20.2.2013 | 20:25
Á bláþræði hangir vinstri stjórnin í þinginu, enda með um 24% stuðning landsmanna!
Það er vegna þess þvergirðingsháttar Þórs Saari að vilja ALLA stjórnarskrártillögu stjórnlagaráðs þ.m.t. fullveldisframsalið í þágu ESB sem hann loks lætur verða af því að bera fram vantraust á ríkisstjórnina, sem sprungin er á limminu að "klára" stjórnarskrármálið, eins og var heitasta hugsjón ESB-styðjandi Valgerðar Bjarnadóttur, Álfheiðar Ingadóttur o.fl. (og Steingrímur Jóhann, maður illa áttaður, hefur þegar lýst ankannalegum vilja sínum til að keyra í gegn fullveldisframsalsheimildina!).
Báðir stóru stjórnarandstöðuflokkarnir munu styðja vantrauststillöguna, en e.t.v. með breytingartillögu af hálfu Valhallarmanna varðandi dagsetningar þingslita o.fl.
Trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar er rokinn út í veður og vind vegna Icesave- og ESB-svikanna, eins og snemma kom í ljós í þjóðaratkvæðagreiðslum, sem forseti Íslands bauð til, og í áhrifunum af réttlátum ESTA-dómnum nýlega. Stefnuskrártrúir fv. vinstri grænir þingmenn, sem hrakizt höfðu úr þingflokknum vegna ofríkis Brusselvina þar í forystunni, eru ekki líklegir til að bjarga "stjórnarmeirihlutanum" úr snörunni, enda er sá meirihluti fyrir bí og löngu fyrir bí í hugum almennings, eins og birtist Steingrími og Jóhönnu átakanlega í nýlegum skoðanakönnunum.
JVJ.
![]() |
Líf ríkisstjórnar hangir á bláþræði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2013 | 18:34
Bretar að fá upp í kok af Evrópusambandinu - aðeins 33% vilja að landið verði þar áfram!
Þetta er ljóst af nýbirtri skoðanakönnun sem birt er í Financial Times í dag. Þegar frá eru taldir óvissir, myndu rúml. 60% kjósa úrsögn, en tæpl. 40% áframhald ESB-þátttöku. Mikil ánægja er með ákvörðun Camerons að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um málið árið 2017, eins og fram kemur hér á eftir, þótt ekki megi gleyma hinu, að margir vilja slíkt þjóðaratkvæði enn fyrr.
- Fram kemur í frétt blaðsins að 50% myndu greiða atkvæði með því að Bretland segði skilið við Evrópusambandið, 33% að þeir yrðu þar áfram innanborðs og 17% tóku ekki afstöðu til þess. Þá kemur einnig fram í niðurstöðunum að 50% breskra kjósenda sé ánægður með þá stefnu Davids Cameron, forsætisráðherra Bretlands, að halda þjóðaratkvæði um veruna í sambandinu en gert er ráð fyrir að slík kosning fari fram árið 2017. Einungis 21% aðspurðra voru óánægðir með þá stefnu. (Mbl.is, nánar þar.)
Svo eru vinstri flokkar á Íslandi að bera víurnar í þetta Evrópusamband, bjóða það jafnvel velkomið með hundraða milljóna króna áróðursbatterí bæði nyrðra og syðra, fyrir utan milljarða króna IPA-styrkja til að mýkja upp sem flesta,* og ekki klígjar ráðamenn hér við því að gera þetta í kjölfar þess, að ESB vann beinlínis gegn íslenzkri þjóð frá upphafi til enda í Icesave-ásókninni og hefur uppi ófyrirleitnar kröfur og hótanir vegna makrílveiða Íslendinga í okkar eigin fiskveiðilögsögu!
* Skattborgarar í ESB þurfa að borga þessa IPA-styrki og fá sjálfir ekki slík framlög, en um leið og Everópusambandinu hefði tekizt að gleypa okkar litla lýðveldi, fengjum við ekki snefil í viðbót af slíkum styrkjum, þeir eru ekki til þess sniðnir að auðga okkur til frambúðar, heldur þjóna þeir öðrum tilgangi Brusselvaldsins ...
JVJ. tók saman.
![]() |
Þriðjungur vill vera áfram í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2013 | 14:35
Vilja Vinstri græn nýjan ESB-formann í flokki sínum, Katrínu Jakobsdóttur, eða kannski Ögmund Jónasson?!
"Ég veit ekki fyrir hvað Katrín stendur hugmyndafræðilega þrátt fyrir tvö ár í þingflokki VG. Katrín verður að taka slaginn við Steingrím J. sem ætlar sér örugglega að verða skuggastjórnandi VG, segir Lilja Mósesdóttir, en ekki berst Katrín fyrir fullveldi landsins, svo mikið er víst, og hafnaði því 16. júlí 2009 að veita þjóðinni heimild til að segja nei eða já um umsókn Katrínar og sjö annarra þingmanna VG um inntöku Íslands í Evrópusambandið.
Já, þetta er staðreynd málsins um hina fyrirferðarlitlu, brosmildu Katrínu Jakobsdóttur, sem 1. desember 2008 mætti sem ræðumaður á fundi sjálfrar Heimssýnar í Gerðarsafni í Kópavogi til að hala þar inn atkvæði fyrir næstu þingkosningar, að þegar á reyndi vildi hún ekki einu sinni leyfa þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-umsóknina! Tillagan um umsóknina er hér: http://www.althingi.is/altext/137/s/0256.html). Katrín sagði NEI í atkvæðagreiðslunni um þjóðaratkvæði, sjá hér: http://www.althingi.is/dba-bin/atkvgr.pl?nnafnak=41077
Svo hlýðin eða sammála var hún formanninum Steingrími, að hún greiddi umsókninni sjálfri atkvæði sitt, þvert gegn því sem fimm samflokksþingmenn þeirra gerðu (Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Jón Bjarnason og Þuríður Backman). Guðfríður Lilja Grétarsdóttir greiddi hins vegar ekki atkvæði, og átta þingmenn flokksins sögðu "já", þar á meðal Ögmundur Jónasson!
Sjá um þessa atkvæðagreiðslu: http://www.althingi.is/dba-bin/atkvgr.pl?nnafnak=41080
Ferill málsins: http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=137&mnr=38
Um atkvæðagreiðslurnar, sjá hér (þar er líka hægt að smella á tengla inn á tillögurnar sjálfar): http://www.althingi.is/dba-bin/nafnak.pl?btim=2009-07-16+12:02:46&etim=2009-07-16+14:00:42&timi=12:02-14:00
Um þrautseiga húsbóndahollustu Katrínu Jakobsdóttur undir hrikalegri leiðsögn Steingríms J. Sigfússonar í þessu máli rétt eins og í Icesave-málinu verður ekki efazt, nema hún sé einfaldlega svona forfallinn ESB-innlimunarsinni sjálf.
Ef Vinstri græn hyggjast endurnýja sig siðferðislega og hlaða batteríin jákvæðum straumum á komandi landsfundi, vilja þau þá kjósa sér nýjan ESB-sinnaðan formann til flokksforystu?
Frammi fyrir þeirri alvarlegu samvizkuspurningu standa þeir nú, þegar Steingrímur J. hrekst með réttu og vonum seinna af formannsstólnum.
Jón Valur Jensson.
PS. Eitt enn frá Lilju Mósesdóttur:
- Vandmálið við Katrínu er hins vegar að hún hefur aldrei farið gegn Steingrími J. Nægir að nefna Icesave-málið og lækkun virðisaukaskatts á umhverfisvænar bleiur sem hún gat ekki stutt, þrátt fyrir að hafa gefið út bók um umhverfisvænt uppeldi. (Mbl.is)
![]() |
Veit ekki fyrir hvað Katrín stendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2013 | 14:49
Lýðræðisvaktin hallar sér að Evrópusambandinu!
Í ljós er komið að Lýðræðisvaktin "stjórnlagaráðsmanna" (3ja eða fleiri af 25) er enn eitt framboðið sem hallt er undir Evrópusambandið, enda með Þorvald Gylfason ESB-mann o.fl. slíka innanborðs.*
"Íslands ógæfu / verður allt að vopni", ef þessi tilraun og Guðmundarframboð Steingrímssonar og Róberts Marshall (sem báðir eru eindregnir evrókratar) fá einhvern framgang í kosningunum.
Árásargjarnt ESB (sbr. makríl og Icesave og ásókn í landið) ætlar áfram að reynast hinn versti klofningsvaldur í samfélaginu, truflar okkur frá einbeittri lausn skuldavanda fólks og að bjóða upp á ný atvinnu- og framkvæmdaúrræði í stað athafnaleysis stjórnvalda í atvinnumálum.
* Sjá nánar hér: Enn eitt ESB-framboðið - "stjórnlagaráðsmanna"!
Jón Valur Jensson.Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2013 | 18:21
Stefán Haukur Jóhannesson agiterar fyrir gæðum "samningaviðræðnanna" og "ferlisins" og lokar augum fyrir blýþungum ástæðum andstöðu Íslendinga við ESB-innlimun
Um hvað þykist þessi Stefán Haukur Jóhannesson, "aðalsamningamaður Íslands í viðræðunum um inngöngu Íslands í ESB", vera að "semja"? ESB hefur gert það kýrskýrt að rangt er að tala um "að semja" í aðildarviðræðum, sjá þess eigin yfirlýsingu um það hér.*
Stefán Haukur talar líkindalega við litháískan fréttavef um það að um mitt næsta kjörtímabil, vorið 2015, verði Ísland komið vel á veg í þeim efnum "að ganga í sambandið og hafa þannig bæði lokið viðræðunum og haldið þjóðaratkvæðagreiðslu um málið," en ekkert umboð hefur hann til "bjartsýnna" yfirlýsinga af þessu tagi, og ekki er hann hlutlaus í málinu, nota bene, enda ekki líklegt af manni sem núverandi Icesave- og ESB-hundtrygg stjórnvöld hafa valið til starfa; hér er einnig tekið mið af andanum í útvarpsviðtölum sem heyrzt hafa við Stefán Hauk. Vel má vera, að hann eigi ágætan fyrri feril, en hér er hann í þjónustu stjórnvalda, ráðherra og þingmeirihlutans sem hangir raunar nú á horriminni, enda njóta stjórnarflokkarnir aðeins 24,8% fylgis meðal þjóðarinnar skv. síðustu skoðanakönnun! Það væru því öfugmæli eða í bezta falli skrýtla að segja þau hafa aktúelt umboð frá þjóðinni til þessara hluta, því að alla tíð frá umsókn Össurar & Co. 2009 hafa allar skoðanakannanir sýnt skýra meirihlutaandstöðu við að Ísland fari inn í Evrópusambandið.
- "Stefán Haukur segist alltaf hafa viljað tala varlega í þessum efnum og ekki viljað gefa neinar dagsetningar hvenær umsóknarferlinu kynni að ljúka" en "vonist þó til þess að á síðari helmingi þessa árs, þegar Litháen fari með forsætið innan Evrópusambandsins, verði hægt að loka sem flestum af þeim viðræðuköflum sem hafi verið opnaðir en af 35 viðræðuköflum hefur 11 verið lokað og 16 aðrir opnaðir." (Mbl.is.)
Menn hafa haft á orði, að við eigum eftir að "gá í pakkann", en ef þetta væri raunverulegur samningapakki, þ.e. "kaflar" hans og það frágengnir, af hverju eru þeir ekki birtir? Staðeyndin er sú, að kaflavinnan öll snýst um að aðlaga Ísland að Evrópusambandinu og tryggja, að við inntöku landsins í þetta stórveldabandalag verði ekkert að vanbúnaði að innlimunin gangi hratt fyrir sig.
Þegar Stefán er spurður "um afstöðu almennings á Íslandi til inngöngu í Evrópusambandið, segir hann meirihluta þjóðarinnar vera á móti inngöngu eins og sakir standi." (Mbl.is-fréttin).
Eins og sakir standi? Nei, ALLTAF. Maðurinn á að segja satt. Er hann ekki á launum hjá íslenzkum skattgreiðendum?
- Þá segist hann aðspurður telja að það sem valdið hafi andstöðu á Íslandi við inngöngu í sambandið hafi annars vegar verið Icesave-deilan og hins vegar efnahagsástandið á evrusvæðinu.
Hér skrökvar hann með þögninni rétt eins og staðhæfingum sínum. Efnahagskreppan á evrusvæðinu var ekki slík ástæða árið 2009, þegar verst horfði hér, enda þá ekki komin í algleyming. Þjösnagangur ESB í sambandi við Icesave-málið, sem hefur uppgötvazt bæði seint og snemma, hefur vissulega verið ástæða bæði tortryggni og andstöðu við ESB-"aðild" (eins og það er kallað svo léttúðugu nafni; innlimun væri réttara orð). En a.m.k. þrennt annað kemur hér líka til sem sterkar ástæður andstöðunnar við Evrópusambandið á Íslandi:
- Sú staðreynd, að fullveldið yrði tekið af þjóðinni í hennar mestu málum, um jafnvel æðsta og ráðandi löggjafarvald, framkvæmdavald, t.d. í fskveiðistjórnun, og dómsvald.
- Vitundin um það skriffinnskubákn og þá miklu forræðishyggju sem fylgt hefur þessu bákni.
- Makríldeilan, þar sem ESB hefur tekið afar harða afstöðu gegn rétti Íslendinga til sinnar eigin landhelgi og gegn þjóðarhagsmunum.
Hér blasir svo við disinformantzia Stefáns Hauks:
- Stefán er einnig spurður út í sjávarútvegsmálin í tengslum við viðræðurnar við Evrópusambandið og segist hann telja að hægt verði að ná fram sérlausn vegna fiskveiða við Ísland sem rúmist innan sameiginlegrar fiskveiðistefnu sambandsins og án þess að gengið sé gegn grundvallarreglum þess. Hann segist telja sameiginlegu stefnuna nógu sveigjanlega til þess að hægt verði að koma til móts við hagsmuni Íslands.
Þetta er allsendis fráleit yfirlýsing, og hvernig ætti hann að geta miðlað einhverjum slíkum upplýsingum (raunar um það, sem hann "telur"), þegar hann hefur haft nóg að gera allan tímann við að fást við alla hina "kaflana" og ekki snert við þessum um sjávarútvegsmálin?!
Sameiginlega stefnan í ESB felur í sér jafnan aðgang allra ESB-borgara að fiskimiðunum,** og það er ekki hægt að samrýma það með neinu móti varanlegum yfirráðum og einka-nytjarétti hinna einstöku þjóða að eigin miðum. "Reglan" um "hlutfallslegan stöðugleika fiskveiða" hvers ESB-ríkis er einungis tímabundið fyrirkomulag, breytilegt og afleggjanlegt í sjálfu sér, og ráðherraráð ESB hefur allt vald í þeim löggjafarefnum; þar hefðum við 0,06% atkvæðavægi við slíka ákvörðun!
Neðanmálsgreinar:
* Kjarninn í þeirri samantekt er hér: Upplýsingarnar frá framkvæmdastjórn ESB:
- Inntökuviðræður (e. Accession negotiations [oftast kallaðar hér aðildarviðræður])
- Inntökuviðræður varða hæfni umsækjandans [umsóknarríkisins] til að taka á sig skyldurnar sem fylgja því að verða meðlimur [í Evrópusambandinu]. Hugtakið "viðræður" getur verið misvísandi. Inntökuviðræður beinast sérstaklega að (focus on) skilyrðum og tímasetningu á því, að umsóknarríkið taki upp, innfæri og taki í notkun reglur Evrópusambandsins, um 100.000 blaðsíður af þeim. Og þessar reglur (sem einnig eru þekktar sem acquis, franska orðið um "það sem samþykkt hefur verið") eru ekki umsemjanlegar (not negotiable). Fyrir umsóknarríkið er þetta í kjarna sínum mál sem snýst um að samþykkja hvernig og hvenær ESB-reglur og ferli verði tekin upp og innfærð. Fyrir ESB er [hér] mikilvægt að fá tryggingar fyrir dagsetningu og virkni hvers umsóknarríkis í því að innfæra reglurnar.
** Dæmi úr textanum sem finna má gegnum tengilinn (miklu meira þar):
- "Jafn aðgangur að hafsvæðum og auðlindum hafsins er meginregla í fiskveiðistefnu Evrópusambandsins. Meginreglan um jafnan aðgang (equal access) hefur gilt frá árinu 1970 þegar fyrsta reglugerð ESB um sjávarútvegsmál var samþykkt.
- "Við aðild Íslands að ESB yrðu fjárfestingar annarra ESB borgara og fyrirtækja í íslenskum sjávarútvegi heimilar. Ekki mætti mismuna erlendum aðilum í óhag, enda ættu allir að sitja við sama borð."
- "Rétturinn til að búa, starfa og fjárfesta hvar sem er í Evrópusambandinu er grundvöllur samstarfs aðildarríkjanna og því gefst lítið svigrúm til að banna einstaklingum og fyrirtækjum að fjárfesta í sjávarútvegsfyrirtækjum annarra aðildarríkja."
Jón Valur Jensson.
![]() |
Komin langt á veg vorið 2015? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sigurður Ragnarsson ritar:
ESB-sinnar hér og annars staðar hafa oft dálítið sérstakar hugmyndir um stjórnarskrármál, sem lýsir sér meðal annars í því, að hinn 20. febrúar dæmir Hæstiréttur Danmerkur, hvort í framhaldi af Lissabonsáttmálanum eigi að breyta stjórnarskránni á þessa leið: "Den lovgivende magt er hos Europakommissionen og Unionens ministerråd i forening eller hver for sig. Nogle gange er den hos EF-Domstolen. Den udøvende magt er hos Europakommissionen og EU-Domstolen i forening eller hver for sig. - Beføjelser, som ikke udnyttes af Unionens myndigheder, kan udfyldes af Folketinget, regeringen eller danske domstole. Dog må ingen af deres handlinger stride mod unionsretten" (Heimild: Demokratisk Europa á Facebook).
Varla er einboðið, að Danir hefðu gengið í ESB árið 1973, ef þetta hefði verið stafað svona ofan í þá, en nú er erfitt að snúa til baka. Það er auðvitað, ef slík breyting verður ofan á, að gildi dönsku stjórnarskrárinnar rýrnar mjög mikið.
Það hafa ýmsir tjáð sig um málið hjá Demokratisk Europa, og væntanlega er hægt að finna fleiri heimildir, sem skýra málið ef til vill betur.
Viðauki JVJ:
- Sigurður upplýsti um þetta á Facebók JVJ og leyfir góðfúslega endurbirtingu þessara athyglisverðu upplýsinga.
- Greinilega eru stofnanir ESB gerðar þarna rétthærri dönsku löggjafar-, framkvæmda- og dómsvaldi (þjóðþings, ríkisstjórnar og dómstóla): "Beføjelser, som ikke udnyttes af Unionens myndigheder, kan udfyldes af Folketinget, regeringen eller danske domstole. Dog må ingen af deres handlinger stride mod unionsretten," og í lokin í þessari tilvitnun er tekið fram, að viðaukar við löggjöf, framkvæmdir eða dóma ESB af hálfu Dana í þeirra stofnunum mega EKKI stríða gegn rétti ESB! (unionsretten). Svo tala sumir hér um, að við myndum halda fullveldi okkar innan Evrópusambandsins!!!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ESB-handbendið Össur Skarphéðinsson ástundar nú hvaðeina sem bossar hans í Brussel ætla honum að koma til skila á Íslandi, þ.á m. að láta í veðri vaka, að EES-samningurinn sé á faralds fæti og að tvíhliða samningar séu á útleið, allt til að láta líta svo út sem Íslendingar o.fl. þjóðir verði bara að láta innlimast í þetta skrifræðisbákn og stórveldi gömlu nýlenduveldanna í Evrópu.
Nú er orðataktíkin sú að segja "ESB orðið hundleitt á EES" og "hundleitt á tvíhliða samningunum við Sviss." Hvers lags fyrirbæri væri það ríkjasamband (og á hraðferð til að verða algert sambandsríki) sem stæði ekki við gagnkvæma samninga? Heldur Össur virkilega, að þetta mæli með þessu fyrirbæri sem hann dýrkar sýknt og heilagt frá morgni til kvölds?
Við getum alveg treyst viðskiptasamningum okkar við Bandaríkin, Kanada og fjölmörg lönd, jafnvel Rússland, en sem sagt ekki við Evrópusambandið -- fróðlegt, ráðherranefnan þín, sem færir okkur þessi tíðindi hingað!
Þá kemur fram hér í frétt af nýframlagðri skýrslu Össurar um utanríkis- og alþjóðamál, "að sífellt gengi verr að fá Evrópusambandið til þess að fallast á undanþágur fyrir Ísland innan EES-samstarfsins og viðurkenna sérstöðu landsins í því sambandi sem eyju, til að mynda varðandi raforkumál og samgöngumál."
Vel og réttilega tók Vigdís Hauksdóttir alþm. við sér í umræðu um þetta í dag:
- Spurði hún ráðherrann hvernig hann gæti á sama tíma haldið því fram að Ísland gæti fengið einhverja sérmeðferð ef það gengi inn í sambandið einmitt vegna þess að landið hefði sérstöðu sem eyja.
"Sérstöðu"-fullyrðingin er hreint Össurarbull, og nú álpaðist hann til þess í dag að bera vitni gegn sínum eigin áróðri þess efnis á liðnum misserum, að við myndum í krafti "sérstöðu sem eyja" fá að halda okkar fiskimiðum óskertum, þótt við færum inn í Evrópusambandið! Nú er allt í einu komið í ljós í klaufatali hans á þingi í dag, að "sérstaða" yrði einskis virt.
Og ef út í það er farið, hefur ekki aðeins Malta orðið að gefa "sérstöðu" sína sem eyja upp á bátinn, heldur einnig Stóra-Bretland! Þar fengu Spánverjar hagstæðan dóm í ESB-dómstólnum í Lúxemburg, þar sem lög Breta til að verja einkarétt til eigin 200 mílna lögsögu voru send beinustu leið í ruslakörfuna, af því að þau brytu gegn gildari ESB-reglum!
Jón Valur Jensson.
![]() |
ESB hundleitt á EES-samningnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 29.4.2016 kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.2.2013 | 02:09
Fordæmi komið fyrir brottrekstri ESB-manna vegna ólöglegrar starfsemi* þeirra hér á landi
![]() |
Pólitísk taugaveiklun og Kanafóbía |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 02:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.2.2013 | 03:00
Evrópusambands-inntaka kemur ekki til greina fyrir sanna lýðveldis- og fullveldissinna
Framsóknarflokkurinn er sennilega skástur flokka á Alþingi í ESB-andstöðu, en hefur áður brugðizt í málinu (2008-9) og gæti vel talað enn skýrar en hann gerði á nýafstöðnu flokksþingi sínu, a.m.k. ef miðað er við meðfylgjandi viðtal.
- Það er alveg hreint samkvæmt þessari ályktun að nú verður ekki lengra haldið. Þeim verður hætt og ekki hafnar aftur nema þjóðin vilji halda áfram aðildarferlinu, sagði Frosti Sigurjónsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, um ályktun flokksins um utanríkismál sem samþykkt var á flokksþinginu í dag.
Halda áfram hvaða ferli, sem kasta ber og kastað verður fyrir róða?
- Þar segir og: Framsóknarflokkurinn telur hag lands og þjóðar best borgið utan Evrópusambandsins. Ekki verði haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ágæt fyrri setningin hér, en er Framsókn með þeirri seinni að láta í ljós þá hugmynd, að hún myndi fást til stjórnarþátttöku upp á þau býti að gefa grænt ljós á slíka þjóðaratkvæðagreiðslu að vilja samstarfsflokks í ríkisstjórn? Getur flokkurinn ekki einfaldlega sagt, að hann taki ekki í mál neinar umræður um stefnu inn í hið valdfreka, evrópska stórveldi, sem þegar hefur beitt sér frekjulega gegn þjóðarhagsmunum hér í tveimur stórum málum?
- Nú eru bara 30% þjóðarinnar sem segjast vilja ganga inn í Evrópusambandið og hugsanlega með skilyrðum. Það er því farsælast að gera hlé þar til almennur vilji er fyrir aðild, segir Frosti.
Hreinskiptnara væri að segja, að Framsóknarflokkurinn hafi þá stefnu -- ef sú er stefna hans -- að inntaka/innlimun í risaveldið, þar sem 10 gömul nýlenduveldi hafa yfirburða-atkvæðavægi til ákvarðana, KOMI ALDREI TIL GREINA og að flokkurinn ljái aldrei máls á því að gera neitt sem fært geti Ísland nær slíkri "aðild", inntöku (accession) eða innlimun.
Af flokkum, sem tilkynnt hafa framboð, eru Hægri grænir harðastir gegn því, að Ísland verði tekið inn í Evrópusambandið.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Íslandi best borgið utan ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 03:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.2.2013 | 11:23
Umboðslaus ESB-inntökuumsókn vék þjóðinni út af braut lýðræðis
Tómas ingi Olrich, fyrrv. alþm., setur fingurinn réttilega á höfuðkjarna máls, þegar hann ritar í Mbl. í dag:
- Er það í anda lýðræðisins að sækja um aðild að Evrópusambandinu, án þess að ganga úr skugga um að þjóðin styðji þá umsókn?
- Er það ásættanlegt frá sjónarmiði lýðræðisins, ef annar þeirra stjórnmálaflokka, sem standa að umsókn Íslands, er yfirlýstur andstæðingur aðildar?
- Ef svarið við þessum tveimur spurningum er já er ríkisstjórn Íslands á réttri braut í viðræðum sínum við ESB. Ef svarið er nei er þjóðin komin út af braut lýðræðisins undir forystu ríkisstjórnarinnar og þeirra sem umsóknarferlið styðja." (Leturbr. JVJ.)
Vel mælt hjá þessum þaulreynda fyrrverandi sendiherra í Frakklandi og ráðherra. Hann segir enn í hlífðarlausri skarpskyggni sinni:
- "Ákvörðunin um aðildarumsókn er eitt stærsta skref, sem tekið hefur verið í íslenskum stjórnmálum frá stofnun lýðveldisins 1944. Óraunhæft er að reikna með því að þessi blekkingarleikur hafi engin eftirmál. Hann mun hafa það gagnvart Evrópusambandinu, en ekki síst gagnvart íslensku þjóðinni.
- ... Nú er svo komið að mikið efni er framleitt um þessa dapurlegu hlið lýðræðisþróunar í Evrópu. Meðal þess eru þættir, sem sýndir hafa verið í norrænum sjónvarpsstöðvum.
- Rétt er að athuga það, að umræður um vaxandi veikleika lýðræðisins innan ESB eru langt frá því að vera höfuðverkur þeirra einna, sem eru almennt á móti aðild að bandalaginu. Ég á fjölmennan hóp vina og kunningja í Evrópulöndum, sem eru heiðarlegir og einarðir stuðningsmenn ESB, en hafa þungar áhyggjur af því sem ESB kallar sjálft lýðræðishalla sambandsins. ...
JVJ tók saman.
![]() |
Lýðræðishalli ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)