21.9.2018 | 16:23
"Evrópusambandið verður að sýna Bretlandi virðingu
Ég ætla hvorki að umbylta niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar né að láta landið mitt liðast í sundur, sagði May í yfirlýsingunni. Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá. Í Brexit-viðræðum hafi hún alltaf sýnt ESB virðingu og búist við því sama. Eigi niðurstaðan að verða sú að samband Bretlands og ESB verði gott að lokinni útgöngu, verði að ríkja gagnkvæm virðing.
Forsætisráðherrann gagnrýndi leiðtogana fyrir að útskýra ekki betur á hverju neitun þeirra byggði, svo að hægt verði að ræða málin. Án útskýringa verði ekki hægt að ná árangri í viðræðunum. Enn er langt í land í Brexit-viðræðum, að mati May. Bretum hafi verið boðið að vera hluti af Evrópska efnahagssvæðinu og tollabandalagi eða að gera fríverslunarsamning en að það séu ekki ásættanlegir kostir fyrir Breta. Með því að ganga að fyrri kostinum myndu bresk stjórnvöld gera lítið úr þjóðaratkvæðagreiðslu um Brexit. Síðari kosturinn myndi þýða að Norður-Írland yrði endanlega aðskilið frá Bretlandi. Slíkt myndi ekki nokkur breskur forsætisráðherra samþykkja. Ef ESB heldur að ég geri það, þá skjátlast þeim hrapallega. Að mati May eru báðir kostirnir slæmir. Betra sé að gera engan samning en slæman."
Allur er þessi pistill tekinn herskildi af þjóðareigninni Rúv-vefnum síðdegis í dag. -jvj.
Segir tillögur Breta ekki ganga upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkar: Bretland (UK), Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:06 | Facebook
Athugasemdir
SKIL EKKI HVERNIG HEIMSVELDI EINS OG BRETLAND KOM SER Í ÞESSA AÐSTÖÐU-AÐ LÁTA HUGSJÓN HITLERS UM SAMEININGU EVRÓPU/NASISTA FÁ AÐSTÖÐU TIL AÐ RÁÐSKAST MEÐ EFNAHAGSLEGT SJÁLFSTÆÐI SITT ! NÆ ÞVI EKKI ----
Erla Magna Alexandersdóttir, 21.9.2018 kl. 18:55
Var rétt í þessu að líkja þessari erfiðu útgöngu lýðræðisríkis úr yfirþjóðlegu sambandi,við skilnað sambýlisfólks og hjóna.-)
í grunninn já; en þarna sjáum við svart á hvítu hvað "óvitar" áhangenda Samfó létu blekkjast í ástríðunni um inngöngu í ESB, hafandi eftir að það mætti alltaf fara út ef okkur hugnaðist ekki sambúðin.
Helga Kristjánsdóttir, 23.9.2018 kl. 02:49
Maí er ekki áreiðanlegt. Hún vildi eins og að vera í ESB en hún hefur fengið fyrirmæli um að fjarlægja Bretland frá ESB. Þessi áætlun hefur verið hafnað af flestum í Tory flokkurinn og einnig ESB. Eina aðra áætlunin er að fara án samnings. Ég og 17,4 milljónir aðrir vilja fá "engin samningur" lausn.
Nú hún er að reyna fá EU till að hugsa aðeins og skoða Chequers samning mjög vel. Tíminn er að renna út fyrir May.
Merry, 23.9.2018 kl. 11:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.