23.10.2018 | 20:40
"Ef þessi tilskipun ESB verður samþykkt á Alþingi, eru varnir okkar farnar"
Snilld var ræða Vigdísar Hauksdóttur lögfr. og fv. alþm. á fundinum um 3. orkumálapakka ESB á Háskólatorgi í gær. Hér eru nokkur af helztu atriðum ræðunnar, sem fljótlega verður raunar hægt að nálgast í heild á myndbandsupptöku af henni á netinu.
Vigdís er mjög vel heima um þessi mál, síðan hún stóð í stríðu í Alþingi að tala gegn ESB-umsókn Samfylkingarmanna, og þekkir á þeim ýmsa fleti, sem öðrum eru ekki endilega ljósir, eins og fram kom í ræðu hennar. Hefur hún áfram fylgzt vel með ESB-málum og sér það glögglega, að í þessu tilfelli enn einnar EES-tilskipunar og tillögu um að innfæra hana í lög Íslands er um að ræða enn eitt dæmi um "spægipylsuaðferðina", þ.e. að koma öllu regluverki Evrópusambandsins á okkur í smáum eða stærri skömmtum, hverjum eftir annan.
"En hér er verið að fjalla um náttúruauðlindir" Íslands.
Ásækni ESB í þessu efni ber að skoða í ljósi þess, að "mikill orkuskortur er í Evrópu, verið er að loka þar ýmsum orkuverum, kola- og kjarnorkuknúnum, sem eru talin úrelt og mengandi." (Orð V.H. hér jafnan höfð með tilvitnunarmerkjum.)
"Ef Ísland væri í ESB, stæði þessi umræða um Þriðja orkumálapakkann ekki yfir, því að við værum þá undir Lissabon-sáttmálanum" og lög ESB lög hér og engin von til þess að atkvæði okkar hefði neitt vægi gegn því í ESB-stofnunum. (Af þessu sést raunar, hve gersamlega valdalaus við hefðum verið eftir "inngöngu" í Evrópusambandið, við myndum engu ráða t.d. um ákvörðun um sæstrenginn, og eins og bent hefur verið á, gæti ESB þá t.d. látið reisa hér ótal vindmyllur um landið og spillt hér útsýni. Aths. JVJ.)
"Það er skylda eins ríkis í ESB að skaffa öðru ríki þar orku, ef hana skortir."
"Það var í raun búið að opna orkupakkann [þ.e. stefnuna á þann þriðja] í ESB, þegar ESB-umsóknin [hans Össurar & félaga] stóð yfir," því að Lissabon-sáttmálinn gaf framkvæmdastjórninni valdheimildir í þessa átt.
"Íslendingum var lofað láni frá ESB til að leggja sæstreng, ef Ísland gengi í ESB"! Þetta var þegar umsóknin um inngöngu í Evrópusambandið var á döfinni hjá Samfylkingunni 2009, þá var lofað þessu láni, partur af því að lokka okkur inn, en þarna sést, að strax var meðvitað farið að stefna á þennan sæstreng á meginlandinu árið 2009.
"Þingmenn eru undir gríðarlegri pressu ekki aðeins frá ESB, heldur einnig frá norskum stjórnvöldum að samþykkja 3. orkupakkann." En eins og ítrekað kom fram á fundinum (og Vigdís veit vel), myndi norska þjóðin kunna Alþingi heilar þakkir fyrir að hafna þessari ESB-tilskipun, því að 70% Norðmanna eru andvíg innfærslu hennar þar í landi.
"Ef þessi tilskipun ESB verður samþykkt á Alþingi, eru varnir okkar farnar."
"Á ráðstefnu Háskólans í Reykjavík um málið voru aðallega fylgismenn tilskipunarinnar í panelnum." [Svo var einn lesandi að kvarta hér á Fullveldisvaktinni, að ráðstefnan á Háskólatorgi HÍ í gær hefði verið "aðeins einhliða áróðursfundur"; en ekki varð þess vart, að viðkomandi segði það sama um fund HR! Ennfremur reyndi formaður Heimssýnar, próf. Haraldur Ólafsson, hvað hann gat til að fá meðmælendur Þriðja orkupakkans til að verða meðal ræðumanna í gær -- reyndi það í ráðuneytinu og víðar, en fekk engan til að taka að sér slíkt hlutverk; þetta upplýsti hann í fundarslitaræðu sinni í gær.]
Norðmenn vita, að þessi tilskipun, gerð fyrir mun stærri þjóðir, á ekki við um aðstæður í þeirra landi, og ennþá síður á hún við á Íslandi. Ennfremur er enn ekki víst, að það myndi borga sig að flytja rafmagnið þessa löngu leið, svo mikil eru afföllin með núverandi tækni.
Undir lokin vék Vigdís að því, að mikið hefði verið reynt á sínum tíma að gera gys að henni fyrir að tala um "hreina orku" frá orkuauðlindum Íslands og hins vegar "skítuga orku" frá evrópskum orkuverum (kola-, olíu- og kjarnorkuknúnum), sem við fengjum hingað til baka. En nú eru einmitt orkufyrirtæki hér farin að selja eignarkvóta í sínum vottaða orkuforða og taka við óhreinum, neikvæðum kvótum í staðinn, þannig að nú geta t.d. íslenzk garðyrkjufyrirtæki ekki lengur auglýst sig með vörur sem framleiddar eru með græna, endurvinnanlega orku að baki, því að þá yrði sagt við þau: Nei, þið eruð ekki með hreina og vottaða kvóta! (en þetta er eitt af því, sem hlotizt hefur af því, að gengið er út frá vísindatilgátunni um manngerða hlýnun jarðar í loftslagsmálum).
Jón Valur Jensson.
Þriðji orkupakkinn í febrúar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Auðlindir og orkumál | Aukaflokkar: Evrópumál, Fullveldi og sjálfstæði Íslands, Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.10.2018 kl. 00:54 | Facebook
Athugasemdir
Vigdís Hauksdóttir setti orkupakkamalið í sögulegt og stjórnmálalegt samhengi. Auðvitað verður að tengja málið við utþenslustefnu ESB.
Bjarni Jónsson, 24.10.2018 kl. 07:16
Vigdís Hauksdóttir er einn okkar besti stjórnmálamaður sem uppi er um þessar mundir. Verst að hún skuli ekki vera á þingi og í forystu fyrir ríkisstjórn Íslands.
Tómas Ibsen Halldórsson, 24.10.2018 kl. 11:38
Það er staðreynd að "íslensk" orkufyrirtæki (í almannaeigu?) hafa grimmt selt hreinleikavottorð íslenskrar orku til erlendra aðila þannig að nú eru aðeins 13% eftir! Sennilega er svo ætlast til þess að íslenskir matvælaframleiðendur kaupi hreinleikavottorðin til baka vilji þau fá sína raunverulegu aðstöðu staðfesta.
Hvaða fjármálafléttur eru eiginlega í gangi varðandi þessa vottorðasölu? Ekki er þessi söluhagnaður sýnilegur á orkureikningum okkar. Hvert fóru peningarnir?
Kolbrún Hilmars, 24.10.2018 kl. 16:59
Rætt var um þennan sæstreng þegar 1988, svo hugmyndin að honum er miklu eldri en ESB.
Íslendingar þurfa að hugsa um marga hluti í þessu sambandi. Til dæmis lagði George Soros Svíþjóð í rúst, til ad þvinga þad inn í sambandið. Íslandi er enginn akkur að NATO í þessu sambandi, nema síður sé.
Svo, ef Íslendingar vilja halda sér "hlutlausum", eða eins hlutlausum og hæt er ... neyðast þeir til að velja einhvern bás að vera í. Bandaríkjamenn hafa sýnt það, ad þeir hafa engan áhuga á að "stjórna" Íslandi, og er nánara samband við þá ... nánast eini almennilegi kosturinn. En staðreyndin er sú, að samband við Rússa væri betri kostur en samstarf við EU ... því hin Norður löndin og Evrópa, reyndust ekki Íslandi vel í gegnum aldirnar.
Þannig, ad mönnum ber að huga vel að sér ... áður en menn æða út í, að afsala landinu forræðinu ... en menn eins og Soros, eru þegar á góðri leið með að fara með Ísland, eins og hann fór með Svíþjóð, með hjálp "ötulla vina" á Íslandi.
Örn Einar Hansen, 24.10.2018 kl. 18:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.