Hvernig dettur Silfur-Agli í hug að kalla Baldur Þórhallsson til sem óháðan álitsgjafa um "Evrópustofu"?!

Baldur er margmilljóna-styrkþegi Evrópusambandsins, vissi Egill það ekki?

Baldur gerir sér alveg grein fyrir því, að það er grafalvarlegt mál fyrir hans auma málstað og ESB, að hinni rangnefndu Evrópustofu verði lokað.

Þess vegna komst hann úr jafnvægi í örvæntingarfullri viðleitni til að réttlæta þessa forsmán, Evrópusambands-áróðursskrifstofurnar BÁÐAR, í Reykjavík og á Akureyri (þótt jafnan tali hann um fyrirbærin í eintölu). 

Hann lætur eins og Þorvaldur Gylfason, að þetta sé blásaklaust fyrirbæri, til að "miðla fróðleik" eins og Þ.G. kallar það með typical understatement manns með refslegan málstað. Samt er hér um 230 milljóna króna áróðursbatterí að ræða, vafalaust í margs konar myndum og ekki farið að sjást enn til sumra þeirra, en áhlaup verður eflaust gert á sannfæringu Íslendinga, þegar úrslitabaráttan nálgast um fullveldi landsins.

Hrólfur Þ. Hraundal  ritaði þennan sunnudag á fróðlegri vefslóð ESB-samtaka:

  • Hérna trompaðist vinstraliðið útaf styrkjum sem einhverjir þingmenn og stjórnmálaflokkar fengu frá innlendum fyrirtækum. 
  • En svo ef það er styrkur frá guðunum í Brussel þá er það allt í lagi. Skyldi Samfylkingin hafa borgað sinn styrk til baka, eða er hún á fóðrum frá Brussel?

Ekki hefur frétzt af því, að Samfylkingin hafi borgað sína ofurstyrki frá stórfyrirtækjum til baka, en Valhöll var látin gera það og hreinsaði sig þar með af vissum óhreinindum og framhaldandi ásökun, en það er undarlegt, að Fréttastofa Rúv sleppir alveg Samfylkingu við slíkri ásökun og eftirfylgd.

Nú má jafnvel óttast, að Evrópusambandið gæti séð tækifæri í að dæla peningum í þetta sítrygga flokksræksni, alveg eins og það dælir fé í Evrópufræðamiðstöð Eiríks Bergmanns Einarssonar í Bifröst og Jean Monnet-prófessorsembættið hans Baldur Þórhallssonar í Alþjóðastofnun Háskóla Íslands, fyrir utan eins konar mútugjafaviðleitni Brusselmanna, sem rennur til stofnana eins og Háskólans í Reykjavík og alls kyns verkefna, sem ESB-borgurum býðst að standa undir með sköttum, en ekki að fá sjálfir. Það er nefnilega verið að reyna að ná Íslandi inn og það markmið margyfirlýst, bæði í Brussel og í voldugustu ESB-löndum.

Svo eru það allir verkefnastyrkirnir til einstaklinga, sem minna heyrist um.

Í því samhengi virðist sem minna þurfi Egil Helgason á ESB-styrki til Baldurs Þórhallssonar, ESB-afsakanda og áróðursmanns (hann hefur beitt sér þannig í Fréttablaðinu o.fl. fjölmiðlum).

Um Baldur, sjá: 7,5 milljóna Esb-maður leysir af Esb-konuna Jóhönnu á Alþingi og: Baldur Þórhallsson stundar blekkingariðju; og þetta: Baldur Þórhallsson ESB-Monnet 7,5 millj. kr. prófessor fegrar ESB!; sbr. einnig hér: ESB-postuli, Jón Steindór Valdimarsson, hagsmunatengdur frambjóðandi til Stjórnlagaþings.

Einn styrkþeginn enn var svo tíu ESB-milljóna Árni Þór Sigurðsson, sem Steingrímur J. (ESB-meðvirkur) treysti til að verða formaður utanríkismálanefndar Alþingis! 

Jón Valur Jensson. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Var það ekki þessi Baldur Þórhallson sem fullyrti að aðildarviðræður tæju ekki nema 3 mánuði, frá þeim tíma er umsögn væri lögð fram?

Hvernig er hægt að taka mark á manni sem er svo langt utan raunveruleikans?

Gunnar Heiðarsson, 4.3.2013 kl. 07:53

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hann Baldur Þórhallsson sýnist ráða ríkjum í umræðunum í Silfrinu,það er ósköp að sjá þennan Esb,launamann. Egill mætti nú bjóða manni með jafn mörg “elostig”frá Sjálfstæðisflokknum,en kannski náði hann ekki í annan eins og þennan unga óvanan í þessum yfirgangi.Mál til komið að gefa þessari klækjastjórn ævilangt frí.

Helga Kristjánsdóttir, 5.3.2013 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband