7.3.2016 | 12:40
Jón Baldvin Hannibalsson afhuga Evrópusambandinu: "Það þýðir ekkert að tala um að ganga inn í brennandi hús!"
"Þegar ég horfi á Evrópu núna sé ég Evrópusamband sem er nánast í sjálfsmorðsleiðangri ... og allt þar í rugli. Frammistaða ESB núna sýnir algert pólitískt forystuleysi, alltaf viðbrögð eftir á og skammarlega lítilmennsku. Við göngum ekki inn í brennandi hús núna. Slökkvið fyrst eldana, sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, í viðtali á Morgunvaktinni á Rúv í morgun, en hann hefur endurskoðað afstöðu sína til aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Þar sé allt í rugli.
Rúv segir frá þessu á vef sínum og birtir þar viðtal Óðins Jónssonar við hann. Gefum Jóni Baldvin sjálfum orðið:
Hér talar maður sem var harðvítugasti talsmaður þess að við eftir hrun gengjum í samfélag lýðræðisríkja, Evrópusambandið. Ég hef endurskoðað þá afstöðu. Einfaldlega vegna þess að þegar ég horfi á Evrópu, þá sé ég Evrópusamband sem er nánast í sjálfsmorðsleiðangri vegna þess að pólitíska forystan hefur algjörlega brugðist - og það er kreppa eftir kreppu eftir kreppu. Peningasamstarfið er byggt á röngum grunni og stenst ekki. Það mun ekki standast nýtt áhlaup", sagði Jón Baldvin.
Já, hann skefur ekki af því, eftir að hafa fylgzt með þessu stórveldabandalagi sem hann áður dáði!
Sú stefna sem Evrópusambandið hefur rekið undir forystu Merkel gagnvart þeim þjóðum sem fóru verst út úr hruninu (þá er ég að tala um Grikkland, Kýpur, Íberíuskagann, Írland) er rugl! Tómt efnahagslegt rugl! Og ekki boðleg. Og síðan, frammistaða Evrópusambandsins gagnvart þeirri áraun sem fylgja flóttamannahræringum um allan heim sýnir algjört pólitískt forystuleysi, alltaf viðbrögð við atburðum eftir á og í þessum málum skammarlega lítilmennsku. Er Jón Baldvin Hannibalsson með öðrum orðum ekki lengur fylgjandi því að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu? Það þýðir ekkert að tala um að ganga inn í brennandi hús.
Í staðinn eigum við að "koma okkar eigin húsi í lag og búa okkur undir það síðar meir að geta verið þjóð meðal þjóða."
Hér mega ESB-innlimunarsinnar strjúka svitann af enninu, reyna að jafna sig og hlusta á yfirveguð orð þessa fyrrv. formanns Alþýðuflokksins, eins harðasta talsmanns þess að Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu, því að ...
Jón Baldvin tekur þó fram að framtíðarsýnin sé óbreytt, að vera í nánu sambandi við aðrar lýðræðisþjóðir, sérstaklega á Norðurlöndum og við Eystrasalt, en hann sé pólitískur raunsæismaður. Við göngum ekki inn í brennandi hús núna. Slökkvið fyrst eldana.
Fátt um jafnaðarmenn nú orðið, en "vofa fasismans gengur ljósum logum um Evrópu"
Hann sagðist sjá núna tvo jafnaðarmenn í heiminum: Annar væri "hans heilagleiki páfinn" Franz, en hinn Bernie Sanders, frambjóðandi í Demókrataflokknum til embættis forseta Bandaríkjanna.
Hann segist hræddur við margt í samtímanum, að þetta geti farið til verri vegar: "Ég er skíthræddur, alltsvo: vofa fasismans gengur ljósum logum um Evrópu." Hann hafi ekki búizt við, að þetta gæti átt sér stað árið 2016, hann sé ekki alvitur! Og síðan fylgdu orð hans um Evrópusambandið, þau sem tilfærð hafa verið hér ofar!
Jón Valur Jensson tíndi saman.
Svíþjóðardemókratar styðja Brexit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkar: Fjármál, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:07 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.