Bloggfærslur mánaðarins, júní 2016
30.6.2016 | 23:15
Helmut Kohl mælir gegn því að skellt verði hurðum á Breta
Ólíkt ýmsum Brusselmönnum, sem brugðizt hafa ókvæða við BREXIT Breta, brýnir hinn aldni og vísi Helmut Kohl (Þýzkalandskanzlari 1982-98) leiðtoga Evrópusambandsins til að sýna Bretum ekki óþarfa hörku og þrýsta ekki of fast á þá eftir ákvörðunina um að yfirgefa sambandið. Hann hvetur þá til að vinna ekki í of miklum flýti í komandi samningaviðræðum við brezk stjórnvöld.
Kohl, sem barðist á tíunda áratug síðustu aldar fyrir nánari samvinnu Evrópusambandsríkja á sem flestum sviðum, segir í viðtalinu að það yrðu risastór mistök af hálfu Evrópusambandsins að skella [hurð]um á Breta. Þjóðin þurfi tíma til þess að ákveða hver næstu skref séu.
Hann kallar jafnframt eftir því að Evrópusambandið slaki nú á og taki eitt skref aftur á bak áður en það tekur tvö skref fram á við á hraða sem sé viðráðanlegur fyrir öll aðildarríkin. (Mbl.is)
Hann er hér greinlega málsvari málamiðlunar og skilnings og gott ef ekki hygginda, honum gezt ekki að þeirri hugmynd, að tækifærið verði nú notað til að láta kné fylgja gegn Bretum og fjarlægja Evrópusambandið enn meira frá þeim Evrópumönnum sem hafa viljað hægja á samrunaferlinu eða leyfa ríkjunum að endurheimta meira af sínu skerta fullveldi:
Í stað þess að stíga skref í átt til aukinnar miðstýringar ættu leiðtogar sambandsins að hafa það í huga að aðildarríki sambandsins séu mismunandi, [segir Kohl] að því er segir í frétt The Guardian.
Hin sérstaka staða Bretlands innan Evrópusambandsins hafi ávallt verið erfitt og krefjandi viðfangsefni. Hún ætti hins vegar rætur að rekja til sögu landsins. Virða þyrfti það. Hún er líka hluti af fjölbreytileika Evrópu, bætti hann við.
Virkjun 50. greinar Lissabonsáttmálans um útgöngu ríkis úr sambandinu getur tekið tvö ár og nægur tími til stefnu til að aðlagast hinum nýja veruleika. Engu að síður láta menn stóryrðin falla, eins og heyrzt hefur frá Brussel, Spáni og víðar að og sjá mátti á skrifum ýmissa álitsgjafa í Fréttablaðinu í morgun. Þá er gott að líta fremur til hins reynda manns, Helmuts Kohl, sem róar hér samherja sína og mælir gegn mestu öfgunum sem uppi hafa verið í röðum ESB-sinna. Dómsdagsspár þeirra eru ekki þumlungi nær sannleikanum en verstu spár Icesave-sinna á Íslandi árið 2009 -- spár sem aldrei rættust!
Jón Valur Jensson.
Sýni ekki Bretum óþarfa hörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 1.7.2016 kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.6.2016 | 07:50
Endalaust reyna ESB-sinnar, á Bretlandi sem Íslandi, að halda áfram róðrinum í gremju sinni yfir Brexit. Rúv í sorgarlit!
Vesalings þingmaðurinn David Lammy, Verkamannaflokknum, á ekki annað svar við Brexit-þjóðaratkvæðagreiðslunni á fimmtudaginn en að óvirða hana. Átti hún þó að ákvarða um framtíð Bretlands í eða utan Evrópusambandsins.
Segir hann að málflutningur þeirra sem hafi viljað úr sambandinu væri þegar að liðast í sundur og sumir óskuðu þess að hafa ekki kosið með því.
Þetta eru engin rök gegn nærri 1,3 milljónar meirihluta, enda hefur fjöldi manns áttað sig á því eftir á, að gróflega voru notuð fjarstæðukennd hræðslurök gegn úrsögninni, og voru þau engu skárri en Norður-Kóreu-einangrunarrök fylgismanna Icesave á Íslandi.
Þrjátíu og þrjár og hálf milljón Breta tók þátt í atkvæðagreiðslunni, 71,8% atkvæðisbærra, og er það hæsta hlutfall þeirra í kosningum allt frá kosningu til brezka þingsins 1992 (BBC).
Brezki Verkamannaflokkurinn ætti nú fyrst að reyna að komast í sátt við sjálfan sig (samanber þessa frétt), áður en hann fer að taka lýðræðislegt vald frá almenningi.
En fóstbróðir þessarar ESB-eftirlegukindar í Verkamannaflokknum er meðal annarra Árni Páll Árnason í Samfylkingunni sem leggur ekki meira upp úr lýðræðinu, sem þarna býr að baki, en svo, að hann kallar það furðuflipp af Cameron, forsætisráðherra Breta, að leyfa þessu að gerast!
Menn hafa einnig veitt athygli undarlegum viðbrögðum Fréttastofu Rúv við tíðindunum frá Bretlandi. Þar hafa fréttamenn allt á hornum sér varðandi afstöðu almennings og voru reyndar í sorgarsjokki strax á föstudagsmorgun, eins og glöggt mátti heyra á fréttamönnum og dagskrárgerðarfólki þar!
Rúvarar finna ýmislegt sér til sárabóta eða öllu heldur til að bíta frá sér: slá því til dæmis upp, að Donald Trump sé ánægður með niðurstöðuna (og þá eigi hún náttúrlega ekki að geta verið góð, skv. forskriftum Rúv), ennfremur séu ISIS-samtökin ánægð með útkomuna! Engin uppsláttarfrétt um aðal-niðurstöðuna finnst á vefsíðu Rúv um Evrópusambandsmál, þess í stað reynt að hjakka í öllu því sem Rúvurum þykir við hæfi til að varpa rýrð á þessa ákvörðun almennings. Það er ekki eins og Rúv geti verið hlutlaust í þessu máli, svo heiftarlega hlutdrægir eru starfsmenn þess. Það hafa þeir einmitt verið líka gagnvart viðleitni sjálfstæðissinna á Íslandi til að bægja frá okkur ásókn ESB-þjóna í að gera land okkar að undirlægju Brussel-valdsins, og eiga þessir fjölmiðlamenn þó að heita starfsmenn lýðveldisins, ekki evrópska stórveldisins!
Jón Valur Jensson.
Vill hunsa þjóðaratkvæðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
24.6.2016 | 10:02
Glæsilegur sigur brezkra sjálfstæðissinna: 52% fylgjandi úrsögn úr ESB
Baráttan var æsispennandi fram undir morgun, en er ótvíræð eftir talningu í nær öllum héruðum landsins. Cameron hefur boðað afsögn sína innan þriggja mánaða. Donald Trump fagnar úrslitunum.
16,8 milljónir kusu að segja skilið við ESB, en 15,7 milljónir vildu tilheyra sambandinu áfram. Skotar og Lundúnabúar kusu ESB-aðildina áfram, en landsbyggðarmenn, m.a. íbúar Wales og héraða á Suður-Englandi, vildu slíta á sambandið.
Nigel Farage, formaður UKIP, sem sl. 20 ár hefur barist fyrir útgöngu Breta úr ESB, sagði á fundi með stuðningsmönnum þetta vera sigur fyrir venjulegt fólk, fyrir almennilegt fólk.
Hann hvatti David Cameron forsætisráðherra til að segja af sér, en AFP fréttastofan hefur eftir Philip Hammond utanríkisráðherra Bretlands að Cameron muni áfram gegna embætti forsætisráðherra. Bæði Boris Johnson, fyrrum borgarstjóri Lundúna, og Michael Gove sem tilheyra þeim armi Íhaldsflokksins sem vill segja skilið við ESB, hafa undirritað stuðningsyfirlýsingu við Cameron þar sem hann er hvattur til að sitja áfram. (Mbl.is)
En með morgninum kom tilkynning frá Cameron, að hann hygðist segja af sér. Íhaldsflokkurinn er í augljósri kreppu.
Skotland er hér í erfiðri aðstöðu:
Forsætisráherra Skota, Nicola Sturgeon, hefur sagt að úrslit kosninga sýni það skýrt að Skotar telji framtíð sinni best borgið innan ESB, en ESB aðild var ofan í öllum 32 héruðum Skotlands. (Mbl.is)
Að frátöldu Grænlandi, sem sérstaklega var ástatt um og valdi úrsögn úr Evrópusambandinu 1985, verður Bretland "fyrsta aðildarríkið í 60 ára sögu ESB til að yfirgefa sambandið. Það mun þó ekki gerast samstundis, en að sögn BBC mun úrsagnarferlið taka að lágmarki tvö ár. Stuðningsmenn úrsagnar úr ESB hafa sagt að ekki ætti að ljúka ferlinu fyrr en 2020, þegar þingkosningar fara næst fram í Bretlandi." (Mbl.is)
Formlega mun forsætisráðherra Bretlands "þurfa að ákveða hvenær hann eigi að virkja fimmtugustu grein Lissabon-sáttmálans, sem mun veita Bretum tvö ár til að semja um úrsögn úr sambandinu. Þegar búið er að virkja 50. grein sáttmálans þá getur Bretland ekki gengið í ESB að nýju án samþykkis allra aðildarríkja." (Mbl.is)
Og þetta hafði Cameron sagzt mundu gera, virkja greinina án tafar, ef kosningarnar færu á þennan veg, "en þeir Boris Johnson og Michael Gove, sem hafa verið áberandi í kosningabaráttu Brexit-liða hafa hvatt hann til að ana að engu. Þeir hafa þó einnig sagt að þeir vilji að vissar breytingar verði strax gerðar m.a. að vald dómara Evrópusambandsins gagnvart Bretum verði takmarkað og að frjálsu flæði verkafólks til landsins verði settar hömlur." (Mbl.is)
Hlutabréfavísitölur hafa fallið umtalsvert, einkum í brezkum bönkum. Stjórnandi Englandsbanka, Mark Carney, reynir í yfirlýsingu sinni að róa markaðinn, segir Englandsbanka "ekki hika við" að koma á stöðugleika markaða, og í því skyni verða 250 milljarðar punda lagðir til bankanna frá Englandsbanka (Guardian).
Jón Valur Jensson.
Bretar kjósa að ganga úr ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 27.6.2016 kl. 02:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.6.2016 | 18:43
Naumur meirihluti, síðast er fréttist, fyrir BREXIT - og íslenzkar hliðstæður ofurmæla-umræðu
Spennan er í hámarki í Bretlandi: allt virðist geta gerzt: úrsögn úr Evrópusambandinu eða naumur sigur ESB-manna, en nýjustu tvær skoðanakannanir sýna að 45% vilji að Bretland segi skilið við Evrópusambandið, en 44% vilja landið áfram innan sambandsins (könnun fyrirtækisins Opinium), og skoðanakönnun fyrirtækisins TNS sýnir 43% hlynnt því að yfirgefa Evrópusambandið, en 41% hlynnt áframhaldandi veru innan þess. (Mbl.is)
Hálfgerðar dómsdagsspár hafa verið í fyrirsögnum brezkra fjölmiðla margar síðustu vikur, en þetta er í raun mjög sambærilegt við endemis-hrakfaraspár manna eins og Gylfa Magnússonar, prófessors og ráðherra, Þórólfs Matthíassonar, prófessors og mikils ESB-sinna, og dr. Guðna Th. Jóhannessonar, dósents í sagnfræði, vegna Icesave-málsins --- allir töldu þeir stórháskalegt fyrir Íslendinga að segja NEI við Svavarssamningnum um Icesave (!) og að það hefði kostað okkur einangrun og eymd (sem enginn hefur þó upplifað!). Hefur réttilega verið bent á þessa hliðstæðu ofurmælamanna í löndunum tveimur í Staksteinum Morgunblaðsins.
Í báðum tilvikum virðist ætlunin hafa verið að hræða heilar þjóðir til að taka afstöðu á grundvelli ofurhræðslu. Þegar frá líður og raunverulegar afleiðingar atkvæðagreiðslunnar í Bretlandi liggja fyrir, þá er mjög líklegt, að þeir þingmenn og ráðherrar, hópar, fjölmiðlar og stofnanir, sem með mestum ýkjum spáðu fyrir um afleiðingarnar, verði teknir á beinið fyrir ábyrgðarleysi, að efna til múgæsinga og blekkja kjósendur.
Það má segja, að hliðstæðir fullyrðingasmiðir hér á landi ættu að minnsta kosti að biðjast afsökunar, en sæta ella almennum átölum. En merkilegt nokk hafa þeir bara haldið sínu striki, einn þeirra (sá síðastnefndi, sem sagði að við myndum einangrast eins og Norður-Kórea og Myanmar herforingjanna) hefur jafnvel boðið sig fram til að verða forseti landsins! -- þaggað niður í einum mótframbjóðanda sínum og hnjóðað í hann fyrir að minnast á þessi mál opinberlega, eins og sá hefði brotið velsæmis- og veizlureglur ("Davíð, hefurðu enga sómakennd?!" eru hans fleygu orð, sem nægðu til að stöðva umræðuna), en dr. Guðni á enn eftir að gera fræðilega grein fyrir rökum síns máls. Við bíðum og vonum!
Jón Valur Jensson.
Fleiri vilja úr Evrópusambandinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 23.6.2016 kl. 01:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2016 | 11:30
Guðni Th. Jóhannesson MUN skrifa undir samþykkt Alþingis um að ganga í Evrópusambandið!
Ekkert í lögum okkar krefst þess, að þjóðaratkvæðagreiðsla verði um ákvörðun Alþingis að ganga í Evrópusambandið. Verði það samþykkt á nýskipuðu þingi eftir haustkosningar, með ríkisstjórn Pírata og annarra vinstri flokka við stjórnvölinn -- manna sem hafa lýst því yfir, að þeir taki ekki mark á bréfi Gunnars Braga Sveinssonar til Brussel og að því sé umsóknin enn í fullu gildi (og samur er hugur Brussel-manna) -- þá yrði engin sjálfkrafa þjóðaratkvæðagreiðsla næsta skrefið eftir þá samþykkt á Alþingi (jafnvel þótt samþykkt yrði með naumum, einföldum meirihluta).
Málið færi þó fyrir forsetann til undirskriftar (eða synjunar). En Guðni Th. Jóhannesson hefur lýst því yfir í viðtali á Útvarpi Sögu, að hann MUNI skrifa undir, EF allar kröfur okkar verði uppfylltar. En þá er hann að gefa það á vald ríkisstjórnar, sem stendur þá að málinu, hverjar "allar kröfur" landsins (þ.e. HENNAR) verði. Guðni er þar með búinn að binda sig í báða skó með að fylgja þeirri ríkisstjórn: hann MUNI skrifa undir!
Þetta er meiri háttar áhættumál í augum allra fullveldissinna. Guðni er EKKI okkar frambjóðandi, er það ekki algerlega ljóst?
Jón Valur Jensson.
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
19.6.2016 | 21:37
Donald Trump er ekki hrifinn af ESB-þátttöku Breta
Hann segist frekar hallast að því að styðja útöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, m.a. til að minnka skriffinnsku, og er í viðtali við Sunday Times í dag. Hann vill jafnframt halda góðu sambandi við alþjóðlega leiðtoga, þar á meðal David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, ef hann verður kjörinn forseti Bandaríkjanna.
En Cameron hefur reyndar gagnrýnt Trump harkalega, einkum "hugmyndir hans um að meina múslimum að koma til Bandaríkjanna. Sagði hann hugmyndina sundrandi, heimskulega og ranga." (Mbl.is)
Trump kemur til Bretlands 24. júní, degi eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um framtíð Breta í Evrópusambandinu, en erindi hans er meðal annars að vitja um tvo golfvelli sem hann á í Skotlandi.
J. byggði á Mbl.is.
Trump vill að Bretar yfirgefi ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2016 | 16:07
Brexit gæti leitt til keðjuverkandi úrsagnar fleiri ríkja úr ESB
Margot Wallström, utanríkisráðherra Svía, telur nú hættu á að Evrópusambandið liðist í sundur ef Bretar samþykkja úrsögn (Brexit) í þjóðaratkvæðagreiðslunni 23. nk.
Keðjuverkun spáð.
Wallström segir í viðtali við breska útvarpið BBC að verði það niðurstaðan geti það leitt til keðjuverkunar, fleiri ríki kunni að feta í fótspor Breta og krefjast hagstæðari samninga við Evrópusambandið og þjóðaratkvæðagreiðslu. (Ruv.is)
55% Breta eru nú fylgjandi úrsögn úr Evrópusambandinu samkvæmt skoðanakönnun brezka blaðsins Independent, en hún birtist þar í gær.
Wallström sjálf kveðst vona að Bretar samþykki að vera áfram í Evrópusambandinu.
Telur hættu á að ESB liðist í sundur
J.
Evrópumál | Breytt 12.6.2016 kl. 01:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Evrópusambandið er enn á dagskrá Samfylkingarinnar, sbr. skýr orð Árna Páls þess efnis fyrir nokkrum dögum í eldhúsdagsumræðum. Hann telur Össurarumsóknina enn í fullu gildi og myndi við nýja stjórnarmyndun eftir kosningar vilja fylgja þessu eftir!
Hvernig litist lesendum á það útlit, að hægt væri að færa klukkuna svo langt aftur, ef Samfylkingu, Pírötum, Vinstri grænum, "Viðreisn" og "Bjartri framtíð" (ef hún lognast ekki út af) tekst að mynda ríkisstjórn eftir næstu þingkosningar og endurvekja allt þetta mál?
Er þá ekki betra að hafa varann á og forðast þá flokka sem taka fullveldisafsal til Evrópusambandsins í mál?
Ef þetta er í raun það mál, sem skeinuhættast getur orðið Lýðveldinu Íslandi og framtíðar-lífsmöguleikum þess sem eiginlegs sjálfstæðs og fullvalda ríkis með fulla stjórn á eigin auðlindum, er þá ekki ljóst, að þeir flokkar eru beinlínis hættulegir sem líklegir eru til að styðja innlimun Íslands í Evrópusambandið?
Jón Valur Jensson.
Hallast að því að gefa kost á sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Breytt s.d. kl. 04:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2016 | 11:53
Vilhjálmur Bjarnason alþm. er ESB-inntökusinni
Fullveldissinnaðir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks í Suðvesturkjördæmi geta með atkvæðum sínum stuðlað að því að fullveldissinnar komist á þing, en Vilhjálmur er ekki einn þeirra, er jafnvel í framkvæmdaráði hinna ESB-innlimunarsinnuðu öfugmælasamtaka "Já Ísland!" - situr þar með mönnum eins og Benedikt Jóhannessyni (formanni "Viðreisnar", nýs flokks Evópusambandssinna), Auðuni Arnórssyni stjórnmálafræðingi, fyrrv. blaðamanni Fréttablaðsins (en nú starfsmanni sendiráðs hér á landi), Baldri Dýrfjörð og Baldri Þórhallssyni, varaþingmanni Samfykingarinnar, "Jean Monnet-prófessor" og milljóna styrkþega Evrópusambandsins.
Þar eru einnig Bergur Ebbi Benediktsson lögfræðingur, Bolli Héðinsson hagfræðingur (skrifar iðulega í Fréttablaðið), Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir stjórnmálafræðingur (ung), Brynhildur Pétursdóttir, alþingismaður Bjartrar framtíðar, sem er að hætta á þingi, Ellisif Tinna Víðisdóttir, lögfræðingur og fyrrv. forstj. Varnarmálastofnunar, nú frkvstj. Kirkjuþings, Elvar Örn Arason, stjórnsýslufræðingur, G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, fv. fréttamaður, bróðir Þórólfs prófessors (sem sjálfur er óbreyttur félagsmaður í þessum öfugmælasamtökum), G. Valdimar Valdemarsson, kerfisfræðingur, var í Framsóknarflokki, síðast þegar fréttist.
Enn eru hér fleiri dæmi úr hinu 122 manna framkvæmdaráði ESB-sinnanna:
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri, fv. bæjarstjóri (maður Helgu Völu).
Guðbjörn Guðbjörnsson, yfirtollvörður og söngvari ágætur.
Guðjón Sigurbjartsson, framkvæmdastjóri og ráðgjafi, skrifar mikið í blöð um landbúnaðarmál og hefur fengið mikla faglega gagnrýni vegna fullyrðinga hans um verðlagsmál.
Guðmundur Gunnarsson, fv. formaður Rafiðnaðarsambandsins, sat í "stjórnlagaráði!
Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður "Bjartrar framtíðar"!
Guðrún Pétursdóttir (sendiherra Benediktssonar), lífeðlisfræðingur, fyrrv. forsetaframbjóðandi, ekkja Ólafs Bannibalssonar.
Og enn tökum við fleiri dæmi úr hinni opinberlega birtu skrá:
Gylfi Zoega, prófessor.
Hanna Katrín Friðriksson, framkvæmdastjóri, fv. blm. Mbl.
Helga Vala Helgadóttir lögfræðingur, m.a. hælisleitenda.
Helgi Jóhann Hauksson stjórnmálafræðingur.
Helgi Magnússon framkvæmdastjóri.
Helgi Pétursson tónlistarmaður.
Hilmar V. Pétursson, forstjóri CCP
Hörður Unnsteinsson stjórnmálafræðingur
Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.
Jón Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur, fv. skólastjóri.
Katrín Júlíusdóttir, alþingismaður, varaform. Samfylkingar, Icesave-kona.
Lúðvík Emil Kaaber, lögmaður og endurskoðandi.
Margrét Kristmannsdóttir, frkvstj., formaður SVÞ, Icesave-greiðslusinni.
Oddný G. Harðardóttir alþm., frambjóðandi í formannskjöri Samfylkingar.
Óttarr Ólafur Proppé, alþingismaður Bjartrar framtíðar, formaður þingnefndar um frumvarp til útlendingalaga, sem samþykkt voru samhljóða á Alþingi í gær, en sennilega í andstöðu við vilja verulegs fjölda landsmanna.
Páll Rafnar Þorsteinsson, heimspekingur
Pawel Bartoszek stærðfræðingur, skrifar í Fréttabl., sat í "stjórnlagaráði".
Pétur Gunnarsson blaðamaður.
Pétur J. Eiríksson hagfræðingur.
Sema Erla Serdar, stjórnmála- og Evrópufræðingur, háttsett í Samfylkingu.
Svanborg Sigmarsdóttir stjórnmálafræðingur, (fv.?) blm. á Fréttablaðinu
Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar.
Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur, var virkur í blaðaskrifum með ESB.
Í framkvæmdaráðinu, sem valið var á aðalfundi 30. september 2015, eru að endingu, meðal annarra, fleiri forvitnilegir aðilar eins og Vilhjálmur Þorsteinsson, frumkvöðull í CCP og Tortólamaður, fyrrv. gjaldkeri Samfylkingarinnar og fyrrv. stjórnarmaður Kjarnans (sagði af sér vegna Panamamálanna), sat þrátt fyrir ESB-kappsemi sína í "stjórnlagaráði" (!), Vilmundur Jósefsson, fv. formaður Samtaka atvinnulífsins, Svanborg Sigmarsdóttir stjórnmálafræðingur, Þorkell Helgason, fv. orkumálastjóri, sem einnig sat í "stjórnlagaráði", og Þorsteinn Pálsson, fv. forsætisráðherra.
Þjóðin á rétt á að vita um afstöðu þessa fólks. Áðurnefndur Vilhjálmur Bjarnason, fjárfestir og alþingismaður, hefur nú upplýst, að hann hyggist gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu í næstu kosningum. Naumast er hann valkostur fullveldissinna!
Jón Valur Jensson.
Vilhjálmur gefur áfram kost á sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.6.2016 | 11:59
Endurspeglar ný könnun yfirburði fullveldissinna?
Útvarp Saga er með nýja aðferð skoðanakannana, sem á að koma betur í veg fyrir ítrekuð innlegg sama manns/sömu fjölskyldu. Þar var að birtast niðurstaða sem gefur Davíð Oddssyni mikla yfirburði yfir Guðna Jóhannesson.
Reyndar var einkum leitað eftir afstöðu þátttakenda til þessara tveggja manna, þótt einnig væri hægt að velja þriðja valkostinn. Spurt var (1.-2. júní): Hvern ætlar þú að kjósa sem forseta Íslands? Gátu menn þá valið:
- Davíð Oddsson.
- Guðna Jóhannesson.
- Einhvern annan.
Niðurstaðan varð, að Davíð fekk 53,9% atkvæða, Guðni Th. 22,6%, og litlu færri fekk "einhver annar" valkostur: 22,3%.
Þetta er ekki í samræmi við ýmsar kannanir Gallup, MMR, Fréttablaðsins og Félagsvísindastofnunar HÍ, en raunar er vitað, að Davíð hefur verið í uppsveiflu, nær 1% á dag að meðaltali, en Guðni á niðurleið. En á vef Útvarps Sögu er þetta þó önnur könnunin sem sýnir yfirburði Davíðs. Fór sú fyrri fram 27.-30. maí, og þar voru allir frambjóðendurnir níu nafngreindir, en Davíð náði þar 39%, Sturla Jónsson 30,1%, Guðni 21,1%, Halla 3,7% og Andri Snær 3,2%. (Sjá nánar hér: Fyrsta skoðanakönnun sem sýnir DAVÍÐ ODDSSON efstan í forsetakjöri.) Þetta segir ekkert til um afstöðu þjóðarinnar, miklu fremur ákveðins hlustendahóps, þar sem menn taka sjálfir ákvörðun um þátttöku í skoðanakönnun, en á Útvarpi Sögu hefur Sturla þessi vörubílstjóri fengið margra ára góða kynningu vegna framlags hans til ýmissar umræðu.
En yfirburðir Davíðs í nýrri könnuninni er allnokkuð í þá átt að vera í samræmi við könnun MMR vorið 2015 þar sem spurt var hvort kjósendur vildu láta breyta stjórnarskránni þannig, að Alþingi verði heimilað að framselja hluta íslenzks ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana. Niðurstaðan var sú, að einungis 14% voru því hlynntir, en 69% andvígir, sjá nánar hér: Nær fimm sinnum fleiri andvígir framsali hluta íslenzks ríkisvalds en hlynntir!
Þá er þess að geta, að MJÖG hlynntir "aðild" að Evrópusambandinu eru bara 9,5% landsmanna skv. nýlegri könnun MMR birtri fyrir miðjan maí, en MJÖG andvígir eru 31,7%, meira en þrefalt fleiri. Þess vegna er þeim mun furðulegra að Guðni Th. Jóhannesson ljái máls á því að Ísland verði partur af þessu stórveldi og nefni ranglega sem "kost", að þá getum við losnað við krónuna! Sjá hér: Guðni Th. Jóhannesson er ekki einarður verjandi landsréttinda.
Jón Valur Jensson.
Skoðanakannanir | Breytt s.d. kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)