Við þurfum ekki þennan Evrópufána

 

euskulldragon

Prófessor Dr. Karl Albrecht Schachtschneider í almennum og borgarlegum lögum við Nuremberg háskólann dregur upp hrikalega en raunverulega mynd af næstu skrefum í þróun Evrópusambandsins, þar sem evrukreppan á óhjákvæmilega eftir að snarversna.

"Við verðum að ganga út frá þeirri staðreynd, að þessi pólitíska elíta vill halda áfram í rauðan dauðann að bjarga evrunni."

"Grundvöllurinn er að með evruna og þá stefnu að bjarga henni, þá er raunverulega markmiðið að skapa Ríki Evrópu." 

Skärmavbild 2012-10-18 kl. 00.13.49

"Þessi stefna mun leiða til efnahagslegs hrun allra þjóða."

"Í suður Evrópu er staðan orðin óbærileg. Kreppan og samdrátturinn, sem eru þessu samfara, hafa engan veginn leitt til verðbólgu en hún mun koma. Áhrifin verða meiri í Frakklandi, sem mun draga Þýzkaland með sér niður."

"Við megum eiga von á allsherjar stjórnmálaóreiðu."

"Fólk mun rísa upp við vissar kringumstæður og þau uppþot munu verða kerfisbundið lamin niður af erlendu lögregluliði, það er þegar búið að skipuleggja deildirnar - The Eurogendfor - svo það mun koma tími byltingartilrauna með mismiklum árangri.....og við munum sjá Evrópu stjórnað af harðræði á einræðislegan hátt."

Smelltu til að sjá viðtalið hér. 

gs 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband