warst mein Traum und mein Segen ...
O Brüssel !
in Sonne und Regen.
Liebliche, schöne
und große Idé,
komm, gib´ mir immer
dieselbe Kliché,
Dich zu anbeten
auf meinem Knie !
24.10.2019 | 16:24
Makalaust er að horfa upp á einhliða leiðaraskrif hins króníska ESB-málsvara Kolbrúnar í ESB-Fréttablaðinu. Ekki minnsta viðleitni til að skilja, hvað þá virða andstöðu meiri hluta Breta við ESB-"aðildina" sem svo erfitt er að losna við í reynd (hvernig væri það þá fyrir Ísland, ef við létum narrast inn í stórveldið?!).
Ekki kemur heldur fram hjá henni í þessum nýjasta leiðara ESB-blaðsins, að brezka þingið hefur samþykkt útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, þannig að Boris Johnson hefur nú þegar unnið þann sigur í reynd, eins og Björn Bjarnason, fyrrv. mennta- og dómsmálaráðherra, rekur hér í grein sinni í gær : https://www.bjorn.is/dagbok/thingbrellur-gegn-boris-og-brexit
Björn tekur þar á þeim óvandaða fréttaflutningi ýmissa fjölmiðla (þ.á m. Rúv og "Fréttablaðsins") sem hefur tekizt að leyna því, að Johnson hefur nú þegar borið sigurorð af ESB-aðildarsinnunum í brezka þinginu í sínu Brexit-máli, og Björn vekur athygli á því, að áframhaldandi deilur og tafir þar snúast aðeins um tæknileg mál, ekki um sjálfa ákvörðunina sem nú hefur verið tekin, bókmenntafræðingnum Kolbrúnu til ómældrar gremju!
Jón Valur Jensson.
Bretar fái aðeins tveggja vikna frest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bretland (UK) | Breytt 25.10.2019 kl. 03:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2019 | 06:36
Það blasir við að vefur hans getur ekki leitt til lykta rökræðu um hugsanlegt gildi EES, því að engar athugasemdir leyfir BB á vef sínum.
Lokadómsorð um þau mál verður ekki kveðið upp af fyrir fram rammhlutdrægum Birni Bjarnasyni. Og það er ljóður á ráði hans að leyfa ekki orðræðu um fullyrðingar sínar, heldur halda bara áfram að predika sína einhliða framsetningu og láta sem hann hafi kveðið mótrök í kútinn.
Um þessi mál þarf að fjalla nánar í yfirliti og verður gert.
JVJ.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 06:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.10.2019 | 16:58
Meðan blaðið var að hálfu eign eiginkonu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar (ESB-sinna), en annarra að auki, var ástandið annað, en breyttist með kaupum Helga Magnússonar á hálfu hlutafénu. Nú hefur hann keypt það allt!
Baráttumaður er Helgi fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Hann var m.a. kosinn í framkvæmdaráð samtakanna "Já Ísland" sem valið var á aðalfundi 30. september 2015. Þau samtök hafa barizt fyrir inngöngu Íslands í ESB.
Það er einkar fróðlegt að sjá listann um framkvæmdaráð "Já Ísland" og hverjir eru eða voru félagar Helga þar.*
* Meðal fulltrúa í framkvæmdaráði "Já Ísland" má nefna eftirfarandi áberandi aðila í stjórnmálum, viðskiptum og á fleiri sviðum þjóðlífsins:
Andrés Pétursson, verkefnastjóri hjá Rannís, hefur oft talað fyrir ESB.
Albertína Elíasdóttir, þá verkefnastjóri atvinnumála Akureyri, nú þingkona Samfylkingar og var ákafur talsmaður þriðja orkupakkans.
Árni Björn Guðjónsson, húsgagnasmíðameistari
Árni Zophoniasson, eigandi Miðlunar ehf.
Auðunn Arnórsson stjórnmálafræðingur, bróðursonur Jóns Baldvins; fyrrv. blm. Fréttablaðsins.
Baldur Dýrfjörð, forstöðumaður (fv.starfsm.Samfylk.?)
Baldur Þórhallsson, prófessor, styrkþegi Evrópusambandsins.
Baldvin Jónsson, viðskiptafræðingur
Bergur Ebbi Benediktsson, lögfræðingur
Bjarni Þór Sigurðsson, verkefnastjóri og varaformaður VR
Björn B. Björnsson, kvikmyndagerðarmaður
Bolli Héðinsson, hagfræðingur
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, stjórnmálafræðingur, samfylkingarkona.
Brynhildur Pétursdóttir, þáv. alþm., nú frkvstj. Neytendasamtakanna.
Davíð Stefánsson, þá ráðgjafi, síðar ritstjóri Fréttablaðsins, er það enn.
Ellisif Tinna Víðisdóttir, lögfræðingur, fv. forstj. Varnarmálastofnunar og frkvstj. Kirkjuþings, form. utanríkismálanefndar Viðreisnar 2016.
Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, fv. fréttam., bróðir Þórólfs prófessors.
G. Valdimar Valdemarsson, kerfisfræðingur.
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri, maður Helgu Völu.
Guðbjörn Guðbjörnsson, yfirtollvörður, vinsæll söngvari
Guðjón Sigurbjartsson, frkvstj., hefur skrifað margar áróðursgreinar fyrir ESB í Morgunblaðið og Fréttablaðið og beitt sér innan Sjálfstæðisflokksins.
Guðmundur Gunnarsson, fv. formaður Rafiðnaðarsambandsins.
Guðmundur Steingrímsson, fyrrv. alþingismaður Framnsóknarflokks og síðan Samfylkingar, nú Fréttablaðspenni.
Guðrún Pétursdóttir, lífeðlisfræðingur, fv. forsetaframbjóðandi, ekkja Ólafs Hannibalssonar.
Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor.
Hanna Katrín Friðriksson, fv. blm. Mbl., nú alþm. "Viðreisnar".
Helga Vala Helgadóttir, lögfræðingur, nú þingkona Samfylkingar.
Helgi Jóhann Hauksson, stjórnmálafræðingur.
Helgi Magnússon, framkvæmdastjóri, nú 100% eigandi Fréttablaðsins
Helgi Pétursson, tónlistarmaður.
Hilmar V. Pétursson, forstjóri CCP
Hörður Unnsteinsson, stjórnmálafræðingur
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.
Jón Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur, fv. skólastjóri.
Katrín Júlíusdóttir, fv. alþingism. og fv. varaform. Samfylkingar
Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff, form. SVÞ
Oddný G. Harðardóttir, alþingism., fv. ráðherra og form. Samfylkingarinnar
Óttarr Ólafur Proppé, fv. alþingismaður.
Páll Rafnar Þorsteinsson, heimspekingur
Pawel Bartoszek, stærðfræðingur, nú borgarfulltrúi Viðreisnar.
Pétur J. Eiríksson, hagfræðingur.
Sema Erla Serdar, stjórnmála- og Evrópufræðingur, aðgerðakona mikil, var í framboði til Alþingis fyrir Samfylkinguna 2016.
Svana Helen Björnsdóttir verkfræðingur, stjórnarformaður Stika.
Svanborg Sigmarsdóttir, stjórnmálafræðingur, fv. blm. á Fréttablaðinu
Sveinn Hannesson, frkvstj. Gámaþjónustunnar, framarlega í röðum atvinnurekenda.
Úlfar Hauksson, stjórnmálafræðingur, reit blaðagreinar með ESB-inngöngu.
Vilhjálmur Bjarnason, fyrrv. alþingismaður Sjálfstæðisflokks, fjárfestir.
Vilhjálmur Þorsteinsson, frumkvöðull, forstj. CCP, sat í "stjórnlagaráði".
Vilmundur Jósefsson, fv. formaður Samtaka atvinnulífsins.
Þorkell Helgason, fv. orkumálastjóri, sat í "stjórnlagaráði"
Þorsteinn Pálsson, fv. forsætisráðherra.
Ýmsir í þessum hópi voru beintengdir við Áfram-hópinn svokallaða, sem barðist af hörku fyrir því, að Íslendingar skyldu borga kröfur Breta og Hollendinga til ríkissjóðs okkar vegna Icesave-málsins!
Meðal formanna "Já Ísland" hafa verið Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi alþm. og ráðherra, sömuleiðis fyrrv. formaður "Viðreisnar" og mikill stuðningsmaður Icesave-svikasamninganna, og Jón Steindór Valdimarsson (kosinn form. í sept. 2014), var í framboði til Stjórnlagaþings 2010, en náði ekki kjöri, nú alþingismaður Viðreisnar.
Jón Valur Jensson.
Helgi eignast Fréttablaðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 19.10.2019 kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.10.2019 | 11:13
Boris Johnson og Juncker voru að tilkynna að tekizt hafi samningur milli ríkisstjórnar Bretlands og ESB um úrsögn Breta úr ESB 31. þ.m. Hann verður borinn undir brezka þingið nk. laugardag, til lukku vonandi, auk þess sem Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir samninginn endanlega verða borinn undir leiðtogaráð Evrópusambandsins.
Þótt ákvæði samningsins séu ekki að fullu kunn, þegar þetta er ritað, fer Juncker jákvæðum orðum um samninginn, að vilji beggja aðila til að semja hafa skilað sér, samningurinn sé sanngjarn og að tekið hafi verið tillit til óska Bretlands jafnt sem ESB. Mun Juncker hvetja leiðtogaráðið til að taka vel í samninginn. (mbl.is)
Við Íslendingar munum margir fagna því, að Bretland hverfi úr Evrópusambandinu. Það gerum við í Samtökum um rannsóknir á Evrópusambandinu og tengslum þess við Ísland.
Jón Valur Jensson.
Nýr samningur um Brexit í höfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bretland (UK) | Breytt s.d. kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Atkvæði féllu þannig: | Já 33, nei 28, greiddu ekki atkv. 2 |
fjarvist 0, fjarverandi 0 |
Á nafnalistunum hér á eftir eru þeir þingmenn feitletraðir, sem eru alþingismenn nú í haust, 2019 (varaþingmenn, sem setið hafa, eins og Álfheiður Ingadóttir, eru ekki feitletraðir):
já:
Álfheiður Ingadóttir, Árni Páll Árnason, Árni Þór Sigurðsson, Ásta R. Jóhannesdóttir, Birkir Jón Jónsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Björgvin G. Sigurðsson, Guðbjartur Hannesson, Guðmundur Steingrímsson, Helgi Hjörvar, Jóhanna Sigurðardóttir, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Katrín Júlíusdóttir, Kristján L. Möller, Lilja Mósesdóttir, Magnús Orri Schram, Oddný G. Harðardóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Róbert Marshall, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Siv Friðleifsdóttir, Skúli Helgason, Steingrímur J. Sigfússon, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Þráinn Bertelsson, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.
nei:
Atli Gíslason, Árni Johnsen, Ásbjörn Óttarsson, Ásmundur Einar Daðason, Birgir Ármannsson, Birgitta Jónsdóttir, Bjarni Benediktsson, Einar K. Guðfinnsson, Eygló Harðardóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Gunnar Bragi Sveinsson, Höskuldur Þórhallsson, Illugi Gunnarsson, Jón Bjarnason, Jón Gunnarsson, Kristján Þór Júlíusson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Ólöf Nordal, Pétur H. Blöndal, Ragnheiður E. Árnadóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Tryggvi Þór Herbertsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Vigdís Hauksdóttir, Þór Saari, Þuríður Backman.
sat hjá:
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir.
Það er athyglisvert, að einungis 16 af þeim þingmönnum í júlí 2009, sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni, eru enn sitjandi alþingismenn, þar af 5 já-menn gagnvart tillögunni, 10 nei-menn og ein kona sem sat hjá (en gerðist reyndar síðar formaður helzta ESB-flokksins í landinu). Af þeim 33 þingmönnum, sem greiddu ESB-tillögunni atkvæði sitt 2009, hefur 27 ekki haldizt vel á þingsæti sínu, en einn er látinn; fimm sitja hins vegar enn á Alþingi. En af þeim 28, sem greiddu atkvæði á móti, eru tveir þingmenn látnir, tíu enn á þingi, en 16 viknir þaðan.
PS. (jvj): Á þessu sést, að Jón Bjarnason, þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, greiddi atkvæði gegn þessari umsókn, sem Samfylkingin átti allt frumkvæði að. Jóni var síðar bolað út úr ríkisstjórninni. Þjáningarbróðir hans, Ögmundur Jónasson, greiddi hins vegar atkvæði með ESB-umsókninni, þeirri sem hér hefur löngum verið kennd við Össur Skarphéðinsson, sem þarna sést við hlið hans á listanum. Hvorugur þeirra er lengur á þingi, og naumast eiga þeir heldur erindi á Bessastaði!
Jón Valur Jensson.
Evrópumál | Breytt 26.10.2019 kl. 19:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2019 | 12:16
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.10.2019 | 03:24
Dr. Ólafur Ísleifsson bað á Alþingi um skýrslu um reynsluna af kostum og göllum af EES-aðild Íslands, en er réttilega síður en svo ánægður með niðurstöðuna sem birtist í "gagnrýnislausu varnarriti fyrir samstarfið í prédikunarstíl," eins og hann kemst að orði, og skyldi engan undra, en þarna ræddi Ólafur um nýbirta skýrslu 3ja manna starfshóps undir forystu Björns Bjarnasonar -- þess fyrrv. ráðherra sem lesendur blog.is þekkja einmitt að nær stanzlausum greinaskrifum þar sem einhliða hefur verið borið lof á EES-samninginn og hvað hann á að hafa gefið af sér fyrir Íslendinga.
Meðal helztu áherzlupunkta og markverðra ábendinga dr. Ólafs um takmarkað og í raun hæpið gildi þessarar þriggja manna skýrslu má nefna:
Það er óhætt að fullyrða hér í lokin, að dr. Ólafur Ísleifsson á miklar þakkir skildar fyrir sína vel rökstuddu og tímabæru gagnrýni á þessa óvenju-einhliða skýrslu frá þeim starfshópi sem Guðlaugur Þór Þórðarson skipaði einn saman -- en sá ráðherra var þá þegar sjálfur orðinn mjög hallur undir Evrópusambandið og flest eða allt sem frá því kemur (eins og einna ljósast varð í framlagningu og afgreiðslu orkupakkamálsins).
Því miður hefur undirrituðum sýnzt (og á eftir að leiða fleiri rök að því), að starfshópurinn hafi verið hlutdrægur og því lítt marktækur þegar á hann reyndi.
Jón Valur Jensson.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 05:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.10.2019 | 12:53
Skýrsla starfshóps utanríkisráðherra um EES-samninginn var birt á vef Alþingis í morgun. Hún var gerð að beiðni Alþingis, að tillögu þingmanna Miðflokksins, með það að markmiði að greina kosti og galla EES-samningsins og áhrif hans á íslenskt samfélag síðasta aldarfjórðunginn. Starfshópinn skipuðu þau Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra og menntamálaráðherra, og lögfræðingarnir Kristrún Heimisdóttir og Bergþóra Halldórsdóttir.
Í skýrslunni er því lýst að íslenskt samfélag hafi tekið stakkaskiptum við aðildina að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Jafnframt hafi nær allir viðmælendur sagt EES-samninginn lifa góðu lífi og vera til gagns og ávinnings. Einu undantekningarnar hafi verið samtökin Frjálst land á Íslandi og Nei til EU í Noregi.
Starfshópurinn tiltekur fimmtán atriði um úrbætur. Hæst ber ágreining um það hvort stjórnarskrá Íslands heimili fulla aðild að EES-samningnum. Binda verði enda á þrætur um slíkt, annað hvort með því að viðurkenna að EES hafi áunnið sér stjórnlagasess eða með því að setja í stjórnarskrá sérstakt ákvæði um aðild Íslands að samningnum. Við núverandi aðstæður sé staða Íslands gagnvart Noregi og Liechtenstein, sem eiga aðild að samningnum við Evrópusambandið, veikari en annars væri.
Þá verði að viðurkenna í verki að samningurinn móti allt þjóðlífið en ekki megi skilgreina hann sem erlenda ásælni. Raunar verði að viðurkenna að stór hluti EES-samstarfsins sé alfarið innanríkismál. Starfshópurinn tekur fram að ekkert sambærilegt tækifæri gefist til jafn viðamikils samstarfs við Evrópusambandið og með EES-samningnum. Enginn tvíhliðasamningur komi í hans stað."
(JVJ kom þessu hér á framfæri með viðaukaorðum í byrjun.)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)