstaða sem styrktist og hefur allar götur síðan verið meirihluta­afstaða aðspurðra kjósenda. En hefði þessi meirihluti náðst í þjóðaratkvæðagreiðslu 2009, væri aðstaða Alþingis nú erfiðari til að samþykkja þá tillögu Sigmundar Davíðs að þingið lýsi formlega yfir endalokum umsóknar að ESB.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Hefðu átt að halda þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þjóðaratkvæði hefðu hafnað umsókn. Þrátt fyrir hrunið þá var langmestur meirihluti manna gegn því að ganga í sambandið og þar af leiðandi hefði liklega meirihlutinn ekki séð vit í því að sækja um eitthvað sem það vildi ekki. Í ljósi þessa meirihluta var tillagan sett fram. 

Það sem er kannski jákvætt í þessu er að þarna sýndu vinstrimenn sinn rétta lit. Valdníðslu og lýðræði að geðþótta. Einnig má líta á það sem jákvætt að við það að fólki var neitað þessi réttur þá efldist andstaðan við esb til muna. Fólk er ekki fífl, þótt vinstri aðallinn virðist ganga út frá því.

Það var annars skýrt í stefnuskrá VG að standa gegn ESB en þeir sviku það strax daginn eftir kosningar rétt eins og öll hin stóru prinsippin í stefnuskránni. Einhvarntíma var sagt að Framsókn væri tækifærissinnað apparat opið í báða enda. Ég held að VG hafi lengst af haft vinninginn þar.

Jón Steinar Ragnarsson, 5.2.2019 kl. 00:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband