Bloggfćrslur mánađarins, desember 2014

Mađur ársins í Bretlandi er Nigel Farage, segir virtasta blađ landsins

Hann er leiđtogi Brezka sjálf­stćđis­flokks­ins (UKIP) sem hef­ur stóraukiđ fylgi sitt á ţessu ári og á nú fulltrúa í House of Commons.

  • Helsta stefnu­mál flokks­ins er ađ Bret­ar yf­ir­gefi Evr­ópu­sam­bandiđ en flokk­ur­inn hef­ur einnig kallađ eft­ir strang­ari inn­flytj­enda­lög­gjöf. (Mbl.is)

Ađ The Times hef­ur út­nefnt Fara­ge sem mann árs­ins, er mikil tíđindi og góđ fyrir ţá, sem vilja stefna frá Evrópusambandinu fremur en inn í ţađ.

Farage er einn skemmtilegasti og litríkasti frambjóđandinn í Bretandi:

Nigel Farage says he will stand for parliament in 2015

Kostulega góđar eru rćđur hans á ESB-ţinginu í Strassborg og Brussel. Og ţađ er alltaf stutt í léttleikann og gamansemina, rétt eins og snilldar-skarpleikann. "I must be big – I now need bodyguards!" voru orđ hans eftir góđan árangur í kosningum voriđ 2013 ––> http://www.thesundaytimes.co.uk/sto/news/Politics/article1265163.ece

Hér komast menn í ýmis myndbönd međ honum: 

https://www.youtube.com/results?search_query=Nigel+Farage

Jón Valur Jensson.


mbl.is Nigel Farage mađur ársins
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Enn hafnar yfirgnćfandi meirihluti Norđmanna inngöngu í Evrópusambandiđ

Tvćr nýjar kannanir stađfesta ţetta. Í könnun Verdens Gang eru 72% ţeirra, sem afstöđu tóku, and­víg, en 28% hlynnt inngöngu. Í annarri fyr­ir dag­blađiđ Nati­on­en eru 74% á móti inn­göngu í ESB, en 16,8% henni hlynnt.

  • "Fram kem­ur í frétt­inni [frá Verdens Gang] ađ meiri­hluti kjós­enda allra stjórn­mála­flokk­anna sem sćti eiga á norska ţing­inu hafni inn­göngu í sam­bandiđ."

Gleđilegt ađ Norđmenn eru glađvakandi í ţessum efnum og láta ekki seiđa sig inn í Brussel-björgin, ţótt margir svikulir í stjórnmála­stéttinni megi naumast vatni halda af hrifningu yfir öllu stórveldis­apparatinu –– og háu laununum hjá starfs­mönnum ţess í Brussel. ––jvj.


mbl.is Norđmenn andvígir inngöngu í ESB
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Góđ samkoma Heimssýnarfólks

Góđur var fundurinn í Heimssýn, samtökum sjálfstćđissinna í Evrópumálum, ađ kveldi 1. desember, og er full ástćđa til ađ hvetja sem flesta til ađ sćkja ţćr öflugu samkomur. Dr. Atli Harđarson flutti ađalerindi kvöldsins, einnig töluđu Jón Bjarnason og Halldóra Hjaltadóttir, auk ţriggja söngsveita sem héldu uppi afar góđri stemmingu sem endađi loks međ fjöldasöng. Fríar veitingar voru á stađnum ađ vanda. Ţollý Rósmundsdóttir var fundarstjóri og ađalskipuleggjandi ţessarar samkomu sem tókst međ ţvílíkum ágćtum.  ––jvj.


Hylling 1. desember, í ljóđi eftir Jón frá Ljárskógum

 

       F U L L V E L D I Đ    T V Í T U G T       Íslenski fáninn

 

      Hann gnćfir úr daganna fábreyttu fylking

      fullur af gleđi, bjartur af sól

      1. desember –– fagnađardagur

      fátćkrar ţjóđar viđ norđurpól.

      Í dag er bjart yfir byggđum Íslands.

      Hver barmur svellur af djarfri ţrá,

      og vonanna glćstu svanir svífa

      á sólgeislavćngjum um loftin blá.

 

      Hann er heiđur á svip, ţessi hátíđisdagur,

      svo ađ hugirnir fyllast af sumaryl,

      hann ljómar sem viti í skammdegisskugga,

      hann skín eins og leiftur í vetrarins byl,

      hann er ráđning á fólksins fegursta draumi

      um framtíđargiftu ţjóđar og lands,

      hann er langţreyđ fullnćging frelsisţránni,

      sem felst í brjósti hvers íslenzks manns.

 

      Í dag er horft yfir sögunnar síđur:

      ţar sviptast um völdin húm og skin

      og ýmist leikur ţar ćđandi stórhríđ

      eđa angandi vorblćr um frónskan hlyn.

      Ţar skiptast á glađir og tregandi töfrar

      hins talađa orđs og hins slungna ljóđs

      og ţar eru líka letrađir kaflar

      logandi feiknstöfum elds og blóđs.

 

      Ţar lítum vér baráttu lítillar ţjóđar

      viđ lífskjör, sem oft voru döpur og ströng

      í styrjöld viđ eldgos, hafís og hríđar,

      hungur og klćđleysi, nauđir og ţröng,

      –– fólk, sem í barnslegri fávizku seldi

      frelsis síns dýrgrip erlendri hönd,

      fólk, sem örmagna í fjötrum stundi,

      en fékk ekki slitiđ harđstjórans bönd.  

 

      Í dag er hún hyllt, hin frćkna fylking,

      svo framgjörn, svo djörf, svo íturglćst,

      sem undir frelsisins merkjum mćttist,

      og menningu Íslands lyfti hćst.

      Ţessi heiđríki dagur geislandi gleđi,

      sem gaf oss hin liđna tíđ í arf,

      er helgađur ţessum hetjum Íslands

      í hljóđri ţökk fyrir unniđ starf.

 

      –– –– ––

      Hann gnćfir úr daganna fábreyttu fylking

      fullur af gleđi, bjartur af sól

      1. desember –– fagnađardagur

      fátćkrar ţjóđar viđ norđurpól. ––

      –– Ţá sameinast reynslunnar alda-arfur

      viđ ćskunnar stoltu fyrirheit

      og kynslóđir mćtast í handtaki hlýju

      frá hafi til hafs –– í borg og sveit.

 

 Jón Jónsson frá Ljárskógum var fćddur 28. marz 1914 og lézt ađeins 31 árs ađ aldri á Vífilsstöđum 7. október 1945. Ljóđ ţetta er úr bók hans Gamlar syndir og nýjar, Reykjavík: Helgafell, 1947, en fyrri bók hans var Syngiđ strengir, Rvík 1941. Ţjóđkunnur var hann ekki ađeins af ljóđum sínum, heldur og af söng sínum í MA-kvartettinum ástsćla, en stúdent var hann frá Menntaskólanum á Akureyri (1934), var um tíma viđ nám í guđfrćđideild Háskóla Íslands og kennari viđ gagnfrćđaskólann á Ísafirđi einn vetur, en varđ ađ lúta í lćgra haldi fyrir berklaveikinni. Aldarafmćlis hans var minnzt í Búđardal í marz síđastliđnum. –– Kona hans var Jónína Kristín Kristjánsdóttir frá Ísafirđi og sonur ţeirra Hilmar Bragi meistarakokkur. Ţetta ljóđ er birt hér međ góđfúslegu leyfi hans, og er okkur á Fullveldisvaktinni mikill heiđur ađ ţví. –JVJ.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband