23.4.2016 | 22:05
Stiklað á stóru í sögu fullveldis okkar, úr Reykjavíkurbréfi í dag
"... Landhelgismörk voru færð út. Enginn annar hafði haft hugsun á því.* Stórþjóðir höfðu skrapað mið upp í landsteina.** Þær sömu og kjánar treysta nú betur fyrir íslenskum hagsmunum en Íslendingum sjálfum. Löggjöf var löguð að íslenskum þörfum ..."
Sannarlega er það það engin tímaskekkja hjá höfundi Reykjavíkurbréfs að beina spjótum sínum að þeim Íslendingum, sem vilja treysta forráðamönnum annarra landa betur fyrir okkar hagsmunum heldur en þeim fulltrúum okkar sem við sjálf kjósum til forræðis okkar mála, á Alþingi og þar með á ráðherrastólum og einnig á Bessastöðum. Þeir voldugu ráðamenn innan Evrópusambandsins eru sporgöngumenn valdamanna sem iðulega hafa beitt okkur valdi, með viðskiptaþvingunum, jafnvel hafnbanni íslenzkra fiskiskipa og með hryðjuverkalögum.
En jafnvel nýrri í sögunni eru hótanir og þvinganir Evrópusambandsins sjálfs gagnvart okkur og Færeyingum í makríldeilunni. Einnig í Icesave-deilunni þurftu stjórnvöld hér að kljást við þvinganir ESB og stuðning þess (jafnvel allt inn í EFTA-dómstólinn) við kröfugerð Breta og Hollendinga á móti okkur í því máli.
Það er því greinilega mikil einfeldni á bak við hugsun eða hugsunarleysi þeirra manna, sem vilja leggja öll okkar helztu ráð í hendur valdamanna gömlu, evrópsku stórveldanna og fulltrúa þeirra í Brussel.
* Hér er greinilega átt við Dani.
** Bretar, Frakkar, Þjóðverjar, Belgar (11,2 millj. í dag) og Hollendingar (16,9 millj. í dag).
Jón Valur Jensson.
Meginflokkur: Fiskveiðar, sjávarútvegur | Aukaflokkar: Evrópumál, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:24 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.