9.1.2017 | 12:50
Höfum gát á ríkisstjórn með tvo ESB-innlimunarsinnaða flokka, þótt flestir sjálfstæðismenn standi með fullveldinu
Full ástæða er til að hafa auga með ESB-stefnu hins hvikula Bjarna Benediktssonar og nýs ráðuneytis hans, sem er í burðarliðnum. Þótt ESB-málið verði svæft þar til undir lok kjörtímabilsins, er ekki allt á hreinu í raun, og við verðum enn að bíða beinna yfirlýsinga frá hinni nýju stjórn; ekki er unnt að treysta á óstaðfestar fregnir.
En staða málsins mun nú vera þessi skv. Mbl.is og tilgreindri heimild:
Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar mun ekki leggja fram tillögu á Alþingi varðandi mögulega umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu á núverandi kjörtímabili.
Þetta kemur fram í drögum að stjórnarsáttmála sem formenn flokkanna þriggja hafa kynnt fyrir þingflokkum sínum. Þó er með nokkuð almennu orðalagi opnað fyrir þann möguleika að þingmenn stjórnarmeirihlutans geti stutt þingmál varðandi umsóknarferli að Evrópusambandinu, komi slíkt mál fram undir lok kjörtímabilsins, eins og það mun vera orðað í sáttmáladrögunum. Ekki virðist þó liggja fyrir nákvæm skilgreining á því við hvaða dagsetningu skuli miðað með orðalaginu undir lok kjörtímabilsins.
Samtök um rannsóknir á Evrópusambandinu og tengslum þess við Ísland óska landsmönnum öllum nær og fjær farsæls nýs árs.
Jón Valur Jensson.
Evrópumálin sett á ís | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkar: Löggæsla, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:53 | Facebook
Athugasemdir
Með stjórn sem finnst skattsvik siðferðislega rétt þurfum við ekki að hafa neinar áhyggjur af ESB, þeir mundu neita okkur um inngöngu.
Jón Páll Garðarsson, 10.1.2017 kl. 15:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.