1.4.2016 | 17:06
Össur Skarphéðinsson nuddar sér utan í forsetann, telur sig með tvöfeldni komast á Bessastaði
Það var þá helzt, að Össur yrði "hinn eðlilegi arftaki Ólafs Ragnars Grímssonar"! Uppsleikiháttur Ö.Sk. við forsetann í grein í Fréttabl. í sl. viku olli klígju; hann þóttist jafnvel ánægður með frammistöðu forsetans í Icesave-málinu, og samt var Össur þá sjálfur í fjandaliði forsetans og stóð að þingsamþykkt allra Icesave-frumvarpanna!
Össur gefur þarna skýrt og sorglegt dæmi um tvöfeldni stjórnmálamanns. Ætlum við að kjósa slíkan mann á Bessastaði? jafnvel með þeim orðum, að hann sé verðugur arftaki Ólafs Ragnars Grímssonar?!*
Svo sniðgekk og vanvirti Össur stjórnarskrárbundið vald forsetans í sambandi við þingsályktunartillögur um "mikilvæg stjórnarmálefni" eða "mikilvægar stjórnarráðstafanir" (eins og það heitir í 16. og 17. gr. stjórnarskrárinnar) þetta gerðist einmitt með ólögmætri afgreiðslu ESB-umsóknarinnar, þegar Össur í embætti utanríkisráðherra SNUÐAÐI Ólaf Ragnar um fyrirmæltan rétt hans til að skrifa eða skrifa EKKI upp á þingsályktunartillögu hins veika meirihluta Alþingis sem vildi sækja um inngöngu í stórveldið, sjá nánar hér: http://fullveldi.blog.is/blog/fullveldi/entry/1309618/
Sá réttur forsetans hefði getað opnað þjóðinni aðkomu að málinu, þvert gegn andstöðu Össurar og Jóhönnustjórnarinnar allrar við tillögur um að leggja það umsóknarmál undir þjóðaratkvæði.
Er Össur þá réttmætur erfingi herra Ólafs Ragnars? Svari því hver fyrir sig!
* Sbr. grein Egils Helgasonar á Eyjunni í liðinni viku (endurbirta í DV): Pólitísk hjaðningavíg í forsetakosningum? en hún endar þannig (og felur í sér alveg rétt mat á Fréttablaðs-skrifum Össurar):
"... Össur er hins vegar mjög altillegur þegar forsetakosningarnar ber á góma og í síðustu viku birti hann grein sem hafði það inntak að hann væri hinn eðlilegi arftaki Ólafs Ragnars Grímssonar."
Jón Valur Jensson.
Baráttan um Bessastaði harðnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Fullveldi og sjálfstæði Íslands | Aukaflokkar: Löggæsla, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:17 | Facebook
Athugasemdir
Össur virðist þá vera búinn að finn sér eitt atkvæði, sitt eigið. Það er ekki ónýtt að bjóða sig fram til forseta með slíkt fylgi að baki sér!
Gunnar Heiðarsson, 1.4.2016 kl. 20:29
Fyrir utan það að þessi mörgu framboð, sem eru komin fram, rýra gildi embættisins og einhver með 8% fylgi gæti orðið forseti lýðveldisins. Ansi öflugt umboð það. Svona gæti Össur orðið forseti..
Jóhann Elíasson, 2.4.2016 kl. 10:56
Megi það aldrei verða!
Jón Valur Jensson, 2.4.2016 kl. 13:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.