11.12.2017 | 12:34
Fráleit uppgjöf stjórnarflokkanna fyrir fullveldisandstæðum flokkum birtist í eftirgjöf á formennsku í stjórnsýslu- og eftirlitsnefnd
Formennskuna fær Samfylkingin í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fyrstu tvö árin og Píratar næstu tvö ár (þeir ætla að skiptast á nefndarformennsku á miðju kjörtímabilinu, þar og í velferðarnefnd). Stjórnarskráin er eitt helzta málefni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Samfylkingin hefur margítrekað vegið að fullveldisákvæðum stjórnarskrárinnar, bæði með ESB-umsókninni ógildu og með moldvörpustarfsemi sinni með ólögmætum tilbúningi "stjórnlagaráðs" og meðferð tillagna þess á Alþingi. Þar gegndi Samfylkingarkonan Valgerður Bjarnadóttir einu lykilhlutverkinu sem formaður þessarar stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar, ekki hvað sízt með því að leggjast gegn því, að kjósendur yrðu spurðir í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012, hvort þeir væru samþykkir ákvæðum 111. og 67. greina tillagnanna um fullveldisréttindi landsins og rétt landsmanna til að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um uppsögn ESB-aðildarsamnings.
Allur er ferill þessara mála með eindæmum og var m.a. ástæða þess, að einungis 48,4% kjósenda tóku þátt í nefndri þjóðaratkvæðagreiðslu 20. okt. 2012.
Aðkoma núverandi stjórnarflokka að þessu máli í dag, með því að gefa fullveldisandstæðum flokkum eftir formennskuna í stjórnsýslu- og eftirlitsnefnd, verður að teljast í ljótasta lagi á Alþingi, og er þá allmikið sagt. Aðild að ríkisstjórninni eiga tveir flokkar, sem báðir segjast andstæðir aðild að Evrópusambandinu, auk Vinstri grænna, sem hafa svikið landsmenn herfilega í því máli og tala með tillögum "stjórnlagaráðs"[1] -- en með þessari linkind gagnvart Samfylkingunni og hinum engu skárri Pírötum birtist það ljóslega, að meirihlutavilji í flokkunum þremur fær ekki að ráða í þessu máli, heldur hafa foringjar flokkanna talið eftirgjöfina í lagi, og beinir það einkum sjónum að áður svikulum Bjarna forsætisráðherra í þessu ESB-máli. Hann skrifaði fyrir þónokkrum árum Morgunblaðsgrein með félaga sínum Illuga Gunnarssyni, þar sem næsta ljóslega var verið að mæla með inntöku landsins í Evrópusambandið. Ennfremur hefur Bjarni alls ekki staðið sig við það verkefni, sem fyrir liggur, að Alþingi þarf að gera skýlausa samþykkt þar sem Össurarumsóknin ólögmæta um inngöngu í þetta tröllabandalag er formlega dregin til baka. Umsóknina þá er ekki lengur að finna í sumum skúffum í gljáhöllunum í Brussel, en hins vegar í öðrum skúffum þar, og vitað er af þeim landráðahug Samfylkingar að ætla sér að ítreka formlegt gildi þeirrar umsóknar.
Og nú stendur Bjarni ekki á verðinum fyrir fullveldið -- enn einu sinni!
[1] Það var einmitt klaufinn Valgerður Bjarnadóttir, sem viðurkenndi það í útvarpsviðtali, að "stjórnlagaráð" var ekki með umboð frá þjóðinni -- gerði það ekki með svo berum orðum, heldur með því að nefna ráðið "nefnd Alþingis", eins og það raunar er; og hefði mátt fylgja sú athugasemd, að nefndarskipanin sú var ólögleg: gekk þvert gegn þágildandi lögum um stjórnlagaþing (sem hafa skyldi þjóðarumboð, ekki alþingisumboð!) og það hlutverk þess fyrirhugaða þings að endurskoða stjórnarskrána.
Jón Valur Jensson.
Taka að sér nefndaformennsku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnlagaþing | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2017 | 19:39
Úrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Geirs Haarde felur líka í sér stjórnarskrárbrot með ESB-umsókninni
MDE byggði á því að 16.-19.gr. stjórnarskrárinnar væru í gildi: að meiri háttar stjórnarmálefni bæri því að leggja fyrir ríkisstjórn. En þar er og kveðið á um að slík mál skal bera undir forsetann og að undirskrift hans fullgildi þau. Það á ekki aðeins við um lagafrumvörp.
Þingsályktunartillagan um að sækja um aðild að Evrópusambandinu var slíkt "mikilvægt stjórnarmálefni", eins og Árni Páll Árnason (lögfræðingur og formaður Samfylkingarinnar!) sagði sjálfur og viðurkenndi, sjá hér: Árni Páll Árnason minnir óvart á að ESB-umsókn Össurar og hans eigin flokks var ólögmæt!
Samt hljópst Össur, þá utanríkisráðherra, fram hjá þeirri skyldu að bera málið undir Ólaf forseta -- stökk bara með þingsályktunina (þá enn ekki fullgilda skv. ákvæðum stjórnarskrár) beint út til ESB og það tvisvar!
Össur Skarphéðinsson verðskuldar að vera dreginn fyrir Landsdóm vegna þessa stjórnarskrárbrots.
Það sem meira er: Sjálf umsóknin var og er ógild. Alþingi uppfyllir bezt skyldu sína með því að afturkalla formlega þá samþykkt naums meirihluta þingmanna í júlí 2009.
Jón Valur Jensson.
16.-19. gr. Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands eru sem hér segir:
16. gr. Forseti lýðveldisins og ráðherrar skipa ríkisráð, og hefur forseti þar forsæti.
Lög og mikilvægar stjórnarráðstafanir skal bera upp fyrir forseta í ríkisráði.
17. gr. Ráðherrafundi skal halda um nýmæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni. Svo skal og ráðherrafund halda, ef einhver ráðherra óskar að bera þar upp mál. Fundunum stjórnar sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis, og nefnist hann forsætisráðherra.
18. gr. Sá ráðherra, sem mál hefur undirritað, ber það að jafnaði upp fyrir forseta.
19. gr. Undirskrift forseta lýðveldisins undir löggjafarmál eða stjórnarerindi veitir þeim gildi, er ráðherra ritar undir þau með honum.
Evrópumál | Breytt 25.11.2017 kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.11.2017 | 19:47
Snjall er Björn í greiningunni; Þorgerður Katrín lætur á sér skilja að kúvent sé ESB-stefnu Viðreisnar
En ekki er mikið að marka það; öll forystusveit Viðreisnar (sjá nöfnin) hefur frá upphafi haft Evrópusambandið fyrir augum sem sínar ær og kýr, sína Útópíu og himnesku Jerúsalem!
Komum rétt strax aftur að Þorgerði, en fyrst er að nefna, að Björn Bjarnason rekur í frábærlega skýru yfirliti* ESB-umfjöllun Sjálfstæðisflokksins frá því haustið 2008 og fram undir þetta. Það er lærdómsríkt mörgum og áminning um að taka ekki mikið mark á áróðri ESB-kröfugerðarfólks á Austurvelli um árið.
Aðspurð um það af fréttamanni Rúv, hvort Viðreisn, ef henni er boðið að stjórnarmyndunarborði, mundi setja það sem skilyrði að gengið verði til atkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB á næsta kjörtímabili, svaraði Þorgerður:
"Á þessu stigi tel ég rétt að flokkar setji ekki fram nein skilyrði."
Um þetta segir Björn á vef sínum, bjorn.is*:
Í ljósi sögunnar markar þetta svar tímamót. Viðreisn setur ekki atkvæðagreiðslu um framhald ESB-aðildarviðræðna sem skilyrði fyrir myndun ríkisstjórnar.
En hann bætir líka við:
Eftir yfirlýsingu Þorgerðar Katrínar sem vitnað er til hér að ofan vaknar spurning um hvort Viðreisnarfólk á samleið með Viðreisn. Hafi flokkurinn verið stofnaður um eitthvert málefni, sneri það að þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald ESB-viðræðna. Nú boðar flokksformaðurinn að ekki verði staðið við það loforð bjóðist ráðherrastólar.
Ólíklegt er að þessi yfirlýsing flokksformannsins um hvarf frá meginstefnu flokksins breyti nokkru um aðdráttarafl hans við stjórnarmyndun.
Já, ekki er það traustsverðugt að stinga stefnu sinni niður í skúffu, þegar ráðherrasætin bjóðast. Þetta gerði þó Steingrímur J. með hrikalegum afleiðingum árið 2009, eins og öllum á að vera kunnugt. Nú fer Þorgerður Katrín í hina áttina, en þó verður Viðreisnar-flokkurinn ávallt grunaður um græsku í okkar fullveldismálum. Og þó að bæði Samfylking og "Viðreisn" verði að kyngja því, að þeirra heittelskaða ESB verður ekki á dagskrá hér næstu fjögur árin, þá er hætt við því, að þau reyni í millitíðinni að fara Fjallabaksleið að því langtíma-markmiði, með því að vinna að því á þingi að spilla fyrir fullveldisákvæðum gildandi stjórnarskrár, en Logi Einarsson, formaður Sf., vill einmitt gera stjórnarskrárbreytingar að skilyrði fyrir því, að flokkur hans fáist til að taka þátt í stjórnarmyndun.
Hér er því full þörf á að vera áfram á verði, þótt sannfæring sumra sé kannski tímabundið til sölu fyrir völd og áhrif ráðherrastóla.
* Formaður Viðreisnar afneitar flokksstefnunni.
Jón Valur Jensson.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.11.2017 | 13:55
Meirihluti þings og þjóðar gegn ESB
Þrír vinstri flokkar (fyrrv. krata, kommúnista, kvennalista og stjórnleysingja) í slagtogi með Framsóknarflokki hafa minnihluta kjósenda að baki sér, aðeins 31½ þingmann og vita sem er, að meiri hluti landsmanna vill EKKI Evrópusambandið, enda varð hrun í fylgi ESB-manna í kosningunum og engin vinstri bylgja þar, heldur straumur inn á miðjuna.
Engu að síður er fullrar varfærni þörf gagnvart hugsanlegri stjórn þessara flokka, hvort þeir t.d. ætla sér að fara að skera upp stjórnarskrána, en þar eru Píratar róttækastir og Framsókn íhaldssömust. Hér gæti legið undir, að þeir róttæku vilji m.a. kvitta upp á 111. og 67. gr. tillagna hins ólögmæta "stjórnlagaráðs", þar sem opnað var á snögga innlimun í Evrópusambandið, en lokað á frumkvæðisvald þjóðarinnar að eðlilegri útleið úr því.
Já, höldum áfram að fylgjast með athöfnum þeirra sem með völdin fara.
Jón Valur Jensson.
Funda heima hjá Sigurði Inga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2017 | 16:00
ESB er út úr öllu korti, ef Framsóknarflokkurinn fer í ríkisstjórn
Lilja Alfreðsdóttir, fv. utanríkisráðherra, bráðskýr og snörp, eins og alþjóð veit, lætur ekkert rugla sig um nauðsynleg meginatriði stjórnmála fram undan. Þar er t.d. Evrópusambandið alls ekki uppi á borðum, ekki frekar en að skiptast á sendiherrum við plánetuna Mars.
Við förum bara í þetta á grundvelli málefnanna og hvað hægt er að gera og hvað er ekki hægt að gera, segir hún í samtali við Hjört J. Guðmundsson á mbl.is, spurð um mögulegar stjórnarmyndunarviðræður. Hún hafi ekki í hyggju að segja neitt afgerandi í þeim efnum fyrr en fyrir liggi nokkuð skýrar línur. (Mbl.is, nánar þar)
Lilja hefur þegar sagt í samtali við Morgunútvarp Rásar 2 í gær, að niðurstaða þingkosninganna á laugardaginn sé ekki vísbending um að kjósendur vilji að Evrópumálin verði sett á dagskrá, þ.m.t. þjóðaratkvæði um hvort taka ætti frekari skref í átt að inngöngu í Evrópusambandið. Mörg önnur mál væru miklu brýnni.
Benti hún á að ríkisstjórn í útvarpsþættinum að Evrópusambandsmálið hefði leikið vinstristjórnina 2009-2013 grátt, ekki síst þar sem hún hafi ekki verið skipuð flokkum sem hafi verið einhuga um að ganga í sambandið. Í samtali við mbl.is segir hún að önnur lexía frá þeirri ríkisstjórn væri að færast ekki of mikið í fang. Það er einfaldlega óþarfi að flækja lífið að óþörfu." (Mbl.is)
Enginn ágreiningur er milli formanns og varaformanns Framsóknarflokksins um þessa stefnu, eins og heyra mátti á viðtali við Sigurð Inga í kvöldfréttum Sjónvarps í gær. Þótt hann slægi ekki 4-6 flokka stjórn út af borðinu sem hugsanlega, tók hann skýrt fram, að sú stjórn yrði að vera sammála um þau mál sem hún hefði á sínum verkefnalista.
Þetta útilokar vitaskuld, að ESB-málið geti orðið þar á meðal.
VIÐAUKI um evrumál
Mjög er athyglisverður leiðari Þorbjarnar Þórðarsonar í Fréttablaðinu í dag: Engin töfralausn. Þar segir hann m.a. um evrumálin:
Lengi vel hafa Íslendingar kvartað undan háum vöxtum og óstöðugleika sem fylgifiskum íslensku krónunnar. Ókostirnir sem fylgja myntsamstarfinu um evruna eru síst skárri. Með aðild að myntsamstarfinu væru Íslendingar að færa yfirstjórn peningamála í hendurnar á Evrópska seðlabankanum og Eurogroup, hóps fjármálaráðherra evruríkjanna, þar sem ákvarðanir eru teknar með mjög ólýðræðislegum hætti eins og kom bersýnilega í ljós þegar skuldakreppan í Grikklandi var í hámæli. Þá er engin leið að spá fyrir um hvaða áhrif evran hefði á vinnumarkaðinn á Íslandi og fremur líklegt en hitt að atvinnuleysi muni aukast mikið. Þá myndi íslenska ríkið missa forræði á peningastefnunni og ekki geta notað gjaldmiðilinn sem sveiflujöfnunartæki. Það er mikilvægt að hafa hugfast að íslenska krónan er í senn upphaf flestra okkar vandamála í hagstjórn en lausnin á þeim á sama tíma.
Það mun taka mörg ár fyrir evruríkin að koma sér saman um breytingar á myntsamstarfinu til að tryggja stöðugleika til framtíðar. Að þessu virtu er erfitt að sjá hvers vegna ESB og aðild að myntsamstarfinu um evruna ættu að vera á dagskrá íslenskra stjórnmála í dag enda er evran engin töfralausn.
Jón Valur Jensson.
Kemur í ljós hverjir ná saman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 2.11.2017 kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.10.2017 | 15:59
Lilja Alfreðsdóttir í sínum lykilflokki tekur ekki í mál að hefja ESB-ferli í nýrri ríkisstjórn
Flokkurinn sé ekki reiðubúinn að samþykkja að boðað verði til þjóðaratkvæðis um frekari skref í áttina að inngöngu í Evrópusambandið. Þetta sagði hún í Morgunútvarpi á Rás 2 í morgun.
Lilja ræddi málið að fyrra bragði og sagði úrslit þingkosninganna á laugardaginn ekki vísbendingu um að Evrópusambandsmálið væri á dagskrá íslenskra stjórnmála. Spurð hvort Framsóknarflokkurinn vildi taka málið upp svaraði hún því neitandi. (Mbl.)
Óneitanlega var framan af reynt að þagga þetta mál niður í fráttatímum Rúv í morgun (sbr. nánar hér), þótt það fengi loks að heyrast í þeirra eigin útgáfu í hádeginu, en oft hefur ummælum stjórnmálamanna verið af minna tilefni leyft að heyrast hrein og tær eins og þau komu fyrir. Vinstri menn og einkum ESB-sinnar, þ.m.t. hlutdrægir fréttamenn á Rúv, eru náttúrlega í sjokki yfir þessu!
En lesum áfram:
Spurð áfram um mögulega þjóðaratkvæðagreiðslu um frekari viðræður við Evrópusambandið um inngöngu í sambandið sagðist Lilja ekki telja þjóðina vera að kalla eftir frekari kosningum. Frekar að stjórnmálamenn næðu sátt um sameiginleg málefni.
Spurð aftur hvort þetta þýddi að Framsókn vildi ekki að slíkt þjóðaratkvæði færi fram sagði Lilja: Nei, við teljum að þetta mál sé ekki á dagskrá íslenskra stjórnmála. Viðreisn hafi sett málið á oddinn í kosningabaráttu sinni og tapað fylgi frá kosningunum fyrir ári og þó að Samfylkingin hafi gert það líka hafi það ekki verið með eins afgerandi hætti. (Mbl.is)
Og þetta eru sannarlega hressandi skilaboð frá þessari skeleggu þingkonu, fyrrverandi utanríkisráðherra, sem endurnýjaði umboð sitt á Alþingi 28. þ.m.:
Spurð hvort Framsóknarflokkurinn gerði andstöðuna við þjóðaratkvæði um Evrópumálin að algeru úrslitaatriði varðandi mögulega stjórnarmyndun sagði Lilja að horfa þyrfti til stöðunnar í Evrópusambandinu. Bretar væru á leið úr sambandinu, ótrúleg staða væri uppi í Katalóníu á Spáni og skuldamál sem ekki væri búið að gera upp.
Það eru næg verkefni á dagskrá íslenskra stjórnmála til þess að við séum ekki að bæta þessu við, sagði Lilja enn fremur og rifjaði upp stöðuna í vinstristjórninni 2009-2013 þar sem annar flokkurinn hafi viljað í Evrópusambandið en hinn ekki. Mjög erfitt væri að starfa í slíkri ríkisstjórn því annar aðilinn myndi alltaf tapa og missa þar með umboð sitt.
Gríðarleg orka hafi farið í Evrópusambandsumsóknina 2009-2013. Og ég segi bara: það eru næg verkefni sem við getum farið í þannig [önnur] en þetta og við teljum að hagsmunum okkar sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Norðmenn væru ekki á leið í sambandið og Bretar á leiðinni út. Evrópusambandið myndi líklega taka miklum breytingum í náinni framtíð.
Spilin lögð á borðið! Þetta liggur nú allt fyrir sem grundvallandi staðreyndir að taka mið af í komandi stjórnarmyndunarviðræðum. Tími fyrir ESB-málpípur til að sleikja sár sín, en hafa sig sem minnst í frammi á næstu árum, því að Framsóknarflokkurinn mun ekki, frekar en Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn, taka þátt í að stefna Íslandi inn í evrópskt stórveldi.
VIÐAUKI: Nánar af orðum Lilju:
Niðurstaða þessara kosninga er ekki að segja okkur það að þetta mál sé á dagskrá íslenskra stjórnmála.
Þetta er ekki mál sem þið viljið að ný ríkisstjórn taki með nokkrum hætti upp, hvað með þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, að þjóðin ákveði með framhald viðræðna?
Ég held að það sem þjóðin sé ekki að kalla eftir séu frekari kosningar, hún vill frekar að stjórnmálin nái sátt um þessi mikilvægu málefni og þessvegna er ég að segja að það sem við leggjum upp með þarf að vera mjög skýrt, bæði þau markmið sem við höfum og hvernig við ætlum að gera þetta, segir Lilja.
Nei, við teljum að þetta mál sé ekki á dagskrá íslenskra stjórnmála, segir Lilja,
skv. Ruv.is eftir hádegið.
Jón Valur Jensson.
Hafnar þjóðaratkvæði um ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.10.2017 | 14:13
ESB-umsóknarendurnýjun er út úr myndinni, og meint "frjálslyndi" sumra er eins og hver önnur Pótemkíntjöld
Heill ESB-flokkur þurrkaðist út af þingi (BF). Annar lemstraðist stórlega, hélt þó 4 þingmönnum af 7, en sjálfur formaðurinn féll með miklum dynk: Benedikt Jóhannesson sem fekk aðeins 2,1% stuðning kjósenda í NA-kjördæmi! Er það býsna verðugur endapunktur á ferli hans sem stjórnmálamanns.
Þótt Samfylking hafi aukið fylgi sitt (bætti á sig 6,4% kjósenda, þ.e. rúml. 1/3 af samanlögu fylgi Miðflokksins og Flokks fólksins), þá vegur það ekki upp á móti 9,8% fylgishruni hinna ESB-flokkanna (6% hjá "Bjartri framtíð" og 3,8% hjá "Viðreisn").
Hvað sem vinstri flokkar reyna að bralla, mun þeim ekki koma saman í vinstri stjórn, og Sigurður Ingi á að halla sér að B,D,F+M-lausninni. Allir flokkarnir eru fullveldissinnaðir og allir leiðtogar stærri flokkanna í þeirri samsteypu hafa reynslu sem forsætisráðherrar og geta sameinazt um ýmis önnur markmið, um áframhald hagvaxtar og vonandi að bæta kjör fátækra og lækka vexti. Sitja verður Sigurður Ingi á sátts höfði við Sigmund Davíð og gagnkvæmt, landinu til heilla. Má ekki gera ráð fyrir neinu minna en að þeir séu nógu þroskaðir til þess.
Já, algert var afhroð Bjartrar framtíðar með 1,2% fylgi!
Fréttablaðið ber okkur þá "frétt" í dag, að "frjálslyndir hrynja af þinginu". Segja hverjir?
- ESB-sinnað Fréttablaðið!
- Tapsár varaformaður Viðreisnar, Jóna Sólveig Elínardóttir, sem missti þingsæti sitt og fekk aðeins 3,1% stuðning kjósenda í Suðurkjördæmi! Er hún hlutlaus um það, hver er svona "frjálslyndur"?
- Eiríkur Bergmann Einarsson, fyrrverandi starfsmaður ESB í Ósló og núverandi styrkþegi ESB á Bifröst -- og er þó enn til kvaddur sem marktækur álitsgjafi í Rúv og Fréttablaðinu!
En hvað er svona "frjálslynt við að:
a) svipta Lýðveldið Ísland sjálfsákvörðunarrétti í eigin málum og gefa frá okkur æðsta og ráðandi löggjafarvald til Brussel? Ennfremur að kyngja því vegna valdboðs frá Brussel, að hvalveiðar verði harðbannaðar, einnig selveiðar og hákarlaveiðar og að flóttamannakvótar verði einhliða ákveðnir handa okkur í Berlín og Brussel.
b) fara illa með sauðfjárbændur? Þorgerður Katrín, Benedikt og frændi hans forsætisráðherrann gátu ekki séð af nokkrum hundruðum milljóna til að koma í veg fyrir meiri háttar slátrun á þessari nauðsynlegu stétt, þótt hitt gætu þau: hent meira fé í 30-40 manna hóp lögfræðinga sem þrífast á því að tefja mál tilefnislausra hælisleitenda!
Straumur kjósenda í þessum kosningum var í heildina frá evrópska stórveldinu, sem hefur gert okkur nógu marga skráveifuna hingað til.
Nú er lag til að gera það, sem Styrmir Gunnarsson er alltaf að hvetja okkur til: að Alþingi dragi aðildarumsóknina ólögmætu formlega til baka, eins og svissneska þingið hefur nú þegar gert.
Jón Valur Jensson.
Stjórnarandstaðan fundaði í morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ósiðlegt er að bera fé á sveitarstjórn og bændur vegna virkjana á Ströndum og Suðurlandi.
Siðlaust var og að bera fé á 25 manns sem voru sviptir kjörbréfi á stjórnlagaþing, til þess að þeir tækju sæti í "stjórnlagaráði" í staðinn, ólögmætri nefnd, eins og Jóhönnustjórnin beitti sér þó fyrir, af því að henni var svo í mun að einmitt þeir menn gætu beitt sér fyrir sem fljótlegastri aðferð til að véla þjóðina inn í Evrópusambandið.
Þess vegna bauð Jóhönnustjórnin tvöföldun launa "stjórnlagaráðsmanna", fjóra mánuði á fullu þingfararkaupi alþingismanna, í stað tveggja, eins kveðið var á um í lögunum um stjórnlagaþing -- þeim lögum sem enn voru í gildi, þegar 30 þingmenn kusu þessa nefnd ("stjórnlagaráð") þvert gegn ákvæðum þeirra laga!
Í 111. grein stjórnarskrár-tillagnanna frá "ráðinu" var opnað á billega og snögga leið til þjóðaratkvæðagreiðslu (einnar, ekki tveggja, eins og núverandi stjórnarskrá myndi einungis leyfa) um fullveldisafsal til Evrópusambandsins, hvenær sem innlimunarsinnar og Brusselmenn sæju sér hentugt tækifæri til þess. Ennfremur er með 67. greininni hlífðarlaust reynt að koma í veg fyrir, að þjóðin fái eftir á (fullsödd af veru í Evrópusambandinu) að krefjast þess að fá þjóðaratkvæðagreiðslu um úrsögn úr stórveldinu!
Og enn er reynt af ýmissa vinstri flokka hálfu að keyra s.k. "nýja stjórnaskrá" í gegn í hugsanlega yfirvofandi vinstri stjórn (sem auk þessa mun e.t.v. hafa úrsögn Íslands úr Norður-Atlantshafsbandalaginu á verkefnaskrá sinni, sem og móttöku um eða yfir 7.000 kvótaflóttamanna og hælisleitenda, ef Vinstri græn fá að ráða). Taka má fram, að yrði Ísland gert að einu tannhjóli Evrópusambandsins, yrðum við EKKI gerð sjálfráð um ákvörðun á fjölda kvótaflóttamanna; slík ákvörðun yrði tekin í Berlín og Brussel, rétt eins og við fengjum þá ekki að halda hér áfram hvalveiðum, sela- og hákarlaveiðum.
FYLGIGÖGN
I.
Skipan stjórnlagaráðs var ólögmæt
Stjórnvöldum bar að fylgja ógildingu stjórnlagaþingskosninga eftir með því að endurtaka kosninguna í löglegri mynd; í staðinn var skipað ólöglegt ráð!
S.k. stjórnlagaráð er ólögmætt, stofnað gegn þágildandi stjórnlagaþings- og kosningalögum. 30 alþingismenn veittu 25 umboðssviptum ólögmætt umboð sitt (ekki þjóðarinnar) til að véla um stjórnarskrána, sbr. kæru:
"Til Hæstaréttar Íslands, Ríkislögreglustjóra og Umboðsmanns Alþingis
Við undirrituð vorum í hópi frambjóðenda til stjórnlagaþings haustið 2010.
Hér með mótmælum við stofnun stjórnlagaráðs, sem við teljum andstætt stjórnlögum, í stað þess stjórnlagaþings sem ríkisstjórn Íslands og Alþingi voru að lögum bundin að koma á fót. Við óskum eftir því að Hæstiréttur skoði hér rökstudd umkvörtunarefni okkar í mörgum liðum og fylgi málinu eftir með úrskurði sínum og jafnvel lögbanni á starf stjórnlagaráðs, ef réttinum þykir það rétt leið í málinu. Við áskiljum okkur ennfremur bótarétt vegna kostnaðar okkar og tapaðra réttinda, ef ekki verður farið að kröfum okkar.
1. Með lögum um stjórnlagaþing (nr. 90 25. júní 2010) var a) vísað til almennra kosningalaga, þannig að það var 100% eðlilegt, að kröfur þeirra síðarnefndu laga voru í úrskurði Hæstaréttar fyrr á þessu ári gerðar að mælistiku og forsendu fyrir mati á því, hvort kosningin hefði farið löglega fram; b) ennfremur var í lögunum um stjórnlagaþing kveðið skilmerkilega á um, að til Hæstaréttar Íslands skyldu berast hugsanlegar kærur vegna framboðs manna og kjörs þeirra, sem og um kosningarnar og reglur um þær. Stjórnvöld, sem sjálf sömdu þessi lög, geta því ekki kvartað eftir á og látið eins og Hæstiréttur hafi verið með slettirekuhátt eða misbeitt valdi sínu.
2. Hæstiréttur úrskurðaði kosningarnar og kjör mannanna tuttugu og fimm brjóta í bága við lög þar um og að það væri því ógilt.
3. Í samræmi við það afturkallaði landskjörstjórn kjörbréf 25-menninganna.
4. Skv. ákvæðum kosningalaga, sem náðu yfir þetta og jafnan hefur verið farið eftir, átti að endurtaka kosninguna. Það var ekki gert!
5. Í stað þess var stofnað til þess, sem dr. Þráinn Eggertsson prófessor hefur kallað "hrakval" manna til stjórnlagaráðs. Á sama tíma var ákveðið að nánast tvöfalda setutíma þess (ætlað, að það standi frá 6. apríl til loka júlímánaðar).
6. Þingsályktunartillaga sem stjórnarmeirihlutinn fekk samþykkta, þó án meirihluta þingmanna (með 30 atkvæðum gegn mótatkvæðum) afnam ekki lögin um stjórnlagaþing. Þau eru enn í gildi, en ríkisstjórnin vill ekki framfylgja þeim!
7. Almenningur á fullan rétt á því að fá sitt eiginlega stjórnlagaþing, ekki fundi og ályktanir einhvers ráðs sem hefur ekki lögmætt umboð þjóðarinnar, heldur einungis frá veikum meirihluta alþingismanna, sem sé án breiðrar samstöðu um fyrirbærið.
8. Frambjóðendur til stjórnlagaþings, sem náðu ekki kosningu, eiga fullan og lögvarinn rétt á því að kosningin verði endurtekin, en í þetta sinn með traustum hætti. Jafnvel þótt óvíst sé, hvort þeir allir eða þorri þeirra vilji nýta sér þann rétt, munu ugglaust margir vilja fá úr þeim rétti sínum skorið með úrskurði Hæstaréttar.
9. Við frambjóðendur eigum ekki aðeins hagsmuna að gæta vegna möguleika okkar á því að ná kosningu, heldur einnig vegna vinnu og útlagðs kostnaðar margra okkar til að kynna sig og sín stefnumál í aðdraganda stjórnlagaþings, sem ríkisstjórnin og fylgismenn hennar á þingi hafa síðan sópað undir teppið.
10. Eðlilegt virðist því að leita úrskurðar Hæstaréttar Íslands á því, að stjórnvöldum hafi borið að fylgja ógildingu stjórnlagaþingskosninga eftir með því að endurtaka kosninguna í löglegri mynd, sem og að lagaleg réttindi og hagsmunir frambjóðenda, annarra en hinna 25 (26), skuli viðurkenndir og varðir.
11. Röng eða a.m.k. ósönnuð er sú fullyrðing að ágallar kosninganna í haust hafi ekki verið með þeim hætti að þeir hafi getað haft áhrif á úrslit kosninganna. Þvert gegn því áliti eða þeirri fullyrðingu segir Róbert Spanó, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, í viðtali við Morgunblaðið 25. febrúar sl.: "Að mínu áliti verður niðurstaða Hæstaréttar ekki skilin með öðrum hætti en svo að þeir annmarkar sem Hæstiréttur taldi vera á stjórnlagaþingskosningunni, sem í tveimur tilvikum voru taldir verulegir, hafi í eðli sínu verið til þess fallnir að hafa áhrif á úrslit kosninganna." (sjá hér: http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=1368993&searchid=816fc-0a4e-b75e2 ).
12. Við álítum það ógæfulegt upphaf að stjórnarskrárbreytingum jafnvel "nýrri stjórnarskrá"! að gera það á grundvelli lagabrota og með aðstoð ráðs sem ekkert umboð hefur frá þjóðinni; jafnframt teljum við ísjárvert, að ýmsir 25-menninganna virðast nú þegar hafa farið út fyrir verkefnasvið sitt.
Þá var t.d. sú röksemd framkvæmdavaldsins, að endurkosning sé dýr, ekki tæk, því að vel var unnt að hafa hana 9. apríl, með Icesave-kosningunni, en ríkisstjórnin kaus einfaldlega að fara ekki þá leið, heldur aðra sem ekkert rúm var fyrir í stjórnlagaþingslögunum.
Vinsamlega takið þessa stjórnsýslukæru/málskot okkar til athugunar og meðferðar.
Reykjavík, 6. apríl 2011."
Með fylgdu undirskriftir nokkurra frambjóðenda til stjórnlagaþings.
II.
Var athæfi stjórnarliða við skipan stjórnlagaráðs verjanlegt?
- október 2012, DV.is, eftir Jón Val Jensson.
Stór var þessi fyrirsögn í DV 1. október: MÚTUR MUNU EKKI LÍÐAST. Þar segir frá frumvarpi innanríkisráðherra í samræmi við samning Evrópuráðsins gegn spillingu og í takt við tilmæli GRECO, samtaka ríkja gegn spillingu. Þar var því beint til Íslands "að tryggja að ákvæði almennra hegningarlaga um mútur og áhrifakaup næðu einnig til alþingismanna..."
Þetta var ágæt áminning til Íslendinga, sem senn ganga til kosninga um umbyltingu stjórnlaga okkar að óskum eða kröfum s.k. stjórnlagaráðs, sem í róttækni sinni fór langt fram úr yfirlýstum vilja þjóðfundarins 6. nóv. 2010 og bjó meira að segja til lúslétt heimildarákvæði um framsal fullveldis til erlends ríkjabandalags (111. gr. tillagananna). Öfugmælasamtökin "Já Ísland" hafa sérstaklega fagnað því ákvæði, sem heimilar einfalda skyndikosningu hvenær sem naumum meirihluta þingheims þókknast um innlimun Íslands í Evrópusambandið -- þ.e.a.s. nema meirihlutinn geri eins og ég hinn 20. næstkomandi: greiði atkvæði gegn þessari stjórnarskrártillögu í heild, því að það er eina leiðin til að losna við hina evrókratísku 111. grein!
En þegar gjörðir Alþingis 24. marz 2011 eru skoðaðar, virðist sérstök ástæða til að spyrja: Var tekin meðvituð ákvörðun um það meðal ráðandi afla í stjórnarflokkunum að beita e.k. "áhrifakaupum" til að koma s.k. stjórnlagaráði á koppinn -- ekki aðeins heimildarlaust og í fullu ósamræmi við úrskurð Hæstaréttar, heldur einnig þvert gegn grundvallar-verkaskiptingu meginþátta ríkisvaldsins skv. stjórnarskrá lýðveldisins og þar að auki þvert gegn lögunum um stjórnlagaþing (nr. 90 / 25. júní 2010)? Skoðum fyrst forsöguna.
Sköpun stjórnlagaráðs ólögmæt
Nefnd lög um stjórnlagaþing fólu í 15. gr. Hæstarétti Íslands að úrskurða um hugsanlegar kærur frá kjósendum vegna kosningarinnar o.fl. atriða, og það gerði hann 25. janúar 2011 í fullskipuðum rétti með samhljóða niðurstöðu um ógildingu kosningarinnar vegna annmarka (þ. á m. tveggja verulegra) á framkvæmd hennar.
Ennfremur vísuðu stjórnlagaþingslögin (ekki sízt í nefndri 15. gr.) til laga um kosningar til Alþingis nr. 24 / 16. maí 2000, en í samræmi við ákvæði 115. gr. síðarnefndu laganna bar viðkomandi ráðuneyti að kveðja til nýrra kosninga í stað hinnar ógiltu kosningar til stjórnlagaþings. Það var hins vegar ekki gert, heldur vélað um það að fara að hvatningu Illuga Jökulssonar o.fl., sem hagsmuna áttu að gæta, um að fara einfaldlega "fram hjá" úrskurði Hæstaréttar.
Þetta var samt ekki jafn-einfalt og það virtist -- það var ekki aðeins "farið á svig við" hæstaréttarúrskurðinn, eins og próf. Róbert Spanó, forseti lagadeildar HÍ orðaði það í viðtali við Morgunblaðið 25.2. 2011, heldur var beinlínis brotið freklega gegn lögunum um stjórnlagaþing, og vel að merkja, takið eftir þessu: Þau lög voru í FULLU GILDI, þegar sá fáheyrði atburður átti sér stað á Alþingi 24. marz 2011, að 30 þingmenn greiddu atkvæði með því að bjóða hinum 25 kjörbréfasviptu frambjóðendum setu í "stjórnlagaráði" til að annast það verkefni, sem að gildandi lögum tilheyrði hinu fyrir fram ákveðna stjórnlagaþingi!
Frambjóðenda freistað
Vitað var, að efasemdir voru í margra hugum um þetta, enda var hér um margföld réttarbrot að ræða og fleiri en hér eru talin. En eins og til að bæla niður þær efasemdir kom allt í einu um þær mundir fram sú hugmynd að lengja setutíma "stjórnlagaráðs" upp í allt að tvöfalt miðað við þá tvo mánuði, sem stjórnlagaþingið átti að sitja. Launin áttu að verða fullt þingfararkaup alþingismanna (og hlunnindi), en sem sé boðið upp á fjóra mánuði, ekki tvo! Þetta losaði milljón í aukahlut hvers og eins hinna 25 og reyndist sem sé ekki koma í veg fyrir, að þeir tækju að sér "verkefnið" í umboði vinstri flokkanna og þriggja framsóknarmanna eða samtals 47,6% þingmanna! (heimild: http://www.althingi.is/dba-bin/atkvgr.pl?nnafnak=44294).
Að þessi fjögurra mánaða setutími hinna kjörbréfasviptu hafi verið siðlaust tilboð á þessum viðkvæma ákvörðunartíma hinna sömu 25 umboðslausu, getur naumast verið eitthvað sem mér einum flýgur í hug. Innanríkisráðherrann ætti að grandskoða sitt eigið mútufrumvarp með þetta í huga, en taka ber fram, að eins og Jón Bjarnason studdi hann ekki hina dæmalausu þingsályktun 24. marz 2011, þótt níu þingmenn VG hafi látið sig hafa það að greiða atkvæði með ólögmætinu.
Mætum svo öll á kjörstað 20. október til að segja hreint og skýrt NEI við þessu hneykslisplaggi.
Jón Valur Jensson (9. okt. 2012). Höfundur er guðfræðingur og prófarkalesari, formaður Samtaka um rannsóknir á Evrópusambandinu og tengslum þess við Ísland, bauð sig fram til stjórnlagaþings og fekk 2.964 atkvæði í þeirri kosningu 27. nóvember 2010.
III.
Vitnisburður Valgerðar: "Ríkisskipuð nefnd"!
Hvað var þetta stjórnlagaráð? Ríkisskipuð nefnd, viðurkenndi sjálf Valgerður Bjarnadóttir, þáverandi formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis! Sjá hér: http://jvj.blog.is/blog/jvj/entry/1263362/ (Valgerður viðurkennir gloríur og brotavilja stjórnlagaráðs í þágu ESB). Þetta var sem sé EKKI ráð eða nefnd með þjóðarumboði, heldur einber nefnd á vegum 30 lögbrjóta í hópi alþingismanna!
IV.
VIÐAUKAHUGLEIÐINGAR
Það stóð aldrei til, skv. vegvísun Þjóðfundarins 6. nóvember 2010, að fara út í allsherjarbreytingar á stjórnarskránni, en þetta var þó það, sem Þorvaldarliðið dirfðist að gera, hvatt áfram af hans enþúsísma og ofuráhuga árum saman, sem sumir villtust á sem það þýddi yfirburðaþekkingu og rétta hugsun um rétta aðferð (!).
Það er einhver öruggasta leið til að 1) fara offari, 2) hafa með (og sjást yfir) alls kyns slysatillögur sem geta haft andhverf eða óþægileg áhrif eða rekast á mörg horn í lagasafni og stjórnkerfi ríkisins,* þegar menn (umboðslausir raunar) voga sér að stokka upp alla stjórnarskrána í einu, í stað þess að taka fyrir nokkuð afmörkuð svið hennar í þrepum eins og Þjóðfundurinn hafði lagt til að þessu sinni og eins og gert hafði verið fram að því (vissulega kannski of hægt og a.m.k. um kjördæma- og kosningaskipan landsins allt of hægt), þ.e. með breytingum á henni stig af stigi með tímanum.
En með bráðræði hins ólögmæta** "stjórnlagaráðs" tókst Þorvaldarliðinu þeim mun auðveldar að fela landsöluáform sumra í liðinu í vissum greinum þar : með opinni, billegri heimild í 111. greininni, "Framsal ríkisvalds", til að framselja það "til alþjóðlegra stofnana sem Ísland á aðild að í þágu friðar og efnahagssamvinnu" (! -- "sniðugt" að hafa beinan áróður með!) og með 2. setningunni í 67. greininni, sem bannar beinlínis þjóðinni að fá að krefjast atkvæðagreiðslu um að snúa við slíkri framsals-ákvörðun! Og ekki aðeins var þessi lands- og þjóðarháski innifalinn þarna í frumskógartillögum "ráðsins", heldur var vísvitandi sleppt að leggja einmitt þessi atriði undir dóm kjósenda -- og tvívegis fellt í meðförum Jóhönnuliðsins á Alþingi að láta nefna þetta mál sérstaklega meðal þeirra örfáu sem voru lögð undir dóm kjósenda 20. okt. 2012!
Þetta var þeim mun grófara sem það var einmitt eindregið margítrekað af nefndum Þjóðfundi, að fullveldi landsins væri meðal dýrmætustu ákvæða stjórnarskrárinnar sem standa bæri vörð um og verja! En þveröfuga leið fór "stjórnlagaráðið" og naut svo stuðnings stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar Alþingis undir formennsku ESB-innlimunarsinnaðrar Valgerðar Bjarnadóttur, samfylkingarkonu, sem felldi það að leyfa þjóðinni að fá að taka beint á þessum fullveldismálum (111. og 67. gr. tilagnanna) með því að spyrja sérstaklega um þau á atkvæðaseðlinum.
Já, í staðinn var allt gert til að fela það meginmál, og svo var öllum almenningi ætlað að lesa í skyndi*** og þó vandlega yfir 115 tillögugreinar "ráðsins" og bera þær saman við hinar 80 eða 81 grein gildandi stjórnarskrár. Vitaskuld var þetta mikla áhlaupsverk (margra klukkutíma eða nokkurra daga vitsmunavinna) lítt upplýstum almenningi ofviða, og alveg geta menn séð það í hendi sér, að naumast hefur nema mjög lítill hluti kjósenda gefið sér tíma til alvöru-lesturs á jafnvel helmingnum af tillögum "ráðsins"!
En til þess hafa refirnir verið skornir hjá byltingarmönnum "ráðsins": að gera þetta allt nógu viðamikið til að koma í veg fyrir að menn tækju eftir ýmsum landráðaáformum innan um og aftarlega í þessu makalausa plaggi Þorvaldar og félaga! En það er þeim mun fremur ástæða til að minna á hitt, að þrátt fyrir mikla auglýsingamennsku og misnotkun ýmissa fjölmiðla í þágu "já"-atkvæða tóku einungis 48,4% þjóðarinnar þátt í því þjóðaratkvæði sem fram fór um tillögur hins ólögmæta "stjórnlagaráðs" 20. okt. 2012. Og það er vitaskuld ein af ástæðum þess, að við erum enn með okkar raunverulegu stjórnarskrá óspillta af tillögum "ráðsins" allar götur síðan þá.
* Þessir annmarkar sönnuðust einmitt, þegar nefnd lögfróðra fór yfir plaggið (allsherjar-stjórnarskrár-tillöguna) frá "stjórnlagaráðinu", í samræmingarskyni, og fann þar um eða yfir 70 atriði, sem rákust hvert á annars horn eða á önnur ákvæði stjórnlaga! Vitaskuld bar þetta sízt af öllu vitni um fagleg vinnubrögð "ráðsmannanna"; og það er t.d. hvorki nóg að vera prófessor í hagfræði né ESB-innlimunarsinnaður stjórnarformaður útrásarhneigðs tölvutæknifyrirtækis til að hafa fullt vit á svo grundvallandi og brothættum málum sem sjálfum stjórnlögum heils lands.
** Sjá hér: http://www.dv.is/blogg/adsendar-greinar/2012/10/9/jon-valur-var-athaefi-stjornarlida-vid-skipan-stjornlagarads-verjanlegt/ [sjá hér ofar, II] --- einnig hér: Umsögn um stjórnarskrárfrumvarp
*** Pésinn Þjóðaratkvæði laugardaginn 20. október 2012 var sendur út með allt of skömmum fyrirvara, og þar var m.a.s. alvarleg eyða aftast í 15. grein stjórnarskrár-tillagnanna á bls. 20: þar vantaði nokkrar setningar inn í, eins og einn "ráðsmaðurinn", Pétur Gunnlaugsson, viðurkenndi í síðdegisþætti (með viðtali við Valgerði Bjarnadóttur) á Útvarpi Sögu 16. okt. 2012. Samt var ekkert hirt um að koma þeim setningum til kjósenda fyrir kjördag!!! -- dæmigert um skammarleg vinnubrögðin við tilraun til stórfelldrar umbyltingar á sjálfri stjórnarskrá landsins! En vissulega var þessi kosning þó ekki bindandi.
Og ég endurtek, öllum til glöggvunar: Aðeins 48,4% kosningabærra tóku þátt í því þjóðaratkvæði, þótt milljónatugum væri veitt í að auglýsa fyrirbærið og reyna að fríska það upp, eftir að stjórnsýslu- og eftirlitsnefndin hennar ESB-Valgerðar Bjarnadóttur var búin halastýfa allar 115 tillögur þess og gefa meintum traustsverðum kjósendum aðeins færi á að taka afstöðu til sex spurninga!
Jón Valur Jensson. Höf. er formaður Samtaka um rannsóknir á Evrópusambandinu og tengslum þess við Ísland.
Reynt að bera fé á stjórnvald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2017 | 23:19
Billeg áróðurstaktík ESB-flokka dæmir þá sjálfa
Samfylking og óorðvar Ágúst Ólafur, fv. varaform.: "Hjartað ræður för", en hér sló það fyrir Brussel-valdið* og gerir enn.
Viðreisn: "Vextir eru stærsta velferðarmálið"!
Stærra en atvinnustig og laun?! Í ESB eru um 20 milljónir manna án atvinnu. Þar er atvinnuleysi 8% en öllu meira á evrusvæðinu eða 9,5%. Á Íslandi er atvinnuleysið um 3%. Í maí sl. hafði dregið úr atvinnuleysi í Bretlandi eftir að Brexit-ferlið hófst, komið niður í 4,5%. Laun hér koma nú vel út í samanburði við Norðurlönd og ESB.
Áróður Viðreisnar gengur út á, að krónan sé ómögulegur gjaldmiðill og valdi hér háu vaxtastigi og verðtryggingu. Skælbrosandi frambjóðendur Viðreisnar á flennistórum skiltum, ESB-sinnarnir Þorgerður Katrín, Þorsteinn Víglundsson og Hanna Katrín Friðriksson, pössuðu upp á að hafa ekki með á myndinni sinn niðursteypta formann, fjármálaráðherrann Benedikt Jóhannesson, en hann hefur sem slíkur ekkert gert til að lækka hér okurvexti bankanna, ýtir ekki seðlabankastjóranum Má til verka, auglýsir heldur ekki stöðu hans lausa og ber þannig sjálfur ábyrgð á vaxtastiginu! Já, sjálfur fulltrúi "Viðreisnar"!
Svo er það ein pólitíska lygin, að við myndum bæði losna við háa vexti og verðtryggingu með því að taka upp evru og ganga í Evrópusambandið. Í grein Guðmundar Ásgeirssonar kerfisfræðings, Evrumýtan um afnám verðtryggingar fjallar hann m.a. um verðtryggingu og vexti og ber fram algengar spurningar, sem hann síðan svarar, m.a.:
- Er verðtrygging lánsfjár bönnuð í Evrópusambandinu? Svar: Nei, reglur Evrópusambandsins banna ekki verðtryggingu svo lengi sem upplýst er um áhrif hennar á kostnað við lántöku.
- Myndi verðtrygging ekki hverfa eða verða áhrifalaus með aðild að myntbandalagi? Svar: Nei, verðtrygging er skilmáli sem er ekki prentaður á peningaseðla heldur samninga og slíkir samningar myndu ekki falla sjálfkrafa úr gildi þó gengið yrði í erlent myntbandalag.
- Hvernig á þá að afnema verðtryggingu lánsfjár miðað við vísitölu neysluverðs? Svar: Það er einfalt að afnema heimildina úr íslenskum lögum með samþykki meirihluta Alþingis.
- Hvað hefur þetta þá með Evrópumál að gera? Svar: Ekkert sérstakt í sjálfu sér.
Þá er þessi kafli greinar Guðmundar merkilega skýr og talandi:
Kenning: Verðtrygging er nauðsynleg því krónan er ónýtur gjaldmiðill.
Staðreyndir: Krónan er ekki ónýtari en svo að með henni má greiða allar löglegar fjárkröfur á Íslandi líkt og á við um langflesta þjóðargjaldmiðla. Verðtrygging er ekki prentuð á peninga heldur byggist hún á samningsskilmálum. Verðtrygging er ekki náttúrulögmál heldur undantekning frá meginreglu íslensks réttar um bann við verðtryggingu lánsfjár án lagaheimildar. Verðtrygging var á sínum tíma leyfð sérstaklega með bráðabirgðalögum en það hefur ekkert með gjaldmiðilinn að gera.
Kenning: Í Evrópusambandinu er verðtrygging óheimil.
Staðreyndir: Verðtrygging er ekki bönnuð í Evrópusambandinu eins og hefur verið staðfest af þar til bærum dómstólum, þó með fyrirvörum um að skilmálarnir séu skýrir og lánskostnaður vel kynntur fyrir lántaka. Allar Evróputilskipanir um neytendalán gilda nú þegar á Íslandi vegna EES-samningsins og á því yrði engin breyting með aðild að Evrópusambandinu. Verðtrygging myndi því ekki sjálfkrafa falla brott með slíkri aðild. Verðtrygging verður ekki afnumin nema með lögum frá Alþingi og slík lög mætti samþykkja alveg óháð því hvort það hefði neitt með Evrópumál að gera. (Leturbr. jvj)
Einnig þessi spurning: Er ekki óyfirstíganlega erfitt að afnema verðtryggingu? og svarið:
"Staðreyndir: Nei það er ekki erfitt að afnema verðtryggingu. Nýleg fordæmi eru fyrir afnámi tiltekinna tegunda verðtryggingar með einföldum lagabreytingum, nánast með einu pennastriki. Frumvörp um afnám verðtryggingar lána til neytenda miðað við vísitölu neysluverðs hafa verið lögð fram þrisvar frá hruni en ekki náð fram að ganga. Það eina sem þarf til að breyta því er meirihluti alþingismanna."
Undirliggjandi að baki evrutals Viðreisnar er löngun þeirra að koma Íslandi inn í Evrópusambandið, allir þingmenn flokksins hafa unnið að því, m.a. í öfugmælasamtökunum "Já Ísland!" En með inntöku í Evrópusambandið færi æðsta og ráðandi löggjafarvald héðan til Brussel, og við yrðum svipt sjálfsforræði og sjálfsákvörðunarrétti á afgerandi mikilvægum sviðum, m.a. í stjórn sjávaútvegsins. Hingað kæmu þá spænskir togarar til veiða með samþykki ESB-dómstólsins í Lúxemburg, þ.e. hins sama sem greiddi Spánverkum leið inn brezku fiskveiðilögsöguna.
* Ágúst Ólafur afhjúpaði það með formanni sínum Ingibjörgu Sólrúnu í febrúar 2009, að tilgangur þeirra og flokksins með því að krefjast nýrrar stjórnarskrár var að auðvelda inntöku Íslands i Evrópusambandið. Þetta blasir við af Vísis-viðtali við þau.
Jón Valur Jensson.
Evrópumál | Breytt 22.10.2017 kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2017 | 16:51
Eindreginn meirihluti vill Ísland utan Evrópusambandsins
Enn ein skoðanakönnun (allar frá júlí 2009) sýnir mikinn meirihluta landsmanna andvígan því að Ísland gangi í Evrópusambandið. 59,8% eru andvíg, en 40,2% hlynnt, en langtum ákveðnari er þó nei-hópurinn: örugglega á móti inngöngu eru 41,1%, en aðeins segjast 15,6% örugglega hlynnt inngöngu, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem nú var birt og Gallup gerði þó fyrir samtökin "Já Ísland" (!) sem berjast fyrir inngöngu í Evrópusambandið og hafa notið stuðnings þessa tröllslega bandalags í þeirri baráttu.
Sjálft nafn samtakanna er öfugmæli -- það eru ekki samtök sem munu fagna 100 ára fullveldi Íslands 1. desember 1918, heldur vilja það feigt. Og leiðtogar þeirra samtaka (hver eftir annan) sitja nú í ríkisstjórn Íslands og bíða þess, vonandi, að þjóðin skipti þeim út eftir 12 daga!
Nánar síðar. -JVJ.
Mikill meirihluti vill ekki í ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skoðanakannanir | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)