3.9.2015 | 00:55
ESB-jámenn fá ekki forskot fram yfir nei-menn í þjóðaratkvæðagreiðslu Breta um Evrópusambandið
Sanngjarn og löghlýðinn er David Cameron, forsætisráðherra Breta, með því að láta breyta spurningu sem lögð verður fyrir kjósendur í þjóðaratkvæðagreiðslu um veru landsins í Evrópusambandinu. Gert er ráð fyrir að kosningin fari fram á næsta ári. (Mbl.is segir frá og byggir á Guardian.)
Lög sem samþykkt voru á breska þinginu fyrr á þessu ári gera ráð fyrir því að spurt verði hvort Bretland eigi að vera áfram í Evrópusambandinu með svarmöguleikunum já eða nei. Kosningaráð Bretlands, sem er sjálfstæð stofnun ábyrg gagnvart breska þinginu, gerði athugasemd við það fyrirkomulag og taldi það hygla þeim sem vildu vera áfram í sambandinu.
Stofnunin lagði þess í stað til að spurt yrði hvort Bretland ætti að yfirgefa Evrópusambandið eða vera áfram innan þess. (Mbl.is; auðk. hér)
Þetta er mjög athyglisverð afstaða og einarðleg stefnumörkun þessa kosningaráðs Bretlands og reyndar í fullu samræmi við eðli máls og það, sem sanngjarnt getur heitið. Löngum hefur það nefnilega verið ávinningur fyrir þá, sem fylgja öðrum svarkosti í spurningu í skoðanakönnum, ef sá kostur felur í sér JÁið. JÁ virkar oft ósjálfrátt jákvæðara en NEIið. (Frá þessum sérstöku spurningarháttar-áhrifum eru þó góðkunnar undantekningar, sbr. Icesave-kosningarnar okkar báðar, enda var NEIið þá áberandi ákall þjóðarinnar gegn ranglætinu.)
Talsmaður Camerons sagði við fjölmiðla að ríkisstjórnin hefði í hyggju að fara að ráðleggingum Kosningaráðsins og breyta spurningunni. (Mbl.is)
Klapp fyrir Cameron hér. Hann reynir ekki að halda í eitthvert hálmstrá í viðleitni til að knýja fram sinn vilja í þessu væntanlega kosningamáli.
Hugsanlega gæti þetta nýákveðna fyrirkomulag haft úrslitaáhrif um niðurstöðu kosninganna, þó að raunar væri óskandi, að sem stærstur meirihluti Breta myndi hafna Evrópusambandsaðild. Það gæti t.d. rutt veginn fyrir kröfu um sér-tollasamninga í staðinn, líkt og Svisslendingar njóta nú þegar.
Jón Valur Jensson.
Cameron breytir spurningunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Utanríkismál/alþjóðamál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 08:41 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.