Þessi ESB-maður, Benedikt Jóhannesson, þarf að fara að láta af sinni áreitni við Lýðveldið Ísland, gjaldmiðil þess og stofnanir.
- "Nefndi hann sem dæmi að krónan lagaði sig ekki að þörfum sjávarútvegsins og jafnvel heldur ekki ferðaþjónustunnar, eins og sjá mætti í dag.
- Þá væri íslenskt samfélag að missa til útlanda ýmis tæknistörf vegna gengis krónunnar." (Mbl.is)
Þetta er maður sem er í aðstöðu til þess að margfalda gjaldheimtu af ferðamönnum til að halda aftur af offjölgun þeirra (með bæði skemmandi áhrifum á náttúruna og með skaðræðisáhrifum á krónuna og stöðu útflutningsgreina); ennfremur yrði slík aukin gjaldtekja bein leið til að fá meiri tekjur af ferðamönnum fyrir ríkissjóð til að sinna krefjandi tímabærum skyldum, umfram allt í samgöngumálum og til þyrlusveitar Landhelgisgæzlunnar.
En nei, hann lætur sér nægja að kyrja sína gömlu möntru um að kasta krónunni! Þó getur hann líka reynt að hrista af sér slyðruorðið með því að ganga í það nauðsynjaverk með Bjarna frænda sínum að sjá svo um, að annaðhvort gefist Már seðlabankastjóri* upp fyrir kröfum jafnt verkafólks sem samtaka atvinnurekenda (þ.m.t. sjávarútvegs) að lækka stýrivexti duglega (niður í t.d. 2%), en það mundi minnka aðstreymi fjármagns frá vogunarsjóðum í bankakerfið og hafa þar með lækkandi áhrif á gengi krónunnar, sem ekki veitir af; eða að víkja Má frá störfum með eðlilegri lagabreytingu. Allur almenningur, langþjáður af bankaarðráni launa sinna, tæki þessu líka fagnandi.
En Benedikt kaus frekar að velta sér upp úr "þeim [ímyndaða] vanda sem fælist í krónunni"! Allt þjónar þetta undir hans ESB-innlimunarstefnu. Og víst er, að sízt þarf íslenzkur sjávarútvegur á því að halda að Íslandi verði troðið inn í evrópska stórveldið, sem ekki aðeins hefur ráðizt á þjóð okkar í makríl- og Icesave-málum, heldur myndi gera okkur þá óbætanlegu skráveifu að "Evrópusambandsvæða" ("þjóðnýta" í þágu ESB) sjávarauðlindir okkar eins og spænskur sjávarmálastjóri ESB orðaði það.
En Benedikt ætti að horfa í tölurnar um hrapandi gengi flokks síns, "Viðreisnar", sem er ekki síður öfugmælanafn en önnur fyrri skaðræðissamtök Benedikts, "Áfram"-hópurinn (sem vildi leggja á okkur gríðarlegar, ólögmætar Icesave-skuldbindingar í þágu brezku og hollenzku ríkissjóðanna, að eindreginni ósk og kröfu Evrópusambandsins) og "Já Ísland"-hópur innlimunarsinnanna!
* Og þessi seðlabankastjóri hefur ekki aðeins áralanga okurvextina á sinni samvizku, heldur gerðist einnig, eins og fleiri, arfaslakur ráðgjafi í Icesave-málinu, svo að fjarri fer því, að þessi fyrrverandi Marxisti sé óskeikull. Hann er það ekki frekar en Hafrannsóknastofnun.
Jón Valur Jensson.
Krónan ekki heppileg til frambúðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Viðskipti og fjármál | Aukaflokkar: Evrópumál, Spilling í stjórnmálum, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:20 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.