15.10.2012 | 08:21
"Fallbyssan" talar - fólkið þegi
Ríkisstjórnin ætlar að skjóta landsmenn í kaf með "nýrri stjórnarskrá", hvað sem tautar og raular.
Búið er að hlaða byssuna til að skjóta niður gömlu stjórnarskrána, sem sýnt hefur og sannað kosti sína í verstu efnahagsþrengingum lýðveldistímabilsins. Lögfræðingahópur fenginn til að skjóta niður öll mótmæli.
Skiptir engu máli hversu margir kjósa né hvað landsmenn segja. Allt verður að fóðri í byssukjaftinum til að valta yfir landsmenn. Alþingi fær ekki að ræða efnislega um málið svo þeir þingmenn, sem standa við loforð sitt að vernda stjórnarskrá lýðveldisins fái ekki að tala.
Í þágu ESB. Ríkisstjórnin er á síðustu metrunum að koma sér á Brusselspenann og fá flotta titla fyrir uppgjafa ráðherra, sem enginn vill ráða aftur í starf embættismanna á Íslandi.
Ólöglegt stjórnarráð með kvittun frá Hæstarétti um að þeir hafa ekki löglegt umboð almennings ætlar að afnema góðu stjórnarskrána okkar. Kjósa á um málið á ólöglegum degi, sem Alþingi hefur ekki valið.
Upplásnir hrokagikkir menntaklíku 101 Reykjavík ætla að:
1. Afnema stjórnarská lýðveldisins frá 1944
2. Afnema kristni sem opinbera trú á Íslandi
3. Afnema jafnvægi milli landsbyggðar og þéttbýlis
4. Afnema rétt þjóðarinnar að greiða þjóðaratkvæði um fjárlög, fjáraukalög, þjóðréttarskuldbindingar, skatta og ríkisborgarrétt
5. Afnema vald landsmanna við breytingar á stjórnarskrá
6. Innleiða ríkiseign á auðlindum þjóðarinnar
7. Innleiða völd til þingmanna að afsala ríkisvaldinu til erlendra ríkja
Þetta er hin hliðin á Icesave og makríldeilunni. Þetta er landráðasamningur svo ESB geti komist yfir sjávarauðlind Íslendinga og utanríkissamninga landsmanna.
Vonandi rísa landsmenn upp og senda þessa hrákasmíði beinustu leiðina í ruslafötuna!
SEGJUM ÖLL NEI!
Gústaf Adolf Skúlason
Álit á tillögum stjórnlagaráðs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkar: Fullveldi og sjálfstæði Íslands, Stjórnmál og samfélag, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 08:35 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.