16.8.2015 | 14:52
Ráðherra og prófessor í hagfræði ráðast á sjávarútveginn með hótunum og niðrandi tali!
Gunnar Bragi segir útgerðarmenn, sem andvígir eru viðskiptastríðinu, taka "eiginhagsmuni fram yfir heildarhagsmuni" og að þá væri "rétt að velta því fyrir sér hvort þeir væru beztu mennirnir til að fara með auðlindina"!!!
Þetta er ekkert minna en HÓTUN ráðherrans, í beinni útsendingu á Sprengisandi, og alls óhafandi af hálfu fulltrúa lýðveldisins.
Ennfremur vitnaði hann í grein eftir Pawel Bartoszek í Fréttablaðinu í gær, las þar m.a.s. orðrétt upp ögrandi lokaorðin (sjá tengil neðar), en þar gerir Bartoszek því skóna, að ef Ísland hætti stuðningi við viðskiptabann á Rússa, þá sé fiskveiðilögsaga okkar ekki lengur örugg (eins og aðrir en Landhelgisgæzlan hafi gætt hennar!), aðrar þjóðir séu þá ekki reiðubúnar að tryggja, að við fáum áfram að eiga okkar fisk í friði, og Bartoszek endar á orðunum: "Við getum ekki ætlast til að þær geri það umhugsunarlaust ef við sjálf erum ekki til í að færa neinar fórnir"! Og fórnirnar þær eru þó a.m.k. fimmfalt þungbærari en á nokkra aðra þjóð á Evrópska efnahagssvæðinu!!!
Einnig þessi ummæli skriffinnsins, sem ráðherrann vitnaði svo hrifinn til (sagði þetta "kjarna málsins"!), eru bein hótun um harðar refsiaðgerðir bannsinna, hér af hálfu ESB-ríkja, en í fyrri ummælum ráðherrans var um að ræða hótun af hálfu hans sjálfs eða ríkisstjórnarinnar gegn útgerðarmönnum.
Hefur ráðherrann ekki misst öll tök á málum? Er Sigmundi Davíð og samþingmönnum hans í alvöru óhætt að hafa svo óvarkáran ráðherra við stjórnartaum, með ómæld áhrif á atvinnu yfir þúsund sjómanna og reiðubúinn að fórna árum saman 35-40 milljarða gjaldeyristekjum landsins árlega eins og ekkert sé? Og af hvaða réttlætanlegum ástæðum?
En það vantar ekki, að utanríkisráðherrann fljótfæri líti stórt á sig:
Gunnar Bragi vék einnig orðum sínum að Gunnþóri Ingvarssyni, forstjóra Síldarvinnslunnar, sem hefur gagnrýnt íslensk stjórnvöld harðlega og bent á að þau eigi að gæta hlutleysis í málinu og einbeita sér að því að gæta hagsmuna íslenskra fyrirtækja.
Utanríkisráðherra sakaði hann um óheiðarlegan málflutning og hvatti Síldarvinnsluna til þess að taka sér engan arð á aðalfundi sínum í næstu viku til að takast á við þá alvarlegu stöðu sem er komin upp. (Mbl.is)
Hér ræðst Gunnar Bragi af hörku gegn andmælum Gunnþórs gegn hinu stórskaðlega viðskiptabanni, snuprar hann og fer að segja honum fyrir verkum um hvernig fyrirtæki hans skuli haga aðalfundagjörðum sínum! Utanríkisráðherrann gerði jafnframt lítið úr útflytjendum, sagði þá "fyrst og fremst að hugsa um næsta ársreikning. Hann bað þá um að sýna samfélagslega ábyrgð í þessu máli"! En hvar er samfélagsleg ábyrgð ráðherrans sjálfs í málinu? Eiga atvinnusviptir sjómenn að sækja sárabætur í vasa hans?
Þórólfs þáttur Matthíassonar
Vinur undirritaðs hlýddi á framlag Þórólfs prófessors Matthíassonar á Stöð 2 í gærkvöldi, þar sem hann með lítilli virðingu talaði niður til sjávarútvegsins og nauðsynjar hans á makrílveiðum. "Guð minn góður, að þessi maður skuli vera hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands!" sagði vinurinn. Þórólfur hefði gert lítið úr viðskiptabanninu fyrir sjávarútveginn, og er hann þó sífellt kvartandi yfir margfalt minni útgjöldum þjóðarbúsins vegna landbúnaðarmála. "Og hann gleymir allri loðnunni!" kvað vinurinn, þ.e.a.s. loðnuútflutningi til Rússlands, og við má bæta síld, þorski o.fl. fisktegundum. En ekki taldi hann við miklu að búast af þessum hagfræðingi til að ráða okkur heilt, enda vildi það loða við hagfræðina að vera "eftirávísindi" fremur en að hún hafi komið okkur til hjálpar í stefnumörkun stórmála.
Sannarlega er undarlegt að skoða þetta viðtal við Þórólf á Stöð 2 (fyrsta viðmælanda þar í gærkvöldi), en þeim mun betra að hlusta þar á snjöll mótrök Jens Garðars Helgasonar, formanns Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (hlustið!). Fjarri fari því, telur Jens, að atvinnugreinin geti bara tekið því að hverfa aftur til sama ástands og var fyrir okkar makrílveiðar, það væri sambærilegt og að ferðaþjónustan þyrfti að taka á sig fækkun ferðamanna til jafns við þann miklu minni ferðamannastraum, sem þá var hingað. (Reyndar mun lokast á ferðamenn hingað frá Rússlandi vegna bannsins, en þeir hafa eytt hér einna mestum gjaldeyri allra ferðamanna!).
Mikla fjárfestingu segir Jens Garðar hafa verið lagða í tæknibúnað vegna makrílveiðanna og viðauki þeirra veiða frá 2009 hafi því langt frá því verið útlátalaus. Þá nefndi hann, að 80% af frystri loðnu fer á Rússlandsmarkaðinn. Þar verði mörg hundruð störf í hættu, því að mjög erfitt verði að finna aðra markaði fyrir þessar loðnuafurðir. Þetta verði mjög þungt högg á staði sem eru með uppsjávarfrystihús, fyrir Fáskrúðsfjörð, Vopnafjörð, Neskaupsstað, Vestmannaeyjar o.fl. útgerðarstaði, þar sem þau verði á litlum afköstum og ekki mikillar driftar að vænta þar á loðnuvertíðinni, ef loðnan fer mestöll í bræðslu.
Jón Valur Jensson.
Útgerðin sýni samfélagslega ábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Fiskveiðar, sjávarútvegur | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Utanríkismál/alþjóðamál, Viðskipti og fjármál | Breytt 19.8.2015 kl. 12:51 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.