Tapsár Benedikt Jóhannesson vildi að frændi sinn héldi sig við brot á flokksaga og flokksins stefnu

Það "loforð" Bjarna Ben., sem Benedikt frændi hans Jóhannesson sífrar yfir í Mbl.is-viðtali, var ekkert loforð sem formaðurinn gaf fyrir flokkinn, enda var flokkurinn með allt aðra stefnu. Bjarna hefði verið nær að halda sig skýrt við hana, en tala ekki með tungum tveim og sitt með hvorri. Hann hefði líka betur haldið sig við andstöðu flokkins við Icesave-samningana -- sér það jafnvel núna sjálfur. 

Stefna flokksins í ESB-málinu var mótuð á landsfundi hans 2013. Fáir hafa gert jafn-skýra grein fyrir henni og Sigríður Ásthildur Andersen í Mbl.-grein nú í vikunni. Landsfundur talaði skýrt nefnist greinin (20 febr.). Þar segir hún m.a.: 

  • Stefna Sjálfstæðisflokksins í málefnum Evrópusambandsins er ákaflega skýr. Hana mótaði síðasti landsfundur, æðsta vald í málefnum flokksins. Í fyrsta lagi er stefna Sjálfstæðisflokksins sú að Ísland gangi ekki í Evrópusambandið. Í öðru lagi, og það er mjög mikilvægt, tók landsfundur þá skýru ákvörðun að Sjálfstæðisflokkurinn vill að aðildarviðræðum verði hætt. Þótt slík stefna liggi auðvitað í augum uppi, fyrst flokkurinn vill að Ísland standi utan Evrópusambandsins, var mjög mikilvægt að landsfundur kvæði skýrt á um að aðildarviðræðum yrði hætt.
  • Landsfundur sagði meira
  • En landsfundur sagði ekki aðeins að aðildarviðræðum yrði hætt. Fundurinn gerði fleira og það skiptir einnig verulegu máli. Það var nefnilega lagt til, í upphaflegum drögum að ályktun, að stefna Sjálfstæðisflokksins yrði sú að gert yrði „hlé“ á aðildarviðræðunum. Því hafnaði landsfundurinn. Landsfundur beinlínis hafnaði þeirri tillögu að gert yrði hlé á viðræðunum og ákvað að stefna Sjálfstæðisflokksins væri þvert á móti sú að viðræðunum skyldi slitið. Það var í þessu samhengi sem fundurinn bætti því við að slíkar viðræður, sem þá skyldi búið að slíta, skyldu aldrei hafnar aftur án þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðaratkvæðagreiðslan var varnagli. Þannig er stefna flokksins auðvitað ekki sú að efnt skuli til atkvæðagreiðslu núna, um það hvort aðlögunarviðræðunum verði haldið áfram. Landsfundur, æðsta vald í málefnum Sjálfstæðisflokksins, tók af skarið. Viðræðunum skal einfaldlega slitið. Og að því búnu skal það tryggt að aldrei verði farið aftur í slíkar viðræður án þjóðaratkvæðagreiðslu.

Skyldi Benedikt, með allt sitt reikningsvit, í alvöru ganga illa að skilja þetta? Fór ekki frændi hans flatt á því að svíkja þjóðina í Icesave-málinu? Varð ekki flokkurinn að líða fyrir það, þótt enga sök bæri á þessari kúvendingu Bjarna? Hafði Icesave-sinninn Benedikt kannski náð að hvísla í eyra Bjarna Ben.?

Stundum eru frændur frændum verstir -- og á stundum formenn flokkum verstir. En Bjarni hefur gott tækifæri til að bæta sig. Var hann ekki að því í gær, eða eru síðan allt í einu einhverjar vöflur á honum og Gunnari Braga?

Við viljum fá hreinskiptni og skýrar línur, stjórnmálamenn sem tvínóna ekki við einbeittar ákvarðanir, slá ekki úr og í og stunda ekki tvöfeldni.

Jón Valur Jensson.


mbl.is „Það var búið að gefa loforð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. febrúar 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband