15.6.2013 | 12:35
Afar ólík hlutföll áhuga og áhugaleysis
Samkvæmt könnun Vísis.is, Bylgjunnar og Stöðvar 2 sem gerð var sumarið 2012 var "áhuginn" meinti á ESB þvílíkur, að á móti hverjum einum, sem var mjög áhugasamur um að Ísland gangi í ESB voru nálega fjórir og hálfur mjög andvígir því. Einungis 18% aðspurðra höfðu veika afstöðu í málinu, þ.e. voru annaðhvort nokkuð hlynnt, nokkuð andvíg eða hlutlaus. Yfirgnæfandi meirihluti hafði sterka skoðun á málinu, þar af voru 67% landsmanna mjög andvíg inngöngu Íslands í ESB, en einungis 15% mjög hlynnt. Einungis 3% voru hlutlaus, 8% voru nokkuð hlynnt" og 7% nokkuð andvíg" (heimild).
Þarna voru sem sagt 74% andvíg því, að Ísland gangi í Evrópusambandið, en 22% hlynnt því, en greinilega gerólík samsetning þessara tveggja hópa, því að innan þess síðarnefnda er mikli áhuginn á "jáinu" nær tvöfalt minni en linari áhuginn, þveröfugt við samsetningu hins hópsins, þar sem mikli áhuginn á NEIINU var í margföldum meirihluta!
Það eru slíkar skoðanakannanir, sem einnig verður að athuga vel, þegar menn vilja ráða í styrk andstöðunnar í þssu máli. Greinilega slær hjarta íslenzku þjóðarinnar með fullveldi lands síns.
En nú um stundir, skv. nýjustu skoðanakönnun, eru 70% almennings andvíg því, að Lýðveldið Ísland verði partur af Evrópusambandinu. Er þá til of mikils ætlazt af núverandi stjórnvöldum, sem fengu umboð til að staðfesta einmitt þá afstöðu, að þau geri það í verki, fremur en að halda enn við lýði hinni alræmdu Össurarumsókn, sem átti sér ekki einu sinni stoð í stjórnarskrá?
Jón Valur Jensson.
Meginflokkur: Skoðanakannanir | Aukaflokkar: Evrópumál, Fullveldi og sjálfstæði Íslands, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:59 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Jón Valur.
Já Samfylkingin heldur að þrátt fyrir Evrópumet í fylgisafhroði þá eigi þeir samat með þetta 12,9% fylgi að baki sér að ráða áfram utanríkisstefnu þjóðarinnar !
Gunnlaugur I., 15.6.2013 kl. 15:27
Já, það tekur tíma að vinda ofan af 4 x 365 daga uppsöfnuðum hroka.
Jón Valur Jensson, 16.6.2013 kl. 19:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.