Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2015
25.4.2015 | 09:46
Nýjasta árás Evrópusambandsins á Ísland: gegn kolmunnaveiðum okkar!
Ekki lætur ESB sér nægja að hafa reitt hátt til höggs að Íslendingum í Icesave-málinu og gegn makrílveiðum okkar, nú vill það skerða hlutdeild okkar úr 17,63% í 4,8% í kolmunnaveiði í N-Atlantshafi á þessu ári. En sem betur fer erum við þegar búnir að úthluta íslenzkum skipum "kolmunnakvóta á grundvelli þess að hlutur okkar sé 17,63%, og skipin eru byrjuð að veiða" (Mbl.is), enda er sjávarútvegsráðherra okkar ekki í ESB-Samfylkingunni.
Leitt er til þess að hugsa, að Evrópusambandið hefur vélað Færeyinga inn í þennan þrýsting á samdrátt veiða okkar. En Færeyingar, sem næstum einir þjóða höfðu hjálpað okkur í Icesave-málinu (auk Póllands), höfðu reyndar verið sviknir af Íslendingum síðar;* eiginhagsmunaaðgerðir þeirra í kolmunnamálinu verður að skoða í ljósi þess, sem og í ljósi fyrri þjösnaskapar Brussel-manna gagnvart Færeyingum,** m.a. með þrýstingi á um löndunarbann í sjálfri Danmörku!
- Færeyingar og ESB leggja til að hlutur þeirra í kolmunnanum verði samtals 83,8% í stað 56,63% eins og verið hefur. Þar af var ESB með 30,5% heildarkvótans og Færeyjar með 26,13%. Þá leggja ESB og Færeyjar til að hlutdeild Noregs minnki úr 25,75% í 11,4% en Rússar haldi óbreyttum hlut sínum sem úthafsveiðiþjóð. Þeir hafa veitt sem svarar um 7% af samanlögðum kvóta strandríkjanna. Fyrrgreind tillaga ESB og Færeyinga um kvótaskiptingu kolmunnans kom fram á strandríkjafundi um veiðar á kolmunna fyrir árið 2015 í Clonakilty á Írlandi 21.-23. apríl. (Mbl.is)
Hér sést, að Evrópusambandið beitir sér gegn þjóðunum utan Evrópusambandsins, en þorir reyndar ekkert að stugga við Rússum! Samanlagt voru Íslendingar og Norðmenn með 43,38% kolmunnakvótans í fyrra, en nú vill Evrópusambandið skerða hann margfaldlega, allt niður í 16,2%, þó langmest hjá Íslendingum, 3,7-falt! Eru þeir svona tapsárir yfir því, að við viljum helzt ekkert með þá hafa?!
En var þetta kannski eins gott: að við fengjum að sjá framan í hið raunverulega stórveldi og innri hug þess gagnvart okkur? Ekki var hann félegur í Icesave-málinu!***
* Sjá þennan pistil á vef Þjóðarheiðurs - samtaka gegn Icesave: Færeyingar reyndust okkur bezt í Icesave-atgangi fjandsamlegra ríkja; skömmin er mikil þeirra ráðamanna sem standa ekki með þeim
** Hér sést fullveldi Dana í mikilvægu máli fokið út í veður og vind; Evrópusambandið hirti það -- Ennfremur: ESB vanvirðir rétt Færeyinga rétt eins og Íslendinga og hér: ESB í stríð við Ísland og Færeyjar og hér: Nýjasta árás ESB á Færeyinga fer fram úr öðrum hingað til
*** Sbr. ESB vann beinlínis gegn íslenzkri þjóð frá upphafi til enda í Icesave-atganginum - viðurkennt af áhrifamönnum hér! -- Auk þess, sem þar er rakið, 1) dæmdu fulltrúar ESB íslenzku þjóðina borgunarskylda í Icesave-málinu að kröfu Breta og Hollendinga, þ.e. í ófyrirleitnum "gerðardómi" sínum síðla hausts 2008, sbr. hér: ESB (útópía sumra!) vann harkalega gegn Íslandi í Icesave-málinu ; ennfremur 2): í loka-atlögunni tók Evrópusambandið þátt í málsókn Breta og Hollendinga gegn Íslendingum í Icesave-málinu fyrir EFTA-dómstólnum! sbr. hér: "Útilokað að láta eins og ekkert sé og halda áfram viðræðum um aðild að ríkjasambandi sem styður óréttmætan málarekstur gagnvart Íslandi" og hér: Framkvæmdastjórn Esb. er á bandi fjenda okkar í Icesave-málinu
Sjá einnig ýmsar greinar á þessu vefsetri, þar sem Færeyingar og yfirgangur Evrópusambandsins gagnvart þeim kemur við sögu:
http://blog.is/forsida/leit/?author_id=32945&query=F%E6reyingar -- einnig hér: http://blog.is/forsida/leit/?author_id=32945&query=F%E6reyjar
Jón Valur Jensson.
Vilja minnka hlut Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fiskveiðar, sjávarútvegur | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2015 | 00:35
Minnkandi spenningur yfir ESB-áróðursbrellum svikulla fjölmiðla
Þrátt fyrir krónískan áróður fjölmiðla ESB-fylgjandans Jóns Ásgeirs og ódyggra ríkisstarfsmanna á Rúv vilja einungis 51% halda í Össurar-umsóknina skv. nýrri Gallupkönnun, lækkun frá í febrúar þegar hlutfallið var 53,2%.
- "Að sama skapi fjölgar þeim sem eru hlynntir því að draga umsóknina til baka. Þeir voru 35,7% í febrúar en mælast nú 39%. Könnunin nú var gerð dagana 19. - 25. mars eftir að ríkisstjórnin tók þá ákvörðun um miðjan síðasta mánuð að tilkynna Evrópusambandinu að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki að sambandinu," ritar Hjörtur J. Guðmundsson blm. á Mbl.is.
Ennfremur hefur orðið veruleg fækkun í hópi þeirra sem vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald umsóknarferlisins að Evrópusambandinu, samkvæmt nýrri könnun Gallup, en 65% sögðust styðja, að slík kosning færi fram. Þetta virðist hátt hlutfall, en er þó talsvert lægra en í sambærilegri Gallup-könnun fyrir ári - þá vildu 72% þjóðaratkvæði um framhald málsins. Fyrir ári voru 21% andvíg því að slík þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin, en nú eru 24% andvíg því samkvæmt þessari nýjustu könnun Gallup og Mbl.is (tengill neðar).
Já, þessi umtalsverða breyting í rétta átt er mjög athyglisverð, miðað við allan hamaganginn og falsáróðurinn rammhlutdræga hjá nefndum fjölmiðlum, sem og, að hvaða lekabytta sem var hafði verið dregin á flot til að bera vitni með þeim um nauðsyn framhalds málsins, þar á meðal ýmsir Icesave-spámennirnir, sem brugðizt höfðu þjóð sinni á átakatímum (þótt þeir hefðu sem betur fer ekki haft sitt fram).
Hér verður því spáð, að þessi stefnubreyting haldi áfram í vaxandi mæli, þar sem sýnt hefur sig og mun áfram sýna sig, að við höfum einskis í misst með því að stefna frá því að ánetjast Evrópusambandinu; og jafnvel háðustu aðilar geta ekki endalaust haldið áfram með sína áráttuhegðan í helztu fréttatímum án þess að almenna furðu veki og vantraust.
Jón Valur Jensson.
Fækkar sem vilja þjóðaratkvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skoðanakannanir | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)