Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2015
27.11.2015 | 01:17
Þessum sendiherra er ekki stætt á að vera hér áfram - en um leið þarf ríkisstjórnin að taka á sig rögg!
Glöggt er athugað hjá Birni Bjarnasyni, að sendiherra ESB gefur í skyn að Gunnar Bragi og Sigmundur Davíð séu ómerkingar, er þeir segja ESB-umsóknina afturkallaða, en sendiherrann sjálfur fullyrti í Morgunblaðinu í gær að hugsanlegt sé að umsóknin um inngöngu í sambandið sé enn í fullu gildi, og þó hafa forystumenn ríkisstjórnarinnar ítrekað sagt að svo sé ekki.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ESB-sendiherra á Íslandi hlutast til um íslensk innanlandsmál. Forverar Brinkmanns hafa ekki fengið umvandanir af hálfu utanríkisráðuneytisins, segir Björn og veltir fyrir sér hvernig Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra bregðist við. (Mbl.is)
Ætlar Gunnar Bragi Sveinsson að sitja undir því, að yfirmaður sendinefndar Evrópusambandsins á Íslandi, Matthias Brinkmann, lýsi ráðherra ríkisstjórnarinnar ómerka orða sinna um þessi mál?
- Fyrri dæmi um íhlutun sendiherra ESB í okkar innanríkismál voru mjög gróf og snerust um Timo Summa, hinn finnska sendiherra Evrópusambandsins. Sjá um það hér: Lögleysu-athæfi sendiherra, en þó umfram allt hér í hinni eitilsnjöllu grein Tómasar Inga Olrich, fyrrv. sendiherra: Summa diplómatískra lasta.
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar geta ekki unað því að vera virtir með þessum hætti að vettugi af sendiherra ESB og af Evrópusambandinu sjálfu -- því að ljóst er, að sendiherrann talar í fullu umboði þess, til þess hefur hann fullt vald, eins og áherzla var lögð á í síðustu grein hér á þessu vefsetri, og á sömu sveif leggst Styrmir Gunnarsson, með öðrum rökum, í grein á vefsetri sínu þennan fimmtudag: Yfirlýsing sendiherrans jafngildir formlegri afstöðu ESB.
Þar með hefur ríkisstjórnin fengið það staðfest, að Evrópusambandið tekur ekki mark á bréfaskrifum Gunnars Braga utanríkisráðherra, sem áttu að heita uppsögn hans f.h. ríkisstjórnarinnar á Össurarumsókninni frá 2009. Þessi bréf Gunnars Braga voru í raun aðferð hans til að víkja sér undan því að leggja málið fyrir Alþingi; ástæðan var ekki merkilegri en svo, að þarna var gripið til þess ráðs að gefast upp fyrir samfelldum áróðurs-þrýstingi Samfylkingarinnar, annarra ESB-sinna og samherja þeirra í fjölmiðlum, þ.m.t. í sjálfum ríkisfjölmiðlunum, sem voru blygðunarlaust misnotaðir í þessu skyni misserum saman.
Menn lesi nú endilega skrif Björns og Styrmis um málið, en ríkisstjórnin hefur nú það augljósa, knýjandi verkefni, sem ágætur maður, Jóhann Elíasson, lýsti svo, að hún ætti "að hætta þessari hræðslu við stjórnarandstöðuna og leggja fram frumvarp um afturköllun umsóknarinnar og afgreiða það frumvarp á þann hátt sem ber ... að afturkalla þessa umsókn á ÓUMDEILDAN HÁTT ÞANNIG AÐ EKKI VERÐI UM NEINA ÓVISSU AÐ RÆÐA."
Slík afturköllun væri einmitt í fullu samræmi við stefnumörkun landsfunda ríkisstjórnarflokkanna tveggja stuttu áður en þeir komust til valda.
Jón Valur Jensson.
Hvað gerir Gunnar Bragi núna? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 03:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.11.2015 | 19:42
Sendiherra ESB tjáir vilja ESB: að komast yfir Ísland
Ófyrirleitið er það ekki aðeins af sendiherra ESB á Íslandi, heldur af stórveldinu sjálfu að tala um að Össurarumsóknin geti enn verið í gildi, því að fullmektugur (plénipotentiaire) er sendiherrann til að tjá stefnu Evrópusambandsins fyrir þess hönd, skv. sínu skipunarbréfi, og gerði það með þessu (sjá tengil neðar).
Það var við því að búast, að refsskapur Brusselmanna kæmi fram í þessu máli, ekki sízt þegar utanríkisráðherrann Gunnar Bragi reyndist jafn-ragur, svikull og meðfærilegur í málinu og raun ber vitni og ríkisstjórnin engu skárri.
Menn hafa lengi vitað um yfirlýstan illan ásetning Árna Páls og Össurar í málinu: Þeir hafa skrifað til Brussel og láta sem bréf Gunnars Braga hafi ekkert gildi og að ótrauðir ætli þeir sér að "halda áfram með" umsókn sína (Össurarumsóknina ólögmætu) um leið og þeim gefst tækifæri til, enda telur Samfylkingin hana í fullu gildi eða lætur sem hún sé það.
Og þetta er auðvitað útþenslusinnuðu stórveldinu að skapi. Þess vegna eiga menn ekki að láta það blekkja sig, hvað gerzt hefur á einhverjum (en alls ekki öllum) vefsíðum ESB. Engin formleg yfirlýsing hefur komið frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um að Ísland hafi endanlega og formlega hætt við umsóknina og að hún sé því ekki lengur til staðar og að sækja yrði um upp á nýtt, ef einhver ríkisstjórn hér vildi komast inn í þeirra tröllslega bákn.
Og þess vegna eiga menn heldur ekki að láta það koma sér á óvart hvernig sendiherra ESB talar. Það staðfestir einmitt það, sem hér var sagt um stefnu Evrópusambandsins í málinu, enda er sendiherrann þess löglega málpípa með fullu valdi til að lýsa stefnu þess fyrir þess hönd.
Svo er það bara aukageta hans, svona eins og til gamans að stinga fleini í Gunnar Braga og sýna honum fullkomna óvirðingu um leið, að láta vita af því, að það sé ekkert mark tekið á leikþætti hans og óskuldbindandi afturfóta- og handarbaks-vinnubrögðum.
Hér verðum við að vera sammála Styrmi Gunnarssyni* og Jóni Bjarnasyni,** formanni Heimssýnar, eins og þeir hafa sjáð sig um málið.
* http://styrmir.is/entry.html?entry_id=2160442
** http://jonbjarnason.blog.is/blog/jonbjarnason/entry/2160457/
ESB-umsóknin mögulega enn í gildi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.11.2015 | 05:15
Samfylkingin orðin munaðarlaus vegna allsherjarvanda ESB?
Nú vill meirihluti Breta (53:47%) úrsögn lands síns úr Evrópusambandinu. Einungis 22% telja líklegt að Cameron takist að landa góðu samkomulagi við ESB skv. nýrri könnun.
Virkilega sorglegt fyrir Samfylkingar-kálfa,
sauðtryggir sem elta vildu Jóhönnu´ að því borði.
Munaðarlausa þá mætti kalla, álfa,
og mjög svo út úr hól, ef við kveðum rétt að orði.
Jón Valur Jensson.
Meirihluti Breta vill úr ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2015 | 13:04
Finnskur efnahagur stefnir nú mest allra niður á við á evrusvæðinu
Finnland er nú kallað nýjasti "sjúklingur Evrópu" (þetta heiti var fyrst notað um Tyrkjaveldi í aðdraganda hruns þess snemma á 20. öld). Met-samdráttur þjóðarframleiðslu, ósamkeppnishæfi vegna launakostnaðar, lélegt gengi Nokia, allt þetta stuðlar að slökustu frammistöðu Finnlands nú á 3. ársfjórðungi 2015.
En það er ekki hrópandi húrra fyrir hinum evrusvæðis-löndunum, aðeins tvö þeirra, Spánn og Slóvakía, skríða lítillega yfir 0,5% aukningu þjóðartekna, en meðaltalshækkunin á evrusvæðinu aðeins 0,3% (margfalt minni en hjá okkur Krónlendingum):
Sjá frétt The Telegraph í dag: Finland emerges as the 'new sick man of Europe' as euro's worst performing economy.
JVJ.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2015 | 16:41
Ekki þurftum við á Evrópusambandinu að halda til að fá allan þennan fjölda ferðamanna
Árið 2012 fjölgaði ferðamönnum hingað um 20%, árið 2013 um 21%, fyrra um 24%, en eftir fyrstu 10 mán. þessa ársins er aukningin 30% milli ára, var 1.109.000 manns (855 þús. á sama tímabili í fyrra).
Ekki hefði þetta gerzt í þvílíkum mæli, ef við hefðum verið í Evrópusambandinu, þegar bankakreppan reið yfir. Við hefðum lent í sömu súpunni og Írar, sem búa við talsvert atvinnuleysi og miklu rýrari hagvöxt en við, enda þrælbundnir evrunni, sem gaf þeim engan sveigjanleika til að taka áfallinu 2008.
Jón Valur Jensson.
Ferðamannafjöldinn umfram allar spár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)