Færsluflokkur: Evrópumál
4.10.2019 | 03:24
Skýrslan um EES-samninginn og áhrif hans virðist í mörgu tilliti fljótfærnislega unnin og með áberandi hlutdrægum hætti.
Dr. Ólafur Ísleifsson bað á Alþingi um skýrslu um reynsluna af kostum og göllum af EES-aðild Íslands, en er réttilega síður en svo ánægður með niðurstöðuna sem birtist í "gagnrýnislausu varnarriti fyrir samstarfið í prédikunarstíl," eins og hann kemst að orði, og skyldi engan undra, en þarna ræddi Ólafur um nýbirta skýrslu 3ja manna starfshóps undir forystu Björns Bjarnasonar -- þess fyrrv. ráðherra sem lesendur blog.is þekkja einmitt að nær stanzlausum greinaskrifum þar sem einhliða hefur verið borið lof á EES-samninginn og hvað hann á að hafa gefið af sér fyrir Íslendinga.
Meðal helztu áherzlupunkta og markverðra ábendinga dr. Ólafs um takmarkað og í raun hæpið gildi þessarar þriggja manna skýrslu má nefna:
- "Þrátt fyrir ósk Alþingis [með samþykkt þeirrar beiðni sem dr. Ólafur bar fram 2018] um úttekt á kostum og göllum aðildarinnar að EES-samningnum hafi hópurinn ákveðið að sinna ekki því verkefni, heldur þess í stað leggja áherslu á réttindi, skyldur og ávinning af aðildinni. Þessi orð og fleira veki upp þá spurningu hvort skýrslubeiðni Alþingis hafi í raun verið fullnægt með þessari skýrslu."
- "Það veki einnig athygli að ekki skuli hafa verið lagt fyrir starfshópinn í erindisbréfi hans frá utanríkisráðuneytinu að fjalla um kosti og galla EES-aðildarinnar, heldur hafi honum aðeins verið falið að fjalla um ávinning Íslands af aðildinni og síðan helstu úrlausnarefni sem stjórnvöld hafi tekist á við vegna hennar."
- Ég sakna þannig mun gagnrýnni umræðu um aðild Íslands að EES-samningnum í þessari skýrslu, segir Ólafur (allt skv. viðtali við hann á Mbl.is, í samantekt Hjartar J. Guðmundssonar, blaðamanns og sagnfræðings, sem sérlærður er í ESB-fræðum).
- "Þetta sjáist til að mynda í umfjöllun skýrslunnar um þriðja orkupakka Evrópusambandsins og innflutning á fersku kjöti. Þau mál séu á meðal þeirra stærstu sem upp hafa komið í sögu samningsins og kalli á ítarlega greiningu frekar en ódýra afgreiðslu" samkvæmt dr. Ólafi.
- "Þannig hafi til dæmis afstaða stjórnvalda gagnvart þriðja orkupakkanum verið reifuð ítarlega en lítið sem ekkert fjallað um röksemdir þeirra sem gagnrýnt hefðu samþykkt hans." -- Undirritaður hefur einnig náð tali af dr. Ólafi um þetta skýrslumál og vill sérstaklega taka undir þá ábendingu hans, að Björn Bjarnason virðist hafa neytt færis í skýrslunni að halda áfram sínum neikvæða málflutningi um alla gagnrýni á Þriðja orkupakkamálið á þingi, en áberandi er, að í skýrslunni virða Björn og félagar ekki viðlits hin margháttuðu rök þingmanna, einkum Miðflokksins, gegn því máli, heldur láta þau það eitt nægja að brennimerkja þá gagnrýni með því að kalla hana alla "málþóf". En aldrei hefur þá undirritaður séð né heyrt málefnalegra eða betur og ýtarlegar rökstutt "málþóf" á Alþingi!
- "Hliðstæða sögu væri að segja um umræðuna um ferska kjötið þar sem mjög skorti á hlutlæga umfjöllun og greiningu í skýrslunni. Ólafur segir skautað fram hjá gagnrýni fræðimanna í þessum efnum á undanförnum misserum sem gefi ærið tilefni til umfjöllunar í skýrslu af þessu tagi."
- Tökum einnig eftir þessu: "Þá væri athyglisvert að hlaupið væri einnig nokkuð hratt yfir hagsmuni Íslands af utanríkisviðskiptum, sem verið hafi forsendan fyrir aðildinni að EES-samningnum á sínum tíma, en þess í stað gerðir að því skórnir, að aðrir þættir skiptu jafnvel mun meira máli en beinir viðskiptahagsmunir eins og til dæmis frjáls för fólks og reikireglur um símanotkun." -- Undirritaður mun nánar í nýrri grein fjalla sérstaklega um það, hve fátæklegar og villandi upplýsingar skýrslunnar eru um útflutning okkar Íslendinga til ýmissa landa heims.
- Og þetta er ekki ómarkvert í málflutningi Ólafs um skýrsluna: "Svo virtist sem reynt væri þannig að tína sem flest til í því skyni að fegra EES-samninginn, sem auðvitað væri um margt ágætur, á meðan ýmis gagnrýni fræðimanna og á stjórnmálavettvangi væri sveipuð þagnarhjúpi. Þetta ætti til dæmis við um það þegar skýrt ákvæði samningsins um neitunarvald væri sagt haldlaust ef á reyndi, jafnvel þótt mikilvægir þjóðarhagsmunir lægju að baki." -- JVJ: Þarna er ekki sízt verið að víkja að sjónarmiðum Margrétar Einarsdóttur, dósents við Háskólans í Reykjavík, sem skýrsluhöfundar virðast gera að sínum, þótt þau sjónarmið séu í raun andstæð anda EES-samningsins, sem fastnjörvar það ekki, að við verðum skilyrðislaust að taka við hverri tilskipun sem Evrópusambandið réttir að okkur.
- "Veikleikar sem fram hefðu komið varðandi tveggja stoða kerfi EES-samningsins fengju sömuleiðis ekki þá umfjöllun sem vert væri að mati Ólafs."
- Ég tek síðan eftir því að í skýrslunni er tilfinnanlega lítið um tilvísanir í heimildir, segir Ólafur enn fremur. (JVJ: Já, þar blasir við æpandi vöntun á neðanmáls- eða aftanmálgreinum, makalaust, að engar slíkar eru hafðar í ritinu, ekki mjög fræðimannlega unnið né skv. venjulegum eksaktvidenskab. Þetta sá glöggur dr. Ólafur Ísleifsson vitaskuld, en undirrituðum býður í grun, að þarna hafi verið reynt komast upp með ónákvæmni og fljótlegt klappsnið á þessu með því að hengja sig ekki í mikla nákvæmni.)
- Enn fremur sé ekki eiginleg heimildaskrá vegna efnis skýrslunnar, segir Ólafur, heldur aðeins sjálfstæð skrá yfir heimildir sem almennt tengdist aðild Íslands að EES-samningnum í samræmi við ósk utanríkisráðuneytisins í erindisbréfi starfshópsins um að slíkt yfirlit yrði tekið saman. Mikilvægar heimildir vanti, þar á meðal rit Stefáns Más Stefánssonar, prófessors í lögfræði, um landbúnaðarlöggjöf Evrópusambandsins og EES og efnismikla tímaritsgrein Stefáns Más og Margrétar Einarsdóttur frá 2018 um valdmörk og valdheimildir stofnana sambandsins og EES. (JVJ: Að ganga fram hjá hinu viðamikla og vandaða riti próf Stefáns Más um landbúnaðarmálin má heita makalaus vöntun í skýrslunni.)
- Fyrir vikið er erfitt að sannreyna margt af því sem fram kemur í skýrslunni með því að kanna hvaða heimildir séu fyrir því og í mörgum tilfellum alls ekki, segir Ólafur sem áður starfaði meðal annars sem lektor við Háskólann í Reykjavík.
- "Sama eigi við um lista yfir viðmælendur starfshópsins. Ekki komi fram í skýrslunni hvað sé haft eftir einstökum viðmælendum." (Sama viðtalsgrein Hjartar og dr. Ólafs.)
- Sem dæmi um áróðurskeim í skýrslunni að mati Ólafs nefnir hann fullyrðingu um að án EES-samningsins yrði hætta á einangrun, stöðnun og afturför í þjóðlífinu öllu. (Leturbr. JVJ). Hvað er þetta? spyr hann og bætir við að þarna hefði til að mynda verið þörf á að byggja á skýrum heimildum sem þætti sjálfsagt á öllum skólastigum þegar svo sverar fullyrðingar væru hafðar uppi. --- Já (hér tekur undirritaður við þræðinum, þar sem Ólafur sleppti honum), þessi órökstuddi söngur skýrsluhöfundanna minnir á úrtölutal hagfræði-prófessoranna Gylfa Magnússonar og Þórólfs Matthíassonar, að Ísland yrði "Kúba norðursins" eða myndi einangast eins og Norður-Kórea, ef við borguðum ekki Icesave að kröfu brezkra og hollenzkra stjórnvalda! Einn virðulegur háskólakennari, nú í hæstu stöðu, bætti svo um betur í þeim kór og sagði opinberlega, að við myndum einangrast eins og Myanmar, þ.e. Búrma undir sinni herforingjastjórn, ef við borguðum ekki! Það er ekki úr vegi að minna hr. Björn Bjarnason á, að hann er ekkert óskeikulli en sá fræðimaður um þessi þjóðhags- og hagrænu mál.
Það er óhætt að fullyrða hér í lokin, að dr. Ólafur Ísleifsson á miklar þakkir skildar fyrir sína vel rökstuddu og tímabæru gagnrýni á þessa óvenju-einhliða skýrslu frá þeim starfshópi sem Guðlaugur Þór Þórðarson skipaði einn saman -- en sá ráðherra var þá þegar sjálfur orðinn mjög hallur undir Evrópusambandið og flest eða allt sem frá því kemur (eins og einna ljósast varð í framlagningu og afgreiðslu orkupakkamálsins).
Því miður hefur undirrituðum sýnzt (og á eftir að leiða fleiri rök að því), að starfshópurinn hafi verið hlutdrægur og því lítt marktækur þegar á hann reyndi.
Jón Valur Jensson.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 05:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.10.2019 | 12:53
Skýrsla 3ja manna nefndar utanríkisráðherra um meinta kosti og galla EES-samningsins birt
Skýrsla starfshóps utanríkisráðherra um EES-samninginn var birt á vef Alþingis í morgun. Hún var gerð að beiðni Alþingis, að tillögu þingmanna Miðflokksins, með það að markmiði að greina kosti og galla EES-samningsins og áhrif hans á íslenskt samfélag síðasta aldarfjórðunginn. Starfshópinn skipuðu þau Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra og menntamálaráðherra, og lögfræðingarnir Kristrún Heimisdóttir og Bergþóra Halldórsdóttir.
Í skýrslunni er því lýst að íslenskt samfélag hafi tekið stakkaskiptum við aðildina að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Jafnframt hafi nær allir viðmælendur sagt EES-samninginn lifa góðu lífi og vera til gagns og ávinnings. Einu undantekningarnar hafi verið samtökin Frjálst land á Íslandi og Nei til EU í Noregi.
Fimmtán úrbætur
Starfshópurinn tiltekur fimmtán atriði um úrbætur. Hæst ber ágreining um það hvort stjórnarskrá Íslands heimili fulla aðild að EES-samningnum. Binda verði enda á þrætur um slíkt, annað hvort með því að viðurkenna að EES hafi áunnið sér stjórnlagasess eða með því að setja í stjórnarskrá sérstakt ákvæði um aðild Íslands að samningnum. Við núverandi aðstæður sé staða Íslands gagnvart Noregi og Liechtenstein, sem eiga aðild að samningnum við Evrópusambandið, veikari en annars væri.
Þá verði að viðurkenna í verki að samningurinn móti allt þjóðlífið en ekki megi skilgreina hann sem erlenda ásælni. Raunar verði að viðurkenna að stór hluti EES-samstarfsins sé alfarið innanríkismál. Starfshópurinn tekur fram að ekkert sambærilegt tækifæri gefist til jafn viðamikils samstarfs við Evrópusambandið og með EES-samningnum. Enginn tvíhliðasamningur komi í hans stað."
(JVJ kom þessu hér á framfæri með viðaukaorðum í byrjun.)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.9.2019 | 01:34
Sjálfstæðisflokkurinn á erfitt uppdráttar með ótryggan Bjarna sem formann, hallan fyrr og síðar undir evrópska stórveldið
Fylgishrun flokksins hefur blasað við og nokkuð ljóst að það tengist formanninum, sem tvívegis gekk þvert gegn stefnu landsfunda, fyrst í Icesave-máli, svo orkupakkans. Skoði menn áhuga BB á ESB-aðild 2008, rennur kannski upp ljós fyrir mörgum, að í raun slái hjarta hans með Brussel-elítunni og útópíum hennar fremur en kappsamri þjóð þessa harðbýla lands.
Í Vísisgreininni Bjarni og Illugi vilja aðildarviðræður við ESB kemur þessi mikli áhugi hans og samherjans Illuga Gunnarssonar næsta skýrt í ljós. 13. desember 2008 lýstu þeir í Fréttablaðinu yfir þeim vilja sínum "að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið [!!!] og að innganga í sambandið [!!!] verði borin undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu."
Þetta er alls ekki stefna Sjálfstæðisflokksins og hefur aldrei verið! En Bjarna hefur tekizt að koma sér þar svo þægilega fyrir, að hann hefur þar greinilega öll tögl og hagldir og getur brotið niður mótstöðu með því augljóslega að kúga samflokksmenn sína á þingi til að beygja sig jafnan fyrir stefnu hans, hver sem hún er.
Sem betur fer tókst, með miklu grasrótarstarfi meðal almennings og með órofa samstöðu þáverandi forseta Íslands, að hrinda Icesave-atlögu vinstri stjórnar Jóhönnu og bandamanna hennar í leiðitömum fylgishópi Bjarna Ben. í Sjálfstæðisflokknum 2009-2011. En þegar komið var fram á árið 2019 var fylgispektin við Bjarna í þingflokknum orðin nær alger í orkupakkamálinu, og hafa margir flokksmenn greinlega kosið fremur að styðja Miðflokkinn.
En undir kraumar bullandi óánægja. Það eru aðeins örfáir dagar síðan Jón Gunnarsson alþm. undirstrikaði óánægju sína svo skýrt, að hann kvaðst jafnvel reiðubúinn að hætta að verja ríkisstjórnina vegna einhliða ofverndunar hins umboðslausa umhverfisráðherra á stórum hlutum landsins. En vitað er einnig, að Jón hefur verið meðal fleiri óánægðra þingmanna með áberandi forræðishyggju Bjarna Ben. í málefnum flokks og ríkisstjórnar.
Jón Valur Jensson.
Segir fylgi Sjálfstæðisflokksins óásættanlegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 02:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.9.2019 | 01:48
Áberandi meirihluti Breta vill að Brexit-ákvörðunin verði virt -- RÚV ekki með á nótunum?
Í skoðanakönnun 6.-8. sept. kom fram að 54% eru hlynnt því að Brexit-niðurstaða þjóðaratkvæðisins sumarið 2016 sé virt, 25% voru því ósammála, en 21% tóku ekki afstöðu. Hér sést (í könnun fyrirtækisins ComRes fyrir breska dagblaðið Daily Telegraph) að drjúgur helmingur Breta telur með Boris Johnson, "að virða eigi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fór í Bretlandi, þar sem meirihluti kjósenda samþykkti að landið skyldi ganga úr Evrópusambandinu" (Mbl.is).
Þegar aðeins eru taldir þeir, sem afstöðu tóku, voru 68,3% sammála því að virða Brexit-niðurstöðuna, en 31,7% ósammála.
Af þeim sem kusu með áframhaldandi veru í Evrópusambandinu 2016 vilja 35% nú að Bretland gangi úr sambandinu. Tæpur helmingur, eða 49%, er andvígur því að útgöngunni verði frestað frekar en 29% eru hlynnt því. Þá vilja 43% að Bretar gangi úr Evrópusambandinu án samnings ef sambandið gefi ekki eftir en 32% eru því andvíg.
Hátt í helmingur Breta, eða 44%, vill frekar yfirgefa Evrópusambandið án samnings en að Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, verði næsti forsætisráðherra Bretlands, en þriðjungur er á öndverðum meiði. Helmingur aðspurðra sagðist telja það ólýðræðislegt af hálfu þeirra þingmanna sem væru að reyna að koma í veg fyrir að Bretland gengi úr sambandinu í ljósi loforðs þingsins um að framkvæma niðurstöðu þjóðaratkvæðisins. Rúmur fjórðungur, eða 26%, sagðist því ósammála. (Mbl.is)
Þessi býsna eindregnu viðhorf brezks almennings virðast lítt fá að njóta sín í almennum fréttaburði Ríkisútvarpsins af Brexitmálum. Ítrekað er því einnig slegið upp að varpað sé skugga á Johnson og vaktar efasemdir um heilindi hans. Iðulega er neikvæður tónninn í fréttaritara Rúv í Lundúnum, Sigrúnu Davíðsdóttur, sem virðist hallari undir álit Brussel-manna en brezkra stjórnvalda. Væri fróðlegt að fá upplýst, hve margar boðsferðir hún hefur þegið til Brussel.
Jón Valur Jensson.
Vilja að þjóðaratkvæðið verði virt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 02:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.9.2019 | 00:21
Orkupakka-gróðaáform undirbúin með margra ára fyrirvara! Helmingaskiptaflokkar sækja á!
Svo snemma sem 2016 var Bjarni Ben. ásamt frændum sínum Ben. Ein. og föður hans Einari Sveinssyni (föðurbr. BB) að styðja hvern til forsetaframboðs? Davíð Oddsson? Ekki aldeilis, heldur Guðna Th.! --- og voru þar í hópi annarra sem studdu Guðna, þ.á m. orkufyrirtækja!!* Hafa þeir þá skipulagt þennan orkupakka sjálfum sér í hag með svona löngum fyrirvara -- og útvalið Guðna sem þægan bandamann og dælt í hann styrkjum?!
Helmingaskiptaflokkar sækja fram
Listinn frá Ríkisendurskoðun er stórmerkilegur, og þar vaða uppi helztu menn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, en "Viðreisn" kemur einnig við sögu. Kannski engin furða að grunsamlega þögull og leiðitamur var Framsóknarflokkurinn með orkupakkamálinu í vor og sumar. Svo virðist sem gamla Halldórs Ásgrímssonar- og Finns Ingólfssonar-liðið hafi náð undirtökunum í því, sem eftir er af flokknum, ásamt Valgerði Sverrisdóttur (öll fyrrv. ráðherrar) og að með þeim sé líklega Ólafur Ólafsson úr Samskipum (einu stórfyrirtækjanna, sem ágengum, vopndjörfum mönnum tókst að losa út úr SÍS-samsteypunni og ná valdi yfir).
Ekki er Finnur Ingólfsson nefndur á nafn meðal þeirra sem studdu kosningasjóð Guðna Th. 2016, en Finnur er sagður standa fjárhagslega á bak við Ásmund Einar Daðason, ráðherra Framsóknarflokks í núverandi ríkisstjórn, og hans ótrúlega stórtæku áform um vindorkuver á jörðum í Dalasýslu. Svo fjárfrek eru þau áform (nú þegar í forvinnslu, m.a. hjá Vegagerð ríkisins, og ljósleiðari þegar kominn á framkvæmdasvæðið), að þau myndu aldrei borga sig að óbreyttu raforkuverði frá því sem nú er, en með sæstreng gæti verðið tvöfaldazt til þrefaldazt og gífurleg gróðavon í því fyrir nýjar virkjanir sem gamlar (þær sem gírugir munu einnig sækja í að ná undan Landsvirkjun eftir að hafa hlutað hana sundur). Meðal slíkra nýrra virkjana væru þá einnig vindorkuver.
Þvílík er áætlun Ásmundar Einars og félaga, að þeir hyggjast reisa á jörðum hans á Sólheimum í Laxárdal 27 vindmyllur með 68 metra löngum spöðum og með framleiðslugetu upp á 115MW, rúmlega á við tvær Hvalárvirkjanir. "Steypumagnið sem flytja þarf upp á Laxárdalsheiðina mun getað slagað hátt í 200.000 tonn" (Gunnar Heiðarsson, aðal-heimildarmaður minn um þetta). Tvær aðrar vindorkuvirkjanir eru svo fyrirhugaðar vestanlands, við Garpsdal og á Hróðnýjarstöðum við Búðardal, samtals þessar þrjár með afköst allt að 375MW (á borð við Búrfellsvirkjun).
Með þessu og öðrum slíkum í kjölfarið (t.d. á hinni víðfeðmu Grímsstaðajörð olíufurstans Jims Ratcliff) væri því boðið heim að gerbreyta ásýnd íslenzkrar náttúru og jafnvel sjálfum barnamálaráðherranum gefið tækifæri til að höggva skarð í arnastofninn eða útrýma honum með vindmyllum sem ná upp í 175 metra hæð!
Á þessu myndbandi --- deildu af Facebók frábærs greinahöfundar og verkfræðings, Sigurðar Oddssonar -- má sjá hvernig vindmyllur berja niður stærðar erni eins og ekkert sé.
Sjálfstæðisflokks-stuðningsmannagengið við Guðna Th. 2016 er úr sjálfum kjarna flokksins. Þar eru þessir áberandi:
Einar Sveinsson.................................................... 300.000 (föðurbróðir Bjarna Ben.)
Borgun hf (fyrirtæki sem náðist billega út úr Landsbankanum)................................................... 200.000 (Bjarni sjálfur Benediksson, Benedikt Einarsson og Einar Sveinsson áðurnefndur; Benedikt er sonur hans)
Arctic Green Energy Geothermal ehf......................... 400.000 (Haukur Harðarson og Illugi Gunnarsson, fyrrv. ráðherra; sá síðarnefndi var líklega helzti bandamaður Bjarna Ben. við Austurvöll, og saman áttu þeir fræga eða öllu heldur alræmda grein í Morgunblaðinu þar sem augljóslega var verið að agitera fyrir ESB-innlimum Íslands).
Becromal Ísland ehf................................................... 50.000 (Eyþór Arnalds, oddviti XD)
KOM ehf, kynning og markaður................................. 400.000 (Friðjón R Friðjónsson; hann er fyrrverandi aðstoðarmaður Bjarna Ben. og átti sæti í kosningastjórn Guðna Th. vegna forsetaframboðsins og vinnur nú sem erindreki fyrir Atlantic Superconnection, sem er með áform um að leggja raforku-sæstreng milli Íslands og Skotlands! -- já, einmitt slíkur studdi framboð Guðna Th. 2016!)
Ursus ehf................................................................ 400.000 (félag Heiðars Guðjónssonar, sæstrengs- og vindmyllumanns, fjárfestis sem stefnir einarður að sæstreng, en hann er tengdasonur Björns Bjarnasonar, fyrrv. dómsmálaráðherra, hins óþreytandi orkupakka-málsvara á Moggabloggi!); já, einnig þeim tengdafeðgum mun hafa litizt vel á að fá Guðna Th. í lið með sér 2016!
Og ekki er allt komið enn úr röðum "sjálfstæðismanna":
Bláa Lónið ehf........................................................ 200.000 (Guðlaugur Þór Þórðarsson og Helgi Magnússon)
En hver er Helgi? Þessi sami sem á hér líka prívat og persónulega þetta framlag í kosningasjóð Guðna Th. 2016:
Helgi Magnússon................................................... 400.000 (50% eigandi Fréttablaðsins, einn af stofnendum Viðreisnar). Já, um þetta -- að styðja Guðna Th. til forsetakjörs -- sameinaðist Valhallargengið og einn máttarstólpi ESB-flokksins Viðreisnar!
En eru framlög Framsóknarflokks-fylgjenda rýrari? Um það skal ekki fullyrt hér, það þarf að skoða betur allan listann í skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjármögnun kosningaskrifstofa framboðanna 2016. En þessa má þó tiltaka:
Askja hf................................................................ 100.000 (Ólafur Ólafsson)
Samskip hf............................................................. 400.000 (Ólafur Ólafsson, aftur sá eini sanni)
Vogabakki ehf........................................................ 400.000 (Ólafur Ólafsson, enn sá eini sanni, drjúg framlögin frá honum)
Svo er hér e.k. rúsína í pylsuendanum:
Wow air ehf........................................................... 400.000 (Skúli Mogensen)
Hvað var hann að gera hér? Vildi hann fá Guðna í lið mér sér að auglýsa Wow air? Einhver myndi kannski leyfa sér all-djarfa, en ósannaða samsæristilgátu: Að Engeyjar-gengið (sem svo mjög hamaðist við að styðja Guðna) hafi mögulega bent Skúla á, að ef hann yrði nú meðfærilegur og sletti góðri summu í framboð eins óskakandídats á Bessastaði, þá fengi hann kannski hagstæða meðferð síns fjármálaævintýris?
* Sjá hér (úr skýrslu Ríkisendurskoðunar um styrki til forsetaframbjóðenda 2016): https://fullveldi.blog.is/blog/fullveldi/entry/2238792/ --- já, takið eftir, að ítrekað koma Engeyingar þar við sögu!
Jón Valur Jensson.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.9.2019 | 12:29
Röddum sem krefjast úrsagnar úr EES fjölgar
Umræðan um orkupakka ESB og ískyggileg niðurstaðan (ráðamenn jafnvel að spá í þann 4.) hefur aukið efasemdir um EES-samninginn.
Skoðanakönnun á vef Útvarps Sögu virðist benda í þessa átt. Þar var spurt í gær og til hádegis í dag: "Á Ísland að ganga úr EES?"
Svörin voru mjög eindregin:
79,69% Já
18,32% Nei
1,99% Hlutlaus
Andinn meðal hlustenda stöðvarinnnar hefur mjög verið gegn 3.orkupakkanum, yfir 90% í nýlegri könnun.*
En að mati undirritaðs, sem hann er ekki einn um, hefur fátt á seinni árum aukið jafnmikið tortryggni gagnvart EES-samningnum eins og orkupakkamálið allt á þessu ári. Ekki hefur verið sýnt fram á neina gagnsemi innihalds þessa pakka fremur en þess fyrsta og annars fyrir okkur Íslendinga. Einþykkni aðstandenda þriðja pakkans og viljaleysið til að fresta málinu um nokkrar vikur, sem og fréttir um undirbúning sæstrengsmála og afar kostnaðarsamra vindmyllugarða, sem munu ekki borga sig nema til komi sala rafmagns úr landi, allt eykur þetta tortryggni varfærinna manna, sem eins og heiðursmaðurinn Ásmundur Friðriksson alþm. vilja ekki taka neina áhættu með fullveldi Íslands og fulla stjórn okkar á náttúruauðlindum okkar fagra lands.
En orkupakkamenn geta eignað sér drjúgan hlut í ástæðum þess, að menn skoða nú uppsögn EES-samningsins með vaxandi áhuga! Þau mál má einnig skoða í samhengi við aðra þróun heimsviðskipta, sem átt hefur sér stað og nánar verður fjallað um hér í nýrri grein.
* Sbr. HÉR
Jón Valur Jensson.
Evrópumál | Breytt 4.9.2019 kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.8.2019 | 19:13
Samþykkt þriðja orkupakkans felur í sér opið framtíðar-samþykki við raforku-sæstreng (með viðauka)
En talsmenn stjórnarflokkanna keppast hver um annan þveran um að afneita þessari staðreynd, og ESB-hneigðir vinstri flokkar taka undir sama skræka söng hinna fáfróðu.
Staðreyndin liggur fyrir í orkupakkanum sjálfum, markmiðslýsingu hans í inngangsorðunum, sem og í ákvæðum þar um, að ekki megi hindra raforkuflutning yfir landamæri. Vitaskuld er þar átt við raflínur milli landa, og þegar um þau lönd er að ræða, sem aðskilin eru með hafi, þá eru þær raflínur (eins og nú þegar er að finna hjá nágrannaþjóðum okkar) í formi sæstrengs.
Þetta má og þarf að rökstyðja miklu ýtarlegar, og það verður líka gert með viðauka við þennan pistil.
PS. Óvænt er nú umræðu lokið um málið, "fleiri eru ekki á mælendaskrá," var þingforseti (WÞÞ) að tilkynna og boðaði atkvæðagreiðslu um málið nk. mánudag, um leið og hann sleit þingfundi rétt í þessu, kl. 19.35.
V I Ð A U K I
Skúli Magnússon, héraðsdómari við Héraðsdóm Rvíkur og fyrrv. skrifstofustjóri EFTA-dómstólsins, hafnar rökum um að lagning sæstrengs tengist þriðja orkupakkanum.
Blessaður lögfræðingurinn gengur þarna fram hjá því, að strax í upphafi 1. gr. reglugerðar EVRÓPUÞINGSINS OG RÁÐSINS (EB) nr. 714/2009 segir svo [feitletranir JVJ]:
"Efni og gildissvið
Markmiðið með þessari reglugerð er að:
a) setja sanngjarnar reglur um raforkuviðskipti yfir landamæri
og auka þannig samkeppni á innri markaðinum með raforku
að teknu tilliti til sérkenna landsbundinna markaða og
svæðismarkaða. Þetta felur í sér að komið verði á
fyrirkomulagi vegna jöfnunargreiðslna fyrir raforkuflæði
yfir landamæri og að settar verði samræmdar meginreglur
um gjöld vegna flutnings yfir landamæri og úthlutun
tiltækrar flutningsgetu samtengilína milli landsbundinna
flutningskerfa, ..."
----Við sjáum vitaskuld fyrir okkur, að hafa megi raforkuviðskipti yfir landamæri t.d. Belgíu og Frakklands. Það verður ekki gert með því að flytja risa-rafgeyma í löngum flutningalestum yfir landamærin. Það þarf ekki að nefna það, að vitaskuld er þetta gert með RAFLÍNUM. En ef Ísland á að verða undirsett þessari reglugerð, þá verður rafmagn vitaskuld ekki flutt héðan með öðru móti en með þess háttar raflínum, sem eru í formi SÆSTRENGS. Lögfræðingur, sem þykist ekki skilja eða viðurkenna þetta, er eins og blindur á sinn lagalega texta.
----Og ekki er þetta aðeins (orðrétt) "markmiðið með þessari reglugerð", heldur fylgja henni líka ákvæði 19.gr. um að "eftirlitsyfirvöld skulu vinna saman og með framkvæmdastjórninni og stofnuninni til að uppfylla markmið þessarar reglugerðar, eftir því sem við á, í samræmi við IX. kafla tilskipunar 2009/72/EB," og í 21. gr.: "Með fyrirvara um 2. mgr. skulu aðildarríkin setja reglur um viðurlög við brotum gegn ákvæðum þessarar reglugerðar og gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að þeim ákvæðum sé beitt...."
----Ennfremur í almennum ákvæðum í I. viðauka við reglugerðina: "Flutningskerfisstjórar skulu leitast við að samþykkja öll viðskipti, þ.m.t. þau sem tengjast viðskiptum yfir landamæri."
----Ennfremur í 4.gr. reglugerðarinnar: "Allir flutningskerfisstjórar skulu starfa saman á vettvangi Bandalagsins í Evrópuneti raforkuflutningskerfisstjóra til að stuðla að tilkomu og starfsemi innri markaðarins á sviði raforku og viðskiptum yfir landamæri og til að tryggja bestu stjórn, samhæfðan rekstur og trausta tæknilega þróun evrópska raforkuflutningsnetsins."
----Kýs Skúli Magnússon að vera blindur á þessar staðreyndir í þeim afleita þingsályktunarpakka, sem nú er reynt að narra alþingismenn til að samþykkja? AUGLJÓSLEGA eru þarna ákvæði sem mæla fyrir um raforkuviðskipti yfir landamæri, með RAFLÍNUM, sem í tilfelli eylandsins Íslands hlýtur að vera í formi SÆSTRENGS eða SÆSTRENGJA. Allar fullyrðingar um, að þriðji orkupakkinn feli EKKI í sér sæstrengi, eru því RAKIN LYGI, sem enginn lögfræðingur á að leggja nafn sitt við, hversu mikið sem honum kann að vera boðið í vel smurða þókknun fyrir sérálit sem gangi í þessa átt!
Í reglugerð Evrópusambandsins nr. 702/2009 frá 13. júlí 2009, um að koma á fót Samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði, segir svo í 1. og 5. lið:
1) Í orðsendingu framkvæmdastjórnarinnar frá 10. janúar 2007 sem ber yfirskriftina Stefna í orkumálum fyrir Evrópu" er lögð áhersla á mikilvægi tilkomu innri markaðarins á sviði raforku og jarðgass. Það að bæta regluramma á vettvangi Bandalagsins var auðkennt sem lykilráðstöfun til að ná því markmiði. [...]
5) Aðildarríkin skulu vinna náið saman og fjarlægja hindranir í vegi viðskipta með raforku og jarðgas yfir landamæri í því skyni að ná fram markmiðum Bandalagsins á sviði orku. Mat á áhrifum tilfanga, sem miðlæg stofnun þarf, leiddi í ljós að óháð, miðlæg stofnun hafði til langs tíma litið fjölmarga kosti umfram aðra valkosti. Stofna skal Samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði (stofnunin) til að bæta gloppur í löggjöfinni á vettvangi Bandalagsins og stuðla að skilvirkri starfsemi innri markaða fyrir raforku og jarðgas. Stofnunin skal einnig gera landsbundnum eftirlitsyfirvöldum kleift að auka samvinnu sína á vettvangi Bandalagsins og taka gagnkvæman þátt í Bandalagstengdri starfsemi.
Hér ber allt að sama brunni og ljóst, að með orkupakkanum er verið að gera öllum aðilum hans skylt fylgja eftir því aðal-markmiði að fjarlægja hindranir í vegi viðskipta með raforku yfir landamæri í því skyni að ná fram markmiðum Bandalagsins á sviði orku.
Í tilfelli Íslands merkir þetta ekki í sjálfu sér skyldu ríkisvaldsins að kosta og leggja héðan sæstreng, heldur einfaldlega, að engum leyfist að hindra viðskipti með raforku um slíkan sæstreng. Íslenzka ríkið mundi eiga aðild að þessum reglugerðum báðum, ef þriðji orkupakkinn verður samþykktur nk. mánudag 2. september, og stjórnvöld geta þá ekki undanþegið sjálf sig frá þeirri skyldu, skv. ofangreindu, að sjá til þess, að engar hindranir verði settar í veg fyrir lagningu og starfrækslu slíks sæstrengs eða sæstrengja.
Þeir stjórnmálamenn eru naumast læsir, sem sjá þetta ekki.
Jón Valur Jensson.
Ekki koma með enn eitt bullið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 29.8.2019 kl. 05:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.8.2019 | 16:25
Willum Þór Þórsson á forsetastóli Alþingis lét Bjarna Ben. það eftir að tala 7 mín. fram yfir löglegan ræðutíma um orkupakkann
Þetta gerðist nú á 5. tímanum e.h. 28. ágúst. Leyfilegur ræðutími var aðeins 10 mín.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2019 | 11:57
Við eigum að nýta okkur sem bezt frábæra samninga EFTA-ríkjanna við önnur lönd, í stað þess að einblína á tregt og staðnað Evrópusamband
Nú hafa náðst einstakir fríverzlunarsamningar EFTA-ríkjanna við s.k. Mercosur-ríki í S-Ameríku: Argentínu, Brasilíu, Úrúgúay og Paragúay. Þetta skapar ómetanleg viðskiptatækifæri fyrir sjávarútveg okkar og fleiri atvinnuvegi.
Fríverslunarsamningur við aðildarríki Mercosur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2019 | 18:06
Hver er trúverðugleiki Bjarna Benediktssonar?
Eftir Ragnhildi Kolka.
Á meðan Bjarni Benediktsson gerir ekki grein fyrir ástæðu þess að hann kúventi í afstöðu til framsals í orkumálum til Evrópusambandsins verða allar yfirlýsingar hans metnar sem "ótrúlega ótrúverðugur málflutningur."*
* Svo að gripið sé til orða hans á Valhallarfundi um málflutning annarra.
Höfundur er félagi í Samtökum um rannsóknir á Evrópusambandinu og tengslum þess við Ísland.
Orkupakkinn takmarkað framsal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)