12.7.2016 | 15:35
Hvaðan fær "Viðreisn" fé til kostnaðarsams rekstrar síns?
Flokkurinn, sem hefur að markmiði að gera Lýðveldið Ísland að litlu tannhjóli í risaverki erlends stórveldis, hefur staðið fyrir dýrum samkomum, m.a. í Hörpu, og ræður sér nú vel launaðan framkvæmdastjóra. Hvernig er allt þetta fjármagnað, sem og auglýsingastarfsemi og rekstur skrifstofu? Hver eru félagsgjöld í Viðreisn, og hve margir eru skráðir félagar? Hvaða fyrirtæki styrkja flokkinn og um hve mikið fé?
Það er sérstök ástæða til að ganga eftir slíkum upplýsingum þegar um er að ræða svo óþjóðlegan flokk sem vinnur að því að stórskerða fullveldi Íslands.
Tveir af leiðtogum Viðreisnar, Benedikt Jóhannesson og Jón Steindór Valdimarsson, voru einnig í fremstu röð á meðal forsvarsmanna í "Áfram"-hópnum svokallaða, sem hamaðist í baráttu fyrir Icesave-svikasamningunum. Hópurinn var um þúsund sinnum betur fjármagnaður en varnarsamtök grasrótarmanna, Samstaða þjóðar gegn Icesave, sbr. þessar upplýsingar um hópinn með nafninu fáránlega á vefsíðu Samstöðu þjóðar, þar sem Loftur Altice Þorsteinsson verkfræðingur ritaði m.a.:
- Skömmu eftir stofnun Áfram-hópsins bárust fréttir af því, að heldstu styrktaraðilar Icesave-vinanna væru Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), Samtök atvinnulífsins (SA) og Samtök iðnaðarins (SI). Sem start-gjald veittu þessi samtök Áfram-hópnum milljón krónur, hvert fyrir sig. Alls munu styrkir sem Áfram-hópurinn þáði hjá fyrirtækjum og almanna-samtökum hafa numið 20 milljónum króna. Til samanburðar fekk Samstaða þjóðar gegn Icesave um 20 þúsund krónur frá fyrirtækjum og almanna-samtökum.
Já, göngum eftir því, hvort hér er kannski um sömu styrktaraðila að baki "Viðreisnar" og "Áfram"-hópsins eða hvort Evrópusambandið sjálft eða undirstofnanir þess standa að því að ausa fé í þennan nýtilkomna flokk eða láta e.t.v. leppa til þess íslenzka aðila; kjósendur eiga rétt á að verða upplýstir um það -- og fyrir næstu kosningar, ekki löngu síðar!
Hér er partur af áliti Jóhannesar Ragnarssonar, vinstri manns og alþýðusinna:
Þessi svokallaða Viðreisn, sem gerð er út af kapítalismaelskandi braskarastömpum með ESB-glýju, á að sjálfsögðu ekkert erindi inní íslensk stjórnmál, ...
Hvaðan ,,Viðreisnarflokknum", sem ekkert er nema nafnið eitt, koma aurar til að ráða rándýra starfsmenn væri fróðlegt að vita, en ljóst er að alþýðufólk hefir ekki efni á svona flottræfilshætti og spjátrungsskap.
Það eru ekki allir jafn-skorinorðir og Jóhannes, en jafnvel flestir á meðal þeirra, sem hlynntir eru markaðshagskerfi og vilja veg Íslands sem beztan, geta verið sammála því, að samtök um að afsala okkur æðsta fullveldi í löggjafar-, stjórnarfars- og dómsmálum og eigin stýringu landsins á viðskiptasamningum við aðrar þjóðir, eiga ekkert erindi á Alþingi við Austurvöll. Við Íslendingar höfum enga köllun til þess -- með verðmætar auðlindir okkar og stoltir af fengnu frelsi -- að verða langminnsta og ráðaminnsta þjóðin í hinu valdfreka Evrópusambandi.
Jón Valur Jensson.
Birna framkvæmdastjóri Viðreisnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Aukaflokkar: Löggæsla, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 16:05 | Facebook
Athugasemdir
Þjóðníðingarnir hljóta vitanlega að þiggja mútur frá óvinum Hins Íslenska Fullveldis. Það er auðvitað ljóst að Þjóðelskandi fulltrúar Hinnar Hreinu Íslensku Þjóðar hljóta að banna þennan vonda svikaraflokk.
Þorsteinn Siglaugsson, 12.7.2016 kl. 20:49
Það er fullsnemmt að fullyrða neitt með fullri vissu í þessu efni, Þorsteinn, en víst er, að ekki er flokkurinn gæfulegur, eða treystir þú þér kannski til að mæla með honum?
Jón Valur Jensson, 12.7.2016 kl. 22:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.