Helmut Kohl mælir gegn því að skellt verði hurðum á Breta

Image result for Helmut Kohl  Ólíkt ýmsum Brussel­mönnum, sem brugðizt hafa ókvæða við BREXIT Breta, brýn­ir hinn aldni og vísi Helmut Kohl (Þýzka­lands­kanzl­ari 1982-98) leiðtoga Evr­ópu­sam­bands­ins til að sýna Bret­um ekki óþarfa hörku og þrýsta ekki of fast á þá eft­ir ákvörð­unina um að yf­ir­gefa sam­bandið. Hann hvetur þá til að „vinna ekki í of mikl­um flýti“ í kom­andi samn­ingaviðræðum við brezk stjórn­völd.

Kohl, sem barðist á tí­unda ára­tug síðustu ald­ar fyr­ir nán­ari sam­vinnu Evr­ópu­sam­bands­ríkja á sem flest­um sviðum, seg­ir í viðtal­inu að það yrðu „risa­stór mis­tök“ af hálfu Evr­ópu­sam­bands­ins að skella [hurð]­­um á Breta. Þjóðin þurfi tíma til þess að ákveða hver næstu skref séu.

Hann kall­ar jafn­framt eft­ir því að Evr­ópu­sam­bandið slaki nú á og taki „eitt skref aft­ur á bak áður en það tek­ur tvö skref fram á við“ á hraða sem sé viðráðan­leg­ur fyr­ir öll aðild­ar­rík­in. (Mbl.is)

Hann er hér greinlega málsvari málamiðlunar og skilnings og gott ef ekki hygginda, honum gezt ekki að þeirri hugmynd, að tækifærið verði nú notað til að láta kné fylgja gegn Bretum og fjarlægja Evrópu­sambandið enn meira frá þeim Evrópu­mönnum sem hafa viljað hægja á samruna­ferlinu eða leyfa ríkj­unum að endu­rheimta meira af sínu skerta fullveldi:

Í stað þess að stíga skref í átt til auk­inn­ar miðstýr­ing­ar ættu leiðtog­ar sam­bands­ins að hafa það í huga að aðild­ar­ríki sam­bands­ins séu mis­mun­andi, [segir Kohl] að því er seg­ir í frétt The Guar­di­an.

Hin sér­staka staða Bret­lands inn­an Evr­ópu­sam­bands­ins hafi ávallt verið erfitt og krefj­andi viðfangs­efni. Hún ætti hins veg­ar ræt­ur að rekja til sögu lands­ins. Virða þyrfti það. „Hún er líka hluti af fjöl­breyti­leika Evr­ópu,“ bætti hann við.

Virkjun 50. greinar Lissabonsáttmálans um útgöngu ríkis úr sambandinu getur tekið tvö ár og nægur tími til stefnu til að aðlagast hinum nýja veruleika. Engu að síður láta menn stóryrðin falla, eins og heyrzt hefur frá Brussel, Spáni og víðar að og sjá mátti á skrifum ýmissa álitsgjafa í Fréttablaðinu í morgun. Þá er gott að líta fremur til hins reynda manns, Helmuts Kohl, sem róar hér samherja sína og mælir gegn mestu öfgunum sem uppi hafa verið í röðum ESB-sinna. Dómsdagsspár þeirra eru ekki þumlungi nær sannleikanum en verstu spár Icesave-sinna á Íslandi árið 2009 -- spár sem aldrei rættust!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Sýni ekki Bretum óþarfa hörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Því meira sem ESB hatast við Bretann fyrir að vilja út, því meira sýna þau sitt rétta andlit fyrir okkur hinum, sem er gott, það sést með hverjum deginum eftir að bretar ákváðu að segja skilið við evrópusambandið sem meðlimir hvað það er í raun gott að vera ekki meðlimur, aðildarsinnar tala alltaf um hvað það sé lítið mál að segja skilið við sambandið ef þjóðir kysu en það er bara ekki raunin, það er verið að tala um að refsa bretum og hundsa þjóðaratkvæðagreiðsluna eða jafnvel kjósa aftur (allir sem hafa eitthvað kynnt sér ESB kannast nú við það, kjósa aftur og aftur og aftur þangað til að rétta niðurstaðan fæst fyrir ESB) og endaus áróður hversu vont þetta er fyrir bretland.

ESB er í raun að sanna það að eftir að maður er kominn inn þá er maður ekki á leiðinni út aftur allavegana ekki með góðu móti,því ef maður skyldi nú voga sér að segja upp áskriftinni í sambandið þá skuli sko refsa manni fyrir það af öllum þunga sem hægt er að finna.

Halldór Björgvin Jóhannsson, 1.7.2016 kl. 11:10

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka þér þetta innlegg og umræðuna, Halldór Björgvin. smile

Jón Valur Jensson, 1.7.2016 kl. 14:20

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

ESB er eins og roach motel (Kakalakagildra) they can check in, but they can't check out.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 2.7.2016 kl. 03:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband