Hér sést niðurstaða lokaatkvæðagreiðslu 16. júlí 2009 um þingsályktunartillögu á Alþingi um umsókn um inngöngu í Evrópusambandið (heimild: althingi.is); áður birt á Krist.bloggi, en bætt við uppl. hér um núv. þingmenn:
Atkvæðagreiðsla
38. mál. aðildarumsókn að Evrópusambandinu
Þskj. 38. , svo breytt,
16.07.2009 14:00
Samþykkt
Atkvæði féllu þannig: | Já 33, nei 28, greiddu ekki atkv. 2 |
fjarvist 0, fjarverandi 0 |
AtlG: nei, ÁI: já, ÁPÁ: já, ÁJ: nei, ÁÞS: já, ÁsbÓ: nei, ÁsmD: nei, ÁRJ: já, BÁ: nei, BirgJ: nei, BJJ: já, BjG: já, BjarnB: nei, BjörgvS: já, EKG: nei, EyH: nei, GuðbH: já, GLG: sat hjá, GÞÞ: nei, GStein: já, GBS: nei, HHj: já, HöskÞ: nei, IllG: nei, JóhS: já, JBjarn: nei, JónG: nei, JRG: já, KJak: já, KaJúl: já, KÞJ: nei, KLM: já, LRM: nei, LMós: já, MSch: já, MT: nei, OH: já, ÓÞ: já, ÓN: nei, PHB: nei, REÁ: nei, RR: já, RM: já, SDG: nei, SER: já, SII: já, SIJ: nei, SF: já, SkH: já, SJS: já, SVÓ: já, SSv: já, TÞH: nei, UBK: nei, VBj: já, VigH: nei, ÞKG: sat hjá, ÞSa: nei, ÞSveinb: já, ÞrB: já, ÞBack: nei, ÖJ: já, ÖS: já
Á nafnalistunum hér á eftir eru þeir þingmenn feitletraðir, sem eru alþingismenn nú í haust, 2019 (varaþingmenn, sem setið hafa, eins og Álfheiður Ingadóttir, eru ekki feitletraðir):
já:
Álfheiður Ingadóttir, Árni Páll Árnason, Árni Þór Sigurðsson, Ásta R. Jóhannesdóttir, Birkir Jón Jónsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Björgvin G. Sigurðsson, Guðbjartur Hannesson, Guðmundur Steingrímsson, Helgi Hjörvar, Jóhanna Sigurðardóttir, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Katrín Júlíusdóttir, Kristján L. Möller, Lilja Mósesdóttir, Magnús Orri Schram, Oddný G. Harðardóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Róbert Marshall, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Siv Friðleifsdóttir, Skúli Helgason, Steingrímur J. Sigfússon, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Þráinn Bertelsson, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.
nei:
Atli Gíslason, Árni Johnsen, Ásbjörn Óttarsson, Ásmundur Einar Daðason, Birgir Ármannsson, Birgitta Jónsdóttir, Bjarni Benediktsson, Einar K. Guðfinnsson, Eygló Harðardóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Gunnar Bragi Sveinsson, Höskuldur Þórhallsson, Illugi Gunnarsson, Jón Bjarnason, Jón Gunnarsson, Kristján Þór Júlíusson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Ólöf Nordal, Pétur H. Blöndal, Ragnheiður E. Árnadóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Tryggvi Þór Herbertsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Vigdís Hauksdóttir, Þór Saari, Þuríður Backman.
sat hjá:
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir.
Það er athyglisvert, að einungis 16 af þeim þingmönnum í júlí 2009, sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni, eru enn sitjandi alþingismenn, þar af 5 já-menn gagnvart tillögunni, 10 nei-menn og ein kona sem sat hjá (en gerðist reyndar síðar formaður helzta ESB-flokksins í landinu). Af þeim 33 þingmönnum, sem greiddu ESB-tillögunni atkvæði sitt 2009, hefur 27 ekki haldizt vel á þingsæti sínu, en einn er látinn; fimm sitja hins vegar enn á Alþingi. En af þeim 28, sem greiddu atkvæði á móti, eru tveir þingmenn látnir, tíu enn á þingi, en 16 viknir þaðan.
PS. (jvj): Á þessu sést, að Jón Bjarnason, þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, greiddi atkvæði gegn þessari umsókn, sem Samfylkingin átti allt frumkvæði að. Jóni var síðar bolað út úr ríkisstjórninni. Þjáningarbróðir hans, Ögmundur Jónasson, greiddi hins vegar atkvæði með ESB-umsókninni, þeirri sem hér hefur löngum verið kennd við Össur Skarphéðinsson, sem þarna sést við hlið hans á listanum. Hvorugur þeirra er lengur á þingi, og naumast eiga þeir heldur erindi á Bessastaði!
Jón Valur Jensson.
Athugasemdir
Jón Valur það er rétt og gott að rifja svona upp. Össur þegir og segir ekkert lengur hvað þá Jóhanna. Þetta verður að birta á Alþingi is eða pósta á þingmennina og ef ég má þá skal ég geta það.
Valdimar Samúelsson, 17.10.2019 kl. 19:55
Þér er velkomið að miðla þessu til þingmanna sem annarra, Valdimar!
JVJ.
Samtök um rannsóknir á ESB ..., 26.10.2019 kl. 19:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.