Brugðumst við forseta Íslands? (Með viðaukum)

Herra Ólaf­ur gefur ekki kost á sér til end­ur­kjörs. Hann segir umsókn um aðild að ESB og  áform um grund­vallar­breyt­ingar á fullveldinu "hafa verið lögð til hliðar," en ÓVISSA ríkir einmitt um þessi atriði bæði! Evrópu­sambandið hefur þver­skallazt við að taka mark á bréfi Gunnars Braga utan­ríkis­ráðherra um að umsóknin sé dregin til baka, og hefur oft verið verðuglega gert gys að þeirri klaufalegu, illa frágengnu aðgerð ráðherrans, nú síðast í áramótaskaupi í gær.

Viljaleysi eða heigulsskapur stjórnarflokkanna við að standa við sínar stefnu­skrár um að segja þessari umsókn formlega upp, sem bezt er gert í Alþingi, eltir enn þessa ríkisstjórn á röndum, og hennar er samábyrgðin á því, að for­ingjar stjórnar­andstöð­unnar hafa lýst því yfir, að þeir telji umsóknina enn í gangi og að þeir geti bara haldið áfram með hana, þar sem frá var horfið, ef þeir komist aftur að völdum!

Raunar er það svo við frekari umhugsun þessara mála, að jafnvel virðist sem þetta kunni að hafa verið skipulagt sem leikflétta af ESB-hlynntra ráðherra hálfu: að reyna að kljúfa raðir fullveldis­sinna, sem sumir a.m.k. myndu falla fyrir leið Gunnars Braga ("bænarskrá" hans, eins og sumir hafa kallað upp­sagnarbréfið), enda fór það svo, að sumir ESB-andstæðingar fögnuðu þeirri aðgerð hans sem réttri og fullgildri og að hún losaði okkur við ESB fyrir fullt og allt, en aðrir fullveldissinnar sáu hins vegar í hendi sér, að þetta dugði ekki til og héldu áfram (þ.m.t. á þessum vef) að krefjast þess, að staðið yrði við að láta Alþingi segja upp Össurar­umsókninni, sem með refslegum brögðum Össurar og ósvífnum svikum Stein­gríms J. & Co. var laumað þarna í gegn árið 2009. En málið er sem sé enn í þessum afleita farvegi núverandi utanríkis­ráð­herra eða þeirra, sem véluðu hér um og gætu jafnvel staðið nær Brussel en Stjórnarráðinu.

Svo er ítrekað verið að reyna að skjóta inn í stjórnarskrána ákvæði um heimild til framsals ríkisvalds, en sá er draumur ESB-yfirráða-hlynntra manna eins og Þorvaldar Gylfasonar, Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, Benedikts Jóhannessonar, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, Össurar Skarphéðinssonar, Árna Páls Árna­sonar, Jóns Gnarr, Þóru Arnórsdóttur og trúlega Steingríms J. Sigfússonar, Svandísar Svavarsdóttur, Katrínar Jakobsdóttur, "Bjartrar framtíðar" og Pírata. Ekkert af þessu fólki er vert þess að treysta fyrir fullveldi Íslands.

Ákvæði um þessa framsals-heimild á fullveldis­réttindum er að veltast fyrir starf­andi stjórnar­skrár­nefnd, en ekki náðst full sam­staða í nefndinni um fyrir­liggjandi tillögur um stjórnar­skrár­breytingar, en einmitt í þessu máli er tillagan allt of lík tillögu hins ólög­mæta "stjórn­laga­ráðs" í 111. grein þess, tillögu sem gert hefði ESB-sinnum fært að hefja sókn í málinu, hvenær sem þeir sæju til þess bezt veðurútlit, en jafnframt bundið svo um hnútana (eins og í 67. grein tillagna "stjórn­laga­ráðs") að þjóðinni yrði meinað að krefjast þjóðar­atkvæða­greiðslu um úrsögn úr Evrópu­samband­inu með jafn-auðveldum og fljótvirkum hætti.

Forsetinn hefði þurft mest á því að halda, að menn styddu hann almennt í því á virkan hátt að bjóða sig aftur fram, meðan þessi mál bæði eru í raun hangandi í lausu lofti.

Það er lítil huggun í því, sem forsetinn orðar svo, að "allir flokkar á Alþingi heita því nú, að aldrei verði aftur lagt í slíka vegferð, nema þjóðin heimili það fyrst í sérstakri atkvæða­greiðslu." Stefnu­yfirlýsingar landsfunda Sjálfstæðis­flokks og Fram­sóknar­flokks vorið 2013 gengu EKKI út á slíka þjóðar­atkvæða­greiðslu áður en umsóknin yrði formlega dregin til baka, heldur út á hitt, að ef síðar meir kæmi upp tillaga um að sækja aftur um, skyldi hún borin upp í þjóðar­atkvæða­greiðslu, áður en Alþingi afgreiddi hana. En um þetta mál hafa margir, ekki sízt fjömiðlamenn á 365 miðlum og Rúv, reynt að villa um fyrir þjóðinni og herja um leið á þau heil­brigðu öfl í stjórnar­flokkunum, sem vildu afgreiða málið sem fyrst á Alþingi eftir kosningarnar 2013.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Býður sig ekki fram til endurkjörs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband