23.2.2014 | 20:44
Bullandi ESB-agitasjón á 365 fjölmiðlum ... og jafnvel Ríkisútvarpinu!
Augljóst er, að ESB-áróður hefur allan forgang bæði á Bylgjunni og Stöð 2, fjölmiðlum ESB-sinnans Jóns Ásgeirs Jóhannessonar eða konu hans. Hádegis"fréttir" Bylgjunnar í gær voru afar hlutdrægar eins og "fréttir" Stöðvar 2 kl. 19.30 í kvöld allt í þágu þess að liðka fyrir innlimun Íslands í stórveldið, svo að við getum nú loksins misst okkar sjálfstæði í hendur einhverra virðulegri pótentáta en okkar eigin fólks.
Huld Þórsdóttir, meintur fréttamaður á Bylgjunni og Stöð 2, virtist vel undirbúin í yfirumsjón með áróðrinum bæði á Bylgjunni í gær og Stöð 2 í kvöld og virðist hafa lagt sig eftir sérstakri matreiðslu.
Þá er Fréttastofa Rúv enn með hugann og hjartað við áherzlur Samfylkingarinnar (þeirrar sem missti 56,7% af kjörfylgi sínu við síðustu kosningar eftir "frammistöðuna" í fjögur ár) og sýndi það skýrt bæði í hádegisútvarpi í gær og Sjónvarpinu í gærkvöldi og í kvöld.
Í kvöld var þó rætt við Ragnheiði Elínu Árnadóttur úr Sjálfstæðisflokki, en ótrúlegt klúður hennar, þvert gegn landsfundi, en kannski í hlýðni við hinn óhlýðna Bjarna Ben., kom þar af vörum hennar, svo að skelfilegt var á að hlusta nema í eyrum evrókrata ekki þó svo, að við óttumst það hér, að hætt verði við að hætta! Þingsályktunartillagan er komin fram, og þingflokkurinn lætur það ekki líðast, að fullveldisafsalssinnar eins og Vilhjálmur Bjarnason og utanaðkomandi hagsmunaaðilar fari að hnekkja ákvörðun þingflokksins. Undirskriftasöfnun evrókrata, sem komin er í gang, er ennfremur að engu hafandi vegna falsaðra forsendna hennar.
Á morgun, mánudag, verður bæði verður framhald þingumræðu um skýrslu utanríkisráðherra vegna aðildarviðræðna við Evrópusambandið, byggð á skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ, og einnig umræða um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um að draga aðildarumsóknina að Evrópusambandinu til baka.
Tillagan hljóðar svo:
Tillaga til þingsályktunar
um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu
og um eflingu samstarfs við Evrópusambandið og Evrópuríki.
(Lögð fyrir Alþingi á 143. löggjafarþingi 20132014.)
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að treysta tvíhliða samskipti og samvinnu við Evrópusambandið og Evrópuríki.
Tillögunni fylgja miklar athugasemdir og tvö fylgiskjöl. Þetta er vefslóð Alþingis með öllu saman: http://www.althingi.is/altext/143/s/0635.html
Rætt um Evrópumálin á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkar: Fullveldi og sjálfstæði Íslands, Stjórnmál og samfélag, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:56 | Facebook
Athugasemdir
Hvernig væri að Evrópubandalagssinnar læsu þetta? Þ.e.a.s. ef þeir skilja það:
http://ec.europa.eu/enlargement/pdf/publication/20110725_understanding_enlargement_en.pdf
Jón Steinar Ragnarsson, 24.2.2014 kl. 01:12
Aha, einmitt !
Sbr. einnig hér: "Aðildarviðræður" - straight from the horse's mouth (ESB).
Jón Valur Jensson, 24.2.2014 kl. 01:42
En strákar við fáum svo rosalega gott díl..
Við fáum algjöran jóla"pakka" til að kíkja í.
Endalausar undanþágur enda er ESB að sækja um aðild að Íslandi. ( er það ekki ? )
ekkert nema sól og sæla.... bara með evrunni
ég er andvígur þessu esb-bákni en vegna þess að staðan er orðin svona eins og hún er, þá vil ég bara kjósa um þetta og fella, svo þessu kjaftæði ljúki einhverntíman.
Þetta "kíkja í þenna djö... pakka" og "við verðum bara ein í heiminu" er orðinn svo sorglegur málflutningur hjá já-sinnum.
Ég treysti þjóðinni til að taka upplýsta ákvörðun, það eru þá 3 mánuðir til að kynna sér málið.
Það þarf að fá ákvörðun þjóðarinna og hún situr svo uppi með þá ákvörðun. inn eða út
Ólafur Ingi Brandsson, 24.2.2014 kl. 16:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.