Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2015

Nýjustu yfirskinsrök ESB-inntökusinnans

Kænn skriffinnur Fréttablaðs, Andrés Pétursson, hefur predikað árum, ef ekki áratugum saman, það sem í reynd er innlimun í ESB, þar sem við réðum jafn-miklu og heimiliskötturinn í húsi okkar. Vitaskuld liggur sá áhugi hans að baki þessari útsmognu grein hans í Fréttablaði dagsins: að vilja halda umsóknar­málinu opnu á næstu árum fyrir tilkippilega landsölu­flokka á Alþingi, en hér undir því yfir­skini, að við þurfum á þessu að halda gagnvart Norðmönnum!

Innlimunarhugsjón hans er að sjálfsögðu frágangssök gagnvart því að taka mark á slíkum málsvara stórveldis, sem ítekað hefur reynzt fjandsamlegt okkur, var það eindregið í Icesave-málinu með alls kyns þrýstingi (líka í EFTA-réttinum, þar sem þessir ranglætismenn þó töpuðu!) og felldi meira að segja einhuga sinn prívat-áfellisdóm yfir okkur í því máli í "gerðardómi" síðla hausts 2008, þar sem fulltrúar framkvæmdastjórnar ESB, Seðlabanka (ESB)Evrópu og ESB-dómstólsins áttu sína fulltrúa, en Árni Mathiesen, ráðherra okkar, hafði vit á að skipa EKKI Íslending í þann stórhættulega "gerðardóm".

Eins hefur ESB beitt sér af hörku gegn okkur í makrílmálinu, og við hefðum ekki haft okkar yfir 100 milljarða tekjur af þeim fiskveiðum, ef við hefðum verið í þessu stórveldabandalagi.

Og þá er það þessi óþurftar-EES-samningur, sem gaf ævintýramönnum færi á útrásinni og var í raun það helzta sem olli okkar bankahruni. Undirritaður er fjarri því að vera einn um að vilja að við segjum upp þeim samningi, en í þessari útsmognu grein Andrésar, þar sem hann uppteiknar "samninga­viðræður" við Evrópusambandið sem björgunarhring fyrir okkur til að þurfa ekki að lúffa fyrir Norðmönnum vegna greiðslna til fátækra ESB-landa, þar ber hann því þó sjálfur vitni, að það er þetta sama Evrópu­sam­band sem er SJÁLFT að krefjast 6 og hálfs milljarðs króna af okkur í þessa hít í Austur-Evrópu, sem kemur okkur hreint ekkert við! 

Aldrei hefur sézt nein reikningsúttekt á meintum hag okkar af EES-samn­ingn­um, og ljóst er reyndar að í tengslum við bóluárin og hrunið og afleið­ingar þess töpuðum við GÍGANTÍSKT á honum. Því segja nú margir ekki aðeins: Niður með ESB-umsóknina, heldur einnig: Burt með EES-samninginn, og skoðum svo Schengen-samninginn líka! (sbr. frétt af ummælum Frosta Sigurjónssonar o.fl nú í vikunni).

Jón Valur Jensson.


Maðurinn, sem margbraut stjórnarskrána, kastar grímunni, boðar "eld og brennistein"!

ÖSSUR þverbraut 16.–19. gr. stjórnarskrár* um að þingsályktunartillögu um mikilvægt stjórnarmálefni skuli bera upp fyrir forseta í ríkisráði. Í staðinn rauk Össur út með hana og tvíafhenti Evrópusambandinu í ofurkátínu sinni.

Samt segir skýrum stöfum í 19. gr. stjórnarskrárinnar: "Undirskrift forseta lýðveldisins undir löggjafarmál eða stjórnarerindi veitir þeim gildi, er ráðherra ritar undir þau með honum." Þetta hefur Össur Skarphéðinsson ekki þorað að leggja út í, að bera tillöguna undir forsetann, enda hefði hann verið líklegur til að vilja fyrst leita álits þjóðarinnar um málið, ólíkt ráðherrum Jóhönnustjórnar, sem felldu tillögur um slíkt. En vegna þessarar stjórnarskrár-óhlýðni ráðherrans og vinstri stjórnarinnar hefur forsetinn aldrei undirritað þingsályktunartilöguna um að sækja um inngöngu í ESB. Hún hefur sem sé, samkvæmt 19. greininni, EKKI gildi.

Nú hótar Össur "eldi og brennisteini", ef eða þegar væntanleg tillaga um að slíta formlega þessu ferli öllu verður lögð fram af ríkisstjórninni!

Esb-Fréttablaðið segir í dag á forsíðu með augljósri velþókknan frá þessum hótunum Össurar um að mæta tillögunni með eldi og brennisteini – nú skal það, sem hingað til hefur verið stundað með lymskunni á mörgum sviðum (ramm­hlutdrægum síbylju-gervifréttaflutningi, m.a. á sjálfri fréttastofu Ríkis­útvarps­ins, og með herkvaðningu til Samfylkingarmanna að mæta á sífellt fámennari útifundi), verða framkvæmt grímulaust og með hávaðalátum sem vel fjármögnuð árásarstefna ein getur megnað. Þjóðin sjálf vill hins vegar ekki fara inn í þetta Evrópusamband og hefur aldrei viljað síðan Össur laumaðist út með sína ógildu þingsályktunartillögu árið 2009! Það sýna allar skoðanakannanir síðan þá; sbr. og hér neðar.

Fréttablaðið, sem var í stjórnarSAMstöðu með afleitlega vanhæfri ríkisstjórn Steingríms og Jóhönnu, er nú í bullandi stjórnarandstöðu. Eftir því er allur málflutningur blaðsins í dag, vitnað t.d. í ónafngreinda "heimildarmenn innan Sjálfstæðisflokksins" sem "hafa sumir hverjir talið litla þörf á framlagningu" tillögunnar, sem vænzt er frá Gunnari Braga utanríkisráðherra; sést lítilvægið í "rökum" Fréttablaðsins t.d. í þessari framhaldssetningu: "Ljóst sé að hún muni taka tíma frá öðrum málum á Alþingi og tíminn til þingfrestunar naumur"! ––En hingað til hefur öllu verið borið við til að tefja það að þessi langþráða tillaga komi fram frá utanríkisráðherra og ríkisstjórn, alls kyns smámál og nú síðast kjarasamningar sem þó fóru ekki fram á Alþingi!

Hér á þjóðin ekki í höggi við einhverja stjórnarandstöðu, sem þekkir sín takmörk og virðir þingræðið, heldur við þá sem bíta í skjaldarrendur og hóta eldi og brennisteini, ef þeirra óskhyggja og kröfufrekja nær ekki fram að ganga.

Ný skoðanakönnun. Af þeim, sem tóku af­stöðu í nýrri könn­un MMR, eru (að frátöldum hlutlausum og óákveðnum) 59,3% and­víg því að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­bandið, en 40,7% hlynnt því að Ísland gangi í sam­bandið.

* 16.–19. gr. stjórnarskrár Lýðveldisins Íslands hljóða þannig: 

  • 16. gr. Forseti lýðveldisins og ráðherrar skipa ríkisráð, og hefur forseti þar forsæti.
  •  Lög og mikilvægar stjórnarráðstafanir skal bera upp fyrir forseta í ríkisráði.
  • 17. gr. Ráðherrafundi skal halda um nýmæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni. Svo skal og ráðherrafund halda, ef einhver ráðherra óskar að bera þar upp mál. Fundunum stjórnar sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis, og nefnist hann forsætisráðherra.
  • 18. gr. Sá ráðherra, sem mál hefur undirritað, ber það að jafnaði upp fyrir forseta.
  • 19. gr. Undirskrift forseta lýðveldisins undir löggjafarmál eða stjórnar­erindi veitir þeim gildi, er ráðherra ritar undir þau með honum.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Færri andvígir inngöngu í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hneyksli á Fréttablaðinu

Annaðhvort er ritstjóri Esb-Fréttablaðsins vísvitandi að skrökva að þjóðinni eða ævintýralega fáfróður, þegar hann ritar í leiðara:

  • "Segja má að þeir sem harðast sækja að ríkisstjórninni, um að hún fari á móti straumnum og dragi umsóknina til baka, séu sama fólk og á mestra hagsmuna að gæta í að kvótalögin breytist sem minnst, og helst ekkert."

Það er ófyrirleitni að birta svona tilhæfulausar dylgjur, eins og Sigurjón M. Egilsson gerði í morgun. Hvernig getur hann til að mynda bendlað okkur félagana í Samtökum um rannsóknir á Evrópusambandinu og tengslum þess við Ísland (samtökum sem halda úti þesari vefsíðu, Fullveldisvaktinni) við einhverja eiginhagsmunagæzlu í kvótamálum?! Þar eru engir kvótahafar (en þó einn trillukarl, nægir hann kannski SME til að "sanna" sitt mál?!).

Sigurjón á að birta afsökunarbeiðni í blaði sínu STRAX í fyrramálið. Það er fjöldinn allur af þjóðhollum mönnum, sem er því fylgjandi að draga þessa Össurarumsókn til baka, stór hluti þjóðarinnar.*

En er Sigurjón M. Egilsson með þessum orðum sínum hugsanlega að þjóna vilja Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eiginmanns eiganda 365? – Það er ástæða til að spyrja, því að JÁJ er einmitt yfirlýstur ES-sinni.

* Af þeim, sem afstöðu taka meðal aðspurðra í nýrri Capacent Gallup-könnun fyrir ESB-samtökin "Já Ísland" (sic!), vilja 68% þeirra, sem styðja Sjálfstæðis­flokkinn, að umsóknin að Evrópusambandinu verði dregin til baka, en 85% þeirra, sem styðja Framsóknar­flokkinn, vilja að umsóknin verði dregin til baka (og þetta eru ekki kvótahafar!). ––Þessi afstaða stuðningsmanna ríkisstjórn­ar­flokkanna gefur því enga minnstu ástæðu til að efast um, að þeir geri rétt í því að flytja sem fyrst frumvarp um slíka afturköllun Össurar-umsóknarinnar frá 2009, umsóknar sem var reyndar beinlínis GRÓFT STJÓRNAR­SKRÁR­BROT, eins og sannað hefur verið hér á vefsetrinu og endurtaka má í frekari umræðum. 

Jón Valur Jensson.


Aðsent álit um val á forseta Íslands í næstu kosningum

Þarna er um fullveldismál að ræða: það verður að hafa mann á forsetastóli sem stendur vörð um fullveldi landins, sjálfstæði þings og þjóðar. Ólafur Ragnar Grímsson er sá eini af ráðamönnum okkar sem hefur tekið af skarið um að ofurselja ekki æðsta framkvæmda- og löggjafarvald okkar til Evrópusambandsins.

Fjölnismenn og Jón forseti mótuðu grunninn að sjálfstæði landsins, og við núverandi aðstæður, meðan Evrópusambandsmál eru ekki til lykta leidd, ber nauðsyn til að styðja Ólaf Ragnar Grímsson áfram til kjörs sem forseta þjóðarinnar.

Fengið frá og birt með leyfi Jóns Hagbarðs Knútssonar guðfræðings.


Full ástæða til að draga ólögmæta umsókn Össurar strax til baka - Gunnar Bragi gæti sóma síns!

Af þeim, sem afstöðu taka meðal aðspurðra í nýrri Capacent Gallup-könnun fyrir ESB-samtökin "Já Ísland" (sic!), vilja 68% þeirra sem styðja Sjálfstæðis­flokkinn að umsóknin að Evrópusambandinu verði dregin til baka, en 85% þeirra sem styðja Framsóknarflokkinn vilja að umsóknin verði dregin til baka.

Þetta gefur því enga ástæðu til að efast um, að ríkisstjórnarflokkarnir gera rétt í því að fylgja eftir stefnu flokksþinga sinna, í fullu umboði flokksfulltrúa, og flytja sem fyrst frumvarp um slíka afturköllun Össurar-umsóknarinnar, sem var raunar gróft brot gegn 16.–19. gr. stjórnarskrár lýðveldisins.

Öll tregða og lufsuháttur af hálfu utanríkisráðherra í þessu máli mun vinna gegn honum meðal kjósenda í næstu kosningum. Flytjist hann til Brussel á hæstu ofurlaunum, verður það honum til ævarandi skammar.

Jón Valur Jensson.


mbl.is „Málið hjá utanríkisráðherra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband