Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
19.4.2014 | 12:10
Sigurður Oddsson verkfræðingur afhjúpar staðreyndir
Stjórnarskráin var það góð að ekki var hægt að framselja vald til ESB án þess að breyta henni. Eftir miklar æfingar gafst almenningi kostur að svara nokkrum spurningum um stjórnarskrá. Valdar voru spurningar, sem flestir gátu svarað játandi. Ekki var spurt um fullveldið. Samfylkingin kallaði svo skoðanakönnunina kosningu, sem hefði samþykkt breytta stjórnarskrá.
Allt kjörtímabilið fékk ESB forgang. Björgun heimila sat á hakanum.
Sigurður Oddsson
Þetta er úr sláandi góðri grein, Örlagavaldurinn ESB, eftir Sigurð Oddsson verkfræðing í Mbl. 16. apríl. Hann segir þar ennfremur:
Í kosningunum 2009 voru tveir sigurvegarar. Össur lofaði fyrir kosningar að koma þjóðinni í skjól ESB og Steingrímur að halda þjóðinni utan ESB. Steingrímur sveik strax loforðið og myndaði með Samfylkingunni stjórn sem hafði það að markmiði að ganga í ESB. Sveik allt fyrir ráðherrastól. Þau svik verða seint toppuð. Össur beitti öllum brögðum til að standa við sitt. Laug að þjóðin ætti von á pakka frá Brussel, sem borgaði sig að kíkja í. Það gekk þar til Jón og Gunna föttuðu, að ESB myndi ekki aðlaga regluverkið að hagsmunum Íslands. Þá sagði Össur að Ísland þyrfti engar undanþágur.
Jóhanna sást varla í stjórnarsamstarfinu. Steingrímur vann myrkranna á milli að eigin sögn jós út skattpeningum til að rétta af þjóðarskútuna. Össur tók við þar sem Halldór hætti og var mest í ESB sendiferðum. Icesave og stjórnarskráin stóðu í vegi fyrir ESB inngöngu. Í þrígang samdi Steingrímur um Icesave við þá, sem skipuðu okkur á bekk hryðjuverkamanna. Fyrsti samningurinn var svo góður, að hann krafðist þess að þingmenn samþykktu hann óséðan. Jóhanna birtist og tuktaði til þingmenn, sem hún kallaði villiketti. Ef þau frömdu ekki landráð þá veit ég ekki hvað landráð eru.
Margt fleira er í grein Sigurðar, t.d. um óhagræðið af af ýmsu sem komið hefur hingað með ESB-löggjöf (leturbr. hér):
"Í Brussel voru kaflar opnaðir hraðar eftir því sem á leið kjörtímabilið. Mér skilst, að það að opna kafla sé að samþykkja og undirgangast lög og reglugerðir ESB. Oft mörg hundruð eða þúsundir blaðsíðna í einu. Ýmislegt höfum við fengið, sem bendir til að kaflarnir séu ekki vel lesnir. Pósturinn bað mig t.d. að hækka bréfalúgu á útidyrahurð. Hún var of lágt skv. ESB reglugerð. Gefinn var frestur, að öðrum kosti yrði hætt að bera póst til mín. Ég hefi ekki heyrt frá póstinum eftir að ég lét álit mitt í ljós í Morgunblaðspistli. Við höfum líka samþykkt að nota dýrari mengandi Euro-perur. Ný byggingasamþykkt eykur byggingakostnað um 10-15%."
PS: Mjög athyglisverð grein Gústafs Adolfs Skúlasonar í dag (hann er lesendum hér að góðu kunnur): Páskaegg aðildarsinna: Völd til ESB ekki afturkræf. Jafnvel Bretlandi er sagt að sætta sig við það!
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 21.4.2014 kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.4.2014 | 15:21
Meginmarkmið Samfylkingar eru í Brussel, ekki á Íslandi
Athyglisvert er, að Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingar, talar um að þrátt fyrir að nýtt framboð ESB-sinna myndi reyta fylgi af flokki hans líti hann á það sem bandamenn frekar en andstæðinga, "vegna þess að við höfum auðvitað það aðalbaráttumál að ljúka aðildarviðræðunum ... og þarna gæti verið bandamaður fyrir okkur til að ná því megin-markmiði okkar."
Viðtal þetta var á Eyjunni. Ánægður með sitt Evrópusamband kippir Helgi sér ekki upp við að flokkur hans virðist kominn niður í ca. 10,8% fylgi, það gerir ekkert til, svo lengi sem tíðni Evrópusambandsfylgispektar í samfélaginu minnkar ekki, heldur eykst jafnvel.
Hann er sem sagt meiri ESB-maður en Samfylkingarinnar. Hans ær og kýr eru í Brusel, meginmarkmiðin eru þar, ekki á Íslandi, enda yrði landið okkar bara lítið peð á skákborði "alvörustjórnmála" þegar komið yrði inn í ESB.
EN ÞAÐ SKAL ALDREI VERÐA!
JVJ.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ESB-predikaranum Ólafi Þ. Stephensen virðist í leiðara 4. þ.m. þykja sjálfsagt að Úkraína hefði sótt um að ganga í NATO og raskað þar með öllu jafnvægi á svæðinu. Kænugarður er ein af upphafsborgum Rússaveldis, bæði veraldlega og andlega, þar var heil. Vladimír stórfursti, ættfaðir rússnesku konungs- og keisaraættarinnar, og tignaður sem þjóðardýrlingur Rússlands. Það væri fráleitt fyrir Rússa að vita af NATO-herstöð norðarlega í Úkraínu, nærri Kiev, og eins að NATO taki við Sevastopol-flotastöðinni um 2043. (Nánar um allt þetta o.fl. > http://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/1369690/ ).
En Ólafi ritstjóra ESB-Fréttablaðsins finnst líka sjálfsagt, að Evrópusambandið ágirnist Úkraínu, eins og segja má að komið hafi fram í opinberri yfirlýsingu Rampuys, forseta leiðtogaráðs ESB. (--> http://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/1366854/ ).
Sennilegt er, að samhliða hafi ESB stundað undirróðursaðferðir til að stuðla að upplausninni þar og valdatöku ESB-sinnaðra afla. Vinur minn íslenzkur á konu frá Úkraínu, og ættingjar hennar vita af því, að fólki var boðið að í endurgjald fyrir þriggja daga mótmælaþátttöku á Maidan-torginu í Kiev fengi það sem svaraði til hálfs mánaðar launa. Útþenslustefna lýsir sér ekki bara í beinu hernámi, og Brusselherrarnir geta sem bezt litið í eigin barm um tilefni þess sem nú hefur gerzt.
Jón Valur Jensson.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.4.2014 | 00:49
Fv. utanríkisráðherra, varakanzlari Þýzkalands 1998-2005, mikill ESB-talsmaður, viðurkennir hér ýmislegt athyglisvert!
Joschka Fischer á grein í Mbl. 1/4, Stund sannleikans fyrir Evrópu, ritar m.a.:
- Vissulega, hvort sem leiðtogar þess viðurkenna það eða ekki, er Evrópusambandið nú í beinum átökum við Rússa um stækkunarstefnu sína frá lokum kalda stríðsins.
Já, það er miklu athyglisverðara, hvað Fischer játar hér, heldur en hitt, sem sem hann segir í áróðursskyni. Ennfremur segir hann:
- Evrópusambandið verður að skilja að það er ekki í tómarúmi í nágrenni sínu til austurs og suðurs, og að vegna öryggis álfunnar er ekki hægt að líta framhjá mismunandi hagsmunum annarra velda þar, eða það sem verra er, samþykkja þá. Stækkunarstefna ESB er ekki bara eitthvert dýrt og forgengilegt gremjuefni; það er grundvallarþáttur í öryggi ESB og vörpun valds út á við.
Ætli innlimunarsinnar Íslands hafi áttað sig á þessu? -- Og hann segir enn:
- kannski mun meginlandið nú átta sig á því að sameining Evrópu verður að fara mun hraðar fram, því að heimurinn og nágrenni Evrópu sérstaklega hefur ekki reynst vera eins friðsamur og margir, sérstaklega Þjóðverjar, hafa litið á hingað til.
Þarna keyrir Fischer enn á samrunastefnuna, sem er raunar stefna ESB.
En þegar hann ritar:
Evrópa mun verða minna háð orku frá Rússum, fara yfir stöðu sína í öryggismálum og lykilhagsmuni, og draga til baka fjárfestingu og tvíhliða samstarf, og:
Rússland er algjörlega háð, viðskipta- og stjórnmálalega, vöru- og orkuútflutningi sínum, sem fer helst til Evrópu. Minni eftirspurn í Evrópu og olíuverð sem heldur ekki lengur uppi fjárlögum Rússa mun tálma Kremlverja fljótlega,
þá er það harla hláleg áherzla utanríkisráðherrans fyrrverandi, ESB-talsmannsins mikla, á þessum tímapunkti, þegar Rússar hafa nýverið gert risavaxinn viðskiptasamning við Japan um kaup á gasi, m.a. úr nýuppgötvuðum orkulindum á Sakhalín-eyju í Íshafinu. Með því hafa þeir til langframa gert sig langtum óháðari orkusölu til Mið-og Austur-Evrópu en þeir hafa verið fram til þessa, og það gerir þá um leið öruggari gagnvart viðskiptaþvingunum af hálfu ESB og Bandaríkjanna, m.a. vegna Úkraínu, sem Evrópusambandið ágirnist.
Jón Valur Jensson.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 01:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.3.2014 | 01:10
Það, sem Bretar geta ekki í ESB, getum við enn síður
Brezk stjórnvöld hafa greitt atkvæði gegn 55 málum í ráðherraráði ESB sl. 18 ár. ÖLL hafa þau samt náð fram að ganga þrátt fyrir þá andstöðu og orðið að lögum í Bretlandi. Þetta kemur fram hér í frétt á Mbl.is (sjá tengil neðar), þ.e. niðurstöður rannsóknar samtakanna Business for Britain sem birtar voru í dag.
Já, tökum eftir þessu! Hversu lítilfjörlegt yrði þá ekki atkvæði okkar í ráðherraráði ESB í löggjafar-ákvörðunum sem varða okkar eigin hag! JVJ.
PS. Fyrir alla muni lesið greinina Fjárhagur Evrópustofu margfaldur á við það sem sagt var í upphafi?! Styrkir hennar (ætlaðir til áróðurs) fara víða til að hafa áhrif á hugi manna! ef þið hafið ekki lesið hana nú þegar! Og tengið á Facebók!
![]() |
Höfnun Breta engu skilað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 01:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
20.3.2014 | 01:44
Sumir eru svo viðkvæmir fyrir hrakningu ESB-meðvirkra skrifa sinna
Friðrik Hansen Guðmundsson verkfræðingur fer mikinn í baráttu fyrir ESB-málstaðinn þessa dagana og var þó a.m.k. um tíma sjálfstæðismaður. Vont er að sjá hann ritskoða síðu sína nú orðið, taka ítrekað út innlegg sem voru þó ekki á neinn hátt meiðandi persónulega. Tvívegis hefur undirritaður sett þar inn athugasemd, sem jafnóðum er tekin út. Hún er við grein hans Ríkisstjórnin er ekki réttkjörin og á að segja af sér, sem nú hefur verið lokuð fyrir öllum frekari athugasemdum, en hér er mín aths. (í seinni gerðinni, þ.e. með nýjum formáls- og eftirmálsorðum):
- Tókstu í alvöru út innlegg mitt hér, Friðrik?
- Hér er það, hafirðu glatað því í klaufaskap:
- http://fhg.blog.is/blog/fhg/entry/1365538/#comment3503312
- Góð Helga! Einnig Kristján -- og svör Friðriks út í Hróa.
- Þú ert, Friðrik, sennilega einn í veröldinni um þessa fáheyrðu þverstæðuskoðun þína á stjórnarskrárbreytingu. Og sem betur fer var lögleysugjörðin stöðvuð, jafnvel Samfylkingin var með nógu slæma samvizku af henni til að voga sér ekki að keyra hana í framkvæmd.
- Svo eruð þið ESB-sinnarnir greinilega að reyna á alla mögulega vegu að fremja hér valdarán, þ.e. koma til leiðar fullkominni óvirðingu þingræðisins.
- Jón Valur Jensson, 19.3.2014 kl. 01:50
- En þú hefur einnig tekið út innlegg þeirrar mætu konu Helgu Kristjánsdóttur í Kópavogi og þar að auki a.m.k. eitt í viðbót, eins og ég fekk sjálfkrafa tilkynningu um inn í minn netpóst, það var athugasemd frá Ragnari Gunnlaugssyni. Ertu farinn að beita hér harðri ritskoðun, Friðrik minn, eða voru þetta mistök í stjórnborðinu? Þau er þá hægt að laga. Jón Valur Jensson, 19.3.2014 kl. 11:15
En ekki kaus hann að laga þetta; hann vildi einfaldlega ekki textann! Það sama átti við um innlegg frá Helgu Kristjánsdóttur, sem hann hefur þurrkað út, og annað hvassyrtara sem ég fekk afrit af í netpóst minn, þetta:
- Ragnar Gunnlaugsson: Eins gott að Friðrik náði ekki að smygla sér inn á þing í skjóli Sjálfstæðisflokksins í N.Vesturkjördæmi,eins og hann reyndi á sínum tíma,skömm okkar hefði verið mikil.
Til að textar glatist ekki, er tilvalið að menn taki afrit af þeim.
Mér er vel við Friðrik og get alls ekki kvartað undan honum persónulega. Vona að þetta verði honum til góðs lærdóms.
JVJ
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 23.3.2014 kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.3.2014 | 12:47
ESB-umsókn Össurar átti að falla 31-30
Út er komið mjög athyglisvert Heimssýnarblað (marz 2014). Einn af mörgum merkum pistlum þar hefur fyrirsögnina hér ofar og hljóðar svo í heild:
"Þrír þingmenn VG greiddu atkvæði gegn yfirlýstri sannfæringu sinni þegar ESB- umsóknin var samþykkt á alþingi 16. júlí 2009 með 33 atkvæðum gegn 28, en 2 sátu hjá. Ef þingmenn VG hefðu greitt atkvæði samkvæmt sannfæringu sinni, þá hefði ESB- umsóknin aldrei verið samþykkt heldur felld með 31 nei-i gegn 30 já-um.
Álfheiður Ingadóttir sagði þetta í sinni atkvæðaskýringu er hún samþykkti tillögu Össurar:
Frú forseti. Stuðning minn við þessa tillögu um aðildarviðræður ber ekki að skilja sem stuðning við aðild Íslands að Evrópu sambandinu. (Gripið fram í: Nú?) Ég er eindreginn andstæðingur þess að Ísland gangi í ESB og ég tel ólíklegt að aðildarviðræður muni skila samningi sem getur varið íslenska hagsmuni og auðlindir gagnvart alþjóðlegu auðvaldi og yfirþjóðlegri drottnun þess.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lét eftirfarandi ummæli falla í ræðustól þingsins þegar hún samþykkt ESBumsóknina:
Frú forseti. Ég hef þá sannfæringu að Íslandi sé betur borgið utan Evrópusambandsins en innan þess. Ég hef þá sannfæringu að bandalagið sé á krossgötum eins og heimurinn allur og þurfi á endurmati að halda. Þar þurfi að efast um mælikvarða, grundvöll og forsendur þess samfélags sem við höfum byggt á Vesturlöndum undanfarinna áratuga. Ég hef þá sannfæringu að lýðræðið sé fyrir borð borið í Evrópusambandinu vegna þess að valdið er of langt frá fólkinu. Ég hef þá sannfæringu að markmið Evrópusambandsins sé að verða stórt og sterkt og hugsanlega sjálfstæður gerandi í stríði á forsendum valdbeitingar og yfirgangs eins og um hernaðarbandalag væri að ræða.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sagði frammi fyrir alþjóð þegar hún studdi tillögu Össurar um að sækja um aðild að ESB:
Ég hef mótað mér mína afstöðu. Sem alþjóðasinni er ég krítísk á Evrópusambandið og ég tel hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins en innan þess.
Ef þessir þingmenn VG, þar af tveir ráðherrar, hefðu greitt atkvæði samkvæmt yfirlýstri sannfæringu sinni, þá hefði tillaga Össurar um að sækja um aðild að Evrópusambandinu fallið, 31 hefði sagt nei, 30 já og 2 setið hjá.
ESB-umsóknin fór umboðslaus frá alþingi, VG klofnaði og almenningur kaus af sér vinstriflokkana með afgerandi hætti vorið 2013. Það eina sem eftir er að gera er að afturkalla umboðslausu umsóknina." (Tilvitnun lýkur í Heimssýnarblaðið.)
Hér skal að lokum minnt á 48. grein stjórnarskrárinnar (feitletr. hér):
- Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 19.3.2014 kl. 01:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
12.3.2014 | 22:33
Vel mælt, í tilefni áróðurs-ásóknar á þingmeirihlutann sem vill ekki sjá neina ESB-inntöku landsins
- Hermann Guðmundsson lét svo ummælt í blaðagrein, að það væri umhugsunarefni þegar fólk, sem enginn hefði kosið, gerði aðsúg að kosnum fulltrúum með fúkyrðum, uppnefningum, útúrsnúningum og háðsyrðum, allt til að hafa áhrif á ákvarðanir þeirra.
- "Þetta er allt gert í nafni lýðræðisins," segir Hermann. "Markmiðið er síðan að færa lýðræðið frá fólkinu til fulltrúanna í Brussel sem enginn hefur kosið og ekki er hægt að fjarlægja með lýðræðislegum hætti.
- Er furða þó að manni verði orða vant?"
Mbl. í dag, bls. 36.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 22:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vitaskuld er það rétt hjá forsætisráðherra, að "það er órökrétt að sækja um [Esb-]aðild og vera að reyna að komast inn í sambandið ef menn vilja ekki að þær viðræður beri árangur."
Málþóf örvæntingarfullra Evrópusambandssinna á Alþingi í dag, undir liðnum 'störf forseta', sem flestir hafa þó lýst trausti sínu á, blasir við þeim, sem fylgjast með umræðunni. Reynt er að þæfa málið í stað þess að ræða það sem er efsti liður á óafgreiddri dagskrá þingsins í dag: 'Umsókn Íslands [sic] um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka' (340. mál).
Kl. rúml. 17 í dag gerði þingforseti hlé á þingfundi, og hefst hann aftur kl. 17.45, en verður þá aftur farið að ræða 'störf forseta'?!
JVJ.
![]() |
Það geta ekki allir orðið glaðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.2.2014 | 00:22
Útþensla Evrópusambandsins
<http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/b/bb/EC-EU-enlargement_animat
ion.gif> File:EC-EU-enlargement animation.gif
PS. Og nú vill Evrópusambandið komast yfir Úkraínu að auki! stóra ríkið austan við Rúmeníu, Pólland og Slóvakíu ! JVJ.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 01:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)