Forsætisráðherra Ungverja segir gagnlaust að setja kvóta á hve marga flóttamenn ríki ESB taki að sér á meðan ytri landamæri Evrópu séu ótrygg. Svo lengi sem við getum ekki varið ytri landamæri Evrópu þá tekur því ekki að tala um hversu mörgum við getum tekið á móti, segir forsætisráðherrann, Viktor Orban. (Mbl.is segir frá.)
Þetta er háalvarlegt mál. Meðan NATO sá um varnir Vestur-Evrópu, ásamt herjum og landamæravörðum hinna einstöku ríkja, var unnt að standa gegn allri ásókn 5. herdeildar manna úr austri, að heitið gæti. Nú, með frjálsri för milli Schengen-landa -- fyrirkomulagi sem var sérstakt keppikefli Evrópusambandsins -- og niðurbroti (viðurkenndu m.a. af Andreu Merkel) á virkri landamæravörzlu á ytri landamærum Schengen-svæðisins, þá er Evrópa orðin galopin fyrir útsendurum hryðjuverkasamtaka jafnt úr suðaustri sem suðri, og er engin vöntun á þeim í veröldinni (al-Qaída, Hitzbollah, Islamic Jihad, Ríki islams, Boko Haram, al-Shabaab o.fl. samtök sem einskis svífast í fjöldamorðum).
Fylgismenn Evrópusambandsins hafa ranglega gumað af því, að sambandið hafi tryggt frið í Evrópu. Hafi það nokkurn tímann tekið að sér slíkt hlutverk, er ljóst, að það sinnir því engan veginn með því ástandi sem nú er upp komið, að fólk streymi eftirlitslítið inn á Schengen-svæðið svo að hundruðum þúsunda skipti. Sú hugsun, sem sækir á sum stjórnvöld (m.a. á nefnd um innflytjendamál hér á Íslandi), að hleypa megi inn í lönd þeirra fólki sem fargað hefur vegabréfum sínum, bætir sízt af öllu öryggið.
Með þessum pistli eru Samtök um rannsóknir á Evrópusambandinu og tengslum þess við Ísland ekki að mynda sér neina afstöðu til flóttamannavandamálsins eða gegn mannúðarstarfi. En sú "lausn" að opna ytri landamæri Schengen-svæðisins upp á gátt fyrir aðkomandi fólki, iðulega án vegabréfaskoðunar, rekst með berum hætti á varnarskyldur aðildarþjóða Schengen-samkomulagsins og tryggir því ekki varnir Evrópu gegn árásum utan og innan frá, heldur gerir þær þvert á móti líklegri en ella.
Þetta gerir flóttamenn vitaskuld ekki að hryðjuverkamönnum, en er þó þess háttar vanhugsuð ákvörðun, að hún opnar landamærin fyrir óvissum fjölda fjandmanna vestrænna samfélaga, mönnum sem auðveldlega geta misnotað sér frelsið til að lauma sér inn í Evrópu og framkvæmt þau ætlunarverk gegn saklausum borgurum, sem þeim eru lögð á herðar af foringjum sinna blóði stokknu hryðjuverkasamtaka.
VIÐAUKI: Hér er afar markverð ræða Nigels Farage, formanns UKIP í Bretlandi, þar sem hann minnist m.a. á Schengen-kerfið og kemur inn á það, að fjöldi þessa fólks verður fremur að kallast "economic migrants" heldur en "refugees". Orð forsætisáðherra Slóvakíu (sjá við 1 mín. 30 sek.) eru mjög athyglisverð í því efni: að 95% þessa fólks séu "economic migrants".
Jón Valur Jensson.
Smánarblettur á ímynd Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hermál, varnarmál | Breytt 10.9.2015 kl. 02:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)