Ein versta útreið sem um getur ...

Menn ættu að lesa markverða samantekt Styrmis Gunnarssonar, sem er ekki lítill áfellisdómur yfir því sem virðist vofa yfir Alþingi á þessum nýbyrjaða þriðjudegi

Persónuverndarlöggjöf ESB: Ein versta útreið umsagnaraðila sem um getur

JVJ.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Þessi orð Styrmirs eru virkilega eitthvað sem Alþingimenn ættu að hugleiða áður en lengre er haldið. Athyglisvert eer hvernig Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar(hvernig náði hún þvi?) finnst sektarákvæðin verða að vera nógu há svo að hún geti notað þau almennnilega.

Halldór Jónsson, 12.6.2018 kl. 08:18

2 Smámynd: Halldór Jónsson

 Ætlið þið ekki að skora á forsetann að vísa þessu máli til þjóðarinnar ef þingið samþykkir þetta?

Halldór Jónsson, 12.6.2018 kl. 08:21

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jú, Halldór, ég hygg einsætt að samtökin ættu að gefa frá sér yfirlýsingu um það.

Jón Valur Jensson, 12.6.2018 kl. 13:03

4 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Hreint ótrúlegt ef alþingi ætlar að hleypa lögum í gegn sem Lömannafélag Íslands varar við að brjóti gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar. Alþingi á að fresta gildistöku laganna, ekkert annað er uppi á borðinu ef einhver virðing er borin fyrir áliti löglærðra manna.

Er ekkert að marka drengskaparheit alþingismanna við stjórnarskrá íslenska lýðveldisins? 

Gústaf Adolf Skúlason, 12.6.2018 kl. 20:22

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Sorgardagur, á annars gleðilegri stund er upp runninn. Bjálfarnir samþykktu. Allt tal um dásemd fullveldisins, sem hér eftir vellur um munnvik svikaranna verður léttvægt metið og í reynd þeim er þau ummæli leyfa sér af munni hnjóta til ævarandi skammar. Sjálfstæðisflokurinn hefur verið tekinn af lífi í beinni.

 Sleginn í svaðið af formanninum sjálfum og vafasömum meðreiðarsveinum. Megi þau lengi kauna sína sleikja. Stefna flokksins er skýr en forystan ekki einungis veik, heldur helsjúk, fjarlæg stefnunni sem aldrei fyrr og því fer sem fer. Stétt með stétt, þol ei órétt, horfið út í veður og vind. 

 Landsölufólk finnst greinilega á fleiri hliðum en þeim vinstri.

Halldór Egill Guðnason, 13.6.2018 kl. 02:37

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég þakka ykkur báðum þessi innlegg, Gústaf og Halldór Egill. Kann ég vel að meta hreinskilni manna og líka þegar djúpt er tekið í árinni að gefnu tilefni.

Styrmir Gunnarsson er einnig afar opinskár í grein sinni: 

Samþykkt Alþingis líkleg til að hafa pólitískar afleiðingar

Hann segir, að atkvæði þeirra, sem greiddu atkvæði með frumvarpinu, muni "elta þá, sem þá afstöðu tóku, lengi." 

Margir stuðningsmenn þeirra flokka munu spyrja, hvort þeim sem haga sér á þann veg, þegar sjálf stjórnarskráin er til umræðu sé treystandi fyrir öðrum hagsmunamálum þjóðarinnar,

segir Styrmir. Hann segir marga munu "undra af hve mikilli léttúð forystumenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og VG hafa haft að engu alvarlegar málefnalegar athugasemdir sem studdar hafa verið sterkum rökum þess efnis að um brot á stjórnarskrá lýðveldisins sé að ræða."

Greinilega sér Styrmir þetta sem tilefni þess fyrir marga í hans eigin Sjálfstæðisflokki til að hugsa sér til hreyfings varðandi það hvernig þeir kjósa næst:

Þingmenn Miðflokksins greiddu atkvæði gegn og það mun styrkja þann flokk til framtíðar. Þrír þingmenn Flokks fólksins sátu hjá og það mun sömuleiðis styrkja þá,

segir hann. Ekki er þó öll nótt úti enn í þessu þingmáli, því að tvennt er enn til ráða, í vörn þjóðarréttinda:

Þeir sem taka þessar málefnalegu athugasemdir alvarlega munu snúa sér að því að hvetja forseta til að grípa inn í og kanna jafnframt grundvöll fyrir málsókn.

Jón Valur Jensson, 13.6.2018 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband