Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
7.9.2018 | 07:28
Bragð er að þá barnið finnur: jafnvel Baldur Þórhallsson sér þetta!
Á sama tíma og æ fleiri sjá annmarkana á því að halda áfram í EES vegna yfirgangs ESB sem þvingar upp á okkur þungbærum lagaklöfum,* kemur í ljós, að jafnvel það að neyða okkur til refsiaðgerða gegn Rússum er enn einn anginn af EES-"samstarfinu"! En Baldur þessi er einn mesti ESB-maður á norðurhveli jarðar, hefur lengi mælt með innlimun landsins í Evrópusambandið, enda árum saman verið margmilljóna-styrkþegi þess.
En í áðurnefndum refsiaðgerðum hefur þjóðin verið neydd til að taka þátt, sér til skaðræðis, af meðvirkri stjórnmálaelítu, sem gæti nú farið að syngja sitt síðasta, ef hún áttar sig ekki á því, að hún er alveg að klofna frá þjóðinni.
* Persónuverndarlögunum, sem koma sér afar illa fyrir sveitarfélög og fyrirtæki, og Þriðja ESB-orkumálapakkanum.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Tökum þátt vegna EES-samningsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2018 | 23:32
Þrumugóður fundur sjálfstæðismanna gegn Acer-orkumálapakka ESB
Um 90-100 manns munu hafa sótt fundinn í Valhöll kl.17.30 til um kl. 20 í kvöld. Tillaga til fundarályktunar var samþykkt samhljóða, mótatkvæðalaust. Miklar umræður voru eftir erindi framsögumanna, sem voru Styrmir Gunnarsson, fyrrv. ritstjóri, dr. Stefán Már Stefánsson, prófessor í Evrópurétti við HÍ, Bjarni Jónsson rafmagnsverkfræðingur og Elías B. Elíasson verkfræðingur, sem starfað hefur áratugum saman hjá Landsvirkjun. Fundarstjóri var Jón Magnússon hrl., fyrrv. varaþingmaður, og fór það vel úr hendi.
Vafi hafði leikið á afstöðu forystu Sjálfstæðisflokksins til ACER-málsins, en einungis einn ráðherra hans, varaformaður flokksins, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðar- og ferðamálaráðherra, mun hafa sótt fundinn, auk a.m.k. eins þingmanns, Birgis Ármannssonar. Hvorugt þeirra tók til máls á fundinum. Meðal annarra fundarmanna, sem sátu allan fundinn, var Davíð Oddsson, fyrrv. forsætisráðherra, nú ritstjóri Morgunblaðsins.
Þetta er fundarályktun þessa sögulega fundar í Valhöll:
Fundurinn skorar eindregið á forystu Sjálfstæðisflokksins að hafna þriðja orkupakka Evrópusambandsins á þeim grunni að hann stangast á við ákvæði stjórnarskrárinnar, opnar Evrópusambandinu leið til yfirráða yfir einni helstu auðlind Íslands og hækkar verð á raforku og afleiðingar til langs tíma eru óvissar.
Allur fundurinn var tekinn upp á myndband og verður væntanlega aðgengilegur hvað úr hverju.
Jón Valur Jensson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.8.2018 | 01:20
Fullveldisframsal að vild evrókrata? Nei takk!
Með hjásetu við stjórnlagaþingskosningar 27.11. 2010 færðu margir [hægri og miðju-] stjórnarandstæðingar Samfylkingu og fimmtu herdeild ESB þann áfangasigur á leið þeirra í Evrópustórveldið að gefa þeim færi á lúmskum stjórnarskrárbreytingum. Afleiðingin: [aðeins] 37% kjörsókn og áberandi stór hlutur ESB-sinna.
A.m.k. 10-11 af 25 efstu í kosningunni, sem reyndist ógild og að engu hafandi, eru eindregnir fylgismenn inntöku Íslands í Evrópusambandið, þ. á m. klókur fyrrv. starfsmaður ESB, Eiríkur Bergmann Einarsson. Er hann nú á launum hjá Evrópufræðasetri á Bifröst, sem þiggur mikla styrki frá framkvæmdastjórn ESB! Svo tvöföldum í roðinu var falið að véla um stjórnarskrá og beita áhrifum sínum meðal græskulítilla ráðsmanna.
Aðrir helztu ESB-harðlínumenn í hópi hinna 25 eru Vilhjálmur Þorsteinsson í CCP, Gísli Tryggvason í Neytendastofu, sem leggst lágt við að afla frumvarpinu (!) stuðningsmanna (sjá: lifsrettur.blog.is/blog/lifsrettur/entry/1255535/), Guðmundur Gunnarsson úr Rafiðnaðarsambandinu, Illugi Jökulsson, Pavel Bartozek og Þorvaldur Gylfason, iðinn áróðursmeistari sem heldur uppi blekkingum af alvarlegasta toga (sjá: jvj.blog.is/blog/jvj/entry/1263309/). Með fylgdu ESB-sinnar eins og Silja Bára Ómarsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir og Freyja Haraldsdóttir.
Að hvöt Illuga Jökulssonar sniðgengu 30 þingmenn úrskurð Hæstaréttar um ógildingu kosninganna. Í trássi við stjórnlagaþingslögin, sem enn voru í gildi, var kosningin ekki endurtekin, en 25 manna hópnum boðið að setjast í nefnd í umboði 30 þingmanna, þ.e. stjórnlagaráð. Þá var þeim gert óvænt tilboð, eins og til að liðka til fyrir þátttökunni: að sitja í 4 mánuði á fullum alþingismannslaunum í stað tveggja, eins og verða átti um stjórnlagaþingið (sjá um það stóralvarlega mál og ólögmæta ferli: jvj.blog.is/blog/jvj/entry/1263312/).
Í takt við evrókratíska ofhleðslu ráðsins rættust verstu hrakspárnar: laumað inn grófri fullveldisframsalsgrein, nr. 111. Jafnvel gamlir íhaldsmenn í ráðinu, Pétur Gunnlaugsson á Útvarpi Sögu (jvj.blog.is/blog/jvj/entry/1263311/) og Ari Teitsson, féllu sem skotnir fyrir ódýrum áróðursbrellum Þorvaldar og Eiríks til að réttlæta þá lúsléttu heimild til fullveldisframsals. Er Pétur sízt linari en þeir í áróðri með 111. greininni, segir hana gera fullveldisframsal erfiðara en núverandi stjórnarskrá og fullyrðir að stjórnarskráin skipti engu máli, ef ákveðið verði að ganga í ESB, því að þá víki hún fyrir lögum ESB.
Þetta er fleipur, meðan við erum utan ESB. Margar greinar stjórnarskrárinnar fela í sér, að allt löggjafarvald yfir okkur sé í höndum Alþingis og forsetans (og í vissum tilfellum: þjóðarinnar). Ef stjórnvöld reyna að brjóta 2. gr. hennar, 16., 26. gr. o.fl. með því að undirrita aðildarsamning sem gefur ESB formlega beint og æðsta löggjafarvald yfir landinu, sem og, að landslög hér verði víkjandi fyrir ESB-löggjöf sem rekst á þau, þá verður sú gjörð yfirvalda samstundis kærð til Hæstaréttar af sjálfvöktum fjöldasamtökum sem augljóst stjórnarskrárbrot.
Að segja að þjóðin fái þá vörn í 111. gr. að geta kosið gegn fullveldisframsali lýsir blindni, því að 30-35% kosningabærra manna gætu þá verið að taka afdrifaríka ákvörðun um framsal ríkisvalds, þ.m.t. allt æðsta löggjafarvald, til erlends stórríkis, sennilega fyrir fullt og allt, þ.e.a.s. ef atkvæði féllu nokkuð jafnt í 60-70% kjörsókn um málið. Geta 30% kallast þjóðin?
Útvarp Saga er í áróðursferð fyrir stjórnlagapakkann. Enginn lagaprófessor eða stjórnskipunarfræðingur kemst þar að hljóðnemanum, en ráðsmönnum boðið nær daglega á rauða dregilinn, jafnvel ESB-innlimunarsinnum eins og Þorvaldi, Eiríki Bergmann og Vilhjálmi Þorst. En þrír þáttagerðarmenn, sem dirfðust að gagnrýna stjórnlagaráð, voru látnir taka pokann sinn, ég, Baldur Ágústsson fv. forsetaframbj. og Jón Magnússon hrl. Ríkisstjórnarútvarpið stendur svo undir því nafni með hlutdrægu, ójöfnu vali manna í Silfur Egils o.fl. þætti í þágu stjórnlagaráðs ítrekuð hlutleysisbrot, en stjórnarskrá lýðveldisins liggur óbætt hjá garði og ekki minnzt á hana á atkvæðaseðlinum!
Í 82. tillögugr. er í raun búið til embætti varaforseta Íslands, í höndum eins manns, flokkspólitísks forseta Alþingis, fulltrúa stjórnarmeirihluta! Á að treysta honum fyrir málskotsvaldinu? Hví var forseta Hæstaréttar ekki fremur falið það valdahlutverk á hendur?
Í 113. gr. ráðsins er 5/6 alþingismanna gefið vald til að breyta stjórnarskrá án þess að spyrja þjóðina! Fjórflokkurinn hefur yfirleitt haft fleiri en 5/6 þingsins. Þetta hentar honum vel.
Úr 74. gr. stjskr. vill ráðið fella niður heimild til að láta banna viss félög. Gæti t.d. átt við kynþáttahatursfélög, eins og Björg Thorarensen lagapróf. bendir á, alþjóðleg glæpasamtök, mafíur, hrottagengi.
Ráðið vill fella niður 2. tl. 72. gr. stjskr., en það ákvæði leyfir stjórnvöldum að takmarka eign útlendinga í fasteignum og er helzta vörn innanríkisráðherra gegn jarðeigna-ásælni Kínverja hér á landi.
Sama stjskr.ákvæði er traust vörn gegn kaupum útlendinga á útvegsfyrirtækjum hér. Hefur Jón Bjarnason alþm. bent á, að ráðið vill þessa takmörkun á fasteignakaupum útlendinga feiga. Slík niðurfelling virðist þjónkun við óskir ESB-innlimunarsinna sem laumuðust inn í hið ólögmæta ráð.
Mestu varðar að menn afstýri því stórslysi að liðkað verði fyrir innlimun Íslands í ESB. Það er þeim mun mikilvægara sem við eigum þar við að etja afl 1570 sinnum fólksfleira veldis en íslenzku þjóðarinnar, afl sem notar sína fjárhagsyfirburði til að dæla hingað áróðursfé og hyggst gera það í vaxandi mæli.
Grein þessi birtist upphaflega í Morgunblaðinu 20. október 2012, höfundur er guðfræðingur, prófarkalesari og form. Samtaka um rannsóknir á Evrópusambandinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2018 | 01:16
Svo bregðast krosstré sem önnur tré
Raunalegt er að sjá Björn Bjarnason ljá stefnunni á Acer-orkumálapakkann, með framsali ríkisvalds héðan, stuðning sinn í grein í gær. Væri honum sæmst að kafa djúpt og af allri sinni skarpskyggni í greinaskrif Bjarna Jónssonar rafmagnsverkfræðings í málið og losa sig við sínar blekkingarhugmyndir, enda þekkir Bjarni allan þennan málaflokk eins og handarbakið á sér, verkfræðilærður í Noregi, hefur fylgzt með allri EES-umræðunni þar og hefur langtíma reynslu sem rafmagnsverkfræðingur að störfum í okkar eigin virkjana- og raforkudreifingar-geira.
Nafn Rögnu Árnaóttur, fyrrv. utanþingsráðherra, sem Björn Bjarnason treystir á, er engin trygging fyrir því, að hún sé hér góður vegvísir, eða eru þeir margir sem trúa leiðsögn hennar og Dags B. Eggertssonar um Hvassahraunsflugvöll sem lausn á okkar flugsamgöngum?!
Undirritaður (upptekinn mjög í dag) frétti af þessari grein Björns á snjáldurskinnu sinni (facebók) eftir miðnættið, þar sem flugmaðurinn eldklári Þorkell Ásgeir Jóhannsson lagði inn þessa athugasemd:
Björn Bjarnason rekur nú mikinn áróður með 3. orkupakkanum með vísan í greinargerð Rögnu Árnadóttur um efnið. En greinin sú afhjúpar eitt lykilatriði málsins í kafla 4.4, neðst í fyrstu mgr, þar sem segir að ESA muni taka þátt í starfi ACER án atkvæðisréttar! Aðkoma ESA sem eftirlitsaðila (sem átti að róa EES-ríkin gagnvart valdaafsalinu til ACER) er því einungis til málamynda. (Feitletr. JVJ)
Vonandi er ekki að bresta flótti í þinglið Sjálfstæðisflokksins um málið, þ.e.a.s. frá einarðri varðstöðu um fullveldið, en landsfundur hefur þegar tekið afstöðu GEGN þessu yfirvofandi þingmáli ESB-vinanna.
Falli Sjálfstæðisflokkurinn (e.t.v. undir forystu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og leiðsögn Björns Bjarnasonar) fyrir fagurgala ESB-manna um málið, þá er hann að fella gildan part af fullveldisréttindum okkar og verðskuldar ekkert minna en sitt eigið gengisfall í augum eigin óbreyttra flokksmanna.
Jón Valur Jensson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.8.2018 | 14:57
ESB-trúboð Fréttablaðsins
Fréttablaðið birtir í dag 2 greinar í þágu Evrópusambandsins, leiðarann og pistil Þorsteins Víglundssonar í "Viðreisn".
Dæmigerður er leiðari evrókratans Kolbrúnar Bergþórsdóttur -- fjallar gersamlega einhliða um Brexit-málið. Hún sér ENGIN rök sem Brexit-menn hafi haft fyrir sínum málflutningi (og þar skrökvar hún í leiðinni) og velur svo að tala einungis þá fáu Brexit-málsvara, sem misst hafa stjórn á sér í bræði í andstöðunni við ESB, sem nánast einu skýru dæmin um Brexit-afstöðuna! Uppteiknar sem sé fuglahræðu til að auðvelda sér leikinn!
Skammsýni virðist að fækka um 100 þúsund fjár, eins og nú stefnir í. Hér þarf að fara fram duglegt markaðsátak til að auglýsa nýjar framleiðslueiningar af lambakjöti handa erlendum ferðamönnum. Það er ekki landinu til ábata, að sveitir fari í eyði.
![]() |
Fækka þarf um rúmlega 100 þúsund fjár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.7.2018 | 15:15
Ófært að þvinga þjóðir til að búa saman, sbr. Júgóslavíu!
Söngvarinn frægi Chris Rea gagnrýnir ráðamenn í Bretlandi og ESB, fjarlæga alþýðu, og dregur í efa sameiningu Evrópu: "you cannot force different people to live together [when] they simply do not want to", og minnir á hrun Júgóslavíu.[60]
Allir eiga að vita, hvernig fór í Júgóslavíu. Eftir að sex þjóðum og þjóðabrotum líka hafði verið haldið saman undir einni stjórn Josips Bros Tito frá stríðslokum, hlutaðist ríkið sundur í mikilli borgarastyrjöld eftir 1990, þar sem áætlað er, að 130-140.000 manns hafi farizt. Svo stutt er síðan Balkanlöndin voru stríðsvöllur, og ekki stóð Evrópusambandið sig vel við að hefta framgang stríðsins; friðargæzluliðar á vegum Hollendinga brugðust þar yfir 5.000 múslimum, sem myrtir voru án þess að þeir hollenzku hreyfðu legg né lið.
Á tenglinum syngur Chris Rea lag til eldri dóttur sinnar, Josephine, og varð frægt. Um yngri dóttur sína, sem þá var fjögurra ára, samdi hann lagið Julia. Þarna eru falleg myndbönd, sem sýna ávexti friðar í stað sundrungar og stríðs vegna stefnu misviturra stjórnvalda, sem þvinga þjóðir sínar gegn þeirra vilja.
JVJ.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.7.2018 kl. 02:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2018 | 09:53
Sigmundur Davíð minnir á gildi þess að vera utan Evrópusambandsins
Ísland hefði orðið gjaldþrota ef það hefði verið aðili að ESB þegar bankahrunið varð árið 2008. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins og fyrrv. forsætisráðherra í síðdegisútvarpi Útvarps Sögu í gær, en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Sigmundur bendir á að með verkfærum fullveldisins hafi verið komið veg fyrir að illa færi hér á landi, þjóðin hafi fengið eitthvað um málin að segja. Hann segir að ekki þurfi annað en að horfa til Grikklands til að sjá hvernig hefði getað farið fyrir Íslandi hefði það verið hluti af ESB. Hlusta má á þáttinn í spilaranum fyrir neðan fréttina á vef Útvarps Sögu.
(Frétt þessi er endurbirt hér af vef ÚS, http://utvarpsaga.is/island-hefdi-ordid-gjaldthrota-hefdi-thad-hefdi-verid-i-esb-thegar-hrunid-vard/)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2018 | 06:50
Með svikara við fullveldi Íslands í forsetastóli og ráðabruggi um framsal fullveldis til ESB sýnir Alþingi þjóðinni óvirðingu sína
Blöskranleg eyðsla stjórnvalda í Þingvallafund og eigin yfirbyggingu megnar sízt á aldarafmælisári að fegra eða réttlæta athæfi þingsins gagnvart stjórnarskrá; og Steingrímur J. Sigfússon í stafni sem forseti Alþingis er eins og hver önnur smekkleysa, eftir að hann sveikst aftan að fullveldisréttindum landsins með því að ganga berlega á bak orða sinna með fullri þátttöku í því gerræði Samfylkingarinnar að sækja um inngöngu í Evrópusambandið vorið 2009.
Fjárveitingu vegna þessa Þingvallafundar Alþingis í dag hækkaði þingið úr 40 milljónum króna í 82 milljónir. Á sama tíma bárust fregnir um, að kostnaður við aðstoðarmenn ráðherra er yfir 400 millj. kr. á ári, en hver þeirra fær að meðaltali 19 milljónir á ári, þ.e. langt yfir eina og hálfa milljón á mánuði.
Kosningasvik Steingríms J. árið 2009 voru greypileg.
Orð Steingríms J. Sigfússonar hér á eftir eru á tæru: hvernig hann narraði þjóðina með eindregnu kosningaloforði fyrir maíkosningarnar 2009 um að fara EKKI í aðildarviðræður, um að hans flokkur væri traustastur í málinu, en sneri svo algerlega við blaðinu með þátttöku sinni og annarra í VG í ESB-umsókn Össurar og Jóhönnu strax þá um sumarið. Sjáið þetta afhjúpandi hálfrar mínútu myndband, daginn fyrir kosningarnar 2009:
https://www.youtube.com/watch?v=AIBuEnFQ6ac
Þar segir orðrétt:
- Sigmar í Kastljósi: "Kemur það til greina, Steingrímur, bara svo að ég spyrji þig, kemur það til greina að hefja undirbúning að því að sækja um, strax núna eftir kosningar? ..."
- Steingrímur: "Nei."
- Sigmar: "... vegna þess að þannig hefur Samfylkingarfólkið talað ..."
- Steingrímur: "Nei."
- Sigmar: "... að þetta byrji í sumar?"
- Steingrímur: "Nei."
- Sigmar: "Hvenær getur þetta byrjað?"
- Steingrímur: "Það samrýmist ekki okkar stefnu, og við hefðum ekkert umboð til slíks, og þó við reyndum að leggja það til, forystufólkið í flokknum, að það yrði farið strax í aðildarviðræður, gagnstætt okkar stefnu í maí, þá yrði það fellt í flokksráði Vinstri grænna. Þannig að slíkt er ekki í boði."
Allt þetta sveik svo hr. Steingrímur J. Sigfússon í beinu framhaldi af kosningunum vorið 2009 og beitti, að séð varð, þvingunum til að fá þingmenn eigin flokks til að greiða atkvæði með Össurar-umsókninni!
Hvernig datt alþingismönnum í hug, árum seinna, að kjósa svo stórvarasaman mann sem eftirmann Jóns Sigurðssonar forseta, sem forseta sjálfs Alþingis?! Við verðum að horfa upp á hann vera helztan í forsvari Alþingis á 100 ára afmælisfundi á Þingvöllum í dag!
Og nú hafa þingmenn staðið í ráðabruggi um að veikja sjálf fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar! Um þetta hefur verið fjallað nýlega, meðal annars í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins sl. sunnudag.
Í klausu Reykjavíkurbréfs undir millifyrirsögn: Falin stórfrétt, er talað um, að af ríkisstjórninni
"hefur ekki verið neitt að frétta. Það þýðir þó ekki endilega að alls ekki neitt sé að gerast. Því að þeir sem allra best fylgjast með vita til að mynda að ríkisstjórnin er óvænt að baksa við það á bak við tjöldin að undirbúa breytingar á stjórnarskrá til að tryggja að hægt verði að ganga í ESB með sem minnstum vandræðum. Þetta hljómar ótrúlega en er samt satt. Fyrir flokk sem hangir enn í að vera stærsti flokkur landsins birtist þetta sem einhvers konar þráhyggjuleg taka tvö á hlaupinu út undan sér í Icesave eftir ískalt mat sem laskaði flokkinn varanlega, en þó ekki nægjanlega, að því er virðist." [Leturbr.jvj.]
Og þessu er fylgt eftir með meiri upplýsingum Reykjavíkurbréfs af málinu:
"Byrjaðir aftur
Nýlega var haldinn furðulegur formannafundur í sumarbústað forsætisráðherra á Þingvöllum. Það væri í sjálfu sér frétt, þótt ekkert hefði gerst þar. [...] þegar horft er til þess sem raunverulega var rætt. Því á þessum einstæða formannafundi voru á dagskrá umræður um breytingar á stjórnarskrá og þá einkum um hvaða leiðir væru helst færar til að grafa undan fullveldi landsins, á miðju hundrað ára afmæli þess fullveldis, sem verið er að grafa undan. [Feitletr.jvj]
Þingvallafundur hinn opni
Heyrst hafði á skotspónum fyrir löngu að til stæði að mæta á Þingvöll til þess að minnast ársins, sem hefur að öðru leyti að mestu farið fram hjá þjóðinni, enda eru hátíðartilburðirnir líkastir því að myndarlegt átthagafélag haldi upp á virðulegt afmæli.
En á þessum fundi sem aðeins hefur verið hvískrað um ætti þá að gefast tilvalið tækifæri til þess að segja upphátt það sem nú er pukrast með á harðlokuðum fundi í ráðherrabústaðnum á Þingvöllum.
Sem sagt hina einu raunverulegu ástæðu fyrir því að sífellt sé haldið áfram með algjörlega óþarft tal og breytingabrölt gagnvart stjórnskránni, sem kennd er við Þingvöll og lýðveldisstofnunina og samþykkt var með 98 prósentum atkvæða þjóðarinnar. Enn skal unnið að því að tryggja að hægt verði að gera óvinum sjálfstæðis og fullveldis Íslands léttbærara að koma aðför sinni áfram."
Þetta eru stóralvarleg tíðindi, sem stjórnvöld finna vonandi sóma síns vegna tilefni til að draga til baka, en höfundur Reykjavíkurbréfs kann hér með afhjúpun sinni að hafa lagt fram þann björgunarhring sem borgið getur þjóðinni frá þessu illa ráðabruggi um að veikja fullveldi lands okkar og þjóðar. Það mun rísa reiðialda í þjóðfélaginu, ef í ljós kemur, að varnaðarorð Reykjavíkurbréfs voru öll á rökum reist. Ekki síður en í Icesave-málinu mun þá þjóðarviljinn fá miklu áorkað og engu hlífa, sem undan verður að láta. Stjórnarslit gætu þá orðið fyrir fullveldisdaginn 1. desember!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Blásið til hátíðarfundar á Þingvöllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.7.2018 | 17:00
Boris Johnson segir af sér
Það eru mikil tíðindi að Boris Johnson hefur sagt af sér sem utanríkisráðherra Bretlands, daginn eftir að Brexit-ráðherrann gerði það sama. Theresa May er í miklum vanda stödd og glímir við þann vanda í mikilvægri þingræðu í dag. Hafa samflokksmenn hennar ýmist viljað ganga harðar fram í Brexit-málinu eða hægar, og er frú May með þeim linari í málinu, en Johnson með þeim harðari. Upplausn kann að blasa við, en forsætisráðherrann hefur þó þingslitavaldið á hendi sinni og að boða til nýrra kosninga; en staða hennar er veik og erfitt að sjá fram á, að hún geti styrkt hana með nýjum utanríkisráðherra.
Hér er nýjasta frétt The Times af málinu: May vows to fight on amid cabinet crisis -- Johnson and Davis quit over PMs soft Brexit plan ...
JVJ.
Sbr. og: http://www.ruv.is/frett/boris-johnson-segir-af-ser
![]() |
Boris Johnson segir af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2018 | 08:25
Verður ESB-fáninn nú dreginn að húni við Ráðhús Reykjavíkur?
Nú þegar Viðreisn er komin í samstarf við Samfylkinguna og Pírata-vinstrið í Reykjavík, þá má gera ráð fyrir að ESB-flokkurinn geri kröfur um að ESB-fáninn verði notaður sem mest í stað þess íslenska.
Fólk man eflaust að Viðreisn flaggaði ekki íslenska fánanum á síðasta landsfundi sínum, þess í stað flögguðu þau ESB-fánanum. Spurning hvort borgin sæki um aðild að ESB eða reyni aftur að setja viðskiptabann á Ísrael.
Gunnlaugur Ingvarsson
![]() |
Væta og sólarglennur þjóðhátíðardaginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |