Löngu tímabær þingsályktunar­tillaga komin fram um að draga til baka umsókn Íslands (þ.e. Össurar og fylginauta hans) um að ganga inn í ESB

Komin er fram ágæt þings­álykt­unar­tillaga þing­manna Flokks fólks­ins, Ingu Sæ­land og Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar, um að um­sókn Íslands (Össurar­umsóknin) um inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið frá ár­inu 2009 verði dreg­in til baka.

Fram kem­ur í grein­ar­gerð með þings­álykt­un­ar­til­lög­unni að ákveðin óvissa ríki um það hver staða um­sókn­ar­inn­ar um inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið sé. Komið hafi þannig fram ít­rekað hjá sam­band­inu að Ísland hefði ekki dregið hana til baka.

Þannig sé ekki ljóst hvort Evr­ópu­sam­bandið líti svo á að um­sókn­in hafi verið dreg­in til baka eða hvort sam­bandið hafi ein­ung­is fært Ísland af lista yfir um­sókn­ar­ríki sam­kvæmt ósk stjórn­valda til mála­mynda en telji um­sókn­ina enn full­gilda.

Þings­álykt­un hafi verið samþykkt á sín­um tíma um að sótt yrði um inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið, en hins veg­ar hafi eng­in þings­álykt­un verið samþykkt um að draga um­sókn­ina til baka. Til­gang­ur­inn með þings­álykt­un Flokks fólks­ins er að tryggja að Ísland dragi um­sókn sína um inn­göngu í sam­bandið til baka.

Og þótt fyrr hefði verið! Það er engin ástæða fyrir stjórnvöld til að draga lappirnar í þessu máli.

Jón Valur Jensson.


mbl.is ESB-umsóknin verði dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband