22.3.2019 | 07:52
Blaðamaður sem snýr öllu á haus? - og er utanríkisráðherrann öllum heillum horfinn?
Af hverju kallar Þórarinn Þórarinsson, áberandi pólitískur blaðamaður Fréttablaðsins, sjónarmið Styrmis Gunnarssonar gagnvart Þriðja orkupakkanum "minnihlutasjónarmið hans" í Sjálfstæðisflokknum?
Er Þórarinn svona illa upplýstur um meginmál? Veit hann ekki af samþykkt Landsfundar Sjálfstæðisflokksins um að við eigum EKKI að samþykka 3. orkupakkann?
Veit Þórarinn ekki, að yfir 90% Íslendinga eru andvíg þessum sama Þriðja orkupakka skv. gildri skoðanakönnun á liðnu ári?
Hverjum er Þórarinn að þjóna með þessum skrifum sínum?
Ummæli Þórarins eru í þættinum Frá degi til dags í Fréttablaðinu í dag og yfirskrift pistils hans Eintal sálar ... --- rétt eins og Styrmir sé nánast einn um andstöðu sína við Þriðja orkupakkann!
Þvert á móti hefur þeim farið mjög fjölgandi sem átelja harðlega daður Sjálfstæðisflokks-ráðherra við Þriðja orkupakkann og áform ESB-manna.
Ennþá alvarlegri spurninga en þessara hér fyrir ofan þarf því að spyrja þessa uppreisnar-ráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem eru að mæla Þriðja orkupakkanum bót, þrátt fyrir að í 1. lagi er engin þörf á honum (enginn sýnt fram á nauðsyn hans) og í 2. lagi er hann stórhættulegur bæði fullveldi okkar í orkumálum og myndi valda hér keðjuverkunum til margföldunar rafmagnsverðs til almennings og fyrirtækja.
Í Morgunblaðinu í gær lét Guðlaugur utanríkisráðherra svo um mælt, að það væri "auðvitað markmiðið" að fara fram með frumvarp um Þriðja orkupakkann fyrir 30. þessa mánaðar! Jæja, er það "auðvitað" markmið ríkisstjórnar lands sem vill varðveita fullveldi sitt? og er það "auðvitað" (eins og "kalda matið" hans Bjarna Ben. á Icesave-samningum) markmið þessa utanríkisráðherra að sniðganga með öllu landsfundarsamþykkt síns eigin flokks?!
Jón Valur Jensson.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Auðlindir og orkumál | Aukaflokkar: Kjaramál, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:44 | Facebook
Athugasemdir
Eru þessir menn ekki brúður deepstate. Augu Bjarna eru dálítið flóttamannaleg og eins og hann tali ekki lengur af eigin sannfæringu.
Valdimar Samúelsson, 23.3.2019 kl. 19:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.