14.2.2014 | 01:32
Evrópusambandið sækist eftir Úkraínu
Og hvað sagði Herman van Rompuy? Jú, þetta (í skilaboðum á ráðstefnu um Úkraínumál í Sviss): "Úkraína á heima í Evrópusambandinu"!
Þetta talaði hann vitaskuld ekki sem prívatmaður, einstaklingur úti í bæ. Maðurinn er forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins og lýsir þarna vitaskuld ekki einkaskoðun, heldur vilja þeirra þar. Og ímyndum okkur ekki, að þeir geri ekkert í þessum ásetningi sínum.
Þetta er því fullt tilefni til að hafa áhyggjur af því, að ESB sjái sér hag í að ýta undir byltingu í Úkraínu, valdayfirtöku eða skiptingu landsins ella -- með líklegum blóðfórnum eins og í Sýrlandi (þar sem um 135.000 manns hafa nú týnt lífi í tveggja ára uppreisn og borgarastríði, sem ýtt hefur verið undir með vopnasendingum vestrænna ríkja til uppreisnarmanna -- ekki sízt frá ríkjum Evrópusambandsins!).
PS. Þegar Herman van Rompuy lýsti því yfir, að Úkraína ætti heima í Evrópusambandinu, gerði hann nánast nákvæmlega það sama og Olli Rehn, fv. útþenslustjóri ESB, sagði í viðtali við Handelsblatt: Islands natürlicher Platz ist in der EU eðlilegur eða náttúrlegur staður Íslands er í Evrópubandalaginu. Þetta var frek íhlutun í okkar innanríkismál (sjá nánar í aths. hér neðar), og eins var um orð Rompuys gagnvart Úkraínu.
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkar: Hermál, varnarmál, Stjórnmál og samfélag, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 13.11.2016 kl. 04:07 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Fullt nafn samtakanna er: Samtök um rannsóknir á Evrópusambandinu (ESB) og tengslum þess við Ísland (smellið hér!) Athugasemdir skrifist hér, vinsamlegast, undir fullu nafni, og gæti menn fyllstu kurteisi. Rakalaust persónuníð ekki liðið hér.
Efni
Nýjustu færslur
- Boris Johnson hefst strax handa við að löggilda Brexit-niðurs...
- FÁKEPPNI í fjölmiðlun: ESB-maðurinn Helgi Magnússon, sem á Fr...
- Stórsigur Íhaldsflokksins blasir við í brezku þingkosningunum...
- Löngu tímabær þingsályktunartillaga komin fram um að draga t...
- Kolbrún Bergþórsdóttir þæfist við í sínum ESB-predikunum sem ...
- Óhjálpfús Björn Bjarnason við leitina að sannleikanum um EES
- Nú er Fréttablaðið alfarið eign Helga Magnússonar, ESB-innli...
- Endanlegur samningur um úrsögn Breta úr Evrópusambandinu...
- Gott til upprifjunar: Afstaða þingmanna til umsóknar um að Ís...
- Ein EU Liebesgedicht
- Skýrslan um EES-samninginn og áhrif hans virðist í mörgu till...
- Skýrsla 3ja manna nefndar utanríkisráðherra um meinta kosti o...
- Sjálfstæðisflokkurinn á erfitt uppdráttar með ótryggan Bjarna...
- Áberandi meirihluti Breta vill að Brexit-ákvörðunin verði vir...
- Orkupakka-gróðaáform undirbúin með margra ára fyrirvara! Helm...
Færsluflokkar
- Auðlindir og orkumál
- Bloggar
- Bretland (UK)
- Dægurmál
- English, blogs in
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fiskveiðar, sjávarútvegur
- Fjármál
- Fullveldi og sjálfstæði Íslands
- Hermál, varnarmál
- Innflytjendamál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Norræn málefni
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Spilling í stjórnmálum
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vísindi og fræði
Spurt er
Tenglar
EVRÓPUSAMBANDIÐ
- NEI við ESB vefsetur samtaka gegn ESB-aðild Lítið á fróðlega vefsíðuna!
- Nei við ESB Facebókarsíða samtakanna
- EVRÓPUSTOFA - Jón Valur Jensson er ekki sáttur við Evrópustofu Viðtal við JVJ á Bylgjunni (Í Bítið) 27. jan. 2012
Mínir tenglar
- Fréttaknippi Mbl.is um ESB-mál Fjöldi frétta um fullveldismálin og hið ágenga stórveldi, sambræðslu gamalla nýlenduvelda umfram allt
- Evrópuvaktin, öflugur vefur færra manna Björn Bjarnason og Styrmir Gunnarsson reka þessa vefsíðu, sem fylgist afar vel með öllum hræringum ESB-málefna
- ESB og almannahagur Mjög athyglisverð vefsíða Páls H. Hannessonar félagsfræðings sem hefur lengi starfað fyrir verkalýðshreyfinguna og sem blaðamaður, m.a. á danska blaðinu Notat.dk sem sérhæfir sig í skrifum um ESB.
- Heimssýn, heimasíðan
- Moggablogg Heimssýnar
- Vinstrivaktin gegn ESB Mjög góður vefur
Bloggvinir
- jonvalurjensson
- zumann
- halldojo
- gunnlauguri
- maeglika
- hhraundal
- bassinn
- ragnhildurkolka
- asthildurcesil
- benediktae
- bjarnihardar
- westurfari
- alyfat
- eggertg
- einarbb
- ea
- vidhorf
- bofs
- falconer
- gmaria
- alit
- noldrarinn
- tilveran-i-esb
- gustaf
- halldorjonsson
- diva73
- hjorleifurg
- isleifur
- jaj
- fiski
- islandsfengur
- ksh
- krist
- pallvil
- rosaadalsteinsdottir
- samstada-thjodar
- tibsen
- viggojorgens
- postdoc
- vinstrivaktin
- thjodarheidur
- ornagir
- arnarstyr
- axelaxelsson
- bjarnijonsson
- diddmundur
- egill
- bjartsynisflokkurinn
- sunna2
- esbogalmannahagur
- gudjonelias
- gudjul
- hreinn23
- coke
- gustafskulason
- heimssyn
- kliddi
- thjodfylking
- johanneliasson
- jonbjarnason
- prakkarinn
- jvj
- koala
- kristjan9
- lifsrettur
- maggiraggi
- predikarinn
- ragnargeir
- undirborginni
- seinars
- thflug
- skolli
- doddidoddi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 208655
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vegna athugasemdarinnar í lok pistilsins um óeðlileg afskipti ESB-herra af innanríkismálum annarra ríkja, er rétt að endurbirta hér grein af Vísisbloggi mínum því sem ESB-sinnaðir365 fjölmiðlar (Skaftahlíðarmenn) létu þurrka út ásamt öllum öðrum skrifum Vísisbloggara árum saman!!!
Olli Rehn brýtur reglur diplómatíunnar með íhlutun í okkar innanríkismál
5. maí 2009
Ég vitna beint í frétt Sjónvarpsins: “Íslendingar ættu að nýta tækifærið meðan Svíar sitja í forsæti Evrópusambandsins og sækja um aðild, segir Olli Rehn, stækkunarstjóri ESB.” Fyrir nokkrum dögum sagði sami maður í viðtali við Handelsblatt: “Islands natürlicher Platz ist in der EU – eðlilegur eða náttúrlegur staður Íslands er í Evrópubandalaginu.” – Þetta er frek íhlutun í okkar innanríkismál.
Og í gærkvöldi bárust þær fregnir frá honum, að Ísland ÆTTI að nýta tækifærið meðan Svíar sitja í forsæti Evrópusambandsins og sækja um aðild! – Hann er farinn að segja okkur, hvað við eigum að gera! En hvenær höfum við kosið hann til að skipa okkur fyrir eða leiða okkur inn í framtíðina? Sjálfur er hann forgengilegur pótentáti, sem situr þarna sinn afmarkaða tíma, og ætti ekki að vera með puttana í málefnum óviðkomandi, sjálfstæðra þjóða – sízt af öllu að leika hráskinnaleik í samráði við 5. herdeildar menn hér á landi til að hlaða undir uppgjafarstefnu þeirra í málefnum þjóðarinnar.
Þeim mun fremur sem Íslendingar reynast þær heybrækur að þegja undir slíku tiltali, þeim mun líklegra er, að EBé-kommissarar haldi slíku áfram. Það verður eftir því tekið, hver viðbrögð Jóhönnu Sigurðardóttur og annarra Samfylkingarforingja verða við þessum yfirlýsingum Rehns.
Umræður eru um þetta mál á eftirfarandi vefslóðum:
Bendi hér ennfremur á mikilvæga grein mína annars staðar: Setið á svikráðum við lýðveldið?
Jón Valur Jensson, 23.3.2014 kl. 13:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.