Mun fylgið streyma frá Sjálfstæðisflokknum til tveggja annarra flokka vegna Þriðja orkupakka ESB? (m/viðauka)

"Vonandi rennur það upp fyrir æ fleirum á þingi, að það er allt of mikil áhætta fólgin í því fyrir hag lands­ins að inn­leiða Þriðja orku­pakka ESB. Áhætt­an við að hafna honum er hjóm eitt í sam­an­burð­inum. Að lenda í stappi við ESB síðar út af leyfis­umsókn fyrir sæstreng er hið versta mál, því að þá stendur ESB með pálmann í hönd­unum. Nú er rétt­urinn okkar til að hafna, en rétt­ur­inn til að hafna sæstrengs­umsókn eftir samþykkt bálksins verður aftur á móti ekki okkar. Slík höfnun yrði stórmál gagnvart EES, en höfnun pakkans ekki."

Bjarni Jónsson Svo mælti Bjarni Jónsson rafmagnsverkfræðingur réttilega!

 

Iðnaðarráðherra, með vafasama, ESB-mótaða starfsmenn á sínum vegum, lætur sem samþykkt "pakkans" sé lítið mál, þegar í reynd fjöregg fullveldis okkar í orkunýtingar- og verðlagningarmálum er í húfi, eins og ofangreindur Bjarni hefur rökstutt manna bezt. 

Það var gleðilegt að sjá grein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í Morgunblaðinu í gærmorgun, Suma pakka er betra að afþakka. Miðflokkur hans stendur einarður gegn því að hleypa Þriðja orkupakkanum í gegnum þingið. Það sama á við um Flokk fólksins.

Jón Valur Jensson Margir kjósendur Sjálfstæðisflokksins hafa þessa sömu afstöðu, og farnar eru að sjást og heyrast yfirlýsingar nokkurra þeirra um að þeir ætli að yfirgefa flokkinn, ef hann eða ýmsir þingmanna hans gera ógæfumuninn til að troða þessu þjóðfjandsamlega máli í gegn, þvert gegn afstöðu landsfundar flokksins og samhljóða samþykktra yfirlýsinga tveggja fjölmennra, almennra flokksfunda hans í haust.

Nú er Sjálfstæðisflokkurinn kominn niður í um 20,5% í skoðanakönnun. Hefur hann efni á því að taka sviksamlega afstöðu í þessu máli og hrinda frá sér fleiri flokksmönnum? Með því móti gæti flokkurinn endað með minna hlutfall atkvæða en hinir úthrópuðu Svíþjóðardemókratar (17%) eða orðið ámóta smár og Alþýðubandalagið gjarnan var (um 16%)! Þá yrði flokkurinn í bezta falli varadekk undir samsteypustjórnir vinstri flokka á komandi árum!

Sjálfstæðismenn þurfa því að sjá þetta bæði sem baráttu fyrir fullveldis­réttindum þjóðarinnar á sviði náttúruauðlinda og orkuiðnaðar og enn­fremur sem baráttu fyrir því, að þeirra eigin flokkur endi ekki á ruslahaugi sögunnar.

Iðnaðarráðuneytið hefur ekki komið með nein gild rök fyrir því, að það yrði okkur til hagnaðar að samþykkja Þriðja orkupakkann -- og heldur ekki, að það yrði okkur til tjóns að gera það ekki.

En þau þurfa ekki að hanga í þeirri hugsun einni. Líti þau bara til þess, að í skoðanakönnun MMR í vor reyndust margfalt fleiri andvígir samþykkt þessa ESB-pakka heldur en hinir, sem hlynntir voru. Ætlar Þórdís Reykfjörð að ganga gegn eindregnum vilja þjóðarinnar í málinu og hvers vegna? Ætla Bjarni Benediktsson og þingflokksformaður hans að umbera það, að þingmenn Sjálfstæðis­flokksins svíki stefnu hans og greiði atkvæði með orku­pakkanum? -- þessari líka óþurftar­sendingu frá Brussel-valdinu!

Myndaniðurstaða fyrir sigmundur davíð gunnlaugsson Sigmundur Davíð ritaði í nefndri grein, Suma pakka er betra að afþakka

"Ég skora á ríkisstjórnina að fara nú þegar fram á að Ísland fái undanþágu frá orkupakkanum og skili honum svo til sendanda. Í því efni getur ríkisstjórnin reitt sig á stuðning Miðflokksins."

Ennfremur ritaði hann þar í byrjun: 

"Þegar Evrópusambandið afhendir pakka, snýst það gjarnan um að taka eitthvað af viðtakendunum, setja þeim nýjar takmarkanir og skerða ákvörðunarrétt þeirra, jafnvel sjálfstæði heilla þjóða."

Og undir lokin ritaði Sigmundur:

"Það að koma í veg fyrir að erlendar stofnanir öðlist yfirþjóðlegt vald á Íslandi og aðrir hagsmunir samfélagsins verði veiktir ætti ekki að vera pólitískt þrætuepli innan lands, ekki frekar en önnur mál sem snúa að því að verja hagsmuni landsins út á við eða sjálft fullveldið.

Það er grátlegt að stjórnvöld telji það ekkert tiltökumál að framselja sneið af sjálfstæði landsins á sama tíma og haldið er upp á að 100 ár séu liðin frá því að Ísland endurheimti fullveldi sitt. Um leið fara svo fram umræður um hvort eigi að afnema svo kallað fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar til að auðvelda slíkt framsal í framtíðinni."

Það er von að þessum flokksforingja blöskri.

VIÐAUKI:

Styrmir Gunnarsson, fv. ritstjóri Mbl., benti á þetta á vefnum Styrmir.is:

"Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sl. vetur var samþykkt ályktun þess efnis að flokkurinn hafnaði frekara framsali á yfirráðum yfir íslenzkum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins. Í skoðanakönnun sem Maskína gerði fyrir Heimssýn sl. vor kom fram, að 91,6% kjósenda Sjálfstæðisflokksins eru sama sinnis. Afstaða fundarmanna í gær fór ekki á milli mála. Forysta og þingflokkur Sjálfstæðisflokks geta ekki hundsað viðhorf almennra flokksmanna í þessu máli."

Og undirritaður spyr: Hvernig getur Bjarni Benediktsson hundsað álit yfir 90% kjósenda Sjálfstæðisflokksins? Stefnir hann að endalokum flokksins eða klofningi? Hvað verður þá eftir af honum? Hvað er svona mikils virði fyrir BB og BB frænda hans, fyrrv. dóms- og menntamálaráðherra, að þeir vilji taka þessa áhættu fyrir þann gamla flokk? Eða má hann bara vel við því að tapa enn fleiri stuðningsmönnum?!!!

Jón Valur Jensson.


Bloggfærslur 9. nóvember 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband